Morgunblaðið - 10.07.1997, Síða 44

Morgunblaðið - 10.07.1997, Síða 44
44 FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 1997 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ OLAFUR VALGEIR EINARSSON + Ólafur Valgeir Einarsson, sjáv- arútvegsfræðingur, fæddist í Reykjavík 3. júní 1952 og ólst þar upp. Hann iést í Sjúkrahúsi Reykjavíkur 22. júní síðastliðinn og fór útför hans fram frá Dómkirkjunni 2. júlí. Með fáum og fátæk- legum orðum langar mig að minnast Ólafs V. Einarssonar. Ég kynntist Óla fyrst á Hafrannsókna- stofnuninni þar sem við hófum störf um svipað leyti fyrir um það bil 25 árum. Nokkrum árum seinna og eins og oftar í mínu starfi kynntist ég Óla raunverulega fyrst um borð í hafrannsóknaskipi í sjóleiðangri við ísland. Það var mikil ánægja af því að starfa með Óla því hann kunni að gera starfið iifandi, og það var sama hvort verið væri að mæla fisk eða sjávarhita. Á löngum næt- urvöktum var lítið um að menn litu á klukkuna, heldur voru skemmti- legar umræður um starfið, fiskinn í sjónum og framtíðina. Síðan skildi ieiðir um tíma, Óli réð sig í starf til þróunarlandsins Malawi þar sem hann hóf sinn fer- il sem ráðgjafi í sjávarútvegsmálum í Afríku. Þar vann hann í tvö ár við góðan orðstír og 1992 var hann beðinn um að koma til Namibíu sem sérstakur ráðgjafi við sjávarútvegs- deild sambands þróunarríkja í sunn- anverðri Afríku í höfuðborginni Windhoek. Fyrir góð orð Óla var ég ráðinn af Þróunarsamvinnustofnun íslands til að koma til starfa tímabundið í Namibíu til að taka þátt í uppbygg- ingu sjómælinga við strönd þess lands. Þar hittumst við á ný og vorum í góðu sambandi og heim- sóttum hvor annan eins oft og starf- ið leyfði, en 400 km voru á milli okkar aðsetra. Þá voru rifjaðir upp gamlir tímar, rætt opinskátt um starfið í Afríku og það nýja um- hverfi sem við vorum báðir komnir í, og hann kunni að hvetja menn til dáða í hinu daglega amstri og nýrri vinnu þar sem við vorum að reyna að hjálpa Afríkuþjóð fram á veginn í hafvísindum. Öli ferðaðist mikið á milli samstarfslanda í sunn- anverðri Afríku og hvar sem hann kom ávann hann sér mikia virðingu og traust innfæddra sem eru að byggja upp sínar stofnanir og starfslið á þessu sviði. Óli endaði sinn feril í starfmu fyrir Afríku. Hans verður víða saknað í þeim heimshluta því erfitt verður að fylla það skarð sem hann skildi eftir. Að lokum vil ég þakka fyrir að hafa kynnst Óla. Megi guð styrkja ykkur öll, elsku Ásdís, Vilhjálmur og dætur. Stefán S. Kristmannsson. JN í Namibíu eru búsettir um 100 íslendingar, flestir í sjávarbæjunum Lúderitz og Walvis Bay á strönd Suður-Atlantshafsins. í höfuðborg- inni Windhoek, sem liggur inni í miðju landinu, starfaði lengst af frá stofnun lýðveldisins Namibía, að- eins einn íslendingur, Ólafur V. Einarsson, og var svo þar til ég var ^rxxxxxxxxx^ H H H H H H H H H H Erfidrykkjur Sími 562 0200 H H H H H H ' H H H H cxiixiirmil ráðinn til Windhoek fyrir tveimur árum síð- an. Þótt við Ólafur ynnum hvor á sínu sviði, höfðum við mikið samband og samvinnu, og tókst með okkur góð vinátta. Ólafur starfaði fyrir Þróunarsamvinnu- stofnun íslands (IC- EIDA) í sjávarútvegs- ráðuneyti Namibíu sem ráðgjafí SADC-ríkj- anna í öllu því er lýtur að sjávarútvegi og nýt- ingu sjávarafurða, en Namibía gegnir forystuhlutverki í þeim málaflokkum innan SADC. Naut Ólafur mikils álits í starfi sínu og voru honum falin margvísleg