Morgunblaðið - 26.06.1997, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ1997 43
+ Aðalsteinn H.
Vígmundsson
fæddist í Alfsnesi á
Kjalarnesi 17. mars
1920. Hann lést á
Landspítalanum 16.
júni síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru Þórunn Jóns-
dóttir frá Laug í
Biskupstungum og
Vígmundur Pálsson
frá Eiði í Mosfells-
sveit. Aðalsteinn
var alinn upp hjá
föðurforeldrum
sínum, þeim Maríu
Sigurðardóttur og Páli Gests-
syni. Aðalsteinn átti tvö systk-
ini samfeðra, þau eru Ingunn
Vígmundsdóttir og Pálmar
Vigmundsson. Einnig átti hann
tvo uppeldisbræður þá Karl G.
Pálsson og Einar Pálsson, þeir
eru báðir látnir. Systkini hans
sammæðra eru Katrín Ketils-
dóttir, Sigríður Ketilsdóttir,
Greipur Ketilsson, látin eru
Hrefna Ketilsdóttir, Valdimar
Ketilsson og Bergur Ólafsson.
Hinn 17. maí 1941 kvæntist
Aðalsteinn Betu Guðjónsdóttur,
f. 11. september 1920, d. 5.
apríl 1964. Börn þeirra: 1) Örn
Pálmi, f. 30. mars 1941, d. 2.
júlí 1993. Fyrri kona Arnars
var Ólöf Stefánsdóttir, f. 15.
Núna ertu horfinn yfir til annars
heims, elsku afi minn. Ég á eftir að
sakna þess að geta ekki átt líflegar
samræður við þig um heima og
geima eins og vaninn var hjá okkur,
og finna kaffiilminn um leið og ég
vaknaði á morgnana þar sem þú
hafðir alltaf heitt á könnunni fyrir
okkur, og við spjölluðum á meðan
þú beiðst eftir að fá Kolla í pössun.
Þegar ég var lítill gutti byijaði þessi
siður hjá okkur þar sem þú bjóst
fyrir neðan okkur. Snemma á
morgnana vaknaði ég og fór niður
til þín þegar þú varst að fá þér
morgunmat og fékk mjólk með kaffi
í. Síðan eftir því sem ég varð eldri
þá minnkaði mjólkin og kaffið jókst.
Þú vannst alla þína tíð sem mjólkur-
bílstjóri og fékk ég oft að fara með
þér á mjólkurbílnum til Keflavíkur
og síðan, þegar ég var orðinn nógu
gamall, útvegaðir þú mér vinnu í
Mjólkursamsölunni og við vorum
saman á bíl þijú sumur þar sem við
kynntumst á annan hátt og urðum
mjög góðir vinir. Síðan fluttu
mamma og pabbi upp í Árbæ og þá
var mjög gott að geta komið til þín
í Eskihlíðina meðan ég var í eyðu í
skólanum og spjalla við þig.
Þegar þú fékkst síðan hjartaáfall-
ið fyrir tveimur árum spurðir þú
mig hvort ég væri til í að flytja niður-
eftir til þín í Eskihlíðina öryggisins
vegna, og fá aftur gamla herbergið
sem ég átti þegar ég bjó í Eskihlíð-
inni. Það var nú minnsta málið að
gera það og því flutti ég til þín.
Þetta kom okkur báðum vel þar sem
það varð styttra fyrir mig í skólann
og síðan var gaman fyrir þig að
hafa einhvern hjá þér. Það voru nú
margir sem sögðu að þetta myndi
nú ekki endast lengi þar sem við
værum báðir með ákveðnar skoðanir
á hlutunum en fyrir bragðið gerði
það umræður okkar skemmtilegri
°g þegar aðrir voru í heimsókn byij-
uðum við að atast í fólkinu þannig
að það hélt að himinn og jörð væru
að farast, en síðan hlógum við að
þessu þegar gestirnir voru farnir.
Þegar strákarnir komu svo í heim-
sókn fannst þér mjög gaman að tala
við þá og fíflast í þeim þannig að
það var eins og þú værir í raun einn
af þeim. Þar sem við vorum tveir
var það nú líka þannig að við skellt-
um okkur að borða í Múlakaffi eða
október 1942, þau
slitu samvistir.
Börn þeirra eru:
Arndís, sambýlis-
maður hennar er
Eyjólfur Þ. Eyjólfs-
son eiga þau þijú
börn; Stefán, sam-
býliskona hans er
Laufey Nabye, eiga
þau tvö börn. Eftir-
lifandi eiginkona
Arnar er Kristín
Waage, f. 28. nóv-
ember 1939. Börn
þeirra eru: Elísabet
og Helga. Sljúpsyn-
ir Arnar eru Matthías Waage,
sambýliskona hans er Bryndís
Sigmundsdóttir, eiga þau tvö
börn. Yngvi Árnason, á hann
tvö börn. Anna María, f. 3. mai
1950, gift Jóhanni Gunnarssyni,
f. 15. apríl 1948. Börn þeirra
Aðalsteinn, sambýliskona hans
er Harpa Sif Jóhannsdóttir, og
Gerður Beta, unnusti hennar
er Hilmar Örn Þórlindsson.
