Morgunblaðið - 10.07.1997, Síða 30

Morgunblaðið - 10.07.1997, Síða 30
30 FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ Kirkja og kirkjuskrúð OST OG HÖNNUN Þjóöminjasafniö MIÐALDAKIRKJAN í NOR- EGI OG Á ÍSLANDI/SAM- STÆÐUR OG ANDSTÆÐ- UR NORSKASTOFNUNIN UM RANNSÓKNIR MENNING- ARMINJA Opið alla daga frá 11-17. Lokað mánudaga. Aðgangur 300 kr. Sýning- arskrá 3.000 Kr. Til 12. október. SUMARSÝNING Þjóðminjasafns íslands er eins konar samanburðar- fraeði um miðaldakirkjuna í Noregi og á íslandi. Segir frá rannsóknum á þeim merkilega vettvangi í báðum löndunum, niðurstöðum þeirra, hvaða áhrif kristin trú hefur haft á þjóðfélögin fyrir rúmum þúsund árum og fram eftir miðöldum. Margar spurningar vakna þegar gengið er til slíks samstarfs, hvaðan komu sterkustu áhrifin, hver eru þau, hvernig bárust straumarnir og hvernig var unnið úr þeim í löndun- um hveiju fýrir sig? Það var að vonum að rýnirinn nálgaðist sýn- inguna af mikilli eftirvæntingu opn- unardaginn, en gætti þess full vel að koma ekki á meðan örtröðin væri mest. Er hann rann í hlað var sum sé komið að lokun og hann náði ekki að skoða sýninguna fyrr en viku seinna, aðrar og sem standa mun skemur þrýstu á. Átti von á viðamikilli framkvæmd í Ijósi til- standsins kringum opnunina, ýmissa fyrri framkvæmda og efnis- ríkrar sýningarskrár prýddrar mörgum litmyndum sem honum hafði hlotnazt og flett í, en önnur reyndist svo raunin. Sýningin hefst á palli þriðju hæðar með líkani af 1000 ára mið- aldakirkju, og þar ligga einnig frammi bækur er skara kirkjulista- söguna, en svo er hún einungis í miðsölunum þrem svo ekki þarf gesturinn að eyða ýkja miklum tíma við skoðun hennar þótt glögg- lega sé í kjölinn rýnt. Hins vegar er það sem frammi liggur afar merkilegt og sjálf skráin, sem er framúrskarandi vel úr garði gerð, gefur þeim er les mun meira tilefni til hugleiðinga og eftirþanka. Fyrir utan stuttan formála menntamála- ráðherra, Björns Bjarnasonar, og ítarlegt sögulegt yfirlit Helga Þor- lákssonar eiga héilir 15 sérfræð- ingar greinar í ritinu. Greinunum er ætlað að gefa yfirlit yfir þau viðfangsefni sem lúta að saman- burði kirkjubygginga og kirkjulist- ar í löndunum og er um að ræða afar mikinn og skilvirkan fróðleik á mjög aðgengilegu máli. Skráin er hvemig sem á málið er litið hvalreki um almennar heimildir um hina aðskiljanlegustu þætti kirkju- sögu þjóðanna á tímabilinu, og þannig séð yfirmáta þýðingarmikil samantekt sem gott er að hafa á milli handanna. Sagt ér skilmerki- lega frá hlutunum, þótt fyrir komi að getspekipúkinn láti full mikið á sér kræla, en slíkt á öllu frekar heima í fræðiritum sem galopinn vettvangur til umfjöllunar en al- mennu upplýsingariti. Þannig vilja ýmsir hérlendir menn ekki kannast við þá tilgátu, að varðandi skírnir hafi trúlega verið útbúið lokað skýli við vatnsból til að unnt væri af velsæmisástæðum og vegna kulda- stigs að dýfa skírnarþegum alls- berum ofan í vatnið. Engar heim- ildir munu um slíkt á Islandi og til kvaddur iitúrgíufræðingur hjá kaþólsku kirkjunni, lærður í Páfa- garði, telur þessa kenningu með ólíkindum, m.a. vegna þess að kyn- in voru að jafnaði aðgreind við skírn og svo fóru skírlingar ekki allsnaktir í vatnið, heldur ýmist í kyrtlum eða með lendaklæði. Og fleira telur hann til. Það má með réttu halda því fram, að ólíkt farsælla sé að hafa yfír- gripsmiklar heimildarskrár yfír litl- ar sýningar en litlar og snautlegar um stórar og viðamiklar fram- kvæmdir, sem hefur verið alltof algengt hér á landi fram að þessu, þótt sjálft Þjóðminjasafnið hafí í seinni tíð iðulega gert hér vel. Það er einfaldlega svo gífurleg vinna sem fer í súginn ef menn sinna ekki þessari hlið að marki, heimild- ir týnast eða eru á reiki, sem er óskastaða þeirra er halla þurfa rétt- um áherzlum. Fram kemur að mikill munur er á gripunum sem varðveitzt hafa í löndunum tveimur og eðlilega meira úrval frá Noregi. Af vinnsluferlinu má gera ráð fyrir að hliðstæðir hlut- ir hafí verið til á íslandi, en á sum- um sviðum hefur hvert land sína sérstöðu. Frá íslandi hafa varð- veitzt glæsileg útsaumuð altaris- klæði, sem vart finnast í Noregi, og listilega skrifuð handrit. Aftur á móti hafa varðveitzt málaðar fyr- LISTIR BEKKBRÚÐA, Tydals kirkja, 13.