Morgunblaðið - 26.06.1997, Síða 49

Morgunblaðið - 26.06.1997, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ1997 49 FRETTIR Búnaðarbankinn úthlutar 12 námsstyrkjum FREMSTA röð: Sveinn Jónsson frá Búnaðarbankanum, Þórður Kristleifsson frá BÍSN, Sveinbjörn Björnsson rektor HÍ, Aðal- steinn Leifsson frá SÍNE og Haraldur Eiðsson frá SHI. Mið- röð: Ásdís Hermannsdóttir f.h. Áslaugar S. Árnadóttur, Agnes Agnarsdóttir, Sjöfn Gunnarsdóttir, Rósa Jónasardóttir, Katrín María Þormar, Karen Júlía Júlíusdóttir og Björg Pjetursdóttir. Efsta röð: Aðalbjörn Þórólfsson, Einar Gunnar Guðmundsson, Gunnlaugur Karlsson, Einar Jónsson og Erlingur Erlingsson. AFHENDING námsstyrkjatil félaga í Námsmannalínu Búnaðarbankans fór fram 16. júní sl. Er þetta í sjö- unda sinn sem slík úthlutun fer fram. Að þessu sinni voru veittir 12 styrk- ir, hver að upphæð 125.000 kr. Veittir eru útskriftarstyrkir til nema við Háskóla íslands og íslenska sér- skóla, auk námsstyrkja til náms- manna erlendis. Námsstyrki hlutu eftirfarandi: Einar Gunnar Guðmundsson sem lauk BS-prófi í líffræði frá Háskóla íslands. Hann hefur einnig lagt stund á tónlistarnám hér heima og erlendis. Karen Júlía Júlíusdóttir sem lauk námi í hjúkrunarfræði frá Háskóla Islands. Katrín María Þormar útskrifaðist úr læknisfræði frá Háskóla ísiands. Samhliða námi í læknisfræði tók hún B.Sc.-próf í rannsóknarverkefni tengdu erfðafræði kransæðasjúk- dóma. Rósa Jónasardóttir sem lýkur námi í viðskiptafræch til Cand.Oec- on.-prófs frá Háskóla íslands í haust. Kjörsvið hennar eru fjármál og við- skiptatungumál. Sjöfn Gunnarsdóttir en hún lauk námi í kennslufræði til kennslurétt- inda frá Háskóla íslands en á sl. ári lauk hún BS-prófi í lífefnafræði. Hún hefur fengið inngöngu í University of Wisconsin - Madison þar sem hún stefnir á Ph.D.-gráðu í eiturefna- fræði. Björg Pjetursdóttir sem lauk BA- prófi úr textíldeild Myndlista- og handíðaskóla ísiands. Björg hefur tekið þátt í ijölda sýninga og sam- keppna í textíliðnaðinum. Gunnlaugur Karlsson lauk í vor BS-námi í útflutningsmarkaðsfræði frá Tækniskóla íslands. Áður hafði Gunnlaugur lokið iðnrekstrarfræði af markaðssviði frá sama skóla. Aðalbjörn Þórólfsson sem lauk DEA-námi í plasmaeðlisfræði frá Université Pierre et Marie Curie í París. Áður hafði hann lokið meist- aranámi í eðlisfræði við sama skóla. Hann stundar nú doktorsnám í plasmaeðlisfræði í París. Agnes Agnarsdóttir sem er á lokaári í dokt- Umhverfis- mál og mál- efni fatlaðra á fræðslu- dögum í Sól- heimum EFNT var til fræðsludaga á Sólheim- um í gær og í dag. I gær kynnti Linda Joseph, ráðgjafi í málefnum vistrænna byggðahverfa, Manitou- stofnunina, Colorado, Bandaríkjun- um. Linda Joseph er framkvæmda- stjóri Manitou-sjóðsins og Manitou- stofnunarinnar í Colorado-fylki í Bandaríkjunum. Hún er ráðgjafi á Crestone/Baca-svæðinu þar sem um 600 manns búa og hafa fengið út- hlutað landsvæði til að hefja lífræna ræktun, vinna með endurnýjanleg- um orkugjafa og forma lífsstíl sem fellur að hringrásum náttúrunnar. Manitou-stofnunin