trúnaðarstörf, ekki aðeins fyrir Namibíu heldur einnig fyrir SADC- ríkin sem heild. SADC-ríkin tólf eru þau ríki sem liggja syðst í Afríku. Mikil haf- svæði tilheyra þessum Iöndum og nær samanlögð strandlengja þeirra frá Angólu við Suður-Atlantshafíð á vesturströnd Afríku, suður um og fyrir syðsta odda álfunnar og norður um austurströndina við Ind- landshafíð allt til Tansaníu. Um miklar auðlindir er því að ræða fyr- ir SADC-ríkin og mikilvægt að nýt- ingu þeirra sé vel stjórnað. Þar var Ólafur V. Einarsson réttur maður á réttum stað og naut hann sín ve! í starfi sínu. Talaði hann gjarnan um það og þau markmið sem hann stefndi að, og var öllum ljóst er til heyrðu að þar fór maður með hug- sjón sem hafði trú á því sem hann var að gera. Eðli starfsins vegna þurfti Ólafur að ferðast mikið um Afríku, sér- staklega um SADC-ríkin, og var hann því meira og minna á stöðugu ferðalagi. Spurði ég Óla gjarnan í gamni hvort hann væri nýkominn eða rétt ófarinn, þegar fundum okkar bar saman. Venjulega voru bæði svörin rétt. Þekkingu á sviði sjávarútvegsmála hef ég takmark- aða, en eitt sinn hélt Ólafur fræðslu- erindi í Rotary- klúbbi Windhoeks um starf sitt að sjávarútvegs- og fískveiðimálum í SADC-ríkjunum. Erindið flutti hann á svo ljóslifandi og skýran hátt, að allir fundarmenn úr hinum ólíkustu starfsgreinum skildu. í lok fundarins tók einn Rotary félaginn, þingmaður í nam- ibíska þinginu, til máls og þakkaði fyrir erindið. Sagðist hann hafa lært meira um fískveiðimál og vandamál fiskiðnaðarins af þessu eina erindi Ólafs en öllum þeim umræðum sem hefðu átt sér stað í þinginu um þessi mál. Þróunars- amvinnustofnun íslands (ICEIDA) vinnur mikið og merkt þróunarstarf hér í Namibíu og innan SADC-ríkj- anna. Það starf hefur nú þegar borið ríkulegan ávöxt og þeim fjár- munum sem íslendingar leggja fram til þróunarmála í þessum ríkj- um hefur verið vel varið. Minningu Ólafs V. Einarssonar verður best haldið á lofti með því að tryggja, að það starf sem hann lagði grunn- inn að og byggði upp þau ár sem hann vann að þessum málum, verði haldið áfram í þeim anda og með þeirri atorku sem hann sýndi í starfi sínu. Eiginkonu Ólafs, Ásdísi Einars- dóttur, og börnum hans sendum við hjónin innilegar samúðarkveðjur. Grétar H. Óskarsson, flugmálastjóri Namibíu. Mönnum verður alltaf orða vant rið fregnir af ótímabæru fráfalli iamferðamanna. Ólafí Valgeiri Ein- irssyni kynntist ég fyrst á mennta- skólaárunum, þar sem við stunduð- um nám á sitt hvoru árinu. Eftir það lágu leiðir okkar víða saman. Tíðust voru samsipti okkar í Tromsö þar sem við lögðum báðir stund á nám í sjávarútvegsfræði og æ síðan hafa samskipti okkar einkennst af einlægri og traustri vináttu. Sú vin- átta náði einnig til fjölskyldna okk- ar og sú staða hélst þótt fjölskyldu- hagir Ólafs hafí breyst síðan þá. Ölafur vann sér gott álit allra, sem honum kynntust. Hann var hæfur starfsmaður og allir gátu gengið að því sem vísu að það sem hann tók sér fyrir hendur var vel unnið og af ósérhlífni. Hann var einnig afar dagfarsprúður maður og fór alltaf friðsamlega að hlutun- um þótt hann gæti verið stífur á sinni meiningu. Ólafur var afar trygglyndur maður og traustur vin- ur vina sinna. Það er erfitt að hugsa til þess að Ólafs sé ekki aftur að vænta í heimsókn til okkar á Akureyri. Heimsóknir Ólafs og hans fólks voru alltaf tilhlökkunarefni, enda um nóg að tala. Og þótt atvikin hafi