Morgunblaðið - 26.06.1997, Blaðsíða 52
52 FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
BRIPS
Umsjön Arnór G.
Ragnarsson
Úrslit úr 1. umferð
Bikarsins 1997
Björgvin Leifss. - Guðjón Bragas.
Guðjón vann
Guðm. Ólafsson - Sparisj. Mýras. 97- 68
UnnarGuðmundss. - Snorri Karlss. 83-129
Þorsteinn Berg - Sérsveitin 90-145
SSBrú - Sparisjóður Hornafjarðar 126- 11
Bryndís Þorsteinsd. - BirgirSteingrímss. 84-112
Neon - Einir 128- 83
HjálmarPálsson - Skeljunpr 80- 74
Bílanes - Rúnar Einarsson 115- 91
Jón Erlingsson - Eimskip 83-124
Radiómiðun - Nectar 141- 85
Þorst. Guðjónsson - JensJensson 87- 96
Hótel Bláfell - Sparisj. S-Þing 94-105
Gísli Hafliðason - HAM 51-117
Frímann Stefánsson - Útnesjasv. 176- 49
Sveinn Aðalgeirss. - Gunnl. Einarsd. 87- 73
Reynir Kalsson - Friðrik Jónasson 90- 96
Aðalst. Jónss. - Guðlaugur Sveinss. 92-166
Ól.Steinason - Aðaist. Sveinsson 121- 95
Guðný Guðjónsd. - GissurJónasson 103-110
Gylfi Baldurss. - GuðlauprBessas. 115- 83
11 sveitir sátu yfir í 1. umferð.
Bikarinn 2. umferð —
leikjum skal vera lokið
fyrir 20. júlí
Sparisjóður S-Þing - Bílanes, Keflavík
HAM, ísafirði - Roche, Reykjavík
Sérsveitin, Rvík - Jón Sigurbjömss. Siglufirði
Gissur Jónasson, Akureyri - Neon, Reykjavík
Friðrik Jónasson - Frímann Stefánsson
Eimskip, Reykjavík - VÍB, Reykjavík
Hjólbarðahöllin, Rvík - Marvin, Reykjavík
Landsbréf, Reykjavík - SS Brú, Borðeyri
Guðjón Bragas. Hellu - Ól. Steinason, Self.
Samvinnuf. Landsýn, Rvík - Hjálmar Pálsson
Guðlaupr Sveinsson - Guðmundur Ólafsson
Sigtr. Sigurðss. Rvík - Anton Haraldss. Ak.eyri
Birgir Steingrímss. Rvík - Símon Símonarss. Rvík
Gylfi Baldurss. Rvík - Steinar Jónss. Rvík
Jens Jensson, Rvík - Snorri Karlsson, Rvík
Radiómiðun - Sveinn Aðalgeirsson, Húsavík
Félag eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni
Mánudaginn 16. júní spiluðu 18 pör
Mitchell tvímenning.
N/S
Þórarinn Árnason - Bergur Þorvaldsson 277
Elín Jónsdóttir - Gunnþórunn Erlingsdóttir 237
Baldur Ásgeirsson - Magnús Halldórsson 225
A/V
Lárus Hermannsson - Eysteinn Einarsson 255
Þorleifur Þórarinsson - Þorsteinn Erlingsson 242
Ingibjörg Stefánsdóttir - Þorsteinn Davíðsson 239
Meðalskor 216.
Fimmtudaginn 19. júní spiluðu 16
pör í einum riðli.
Eysteinn Einarsson - Lárus Hermannsson 251
Eyjólfur Halldórsson - Þórólfur Meyvantsson 250
Gunnar Bjartmarz - Sólveig Bjartmarz 232
Þórarinn Ámason - Bergur Þorvaldsson 229
Sigurleifur Guðjónsson - Oliver Kristófersson 222
Meðalskor 210.
jP^áA&ngo
A V'ANGO'?
NITESTAR 400
ULTRA LIGHT
mrmoo
ÁÐUR 9.500
Vango
SVEFNBOKAR ERU
MJÖG VANDAÐIROG
Á HAGSTÆÐU VERDI.
LÉTTLEIKINN KEMUR
LÍKA AOVART!
AÐEINS
3DACAR
15 2.1 KC
HOLLOW FYttlNc;
-5 900 GR.
MICROLOFT FYLLINC
HOUQWFYLLING
/ ? -15 2.2 KG
I DAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags
Everest-
fararnir
EFTIRFARANDI barst
Velvakanda:
Gætnir djarfír garpamir
grimman þoldu fjallavindinn.
Hörkusnjallir hugrakkir
hæstan klifu jarðartindinn.
Grímur S. Norðdahl.
