Morgunblaðið - 10.07.1997, Síða 12
12 FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Kennararáðning-
ar á Akureyri
Astandið
þokka-
legt
ÞOKKALEGA hefur gengið
að ráða kennara við grunn-
skóla á Akureyri fyrir komandi
skólaár. Að sögn Ingólfs Ár-
mannssonar, sviðsstjóra
fræðslu- og frístundasviðs
vantar enn nokkra kennara til
starfa og því varla hægt að
tala um að ástandið sé nema
þokkalegt.
Ingólfur segir ljóst að mun
minna sé um umsóknir frá
kennururn með réttindi í ár en
í fyrra. „í fyrra og að hluta
til árið áður voru umsóknir frá
réttindakennurum fyrr á ferð-
inni. Ég held að þessi mál leys-
ist fyrir haustið og það er ekk-
ert óvanalegt að þessi staða
sé uppi á þessum árstíma."
Skólastjórar grunnskólanna
ráða í stöður við skólana og
segir Ingólfur að þeir séu nú
famir að ráða fólk sem hefur
starfað hjá þeim áður en ekki
verið með full réttindi. Ingólf-
ur segir að búið sé að auglýsa
lausar stöður minnst þrisvar
sinnum og í kjölfarið hafa
skólastjórnendur sótt um und-
anþágur til ráðuneytis fyrir
fólk sem ekki er með full rétt-
indi.
Irsk tónlist
áCafé
Menningu
ÍRSK stemmning liggur í loft-
inu á efri hæð Café Menningar
laugardagskvöldið 12. júlí. Þá
spilar hljómsveitin PKK fyrir
dansi sem hefst kl. 23 og
stendur til 3. Unnendurírskrar
tónlistar ættu að kætast og
geta skemmt sér konunglega
við undirleik PKK frá Akur-
eyri.
Könnun á viðhorfi til stóriðju í Eyjafirði
Heldur fleiri með en á móti
NIÐURSTÖÐUR í viðhorfskönnun til stóriðju í
Eyjafirði sýna að 49% þeirra sem svöruðu eru
hlynnt stóriðju, 47% andvíg og 4% svöruðu ekki.
Fram kom í könnuninni að konur eru ívið andvíg-
ari stóriðju en karlar og Akureyringar ívið hlynnt-
ari en aðrir Eyfirðingar og þá hafa svarendur
svipað viðhorf eftir aldri.
Viðhorfskönnunin, sem kynnt var í gær, var
unnin á vegum Héraðsnefndar Eyjaijarðar að
frumkvæði verkefnisstjórnar um staðarval fyrir
stóriðju í Eyjafirði. Könnunin var gerð af Rann-
sóknarstofnun Háskólans, sem nú vinnur að nán-
ari greinargerð um könnunina.
Taldi meira fylgi við stóriðju
Rögnvaldur Skíði Friðbjörnsson, bæjarstjóri á
Dalvík og formaður Héraðsnefndar Eyjafjarðar,
sagðist hafa haldið að meira fylgi væri við stór-
iðju á svæðinu en þessi niðurstaða sýni. „Þrátt
fyrir að könnunin hafi verið unnin með þessum
hætti tel ég að fólk hafi verið að svara álverskönn-
un. Það hefur verið hörð umræða um álver í
Hvalfirði og gæti sú umræða hafa ráðið einhverju
í þessari könnun."
Fram kemur í könnuninni að fólk metur efna-
mengun minni en sjónmengun en í báðum tilfell-
um eru skoðanir nokkuð jafnskiptar um mengun
frá stóriðju. Talið er að áhrif á landbúnað og
ferðaþjónustu séu heldur neikvæð, en fremur já-
kvæð á verslun, þjónustu, flutninga og samgöng-
ur. Þá kemur fram að rekstur stóriðju muni valda
hækkun launa á svæðinu og fólksfjölgun.
Ekki stóriðja næstu 10 árin
Um 72% svarenda telja frekar ólíklegt að byggð
verði stóriðja í Eyjafirði á næstu 10 árum en 24%
telja það líklegt. Viðhorf til staðsetningar stóriðju
í_ Eyjafirði og þá annaðhvort á Dysnesi eða á
Árskógssandi er nánast jafnskipt, 117 nefndu
Dysnes en 101 við Árskógsströnd.
Rögnvaldur Skíði sagðist hissa á hversu marg-
ir telja að ekki séu líkur á stóriðju á svæðinu
næstu 10 árin. Hann sagðist ekki hafa upplýs-
ingar um afstöðu milli dreifbýlis og þéttbýlis á
svæðinu til stóriðju.