hagað því svo til að samveru- stundirnar hafi verið fáar síðustu árin, þá skilur fráfall Ólafs eftir sig stórt og vandfyllt skarð í þá veröld, sem vinahópurinn myndar. Ég vil fyrir hönd okkar Herdísar votta Ásdísi, börnum Ólafs og öðr- um ástvinum okkar dýpstu samúð- ar. Megi minningin um góðan dreng leggja líkn með þraut. Pétur Bjarnason. Fréttin um að Ólafur Einarsson væri dáinn kom okkur fyrrum sund- félögum hans í opna skjöldu. Mig langar því að kveðja gamlan félaga úr Sundfélaginu Ægi, með nokkr- um minningabrotum. Á síðari árum hafa flest okkar reynt að fylgjast með Óla Einars, eins og hann var kallaður í okkar hópi, í gegnum fjölmiða, þar sem hann starfaði í framandi löndum, fjarri ættjörð- inni, að krefjandi og vandasömum verkefnum á sviði sjávarútvegs. Ég kynntist Óla þegar hann hóf æfíngar hjá Sundfélaginu Ægi árið 1962. Á þessum árum var mikill uppgangur hjá félaginu og var Óli því í hópi fyrstu öldu ungs afreks- fólks, sem kom frá Ægi á þessum árum, eftir að enduruppbygging félagsins hófst. Fljótlega kom í ljós að Öli var efnilegur og kraftmikill sundmaður. Hann stundaði æfingar með félögum sínum af miklum áhuga og metnaði, enda var mark- miðið, að gera Ægi að besta sundfé- lagi landsins, öllum ljóst, ekki síst Óla. Bestur var hann í bringu- sundi, en vel liðtækur í öðrum sund- aðferðum. Hann setti fjölda sveina- og drengjameta. Árið 1966 setti Óli 12 drengjamet. Já, á þessum árum gekk mikið á og eitthvað varð undan að láta. Fyrsta utan- landsferð Óla með Ægi var til Darmstadt árið 1967, til þátttöku í stóru alþjóðlegu unglingamóti. Svo vel tókst til með þessa ferð að sam- skipti Ægis og sundfélagsins í Darmstadt standa enn, með gagn- kvæmum heimsóknum. Óli var val- inn til keppni á Norðurlandameist- aramóti unglinga og keppti einnig fyrir íslands hönd á fyrsta Evrópu- meistaramóti unglinga, sem haldið var í Svíþjóð í ágúst 1967. Ólafur var skemmtilegur félagi og tók virk- an þátt í öllu félagsstarfi Ægis, s.s. spila- og skemmtikvöldum, skálaferðum o.fl. Hann var fastur fyrir og fylginn sér og gerði kröfur til sjálfs sín. Óli var sjálfstæður einstaklingur, sem lét ekki tískustrauma líðandi stundar raska ró sinni. Meðal okkar félaganna voru menn með þessa góðu eiginleika kallaðir „frum- menn“ í jákvæðasta skilningi þess orðs. Óli hafði einmitt þann mann að geyma að takast á við verkefni sem voru framandi og fáir aðrir höfðu reynt, eins og síðar kom í ljós á starfsævi hans. Þar nýtti hann sér kjark, dugnað og áhuga sinn á því sem hann tók sér fyrir hendur hverju sinni. Þó svo að Óli byggi erlendis við nám og störf, þá hafði hann ávallt áhuga á að fylgj- ast með gamla félaginu og vel- gengni þess. Samferðafólk ðla úr sundhreyfingunni geymir góðar minningar um stóran og sterkan en ljúfan og trygglyndan mann. Fyrir hönd þeirra votta ég eftirlif- andi eiginkonu, börnum og foreldr- um Ólafs dýpstu samúð okkar. Guð blessi ykkur öll. Guðmundur Þ. Harðarson. Það gerist ekki á hveijum degi að erlendur þjóðhöfðingi sendi einkaþotu sína í sjúkraflug með veikan íslending sem starfar í landi hans. Að baki slíkum atburði hlýtur að liggja löng saga og svo var, þegar einkaþota dr. Sam Nujuma Namibíuforseta lenti á Reykjavíkur- flugvelli árla morguns 29. maí sl. eftir 18 klukkustunda flug frá Windhoek, höfuðborg Namibíu. Hinn veiki íslendingur hét Ólafur V. Einarsson og þekktumst við frá skólaárunum, samstúdentar