-14. öld. ELSTA þekkta mynd af íslenzkri kirkju er útskurðarmynd á Valþjófstaðahurðinni sem talin er vera frá því um eða eftir aldamótin 1200 (hluti). irbríkur og önnur kirkjumálverk frá Noregi. I engu öðru landi hefur varðveitzt eins mikið af fyrirbríkum frá 13.-14. öld, en eru þó einungis fátæklegar leifar af því sem á sínum tíma hefur verið ríkuleg framleiðsla á. Var um að ræða helgimyndir þar sem bindiefnið var línolía, olían og litarefnin innflutt en teiknistíllinn enskur. Þekking sem sprottin er upp í öðru landinu varpar mögulega ljósi á aðstæður í hinu. Loks ber að geta að íslenzkir máldagar eru eins- dæmi í Evrópu, en það eru nákvæm- ar skrár yfir kirkjugripi allt mið- aldatímabilið, frá gylltu helgiskríni niður í prestspaða. Gefa heillega mynd af kirkjubúnaði á tímabilinu og sú mynd getur átt við víðar um lönd. Ekki þarf að fara mörgum orðum um sögulegt vægi sýn- ingarinnar, og enn kemur fram að þótt lítið hafi varðveitzt af fornum minjum kirkjunnar á ís- landi, er það afar merkilegt og bregð- ur nokkuð öðru ljósi á söguna en ýmsar ritaðar heimildir á seinni tímum. List- fengi íslendinga engu minna en gerðist annars staðar nema síður væri, en varðveizlu- tilfinningin til muna bágbornari. Full mikið er um eftirgerðir og ljós- myndir ásamt ilmi af nýjum viði, en það dregur um leið skýrlega fram yfirburði frumgerða, þótt vitaskuld verði ekki hjá hinu komizt í ljósi upplýsingastreymisins. Og svo er líka hægt að líta sumar frumgerð- irnar og auðga jafnframt þekking- ar- og skynsviðið með því að líta inn í sýningarsali Þjóðminjasafns- ins. Skal hér sérstaklega vísað til útskurðar ýmiss konar, vefnaðar og textíla, minnt um leið á frábært tækifæri til að kynna sér handrit og myndlist í miðaldabækur íslands í nágrenninu, Árnagarði og Þjóðar- bókhlöðunni. Fram hjá því skal ekki litið, að hér er stigið skref fram á við í þá átt að gera fornminjar áhugaverð- ar fyrir almenning, en fornminja- söfn voru áður fyrr þunglamalegar og illa skipulagðar stofnanir, hlut- um hrúgað saman og rakastigi kringum þá ábótavant. Bygging- arnar iðulega þungar og lítið aðlað- andi, inni fyrir ríkti drungalegur andi liðins tíma, stundum jafnvel áhöld um hvorir væru eldri safn- verðirnir eða safngripirnir. Nú er raunin önnur og ýmis fornminja- söfn, að maður minnist ekki á nátt- úrusögu- og vísindasöfn, með mest lifandi og skemmtilegustu stofnun- um heim að sækja, engu síður en þar sem fagurfræðin situr ein í öndvegi. Hér skiptir eins og fyrri daginn nefnilega öllu að vekja for- vitni þeirra sem rata inn í þau, helzt á þann veg að viðkomandi standi mun lengur við en áætlað, og þörf vakni til að koma aftur, - og aftur. Eðlilega er lögð mikil áherzla á kirkjubyggingarlist og þróunarsögu hennar og meðal fyrirferðarmestu hlutanna er tilgátulíkan af íslenzkri miðaldadómkirkju gert í samvinnu við Hörð Ágústsson listmálara, en þær voru vel að merkja stærstu stafkirkjur sem sögur fara af. Hér eru helzt til ritaðar heimildir af ýmsum toga, sem greina þó frá stærð þeirra og gerð í mörgum at- riðum. Eftir skoðun framkvæmdar- innar má vægi þess að viðhalda minjum fortíðar vera deginum ljós- ara og vonandi stuðlar sýningin og aðrar framkvæmdir er skara sjón í sögu að því að opna augu ráða- manna. Fjölmörg verkefni bíða úr- lausnar á tímum er Urður biðlar stíft til Verðandi. Bragi Ásgeirsson Að umrita og um- semja verk annarra TÓNIIST Listasafn Sigurjóns Ólafssonar KAMMERTÓNLEIKAR Sigurlaug Eðvaldsdóttir, Peter Tompkins og Guðríður