Endurskoðun á svæðisskipulagi
Tilefni könnunarinnar var að leita eftir viðhorfi
íbúa svæðisins í tengslum við endurskoðun á svæð-
isskipulagi Eyjafjarðar. í þeirri endurskoðun er
m.a. skoðuð staðsetning iðnaðarsvæða. Jafnframt
er aðalskipulag í þeim sveitarfélögum sem helst
hafa verið nefnd í þessu sambandi í endurskoðun.
Könnunin var gerð sem símakönnun á tímabil-
inu 2.-8. júní sl. Úrtak var valið tilviljanakennt
úr þjóðskrá, flokkað eftir kyni, aldri, búsetu með-
al íbúa í sveitarfélögunum í Eyjafirði og er Gríms-
ey þar meðtalin. Úrtakið var 460 manns, þar af
svöruðu um 270. Ekki náðist í um 90 og 90 neit-
uðu að svara. Af þeim sem náðist í var svarhlut-
fall um 60% og þá verður að taka tillit til að um
tilviljunarkennt úrtak úr þjóðskrá var að ræða
en ekki úr símaskrá.
GOÐIR
KOSTIR
MKURJYRI
ÞÚ VELÖR:
-FJ0R1Ð í MIÐBÆNUM
-FRIDSÆLDINA í KJARNASKÓGl
-EÐA LÁGA VERÐIÐ Á filSTlHEIMILINU
GULU VILLUNNIGE6NT SUNDLAUGINNI
fíW/f Hótel
Harpa
HAFNARSTRÆTI 83 - 85 SÍMI 4B1 1400
Sektargreiðslur ökumanna vegna umfer ðarlagabr ota á Akureyri
Bæjarbúar
greiða
milljónir
VERKEFNI lögreglunnar á Akur-
eyri voru 7.618 fyrstu sex mánuði
ársins. Flest einstök kærumál lög-
reglunnar á tfmabilinu snúa að
hraðakstri, eða um 670.
Lágmarkssekt fyrir brot á öku-
hraða er 7-12 þúsund kr. og því
má áætla að þeir sem teknir hafa
verið fyrir of hraðan akstur hafi
greitt um 6 milljónir á hálfu ári,
miðað við 9 þús. kr. meðaltalssekt.
Sekt fyrir ölvunarakstur er á bil-
inu 24-47.000 krónur auk öku-
leyfissviptingar í mislangan tíma.
Samkvæmt skýrslu lögreglu eru
ölvunaraksturstilfelli 59, auk þess
sem þrír voru teknir ölvaðir á reið-
hjóli. Ætla má að þessir vegfarend-
ur hafi greitt rúmar 2 milljónir í
sekt, miðað við 35.000 kr. meðal-
talssekt.
Margir án
ökuskirteinis
Lögreglan hefur haft afskipti af
294 ökumönnum á tímabilinu sem
ekki hafa haft ökuskírteini með-
ferðis. Sekt fyrir slíkt er á bilinu
3-7.000 kr. Miðað við 4.000 kr.
meðtalssekt hafa þeir greitt rúma
1,1 milljón.
Þá hefur lögreglan haft afskipti
af 488 ökumönnum og farþegum
sem ekki hafa notað bílbelti. Sekt
er á bilinu 3-4.000 krónur. Miðað
við 3.000 krónur eru sektargreiðsl-
urnar um 1,5 milljónir króna.
Sektargreiðslur
rúmar 10,5 milljónir
Miðað við þetta eru því sektar-
greiðslurnar rúmar 10,5 milljónir
króna, Rétt er að taka fram að
veita má sakborningi allt að 25%
afslátt ef hann greiðir sekt sína að
fullu innan 30 daga eða við undirrit-
un sektargerðar.
Olafur Ásgeirsson, aðstoðaryfir-
lögregluþjónn segir að stóran hluta
af þessum greiðslum geti bæjarbúar
sparað sér, með því að virða regl-
ur. „Þarna erum við að tala um
afskipti af á annað þúsund bæjarbú-
um. Þetta eru ótrúlegar fjárhæðir
sem bæjarbúar borga í sektir algjör-
lega að ástæðulausu," sagði Ólafur.
Morgunblaðið/Bjöm Gíslason
LÖGREGLUMENNIRNIR Guðni Hreinsson t.v. og Hermann Karlsson, opna bifreið ökumanns á
Akureyri. Fyrstu sex mánuði ársins þurfti lögreglan að opna bifreiðar fyrir ökumenn í 252 tilvikum.