Dularfulla
töskuhvarfið
AÐ KVÖLDi 28. maí sl.
var kona nokkur, sem býr
í Reykjavík, að koma úr
ferðalagi. Farangur henn-
ar reyndist henni of þung-
ur, vegna fötlunar hennar,
til að fara með í einni ferð
upp í íbúð hennar. Þess
vegna skildi hún eftir grá-
yrjótta ferðatösku með
brúnum leðurólum við
póstkassa sinn á læstum
stigagangi. Er hún kom
að sækja töskuna greip
hún í tómt, en siæða sem
var í töskunni lá á gólfinu
ásamt tómum plastpoka
sem var yfirbreiðsla undir
loki töskunnar. í töskunni
voru verðæti, svo sem nýj-
ar flíkur, dýrar, sem eig-
andinn saknar sárt. Því
tóku þjófarnir ekki slæð-
una með, var hún kannski
ekki nógu verðmæt, eða
kom styggð að þeim?
Þvílík bíræfni að opna
töskuna inni á læstum
stigangi, þar sem taskan
var bæði vel merkt
eiganda sínum og lokuð.
Þarna eru greinilega engir
viðvaningar á ferð. Þeir
opna töskuna á gangi þar
sem margir ganga um.
Skyldu þjófarnir geta
gengið í dömufatnaði?
Hvað með fallega bláa
ullaijakkann með hvít-
röndóttum ermum og hvít-
um og grænum
boðungum, sem er alls
staðar auðþekktur? í
töskunni voru einnig
nokkrar síðbuxur ásamt
fleiru verðmætu dóti.
Því segi ég: „Hlíðar-
búar, verið vel á verði um
dótið ykkar, því ekki er
lengur hægt að skilja eftir
farangur inni í eigin húsi
og læstu, þó aðeins líði
stutt stund. Það virðist lið-
in tíð.“
Kona.
Tapað/fundið
Penni tapaðist
við Laugaveg
GYLLTUR og blár kúlu-
penni, Jelysee, tapaðist í
Landsbankanum við
Laugaveg 77 föstudaginn
20. júní. Penninn er úr
pennasetti og er hans sárt
saknað. Skilvís fínnandi
vinsamlega hafí samband
í síma 897-6545.
Fundarlaun.
Verkfærataska
tapaðist
VERKFÆRATASKA tap-
aðist úr bíl við Mávahlíð.
Skilvís fínnandi hringi í
síma 551-1553. Fundar-
laun.
Lyklakippa fannst
á Þingvöllum
SUNNUDAGINN 22. júní
fundust einn bíllykill og
tveir húslyklar á hring.
Lyklarnir fundust á
Þingvöllum nálægt svæði
sem merkt er Öfugsnáði.
Uppl. í síma 481-2190.
Gleraugu töpuðust
á Laugaveginum
GULL-spangargleraugu
með ásmelltum sólgler-
augum og mattri gyllingu
töpuðust líklegast á
Laugaveginum í byijun
júní. Þeir sem hafa orðið
varir við gleraugun eru
beðnir að hringja í síma
552-2515 eða 897-0979.
Regnhlíf fannst
á Laugaveginum
REGNHLÍF fannst á
Laugaveginum. Uppl. í
síma 551-7191.
Göngustafur
tapaðist í
kirkjugarði
GÖNGUSTAFUR, brúnn,
útskorinn með áletruninni
Svartiskógur tapaðist
líklega í kirkjugarðinum
í Hafnarfirði eða Foss-
vogskirkjugarði 17. júní.
Stafurinn hefur mjög
mikla persónulega
þýðingu fyrir eigandann
og eru þeir sem hafa orðið
varir við stafinn beðnir
að hringja í síma
557-4181.
Lyklakippa
tapaðist
LYKLAKIPPA tapaðist í
Mjódd eða á leiðinni upp í
Seljahverfi. Kippan er
gulllituð með krók og á
henni eru 3 lyklar. Þeir
sem hafa orðið varir við
kippuna eru beðnir að
hringja í síma 587-2231.
Dýrahald
Kettlingar
fást gefins
ÞRÍR sjö vikna kettiingar
fást gefíns. Uppl. í síma
566-8572.
SKÁK
Umsjón Marícir
Pétursson
STAÐAN kom upp í ár-
legri keppni Lundúna-
klúbbanna Barbican og
Wood Green. Matthew
Turner (2.445) var með
hvítt, en Andrew D. Mart-
in (2.425) hafði svart og
átti leik.
Lausnin byggist á því
að svartur beitir tvískák)
21. Dhl+! og hvítur gaf,
því hann sá fram á 22.
Kxhl - Rg3++ 23. Kgl -
Hhl mát. Martin teflir fyr-
ir Wood Green, sem sigraði
örugglega að þessu sinni,
6 ‘A—3 ‘A
Jónsmessumót Hellis
fer fram föstu-
daginn 27. júni.
Tímasetning
mótsins er frem-
ur óvenjuleg, en
það hefst klukk-
an 22. Tefldar
verða hraðskák-
ir og búast má
við að mótinu
ljúki ekki fyrr en
eftir miðnætti.