Aðalsteinn starfaði í 56 ár
hjá Mjólkursamsölunni í
Reykjavík, lengst af sem bif-
reiðarstjóri á Suðurnesin. Hann
sat lengi í trúnaðarmannaráði
Dagsbrúnar. Útför Aðalsteins
fer fram frá Háteigskirkju í
dag og hefst athöfnin klukkan
13:30.
eitthvað annað, og þú kaust nú held-
ur það hefðbundna þar til þú fékkst
til að smakka hitt og varðst að viður-
kenna að það væri nú ekki svo
slæmt. Síðan kynntist ég Hörpu og
hún flutti inn til okkar og var það
sennilega það besta sem gat komið
fyrir því þegar ég fór á sjóinn sem
vélstjóri þá hafðir þú einhvern til
að vera hjá þér og spjalla við. Síðan
komuð þið Harpa og Kolur að sækja
mig þegar ég kom í land. Og það
var sama sagan þegar Harpa fór
út til Saudi sem flugfreyja, þá fórum
við að sækja hana þegar hún kom
heim. Þetta var mjög gott því þegar
ég var á sjónum og Harpa úti í lönd-
um komst þú skilaboðum á milli til
okkar.
En síðan fékkst þú annað hjarta-
áfall og heilablóðfall og varðst að
fara á spítala. Þangað komum við
að heimsækja þig og þú varst allur
að hressast þannig að við fórum
fram á gang og fórum í kapp á hjóla-
stólunum þar sem Harpa ýtti þér
og ég fór í annan hjólastól og þið
unnuð. En síðan nokkrum dögum
seinna fékkst þú sýkingu sem varð
til þess að þú fórst, en við vorum
öll þar hjá þér þegar það gerðist,
það er eins og þú hafir vitað að þú
værir að fara þar sem þú vildir ekki
fara að sofa fyrr en allir voru komn-
ir til þín þó að við sæjum að þú
værir mjög kvalinn, en þegar allir
voru komnir róaðist þú og hvarfst
yfir móðuna miklu til ömmu og Össa
sonar þíns. En við sitjum eftir hér
og þú munt lifa í minningunni um
alla tíð hjá okkur öllum. Eg veit að
þú munt vaka yfir okkur og vernda
alla tíð. Guð blessi þig.
Þinn
Steini.
Það eru ekki allir svo lánsamir
að eiga afa sem þeir geta talað við
eins og einn af sínum bestu vinum.
Við afi erátum t.alað um allt. milli
himins og jarðar, enda var hann
ungur í anda og sýndi áhugamálum
mínum mikinn áhuga. þrátt fyrir að
hann væri mikill Framari lét hann
sig hafa það að mæta á leiki hjá
Val og hvetja okkur áfram. Enda
held ég að hann hafi verið orðinn
Valsari inn við beinið. Það eru ótal-
margar góðar minningar sem rifjast
upp á þessari stundu. Það var alltaf
gott að geta komið til afa í Eskihlíð-
ina, hann tók alltaf svo vel á móti
mér. Eftir að ég flutti í Árbæinn
átti ég þar alltaf samastað. Mér
fínnst það lýsa afa vel að hann
hringdi í mig einn daginn og spurði
hvort mig langaði ekki í hund, því
hann væri búinn að finna einn handa
mér. Ástæðan fyrir því var að hann
sjálfan langaði í hund. Daginn eftir
fórum við og sóttum Kol og urðu
þeir hinir mestu mátar. Það var
ósjaldan sem við fórum í bíltúra um
bæinn eða á kaffihús því afi var
alltaf tilbúinn að gera eitthvað
skemmtilegt með mér.
Elsku afi minn. Ég vil þakka þér
fyrir allar þær stundir sem við átt-
um saman. Minningin um þig mun
ylja mér um alia framtíð. Guð blessi
þig-
Þín
Gerður Beta.
Elsku Alli minn, mig langar til
þess að kveðja þig með örfáum orð-
um. Ég man þegar ég vaknaði í
fyrsta skiptið í Eskihlíðinni, þá fór
ég fram í eldhús og kynnti mig fyr-
ir þér. Þú tókst fram einn bolla úr
sparistellinu og bauðst mér upp á
kaffi. Við byijuðum að spjalla saman
og þegar Steini kom fram stuttu
seinna sá ég að hann var dálítið
hissa. Seinna um daginn sagði hann
mér að þú byðir ekki hverjum sem
er upp á kaffi úr sparistellinu. Þetta
var upphaf mjög sérstakrar vináttu
sem þróaðist milli okkar. Þegar ég
síðan flutti inn til ykkar í Eskihlíðina
þurfti ég nokkra daga til að átta
mig á ykkur tveimur. Þið höfðuð
alveg einstaklega gaman að því að
espa hvor annan upp í þykjustudeil-
ur. Þá var ég áhorfandinn og þið
settuð á svið hálfgert leikrit, þar sem
þið þóttust vera að deila voða mikið
um hluti sem skiptu nánast engu
máli. Þetta var alveg snilldarlega
gert hjá ykkur og var þetta daglegt
brauð í Eskihlíðinni. Ég hafði alveg
yndislega gaman af, enda sakna ég
þessara stunda mjög.
