Morgunblaðið - 04.07.1997, Qupperneq 56
56 FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
AND THH
HASKOLABIO
SÍMI 552 2140
The Relic er visindaskaldsaga i anda Aliens með Tom Sizemore og
Penelope Ann Miller í aðalhlutverkum og framleiðandi er Gale Anne
Hurd sem er fræg fyrir framleiðslu „science fiction" mynda á borð við
Terminator 2, Aliens og the Abyss. The Relic er mögnuð spennumynd
sem þú verður að sjá.
Sýnd kl. 4.30, 6.45, 9 og 11.15. B. i. 16 ára.
Háskólabíó G-ott Ta íá
FRUMSYNING: ENRÆÐISHERRA I UPPLYFTINGU
PIERCE BROSNAN LINDA HAMILTON
Fran Drescher
LTON
SANDRA BULLOCK CHRIS 0 DONNEL
■A
UNDIRmÚP
ÍSLANDS
Dragðu andann djúpt
The Beautician and The Beast er frábær gamanmynd með Fran
Dresher (Barnfóstran á Stöð 2) og Timothy Dalton (James Bond) í
aðalhlutverkum. Einræðisherrann Boris í Slovetziu ætlar að snúa
landi og þjóð til vestrænna siða og ræður, að hann heldur, kennara
frá bandaríkjunum að kenna börnum sínum vestræna siði. Kennarinn
er förðunarfræðingurinn Joy frá Queens sem heldur að hún haf verið
ráðin til að lappa upp á útlit einræðisherrans.
Sýnd kl. 5, 7.05, 9.05 og 11.10.
Sýnd kl. 5.30.
Enskt tal, ótextað.
Sýnd kl. 4.40, 6.50, 9
og 11.15.
B. i. 12 ára.
ÁTT ÞÚ EFTIR
AÐ SJÁ KOLYA?
Sýnd kl. 7, 9 og 11.
Síðustu sýningar
Nýtt í kvikmyndahúsunum
WILL Smith og Tommy Lee Jones í hlutverkum sínum.
Kvikmyndin Menn í
svörtu frumsýnd
STJÖRNUBÍÓ, Sambíóin v/Álfa-
bakka og Laugarásbíó hafa hafið
sýningar á stórmyndinni Menn í
svörtu eða „Men in Black“ með
Tommy Lee Jones og Will Smith.
Aðrir leikarar eru Linda Fiorent-
ino, Rip Torn og Vincent D’On-
ofrio. Myndin er í leikstjórn Barry
Sonnenfeld. Aukaframleiðandi
myndarinnar er Steven Spielberg.
MiB eru leynileg samtök. MiB
er best geymda leyndarmálið á
jörðinni. MiB stofnunin ver jörðina
fyrir sora alheimsins. Þegar FBI
getur ekki séð um málið, þegar
CIA getur ekki áttað sig á málinu
eru MiB menn á kafi í málinu.
Tommy Lee Jones leikur MiB
sérsveitarmanninn, herra K. Hann
hefur verið MiB fulltrúi í 30 ár.
Þreyta er farin að sækja á hann
eftir að hafa losað okkur, jarð-
arbúana, við óæskilegt hyski utan
úr geimnum í gegnum árin. Þar
að auki vantar hann nýjan að-
stoðarmann þar sem sá sem fyrir
er er orðinn allt of gamall og lú-
inn fyrir þetta geimveruhreinsi-
starf. Það er því kominn tími á
að fá nýjan, ungan, heilsugóðan
og hugdjarfan nýliða. Herra K
hefur leitina í New York að nýjum
starfsmanni.
Will Smith leikur New York
lögguna James Edward sem eitt
kvöldið er að eltast við heldur
skuggalegan afbrotamann. Á dag-
inn kemur að afbrotamaðurinn
reynist vera geimvera í mannslíki
sem send var til jarðarinnar til að
drepa aðrar vinveittari geimverur
sem lifa friðsamlega meðal okkar.
MiB liðsmaðurinn herra K fær
vitneskju af þessu máli og hraðar
sér til lögreglustöðvarinnar þar
sem hann finnur hina hugdjörfu
löggu James. James segir herra K
frá uppgötvun sinni. Herra K hefur
þar með fundið nýjan samstarfsfé-
laga. En til að James geti orðið
að MiB fulltrúa verður hann að
segja bless við fyrra líf. Hann fær
nýtt nafn og ný skilríki. Hann er
hinn nýi maður í svörtu.
Hið nýja svartklædda teymi,
Herra K og Herra J, þarf nú að
sameina krafta sína þar sem hin
bráðhættulega geimvera Edgar
(D’Onofrio) hefur lent á móður
jörð og nú er voðinn vís því Edgar
er skapmikil kynja- og geimvera.
Mennirnir í svörtu fá aðstoð frá
lækninum dr. Laurel Weaver (Fior-
entino) og eru þau þrjú staðráðin
í að verja jörðina fyrir sora al-
heimsins.
Reuter
ÞESSA sjón kannast margir við: Michael Jackson
stígur úr flugvél með dulu fyrir andlitinu.
DEBBIE eiginkona Jacksons yfirgefur flugvél-
ina með soninn í fanginu.
Jackson-hjón í Vín
►MARGBREYTT andlit Micha-
els Jacksons var að venju hulið
þegar poppstjarnan steig út úr
einkaflugvél sinni á flugvellinum
í Vín í Austurríki á miðvikudag.
Tilefni heimsóknar Michaels var
tónleikar sem hann hélt 50.000
aðdáendum sínum þar í borg
sama kvöld.
Til tíðinda taldist að barns-
móðir Jacksons og eiginkona,
Debbie Rowe, var í fylgd með
kappanum, þótt ekki hafi þau
stigið samtímis úr flugvélinni.
Debbie hélt á syni þeirra hjóna,
„Prince" Michael og eins og sjá
má á myndinni einbeitti hún sér
að því að detta ekki í tröppunum.
Seal á
snjóbretti
►BRESKI söngvarinn
Seal var áberandi í skíða-
brekkunum í Pyrenea-
fjöllunum, en hann tók sér
frí frá tökum á nýrri plötu
til að fara á snjóbretti.
Hann er að sögn frekar
fær í þessari íþrótt og hér
má sjá hann á fleygiferð.