Morgunblaðið - 26.06.1997, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 1997 53
I DAG
Árnað heilla
Eygló og Reynir Ann og Randolf
TVÖFALT BRÚÐKAUPSAFMÆLI. Hjónin Eygló Þorgeirsdóttir og Reynir Pálma-
son og hjónin Ann og Randolf Paulsen frá Bergen í Noregi, eiga í dag tuttugu og sex
ára brúðkaupsafmæli. Randolf og Ann eru stödd hér á landi vegna nýafstaðins kóra-
móts norrænna strætisvagnafyrirtækja. íslensku og norsku hjónin kynntust á kóramóti
í Bergen árið 1983. Ári síðar heimsóttu Randolf og Ann, Reyni og Eygló á íslandi. Þá kom
í ljós að þau höfðu gengið í hjónaband sama dag og ár, og á sömu stundu höfðu þau
gengið upp að altarinu. íslensku hjónin giftu sig kl. 14 en þau norsku kl. 16, sem er
sami tími vegna tímamismunar í löndunum. Það er einstök tilviljun að af 300 manna
hóp skyldu einmitt þessi pör taka upp vinskap. Vinir og ættingjar samfögnuðu þeim í
morgun, vöktu þau kl. 6 með lúðrablæstri og söng. Útihurðin var skreytt með stórum
myndum sem fylltu út í dyrnar, silfurbrúðkaupslagið var sungið af þekktu kórafólki
úr ýmsum áttum. Síðan var öllum boðið í morgunkaffi með tilheyrandi áður en fólk hélt
til vinnu. Brúðhjónin vpru síðan keyrð á Snyrti- og nuddstofuna Eygló, þar sem dekrað
verður við þau í dag. í kvöld munu þau snæða kvöldverð í Perlunni.
BRIDS
Umsjón Guómundur l'áll
Arnarson
KÍNVERSKI leiðtoginn,
Deng Xiaoping, var
ástríðufullur bridsspilari.
Þessi bridsáhugi hans
reyndist honum dýrkeyptur
á dögum menningarbylt-
ingarinnar, því í kommún-
istalöndum hefur einhverra
hluta vegna verið litið á
brids sem kapitalíska
íþrótt, ósæmandi sönnum
byltingarsinnum - kannski
vegna þess að aðallinn er
hin ríkjandi stétt spila-
stokksins. Hvað sem því
líður eru tímanir breyttir
og þess verður sennilega
ekki langt að bíða að Kín-
veijar láti verulega að sér
kveða í bridsheiminum.
Hér að neðan er spil með
Deng frá árinu 1983. Hann
er með hundana í suður,
en makker hans er Kathie
Wei-Sender, fyrrum eigin-
kona Charles Wei, sem
hannaði fyrstu kynslóð
Precision-kerfisins.
Vestur gefur; allir á
hættu.
Norður
♦ ÁD952
V Á
♦ ÁK108
♦ Á42
Vestur Austur
♦ G743 ♦ K108
¥ D1097 IIIIH V KG85
♦ 6 111111 ♦ D9
♦ D875 + K1063
Suður
♦ 6
f 6432
♦ G87542
♦ G9
Vestur Norður Austur Suður
Pass 1 lauf Pass 1 tígull
Pass 2 spaðar Pass 2 grönd
Pass 3 tíglar Pass 4 tíglar
Pass 6 tíglar Allir pass
Kerfið er að sjálfsögðu
Precision og eftir að hafa
afmeldað tvisvar, varð
Deng sagnhafi í sex tíglum.
Út kom hjarta. Deng tók
strax spaðaás og stakk
spaða. Tók svo ÁK í tígli
og felldi spaðakónginn með
trompun. Þrettán auðveldir
slagir;
„Ef ég get unnið sjö,
hefðirðu betur sagt átta,“
sagði Deng við makker sinn
eftir spilið.
inn 26. júní, Kristrún
Steinunn Benediktsdóttir,
Hafnargötu 115a, Bol-
ungarvík. _ Eiginmaður
hennar var Ásgeir Guð-
mundsson, sem lést í jan-
úar sl. Kristrún verður að
heiman á afmælisdaginn.
Ljósm.st. MYND Hafnarfirði
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 10. maí í Hafnar-
íjarðarkirkju af sr. Sigurði
Helga Guðmundssyni
Brynhildur Ingibjörg
Hauksdóttir og Guð-
mundur Ingvar Sveins-
son. Heimili þeirra er í
Brautarlandi 19, Reykjavík.
Í*/\ÁRA afmæli. Sex-
Ovltugur er í dag,
fimmtudaginn 26. júní
Daníel Benjaminsson,
fyrrverandi knattspyrnu-
og handknattleiksdóm-
ari, nú búsettur í vistheim-
ilinu Víðinesi, Kjalarnesi.
Ljósm.st. MYND Hafnarfirði
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 24. maí í Víðistaða-
kirkju af sr. Sigurði Helga
Guðmundssyni Helena Erl-
ingsdóttir og Þóroddur
Ottesen Arnarson. Heimili
þeirra er í Lækjarsmára 64,
Kópavogi.