er aðili að al- þjóðasamtökunum Global Eco-vill- age Network. í dag kl. 17 mun dr. Ernestine E. Cormany kynna skipulag málefna fatlaðra (þroskaheftra) í Bandaríkj- unum. Ernestine lauk doktorsnámi við Nove Southeastern-háskólann í Fort Lauderdale, Flórída, og fjallaði rit- gerð hennar um „Enhancing Servic- es for Toddlers with Disabilities: A Reverse Mainstreaming Inclusion Approach". Ernestine hefur undanf- arin ár starfað sem „Vice-President orsnámi í meðferðar- og ráðgefandi sálfræði í University of Surrey í Englandi. Áður hafði hún lokið M.Sc.-prófi í heilsusálfræði frá sama skója. Áslaug S. Árnadóttir sem stundar nám í arkitektúr í Arkitektskolen í Árósum, með aðaláherslu á varð- veislu og endurbyggingu húsa ásamt skipulagi og bæjarbyggingu. Einar Jónsson en hann hóf mast- ersnám í hljóðfæraleik og útsetning- um fyrir biásara við Purchase College í New York fylki í Bandaríkjunum sl. haust. Hann útskrifaðist frá Tón- listarskólanum í Reykjavík úr einieik- aradeild og blásarakennaradeild. Erlingur Erlingsson sem stundar tvöfalt BA-nám við Suffolk Univers- ity í Boston í Bandaríkjunum. Ann- ars vegar BA-próf í hagnýtum hlið- um blaðamennsku, og hins vegar BA-próf í sagnfræði með áherslu á evrópska sögu. Styrkveitinganefnd skipuðu þeir of Operations" hjá ARC (Association for Retarded Citizens) í Flórída og haft með höndum skipulag starfsemi fyrir þroskahefta, s.s. þjónustu við börn, kennsluáætlanir fyrir full- orðna, heimilisþjónustu og félags- þjónustu fatlaðra. Undanfarin ár hefur Ernestine starfað fyrir banda- ríska ráðgjafarfyrirtækið SAIC (Sci- ence Application International Corp- oration). Norræn tungn- málaumræða Norðurlanda- ráðs HRINGBORÐSUMRÆÐAN, Nor- rænt málatorg - staða vestnor- rænna tungumála í norrænni sam- vinnu, fer fram á vegum Norður- landanefndar ráðsins föstudaginn 27. júní nk. kl. 9-11 í Ráðhúsi Reykjavíkur, borgarstjórnarsal. Á meðal þátttakenda eru Björn Bjarnason, menntamálaráðherra og norski þingmaðurinn Kjell Magne Bondevik sem jafnframt er formaður Norðurlandanefndar. Þingmennirnir Sigríður A. Þórðardóttir og Stein- grímur J. Sigfússon sem eru í nefnd- inni verða einnig viðstaddir. Umræðan fer fram á milli ráð- herra, þingmanna, sérfræðinga og fulltrúa bókaforlaga frá ísiandi, Færeyjum og Grænlandi. Meðal ann- ars verður fjallað um eftirfarandi spurningar: Hver er staða lítilla málsvæða í aukinni alþjóðavæðingu? Á framþróun íslenskunnar, færeys- kunnar og grænlenskunnar að vera helsta viðfangsefni norrænnar Sveinbjörn Björnsson rektor Háskóla íslands, Haraldur Eiðsson formaður stúdentaráðs Háskóla íslands, Aðal- steinn Leifsson formaður SÍNE, Þórður Kristleifsson formaður BÍSN og Jón Adólf Guðjónsson banka- stjóri Búnaðarbankans. „Nefndarmenn hafa verið á einu máli um að líta ekki á þessa styrki sem viðbótarstyrki við þá vísinda- og skólastyrki sem hafa námsárang- ur nánast að öllu leyti sem viðmið- un. Að sjálfsögðu hefur námsárang- ur sitt að segja en önnur atriði sem máli skipta eru meðal annars þátt- taka umsækjenda