Morgunblaðið - 10.07.1997, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ1997 53
STJÓRN félagsins talið frá vinstri: Kristín Björnsdóttir, Jóna
Siggeirsdóttir og Vilborg Ingólfsdóttir.
Hollvinasamtök
í hjúkrunarfræði
OBI gagnrýnir nýjar reglur um
greiðsluþátttöku sjúklinga
„INNAN Hollvinasamtaka Há-
skóla íslands eru starfandi holl-
vinafélög deilda, námsbrauta,
skora og stofnana Háskólans og
fjölgar þeim jafnt og þétt. Laugar-
daginn 7. júní sl. var haldinn stofn-
fundur Hollvinafélags námsbraut-
ar í hjúkrunarfræði. Það voru
fyrstu hjúkrunarfræðingarnir sem
útskrifuðust frá Háskólanum sem
höfðu frumkvæði að stofnun fé-
lagsins, en nú eru liðin 20 ár frá
brautskráningu þeirra. Samþykkt-
ar voru starfsreglur og stofnskrá
Hollvinafélagsins en markmið þess
er að styðja hjúkrunarmenntun og
hjúkrunarrannsóknir við náms-
braut í hjúkrunarfræði, jafnframt
LEIÐRