Morgunblaðið - 10.07.1997, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 10.07.1997, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 1997 23 ERLEIMT Urðu fyrir miklum von- brigðum með niðurstöðuna Madríd. Morg’unblaðið. væru reiðubúnir til að taka fullan þátt í nýju hernaðaskipulagi NATO. Deila Spánvetja við Breta um Gí- braltar yfirskyggði hins vegar þessa yfírlýsingu. Robin Cook, utanríkis- ráðherra Bretlands, sagði í viðtali við breska útvarpið, BBC, að stjórn sín myndi beita neitunarvaldi gegn þátttöku Spáns í herstjórn NATO nema samið yrði um Gíbraltar, sem Spánvetjar hafa kallað síðustu ný- lenduna í Evrópu. Seint á þriðjudag svaraði Abel Matutes, utanríkisráðherra Spánar, og sagði að Spánvetjar myndu hvergi gefa eftir. “Spánn mun við- halda höftunum á Gíbraltar í lofti og legi,“ sagði hann á blaðamanna- fundi. „Spánn ætlar ekki að afnema nein höft, sem gætu haft áhrif á lögmætar kröfur um yfir- ráð yfir Gíbraltar." Til er samkomulag um notkun flugvallarins, en Spánvetjar hafa aldrei leyft að hann tæki gildi. Haft hefur verið eftir spænskum embættismönnum að semja megi um aðgang að sjávarleiðum, en ekki flugleiðum. Bretar eru ekki sáttir við afstöðu Spánvetja. „Okkar rök eru þau að vilji Spánvetjar ganga að fullu í bandalagið og sameinaða herstjórn þess verði þeir að hegða sér eins og bandamenn þegar við viljum fljúga okkar herflugvélum til og frá Gí- braltar," sagði Cook. Gíbraltar er syðst á Spáni og er við vestanverða innsiglinguna í Mið- jarðarhafið. Spánvetjar hafa í samn- ingum við NATO farið fram á yfir- ráð yfir öllu spænsku landssvæði og stjórn innsiglingarinnar í Miðjarðar- hafið. Spánvetjar gengu í NATO árið 1982, en gengu ekki inn í hernaðar- samstarfið. Spánska þingið hefur nú samþykkt að gengið verði í hern- aðararminn, en kjarnorkuvopn verði ekki geymd á Spáni. Áhersla á þátt Bandaríkjamanna Spænska dagblaðið E1 Mundo gerði andstöðu Rússa við stækkun bandalagsins að höfuðatriði í forsíðu- fyrisögn í gær þar sem vitnað var til þeirra orða Jevgenís Prímakovs, utanríkisráðherra Rússlands, sem ekki kom til fundarins í Madríd held- ur sendi staðgengil í mótmælaskyni, að þetta væru mestu mistök NATO frá lokum heimsstyijaldarinnar síð- ari. Vestrænir fjölmiðlar lögðu hins vegar yfirleitt áherslu á að Bandarík- in þefðu fengið sitt fram. í fyrirsögn á forsíðu suður-þýska dagblaðsins Suddeutsche Zeitung sagði að „einungis11 yrði fjölgað um þtjú ríki í NATO. í International Herald Tribune var hins vegar talað um sögulega stækkun. „Með kvölum,“ var fyr- irsögn forsíðuleiðara þýska dagblaðsins Frankfurter Allgemeine Zeitung. Þar sagði að það væri ekki að ástæðu- lausu að það orð færi af NATO að þar færi það bandalag eftirstríðsár- anna, sem mestum árangri hefði náð: „Það komst yfir það pólitíska jarðsprengjusvæði, sem varð að gera til að ákveða stækkunina, án þess að valda sjálfu sér og sambandinu við lykilríki Varsjárbandaiagsins fyrr- verandi teljandi tjóni." Leiðarahöfundur blaðsins segir hins vegar að aldrei haft komið skýr- ar fram en í Madríd hver fari með hið pólitíska vald í hernaðarbanda- laginu og fyrir þær sakir muni ákveðin aðildarríki eiga erftðara með að kyngja hlut Bandaríkjamanna í ákvörðuninni um að stækka NATO. „Hins vegar verða Evrópuríkin að spytja sig hvort afstaða þeirra til fjölda og vals úr hópi umsækjend- anna hefði ekki vegið þyngra hefðu þau megnað að tala einni röddu,“ sagði síðan. RUMENAR höfðu bundið miklar vonir við að verða meðal þeirra ríkja, sem boðið yrði að semja um inn- göngu í Atlantshafsbandalagið (NATO) á leiðtogafundinum, sem lauk í Madríd í gær, og voru það þeim mikil vonbrigði að aðeins Pól- vetjar, Tékkar og Ungvetjar duttu í lukkupottinn. Davíð Oddsson for- sætisráðherra átti í gær fund með Emil Constantinescu, forseta Rúm- eníu, og sagði að honum loknum að svo virtist sem forsetinn hefði trúað því fram á síðustu mínútu að Rúmen- ar yrðu með í fyrstu umferð stækk- unar NATO. „Það er alveg ljóst að þeir hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum með þessa niðurstöðu,“ sagði Davíð. „Það kom mér á óvart að þeir virtust hafa bundið við það vonir allt fram til síðustu stundar að fimm ríki yrðu að lokum tekin inn í NATO og niður- staðan því komið þeim á óvart. Það bendir til þess að einhveijar þjóðir hafí gefið þeim meiri væntingar en efni stóðu til.