í félagsstarfi, fjöl- skylduhagir, framtíðaráform og svo hvernig umsóknin sjálf er sett fram,“ segir í fréttatilkynningu frá Búnað- arbankanum. Námsmannalína Búnaðarbankans var stofnuð haustið 1990. Viðamesti þáttur þjónustunnar er vegna af- greiðslu lána hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna. menningarsamvinnu? Hvernig má auka gagnkvæma tungumálakunn- áttu á Norðurlöndum? Hvernig er unnt að stuðla að fleiri og betri þýð- ingum á bókmenntum nágranna- þjóðanna? Hringborðsumræðan er fyrsti áfangi í umfjöllun nefndarinnar um stöðu norrænna tungumála; næsta skref verður að fjalla um stöðu skandinavísku og finnskunnar í nor- rænni samvinnu. Nýrri skýrslu „Mellan sjálvförtro- ende och osakerhet" eftir Charlottu Friborg verður dreift við hringborðs- umræðuna. Fj ór ðungsmótið á Kaldármelum hefst í dag FJÓRÐUNGSMÓT Vesturlands hefst á Kaldármelum í dag, fimmtu- daginn 26. júní, og stendurtil sunnu- dagsins 27. júní. Á mótinu verður bryddað upp á nýjungum því fyrir- huguð er opin stóðhestakeppni í A- og B-flokki gæðinga en hún var sett á stofn til að forðast „eigenda- skipti“ á þekktum hestum fyrir mót- ið. Á fjórðungsmótinu verður keppt í hefðbundum greinum, s.s. gæð- ingaflokkum, barna-, unglinga- og ungmennaflokkum, töltkeppni úr- valstöltara og sýning ræktunarbúa. Auk þessa verða dansleikir með Geirmundi Valtýssyni haldnir utan svæðisins og er þá ódýrara inn á þá fyrir mótsgesti. Úrslit í gæðingakeppni fara fram á sunnudag og efstu kynbótahrossin sýnd og verðlaunuð. Vatnaskógnr um helgina Fjölbreytt dag- skrá á móti Kristniboðs- sambandsins SAMBAND íslenskra kristniboðsfé- laga stendur um næstu helgi fyrir almennu kristilegu móti í Vatnaskógi sem þar hefur verið haldið um ára- bil. Á dagskrá er talað orð og söng- ur, m.a. kemur norski tónlistarmað- urinn Hans-Inge Fagervik I heim- sókn á mótið. Yfirskrift mótsins í Vatnaskógi er: „Verið þar sem ég er.“ Mótið hefst næstkomandi föstudagskvöld klukk- an 21. Á laugardagsmorgni verða Biblíulestrar á dagskrá og fjallað um ýmis efni í nokkrum hópum og eftir hádegi verður útidagskrá. Þá verða samkomur kl. 16.30, 20.30 og 23 og á sunnudag hefst dagskrá með guðsþjónustu klukkan 10 en mótinu lýkur með kristniboðssamkomu kl. 14. Þar koma m.a. fram kristniboð- arnir Helgi Hróbjartsson og hjónin Valgerður Gísladóttir og Guðlaugur Gunnarsson en þau hafa starfað í Eþíópíu um árabil. Þátttakendur í mótinu geta gist í tjöldum sínum eða fengið svefnpoka- pláss í húsnæði sumarbúðanna. Þar verða einnig seldar veitingar. Skógarganga í kvöld SJÖTTA skógarganga skógræktar- félaganna, Ferðafélags íslands og Búnaðarbankans um „Græna trefil- inn“ hefst í dag fimmtudaginn 26. júní á vegum Skógræktarfélags Reykjavíkur. Mæting og rútuferð (500 kr.) verður frá Mörkinni 6, húsi Ferðafélagsins kl. 20 eða við gatnamót Heiðarvegar og Hjalla- brautar á Heiðmörk kl. 20.30. Gengið verður eftir skógarstígnum í Elliðavatnsheiðinni, eldri hluta Heiðmerkur. Þar bíður rúta (200 kr.) sem ekur göngumönnum til baka í bílana við gatnamót