frá MR 1972, fædd í sama mánuði og sama ár. Leiðir okkar lágu svo saman í Namibíu rúmum tveim áratugum síðar, árið 1994 þegar ég afhenti trúnaðarbréf mitt sem sendiherra þar og hann starfaði í sjávarútvegs- ráðuneytinu í Windhoek á vegum Þróunarsamvinnustofnunar íslands. En svo við víkjum sögunni aftur að þessum óvenjulega maímorgni á flugvellinum rúmum þremur árum síðar, varðaði málið mig starfs míns vegna, en það snart mig djúpt vegna vináttunnar við Ólaf. Þegar hin glæsilega þota lenti á flugvellinum varð ég gagntekin þeirri hugsun, hvílíkt drengskaparbragð væri hér unnið af hálfu þróunarríkisins Namibíu sem hér sneri dæminu við og veitti Evrópuríki neyðarhjálp. Þarna var líka fengin staðfesting á því að þróunarsamvinna okkar í Namibíu væri mikils metin, en fyrst og fremst sýnir þó svo óvenjulegur atburður að einstakur íslendingur átti í hlut, einhver í þeim sérflokki að sjálfur forseti Namibíu beitti sér fyrir því að bjarga lífí hans. Þróunarsamvinnustofnun hafði gert allt og Björn Dagbjartsson lagt nótt við dag, til að koma Ólafi sem fyrst undir læknishendur á íslandi en með í flugvélinni var Guðbrand- ur Elling Þorkelsson læknir og æskuvinur Ólafs. Áhöfn flugvélar- innar gerði sitt ýtrasta til að létta sjúklingnum langferðina, en við sem biðum á flugvellinum höfðum fengið fregnir af því að sjúklingnum hefði ekki orðið verra af ferðinni. Á flugvellinum stóðu nánustu ætt- ingjar Ólafs tilbúnir að annast hann eftir heimkomuna og gefa honum allan þann stuðning og lækningu sem kærleikurinn einn getur megn- að. En sjúkdómurinn reyndist kom- inn á hátt stig og hvorki kærleikur- inn né nútímalæknisfræði gat unnið á meininu. Tæpum mánuði eftir heimkomuna var hann kvaddur hinstu kveðju og í djúpri lotningu minnumst við nú þessa góða drengs. Aldrei hefði neinu okkar sem fylgst höfum með störfum Ólafs í Áfríku getað órað fyrir því að svona færi að lokum, að hann, hraust- mennið, yrði hrifinn frá okkur á nokkrum vikum af banvænum sjúk- dómi. Það var nánast óhugsandi að nokkuð biti á hann, hann tók ekki einu sinni undir í umræðum manna um sjúkdómshættur, sem alls stað- ar leynast í Afríku, neitt frekar en hann var þátttakandi í rexi og pexi um allt sem aflaga fór og skapraun- ar fólki frá okkar heimshluta þarna niður frá. Hann tók bara Áfríku opnum örmum með kostum og göll- um og vann úr þeim spilum sem hann hafði á hendi hveiju sinni. Með þessari afstöðu sinni eignaðist hann nána vini meðal Afríkumanna og hlutdeild í þeim gersemum sem þeir eiga til og gefa útvöldum. Hann lærði af Namibíumönnum ekkert síður en þeir af honum og hann uppskar ríkulega í þessum samskiptum sem voru honum langt- um meira en einhver tímabundinn rammi utan um framfærsluna. Það var unun að ganga með Ól- afi um götur Windhoek þar sem annar hver maður heilsaði honum og gantaðist við hann. Namibíu- menn heilsuðu Ólafi eins og hann væri heimamaður, en það er vin- áttutákn sem þeir eru sparir á við Evrópubúa og er þannig að þeir taka tvisvar j hendina með sérstök- um hætti. Ólafur klæddi sig líka oft að hætti Afríkubúa í batíkserk og stundum með höfuðfat í stíl og gaf þannig til kynna að hann væri ekki hvítur maður sem lokaði sig af frá þjóðfélagi hinna svörtu, held- ur þangað kominn til að lifa og starfa að hætti heimamanna. Hlýj- an og góðvildin sem einkenndi framkomu hans, gaf mönnum kraft en mestu munaði um það að hann tók hveijum og einum sem