“ Frakkland er það NATO-ríki, sem lagði mesta áherslu á að Rúmenum yrði boðið til viðræðna um inngöngu í bandalagið, og höfðu Rúmenar einna mest samráð við Frakka í baráttunni fyrir því að vera með í fyrstu lotu stækkunar NATO. „Ég fór yfir það með forsetanum að ég hefði talið um nokkurt skeið augljóst að það yrðu aðeins tekin inn þijú ríki á þessum fundi,“ sagði Dav- íð. „Hann hefði því ekki átt að hafa væntingar um annað. Hann fór yfir það hvaða fórnir þjóðin hefði fært, bæði fj'árhagslega og þær skuldbind- ingar, sem þeir hefðu gert varðandi hernaðaruppbyggingu og þátttöku þeirra í friðargæslu í Albaníu, Bosníu og víðar. Aðrir hefðu neitað að taka þátt í þessum aðgerðum, en það hefðu Rúmenar gert til að sýna vilja sinn til þess að taka þátt í vestrænu hjálp- arstarfi, þar sem þess væri þörf. Hann teldi að þjóðin, sem hefði fært þessar fómir mundi eiga erfitt með að skilja að hún hefði ekki uppskorið með þeim fómum og þessum miklu breytingum aðgang að NATO. Þeir hefðu unnið hratt að því að uppræta leyniþjónustuna, sem hefði enn þá verið skaðræðisgripur, þeir hefðu skipt um flesta sendiherra, gríðarlega mikið af ungu fólki með menntun frá Vesturlöndum hefði verið sett inn í stjórnkerfið og það hefði engin tengsl við kommúnista. Allt hefði þetta verið gert af mikl- um ákafa og öryggi og það hefðu orðið þeim rík vonbrigði að allir þess- ir þættir hefðu ekki nægt til þess að þeir væru metnir verðugir til aðildar að NATO. Hann sagði að hann sæi ekki að Rúmenar brygðust nokkurs staðar þeim skilyrðum, sem sett hefðu verið fyrir NATO-aðild.“ Yfirlýsingin túlkunaratriði Constantinescu sagði í gær að það væri túikunaratriði hvernig lagt væru út af orðum yfirlýsingar leið- togafundar NATO um að dyrnar yrðu áfram opnar fleiri ríkjum, sem vildu aðild, og nefndi sérstaklega jákvæða þróun í Rúmeníu, Slóveníu og Eystrasaltsríkjunum. “Ég hef mína túlkun, Rúmenska þjóðin hefur sína túlkun og blaða- menn hafa enn aðra túlkun," sagði hann og bætti við að hann hefði spurt alla leiðtoga NATO-ríkja nema Bill Clinton Bandaríkjaforseta hvernig túlka bæri orðalagið. Jacqu- es Chirac, forseti Frakklands, hefði sagt að hann skildi það sem svo að það væri í samræmi við það, sem hann hefði viljað frá upphafi: að önnur lota stækkunar yrði árið 1999 og þá yrðu Rúmenar hafðir með. Gert hefði verið ráð fyrir því að þessi spurning myndi vakna og hann gæfi þetta svar. Romano Prodi, for- sætisráðherra Ítalíu, hefði gefið sama svar. Constantinescu var spurður hvaða skilning hann hefði lagt í orð Davíðs Oddssonar á fundi þeirra og utanrík- isráðherra þjóðanna, Rúmenans Adrians Severins og Halldórs Ás- grímssonar. “Hann gaf sömu túlk- un,“ sagði forseti Rúmeníu. “Þá vaknar spurningin hvers vegna það hafí ekki einfaldlega verið sagt í yfirlýsingunni. Ástæðan er sú að boð um inngöngu er háð því að þróunin verði sú sama í umræddum ríkjum, en hafi miklar breytingar átt sér stað 1999 gæti gegnt öðru máli.“ Davíð sagði að fundurinn hefði ekki breytt afstöðu sinni og það hefði ekki verið raunsætt að önnur ríki hefðu verið með en þau þijú, sem tilkynnt var um á leiðtogafundi NATO. Að sögn Davíðs lagði Const- antinescu áherslu á að þann vildi auka og efla samskipti íslands og Rúmeníu. “Svo lauk hann samtalinu með því að bjóða mér í heimsókn til Rúmeníu þegar tækifæri og timi gæfist fyrir báða aðilja." Bandaríkin fengu sitt fram í góöu sambdadi - meÖ Talhólfi Pósts 0% síma Talhólfið tekur við skilaboðum þegar þú ert ekki heima, kemst ekki í símann eða ert að tala í hann. Það getur tekið við mörgum skilaboðum í einu og segir þér síðan hvenær þau voru lesin inn. Þú þarft ekki að kveikja á Talhólfinu, það er vakandi allan sólarhringinn. Talhólfið færir þér kosti símsvarans en losar þig um leið við gallana. Það er einfalt í notkun, ódýrt og áreiðanlegt, og það sem mest er um vert: það tekur ekkert pláss. Stofngjald fyrir Talhólf er aðeins 623 kr. og árs- fjórðungsgjald 374 kr. Að flytja símtal í Talhólf er ókeypis. Talhólfið kemur sér vel fyrir þá sem nota venju- legan síma og ekki síður fyrir farsímanotendur. Hringdu í gjaldfrjálst þjónustunúmer Pósts og síma 800 7000 og pantaðu þér Talhólf. TALHÚLF PÓSTS OGSlMA li'I'l 7000 Gjaldfrjálst þjónustunúmer PÓSTUR OG SÍMI HF
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.