Heiðarvegar og Hjallabrautar, Staðkunnir leið- sögumenn frá skógræktarfélögunum og Ferðafélaginu verða með í för og segja frá því sem fyrir ber. Mælst er til þess að göngufólk hafi með sér nesti. MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi: „í ljósi umræðu fjölmiðla að undan- förnu um tengsl Alþýðubandalagsins í gegnum Tilsjá ehf. við útgáfufélag Helgarpóstsins, vilja formaður AI- þýðubandalagsins og stjórnarfor- maður Tilsjár taka eftirfarandi fram: Alþýðubandalagið hefur ekki á nokkurn hátt komið að ritstjórn Helgarpóstsins né reynt að hafa áhrif á ritstjórnarstefnu þess blaðs. Næsta ganga verður fimmtudag- inn 3. júlí og verður mæting við áningarstaðinn við Helluvatn. Mannrækt undir jökli ÞRIÐJA starfsár Mannræktarmið- stöðvar Snæfellsáss samfélagsins á Brekkubæ, Hellnum, hefst um næstu helgi. Enn sem fyrr er í boði fjöl- breytt dagskrá allt sumarið fyrir þá sem vilja dvelja í orku jökulsins í skemmri en lengri tíma. Byijað verð- ur með þemahelginni Frá konu til konu, segir í fréttatilkynningu frá Snæfellsási. Jafnramt segir: „Helgin 27.-29. júní er sérstaklega ætluð konum á öllum aldri og þema hennar er gleði, næring og sjálfsheilun. í gengum fyrir- lestra, helgiathafnir, hugleiðslu, heil- un, nudd, dans og ýmsilegt fleira verða kynntar aðferðir til að auka gleðina og lögð áhersla á leiðir sem konur geta farið til að næra sig og heila.“ Nýjung í starfseminni „Helsta nýjungin er að nú er hægt að koma til fímm daga dvalar og hefjast fyrstu dvalardagarnir 29. júní til 4. júlí og eru svo með ákveðnu millibili til ioka ágúst. Á dvalardög- unum er fjallað um mikilvægi þess að vinna með alla fjóra þætti manns- ins, þann líkamlega, huglæga, til- finningalega og andlega til að ná heildrænni heilun. Þá gefst tækifæri til að upplifa fræðslu, útiveru og tengsl við náttúruna, sjálfrækt, hvíld og heilun í magnaðri orku jökulsins. Yfir dvalardagana er stunduð slökun, hugleiðsla, iðkaðar léttar líkamsæf- ingar, borðað heilnæmt fæði, fræðst um leiðir til betri heilsu, allir fá nudd eða heilun og lesið er í spil fyrir dvalargesti, annaðhvort Merlin-tarot eða Víkingakortin. Á kvöldin eru léttar og skemmti- legar kvöldvökur þvi sjálfsrækt ber mestan árangur þegar hún er unnin í gleði og jákvæðni. Innifalið í dvöl- inni er fullt fæði með grænmetis- og fiskréttum, uppábúin rúm og öll námsgögn.“ LEIÐRÉTT Nafn misritaðist í FRÉTT um leikhópinn Augnablik í Morgunblaðinu í gær misritaðist nafn Einars Kristjáns Einarssonar gítarleikara. Beðizt er afsökunar á þeim mistökum. Því hefur verið haldið fram í fjöl- miðlum að formaður Alþýðubanda- lagsins hafi stýrt fréttaflutningi Helgarpóstsins um Jón Ólafsson, forstjóra íslenska útvarpsfélagsins, í krafti eignarhlutar Tilsjár í út- gáfufélagi Helgarpóstsins. Hvorki formaður, útgáfufélagið Tilsjá né stofnanir Alþýðubandalagsins eiga nokkuð sökótt við Jón Ólafsson og hafa eins og áður segir ekkert með ritstjórn Helgarpóstsins að gera.“ Hafa ekkert með rit- stjórn HP að gera

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.