St. Sigurðar- dóttir fluttu tónverk eftir Handel, Oliver Kentish, Ibert, Cui og J.S. Bach. Þriðjudagurinn 8. júlí, 1996. ÞAÐ er eins með Handel og J.S. Bach að þeir gjörðu mikið af því að afrita verk annarra og er jafnvel talið að kennara Handels, Zachow, sé um að kenna en hann lét drenginn afrita og umrita verk annara. Zachow þessi, sem var orgelleikari við Liebfrauenkirche í Halle, átti mjög stórt safn tónlist- arhandrita. Þessi afritunarvenja var og hagnýt, því Handel dvaldi ekki lengi við gerð verka sinna og mun, ásamt vini sínum Tele- mann, hafa lagt áherslu á að vera fljótur að semja og því oft gripið til þess sem hann hafði fyrr sam- ið og ekki síður, það sem hann þekkti eftir aðra. Fram til þessa tíma hafa tónlistarsagnfræðingar átt í mestu vandræðum með að ákveða hvað væri Handels og hvað annarra tónskálda. Tríó-sónatan eftir Handel, sem tónleikarnir hó- fust á, er nr. tvö af sex sónötum, sem gefnar voru út af Walsh 1730. Talið er að Handel hafi samið þetta verk er hann var 14 ára. í útgáfunni frá 1730 er verkið í g-moll en d-moll gerðin, sem var leikin á þessum tónleikum er flokkuð með verkum sem efast er um að séu eftir Handel. Hvað sem þessu líður, hefur Handel mjög líklega gert endurbætur á verkinu fyrir útgáfuna. Þetta er á margan hátt skemmtilegt og leikandi létt verk sem var vel flutt af Peter, Sigurlaugu og Guðríði. Annað verkið á efnisskránni var Þríleiks- verkið ÞAR, (1984) eftir Oliver Kentish. Nafnið ÞAR er dregið af upphafstöfun nafna þeirra sem verkið var samið fyrir, nemendur við Tónlistarskóla Akureyrar. Verkið er sundurlaust að formi til en mjög áheyrilegt, ekki erfitt í flutningi og var sérlega fallega flutt. Aría eftir Jacques Ibert er fallega samið verk, er var mjög vel flutt og sama má segja um fimm smáverk eftir César Cui, einn af „fimmmenningunum" rússnesku (Korsakov, Borodin, Balkírev, Mussorgskí og Cui). Cui ritaði greinar í frönsk tónlistar- tímarit og vakti athygli manna á hinum svonefnda „nýja rússneska skóla“. Faðir Cuis var offiseri í her Napóleons og varð innlyksa í Moskvu, þegar franski herinn flúði þaðan 1812 Hann starfaði í Rússía sem frönskukennari. Cui yngri, sem var menntaður í her- fræðum, var afkastamikið tón- skáld og tónlistargagnrýnandi. Smálögin fimm eru leikandi léttar tónsmíðar og mátti heyra á út- færslu flytjenda, að töluverð skemmtan er að leika þessi lög. Lokaverk tónleikanna var kon- sert fyrir fiðlu, óbó og fylgirödd eftir J.S. Bach en varðandi þetta verk gildir sama óvissan og hjá Handel, að sú gerðin sem leikin var hér er í raun glötuð, en endur- ritað upp úr konsert fyrir tvo semb- ala. Upphaflega var verkið samið fyrir fiðlu, óbó og fylgirödd. Við umritun verka sinna gerði Bach oft margvíslegar breytingar, svo að umritun seinni tíma manna gefur trúlega ekki alveg rétta mynd af upprunagerðinni. t.d. er ótrúlegt að undirleikurinn hafi ver- ið svona einlitur eins og gat að heyra í hæga þættinum. Hvað sem þessu líður og sú staðreynd, að aðeins fjórir einleiks- og tvíleiks- konsertar eftir Bach eru til í sinni upprunalegau gerð, er verkið í heild mjög skemmtilegt og þarna mátti heyra ekta kammertónlist flutta í þeim gæðaflokki sem henni ber. Fyrsti kaflinn, en þó sérstak- lega sá þriðji voru afburða vel flutt- ir og sama má reyndar segja um miðkaflann, sem í þessari umritun er sérlega ó-Bach-legur, sérstak- lega er varðar hlutverk fylgi- raddarinnar. Þetta vandamál um- ritunar er í raun sérkennandi fyrir barokk-tónskáldin og skemmdu þeir margt af sínum verkum, aðal- lega frumgerðir og tóku ýmislegt að láni, sem aðeins á seinni tímum hefur verið leiðrétt. í heild voru þetta góðir tónleik- ar, framfærðir af kunnáttu og músíkalskri alúð er átti sér stæsta umfangið í verki J.S. Bach, sér- staklega í lokaþættinum, sem var mjög vel leikinn. Jón Ásgeirsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.