Haustið 96 ákvað ég svo að drífa
mig í Háskóla íslands. Þegar við
Steini vöknuðum í skólann á morgn-
ana varst þú alltaf kominn á fætur
löngu á undan okkur, enda kom
maður alltaf inn í notalega heitt eld-
húsið snemma á morgnana þar sem
ilmurinn af nýlagaða kaffinu tók á
móti manni. Þú varst fljótari að læra
stundatöfluna mína utan að heldur
en ég sjálf. Því alltaf þegar ég kom
heim úr skólanum varstu nýbúinn
að hella upp á og jafnvel kaupa
handa okkur eitthvað úr bakaríinu
og við gátum setið inni í eldhúsi
heilu stundimar og spjallað og spjall-
að. Mér fannst einhvern veginn eins
og ég hefði eignast nýjan afa. Okk-
ur þremur kom vel saman á alveg
einstakan hátt. Á góðviðrisdögum
fórum við í skemmtilega bíltúra nið-
ur að höfn og um gamla bæinn og
þú sýndir okkur æskustöðvarnar þin-
ar. Manstu þegar Steini keypti
handa þér trúðaísinn?
Mér finnst ég, þegar ég hugsa til
baka, hafa þekkt þig frá því ég var
lítil teipa, en ekki í rúmt eitt og
hálft ár. Elsku AIli minn, ég þakka
þér fyrir allar þær góðu og skemmti-
legu en alltof fáu stundir sem við
áttum saman. Guð geymi þig.
Harpa Sif Jóhannsdóttir.
Marmari ♦ Granít ♦ Blágrýti ♦ Gabbró
íslensk framleiðsla
AÐALSTEINNH.
VÍGMUNDSSON
þá að við fórum og fengum okkur
kjúklingabita „löpp“ þar sem venjan
var að ef ég eldaði eitthvað, þá varð
ég að elda tvöfalt þar sem þér leist
nú ekki alltaf á það hvernig ég gat
breytt venjulegum íslenskum mat í
Sendum MOSAIK
myndalista
Hamarshöfði 4 - Reykjavik
simi: 5871960 -fax: 5871986
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, fóstur-
faðir, sonur, tengdasonur og bróðir,
ÁGÚST KARL GUÐMUNDSSON,
til heimilis
á Leynisbraut 6,
Grindavík,
lést af slysförum þriðjudaginn 24. júní sl.
Þórdís Gunnarsdóttir,
Kristín Karlsdóttir,
Bára Karlsdóttir,
Jenný Lovísa Arnardóttir,
Guðfinna Óskarsdóttir,
Guðmundur fvarsson,
Þórdís Þorbergsdóttir,
Gunnar P. Guðjónsson,
og systkini.
+
Elskulegur eiginmaður minn og faðir okkar,
JÓHANN GEORG MÖLLER,
Laugarvegi 25,
Siglufirði,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur miövikudaginn
25. júní.
Helena Sigtryggsdóttir,
Ingibjörg Möller,
Alda Möller,
Jóna Möller,
Kristján L. Möller,
Alma D. Möller.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
ÁSGERÐUR BJARNADÓTTIR,
Giljalandi 33,
andaðist á Sjúkrahúsi Reykjavíkur að kvöldi
mánudagsins 23. júní.
Þorsteinn Jakobsson,
Unnur Þorsteinsdóttir, Bjöm L. örvar,
Bjarni Þorsteinsson, Annetta A. Ingimundardóttir,
Haraldur S. Þorsteinsson, Ingunn Hansdóttir,
Jakob F. Þorsteinsson, Vanda Sigurgeirsdóttir
og barnabörn.
t
Sambýlismaður minn, faðir okkar og fóstur-
faðir,
EINAR JAKOB ÓLAFSSON
múrarameistari
frá Sigiufirði,
Snælandi 3, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju föstu-
daginn 27. júní kl. 10.30.
Þeim, sem viljast minnast hans, er vinsamlegast bent á Heimahjúkrun
Krabbameinsfélagsins.
Fyrir hönd tengdabarna, barnbarna og barnabamabarna,
Helga Sigtryggsdóttir,
Ólafur Óskar Einarsson,
Sigríður Einarsdóttir,
Garðar Einarsson,
Sigurður Stefánsson.
t
Elskulegur eiginmaður minn, faöir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
HALLUR HERMANNSSON,
Dvergabakka 36,
Reykjavlk,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstu-
daginn 27. júní kl. 15.00.
Þeim, sem vildu minnast hans, er vinsamlega
bent á Landssamtök hjartasjúklinga.
Sigurveig Halldórsdóttir,
Haukur Hallsson,
Stefán Skaftason,
Halldór Skaftason,
Gyða Thorsteinsson,
Rósa Thorsteinsson,
Elín Ragnarsdóttir,
Sigrlður R. Hermóðsdóttir,
fna Gissurardóttir,
Sveinn Þorláksson,
Ámi Björnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.