Háskólinn á Akureyri
Háskólinn á Akureyri leitar að húsnæði fyrir einn starfsmann
sinn. Viðkomandi vill gjarnan hafa leiguskipti á u.þ.b. 200 fm
raðhúsi í Fossvogi og sambærilegu húsnæði á Akureyri, helst
í Lundahverfi.
Tilboð sendist í pósthóif 224 merkt „íbúð—Brekka“.
Barnadagar á Akureyri um helgina
Fjölbreytt og skemmti-
leg dagskrá í boði
ÞAÐ verður mikið um að vera á
Barnadögum á Akureyri um næstu
helgi. Hinn eini sanni Magnús
Scheving, hefur í samstarfi við
Akureyrarbæ og fleiri sett upp
mjög fjölbreytta dagskrá, þar sem
sýningar á hinu geysivinsæla leik-
riti Áfram Latibær er hápunktur-
inn.
Iþróttahöllinni á Akureyri verð-
ur breytt í leikhús um helgijia en
þar verða tvær sýningar á Áfram
Latibær, kl. 17 á laugardag og kl.
14 á sunnudag.
Áfram Latibær er vinsælasta
leikritið á íslandi á þessu ári en
yfir 20.000 manns hafa séð verk-
ið. Baltasar Kormákur er leikstjóri
en fjöldi þekktra leikara kemur
fram í sýningunni. Má þar nefna
Stein Ármann Magnússon, Sigur-
veigu Jónsdóttur, Magnús Ólafs-
son og Magnús Scheving en alls
taka 20 manns þátt í sýningunni.
Leikritið er skrifað eftir metsölu-
bók Magnúsar Scheving, Áfram
Latibær.
Skemmtun fyrir alla
fjölskylduna
Langt er síðan leiksýning af
þessari stærðargráðu fer út fyrir
Reykjavíkursvæðið en mikill áhugi
Áfram Latibær í
íþróttahöllinni
er fyrir sýningunni á Akureyri.
Magnús segir að með stuðningi
íslandsbanka á Akureyri hafi tek-
ist að ráðast í það stórvirki að flytja
sýninguna norður. Miðasala á sýn-
ingarnar fer fram í Radionaust á
Akureyri.
Barnadagar er skemmtun fyrir
alla fjölskylduna en dagskráin er
sniðin fyrir börn og fullorðna.
Dagskráin stendur í 12 klukku-
stundir, hefst kl. 9 á laugardags-
morgun og endar með barnaballi
kl. 19 í Sjallanum, með íþróttaálf-
inum og Siggu og Grétari úr
Stjórninni. Ballið stendur til kl. 21
og er aðgangur ókeypis.
Börnun boðið í sund
Barnadagarnir hefjast á því að
öllum börnum er boðið í sund á
Akureyri og geta þau tekið með
sér vindsængur, litla báta, kúta
og bolta og einnig verður sundleik-
fimi fyrir þá sem vilja. Á Akur-
eyrarvelli verður haldið íþróttamót
og þangað geta krakkar komið og
tekið þátt í ýmsum íþróttagreinum,
m.a. hlaupum, hástökki, kúluvarpi
og langstökki.
Fyrirhugað er að mála stærsta
barnamálverk á Islandi í göngugöt-
unni. Áhugasamir krakkar geta
tekið þátt í að mála það milli kl.
14 og 16 á laugardag en Örn Ingi
myndlistarmaður mun stjóma þeirri
vinnu. Nemendur Sumarlistaskól-
ans munu einnig mæta á Torgið
og sýna hvað þeir hafa verið að
gera að undanfömu. Götuleikhúsið
tekur þátt í Barnadögum og verða
félagar þess sýnilegir í bænum.
Átak um öryggi barna
Einnig verður hægt að skoða
hesta og fara stutta ferð á hest-
baki. Skoða flugvélar á flugvellin-
um, báta og skip á bryggjunni,
torfærubíla og hoppa í hoppkastala
eða renna sér í risarennibraut.
Þá verður á Barnadögum sér-
stakt átak um öryggi barna í um-
ferðinni í samvinnu við Umferðar-
ráð og Iögregluna á Akureyri, sem
°g öryggi barna í bíl. Fyrirtæki
kynna hvað er á markaðnum af
bílstólum og öðrum öryggisbúnaði
fyrir börn og hvernig hann skal
notaður. Loks verður Bókabúð
Jónasar með barnabókamarkað í
göngugötunni.