HOGNIIIREKKVÍSI
// 7JAUN ELSkAK LYFTUTÚNLIST.
STJÖRNUSPÁ
cftir Krances Drakc
KRABBI
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert tilfmningaríkur,
drífandi og ákveðinn og
gefurþig allan íþaðsem
þú tekur þér fyrir hendur.
Hrútur
(21. mars - 19. aprfl)
Ef þú hefur eytt of miklu í
sjálfan þig af sameiginlegri
bankainnistæðu, skaltu nota
kvöldið í að iðrast og bæta
fyrir mistök þín.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú ert uppfullur af góðum
hugmyndum, en skalt bíða
með að láta nokkuð uppi-
skátt um þær. Koma tímar,
koma ráð.
Tvíburar
(21. maí- 20. júní)
Þú vilt miklu frekar
skemmta þér með vinum þín-
um og taka lífinu létt, heídur
en hugsa um alvarleg mál.
Láttu það eftir þér.
Krabbi
(21. júní — 22. júlí) >"$£
Þér berast nokkur tilboð á
næstunni og þarft að velja á
milli. Veldu það sem hefur
mest að segja fyrir framtíð
þína.
Ljón
(23. júlf — 22. ágúst)
Þú þráir það mjög að kom-
ast í frí, en mátt ekki gleyma
að þú hefur skyldum að
gegna. Taktu ekkert að þér,
sem er þér ofviða.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) $£
Þú átt eitthvað erfitt með
að taka ákvörðun varðandi
innkaupin. Varastu bara að
eyða of miklu og ekki kaupa
fánýta hluti.
Vog
(23. sept. - 22. október) 2^5
Þú skalt sýna aðgæslu varð-
andi einhvern i vinahópi þín-
um, sem er ekki allur þar
sem hann er séður.
Sporddreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Þér hættir til að láta of mik-
ið eftir þér í mat og drykk,
og þarft að takast á við það
og hugsa um heilsuna.
Bogmaóur
(22. nóv. - 21. desember) m
Þú færð óvænta gesti, sem
raskar áætlunum þínum eitt-
hvað. Reyndu að gera það
besta úr því sem komið er.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Ætlirðu þér að afkasta miklu
í dag, skaltu byija daginn
snemma. I kvöld skaltu fara
út og hitta fólk.
Vatnsberi
(20. janúar- 18. febrúar) ðh
Þú ert pirraður á vini þínum,
sem lofar ævinlega meiru en
hann getur staðið við. Láttu
það ekki slá þig út af laginu,
fáðu annan til að vinna fyrir
þig-
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Vertu ekki að æsa þig yfir
því, þó einhver í fjölskyld-
unni sé alltaf á síðustu
stundu. Hann hefur sínar
ástæður.
Stjömuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Hjartans þakkir til allra ættingja og vina, sem heiðruðu
okkur með skeytum, blómum, gjöfum og nærveru sinni á
gullbrúðkaupsdegi okkar 21. júní sl.
Valgerður Jóhannesdóttir
og Helgi Vilhjálmsson,
Stórholti 28, Reykjavík.
A
Att þú rétt á endurgreiðslu
vegna tannréttinga?
Þeir sem voru yngri en 21 árs þegar tannréttinga-
meðferð með spöngum eða teinum hófst, geta átt rétt á
endurgreiðslu hluta kostnaðar sem hér segir:
Ef meðferð hófst eftir 1. janúar 1997
greiðir Tryggingastofnun allt að 70.000 kr. styrk.
Ef meðferð hófst á árunum 1995-1996
greiðir Tryggingastofnun hluta styrks upp í kostnað
meðferðar á þessu ári, hafí umsækjandi ekki áður
fengið endurgreiðslu vegna tannréttinga.
Umsóknarfrestur rennur út 1. júlí 1997
Athygli er vakin á því að umsóknarfrestur rennur út
þann 1. júlí nk. fyrir þá sem hófu meðferð á árunum
‘95 og ‘96. Sækja þarf um á sérstökum eyðublöðum til
tannlæknadeildar Tryggingastofnunar, Tryggvagötu
26, Reykjavík.
Nánari upplýsingar veitir tannlæknadeildin.
TRYGGINGASTOFNUN
RÍKISINS
STEINAR WAAGE
SKOVERSLUN
Mikið úrval af sumarskóm frá
Verð: 5.995.,
Litur: Hvítir
Stærðir: 36-41
Tegund:57376
Ath: Með loftbólstruðum sóla
5% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR PÓSTSENDUM SAMDÆGURS
STEINAR WAAGE . SKÓVERSLUN ^ SÍMI 551 8519 ^ STEINAR WAAGE SKOVERSLUN SÍMI 568 9212 ^
Sýning um samsfæður
og andstæður Norðmanna
og íslendinga á miðöldum.
Þ/óðmínjasafn íslands
- kjarni málvins!
Pennavinir í 510 löndum.
International Pen Friends.
Sími 881 8181.