Það er því ein-
göngu opið full-
orðnum. Mótið
fer fram í Hellis-
heimilinu,
Þönglabakka 1,
efstu hæð. Góð verðlaun
eru í boði. Skráning á
mótsstað.
SVARTUR mátar i þriðja leik
Með morgun
kaffinu
Ast er...
4-5
aðgera ekki ráð fyrir
þiggja rétta máitíð á
hveiju kvöldi.
TM Heg U.S P«l O* — »11 nghu rese*veð
(c) 1997 Los Angeies Tlmes Syndcate
Víkveiji skrifar...
KUNNINGI Víkveija, sem stað-
ið hefur í byggingafram-
kvæmdum og vill hafa snyrtilegt í
kringum sig, hefur í vor verið að
lagfæra lóð við hús sitt í Engja-
hverfi í Grafarvogi.
Hann hugsaði sér gott til glóðar-
innar, þar sem Reykjavíkurborg
yfirleitt gumar af því við húsbyggj-
endur að ekki standi á framkvæmd-
um borgarinnar; þegar lóðum sé
úthlutað sé allt klappað og klárt frá
borgarinnar hendi.
Allmikill halli er á lóð kunningj-
ans og þegar kom að því að ganga
frá lóðaijaðrinum við gangstéttina,
var borgin ekki búin að ganga frá
gangstéttinni og auðvitað tafði
þetta fyrir framkvæmdum manns-
ins. Hann leitaði því til borgarinnar
og spurðist fyrir um það, hvort
ekki væri hægt að hliðra til og
ganga frá gangstéttinni, svo að
hann gæti haldið sínum fram-
kvæmdum áfram og gengið endan-
lega frá lóðinni. Þá rakst hann á
vegg, skrifræði borgarinnar var al-
gjört og embættismennirnir, sem
hann talaði við, sáu öll tormerki á
að unnt yrði að koma til móts við
óskir hans og báru við peninga-
leysi. Önnur frágangsverkefni
gengju fyrir. Kunninginn er að von-
um óhress með þessi viðbrögð borg-
aryfirvalda og telur að athafnir
fylgi ekki orðum í þessu tilfelli.
Víkverji tekur undir þessa skoð-
un, það er ótækt að hreykja sér af
því að allt sé klappað og klárt frá
borgarinnar hendi við frágang í
nýjum hverfum og vilji menn ganga
frá lóðum sínum, rekist þeir á vegg
og geti ekki lokið framkvæmdum
einfaldlega af því að borgin stendur
ekki í stykkinu.
xxx
ANNAR kunningi Víkveija er
nýkominn úr hringferð um
iandið og hann fór að segja Vík-
veija frá ferðum sínum og hvernig
vegirnir hefðu verið. Hann kvað
þá hafa verið áberandi versta á
Austfjörðum, enda er slitlag þar
skemmst á veg komið. Víða eins
og t.d. á milli Stöðvarfjarðar og
Fáskrúðsfjarðar var vegurinn af-
leitur og illfær yfirferðar. Hins
vegar kvað hann malarvegina í
Þingeyjarsýslum hafa verið mjög
góða og viðhald þeirra til fyrir-
myndar. Þetta sýnir að með því
að sinna vegunum vel, er unnt að
halda þeim góðum, þótt malarvegir
séu.
XXX
*
IVESTURBÆ Reykjavíkur er
gafl, sem svokailaðir veggja-
krotarar hafa ekki getað séð í friði.
Ibúar í nágrenninu sömdu við veru-
lega hæfa veggjakrotara, sem
bjuggu til mynd, sem gladdi augað
og var vel gerð. Fúskararnir í
veggjakrotinu gátu ekki einu sinni
séð hana í friði og gerðu tilraun til
þess að eyðileggja myndina. Það
virðist sem sé ekki vera eingöngu
þörf fyrir að horfa á eitthvað fal-
legt, sem hvetur menn til veggja-
krots, heldur er það einnig skemmd-
arfýsn sem býr að baki.
Nýlega var við þessa götu málað-
ur háspennuskúr, sem krotararnir
höfðu útbíað í málningarúða. Svo
kom Rafmagnsveitan og málaði
skúrinn og hann var til fyrirmynd-
ar, nýmálaður og fínn í örfáa daga.
Þá komu veggjakrotararnir og allt
er við það sama, háspennuskúrinn
ljótur og útbíaður í málningu, sem
engum er til sóma og nágrönnunum
til ama að horfa á.
Þessir veggjakrotarar geta í
mörgum tilfellum unnið stórspjöll á
byggingum, einkum þeim, sem ekki
er ætlunin að mála, heldur láta
steininn halda sér náttúrulegum.
Þessir málningarbrúsar sem
veggjakrotararnir nota eru yfirleitt
lökk, sem eru mjög þunn og máln-
ingin síast inn í steininn og getur
hreinlega eyðilagt hann. Það getur
bæði verið dýrt og svo til útilokað
að afmá slíkt krot, sem engum er
til ánægju og öllum til ama.