Morgunblaðið - 10.07.1997, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 1997 19
Ef þú átt Spariskírteini Ríkissjóðs og ætlar
að innleysa þau þann 10. júlí skaltu líta vel í
kringum þig áður en þú festir féð að nýju. Á
aðeins örfáum árum hefur fjármálaumhverfið
breyst og ávöxtunarleiðum tjölgað.
Gullin tækifæri verða nú æ oftar á vegi
sparifjáreigenda.
Kaupþing hf. stofnaði fyrsta verðbréfasjóð-
inn á íslandi, Einingabréf 1, 10. maí 1985.
Sjóðurinn fjárfestir í mörgum tegundum verð-
bréfa og með þeim hætti hefur tekist að ná
jafnri og góðri ávöxtun í gegnum árin. Ein-
faldur samanburður við Spariskírteini 85/lA,
sem var ein örfárra ávöxtunarleiða árið 1985,
segir allt sem segja þarf:
Tvær ávöxtunarleiðir árið 1985
Eign f dag miöaö viö 1.000.000 kr. kaup 10/5 1985 Árleg nafn- ávöxtun Árleg raun- ávöxtun
Einingabréf 1 Stofnaöur 10. mai 1985 9.034.000 kr. 19,83% 9,0%
Spariskírteini 85/lA 7.236.849 kr. 17,66% 7,0%
Afþessum samanburði sést að þeir sem
völdu Einingabréfl árið 1985 áttu þann
1. júlí s.l. 1,8 milljónum króna meira en þeir
sem völdu spariskírteini á sama tíma.
Kaupþing hf. og dótturfélög þess reka núna
11 verðbréfasjóði, þar af 4 í Lúxemborg, og
koma þannig til móts við flestar þarfir
sparifjáreigenda.
Með stofnun Einingabréfa 1 var sparifjár-
eigendum gefinn kostur á að taka þátt í góðri
ávöxtun á verðbréfamarkaði. Einingabréf 1 og
aðrir sjóðir í vörslu Kaupþings hf. hafa
fyllilega staðið undir þeim fyrirheitum sem
voru gefin í upphafi.
Hlutabréfasjóðurinn Auðlind hf., einn
stærsti hlutabréfasjóður landsins, er einnig í
vörslu Kaupþings hf. og kaup í honum nýtast
til frádráttar á tekjuskattsstofni.
Sparifjáreigendur geta keypt bréf í
sjóðunum á einfaldan og þægilegan hátt hjá
Kaupþingi hf. og sparisjóðunum um allt land.
KAUPÞING HF
Ráðgjafar Kaupþings hf. aðstoða þig við val
á ávöxtunarleiðum - þér að kostnaðarlausu.
Heimasíða Kaupþings hf. hefur að geyma
aðgengilegar upplýsingar um Einingabréf 1 og
aðra verðbréfasjóði sem gætu hentað þér.
A heimasíðunni getur þú auðveldlega
reiknað út verðmæti bréfa sem þú átt í
sjóðum hjá Kaupþingi hf. og auk þessfylgst
með stöðunni á verðbréfamarkaðnum.
www.kaupthing.is
Kaupþing hf. Ármúla 13A • 108 Reykjavík • Sími: 515 1500 • Fax: 515 1509
GSP/ÓK