raun- verulegum jafningja og með því gaf hann fólkinu í kringum sig það sjálfstraust sem öllu skiptir. Margir Namibíumenn sögðu mér að Ólafur væri fyrsti hvíti maðurinn sem þeir hefðu eignast að vini. Við vissum að hann var atorku- samur í störfum sínum en það kom best í ljós þegar hann veiktist, hve mikið munaði um hann í vinnu. Hann mjakaði málum áfram og það segir meira en mörg orð um starfs- framlag hans, að ekki liðu nema nokkrir dagar eftir að hann veiktist að fara þurfti að gera ráðstafanir til að leysa öll þau mál sem upp komu og enginn hafði tekið eftir meðan hans naut við. Síst af öllum mátti Namibía við að missa þennan mann. Ólafur sinnti öllu og öllum í kring- um sig. Hann var ómetanlegur með- al íslendinganna í Namibíu, hrókur alls fagnaðar og stoð og stytta þeim sem til hans leituðu. íslendinga- byggðin í Namibíu er þó alls ekki í höfuðborginni, Windhoek, þar bjó Ólafur einn íslendinga fyrstu árin. En til að sækja fundi samlandanna hentist Ólafur á bíldruslu yfír eyði- mörkina í áttina að hafnarborginni Swakopmund þar sem íslendinga- byggðin stendur eða skellti sér upp í fiugvél alla leið til íslendinga- byggða í Luderitz sem er langt nið- ur við landamæri Suður-Afríku. Ég gleymi því aldrei þegar ég sá Ólaf fyrst í Namibíu. Við Kjart- an, maðurinn minn, vorum boðin í þorrablót íslendinga í Swakopmund og var þorramaturinn strútskjöt, mikið góðgæti. Allir töluðu um Óla og að von væri á Óla frá Windhoek og hvort ætti að bíða með matinn eftir Óla og við_ vorum ekki viss hvort þetta væri Óli Einars úr sjötta ypsilon í MR eða einhver með sama nafni og eitthvað dróst að Óli kæmi á vettvang. Við snerum bakinu við hurðinni inn í veislusalinn, en skyndilega glumdi við gamalþekkt- ur hlátur og brúnin lyftist á öllum. Við litum hvort á annað og þurftum ekki einu sinni að líta við og sjá manninn - ekki var um að villast að þarna var okkar elskulegi skóla- bróðir kominn. Með sama hætti minnist ég síð- ustu kvöldanna sem ég var í Namib- íu í ágúst sl. Vorið er í ágúst fyrir sunnan miðbaug og komið er kol- svarta myrkur klukkan 6 á kvöldin. Við Óli sátum úti í vorgolunni og vorum að tala um framtíð hans í Namibíu, hve mikið hann hlakkaði til að fá Ásdísi konuna sína til sín, en hún ætlaði að dvelja hjá honum þá um veturinn (þ.e. namibíska sumarið). Ég var eitthvað að siða hann til eins og gamalli skólasystur er gjarnt og við urðum sammála um að eitthvað þyrfti hann nú að draga úr endalausum ferðalögum, þegar Ásdís kæmi og fara nú að njóta þess að sinna sínu fólki. Þeg- ar ég kvaddi hann og þakkaði fyrir alla hjálpina sem hann hafði veitt mér, allan félagsskapinn og hugul- semina, var ég svo fegin að vita af því að Óli yrði ekki einn þarna lengur. Allt fór þetta á annan veg en við ætluðum. Ég mun aldrei snúa baki að hurð og þekkja gamla vininn minn af hlátrinum. Næsta haust liggur vonandi leið- in mín til Namibíu og vonandi get- um við þá saman, íslendingar í Namibíu, minnst Ólafs með verðug- um hætti, hvernig svo sem við för- um að því. Við höldum minningu Ólafs á lofti með því að styðja minn- ingarsjóðinn sem hann var sjálfur farinn að leggja til í af eigin fé. Við Kjartan vottum Ásdísi ekkju Ólafs og börnunum innilegustu samúð okkar og biðjum þeim styrks í sorginni og huggun í því að geng- inn er góður drengur sem lifir í hjörtum okkar. Sigríður Ásdís Snævarr.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.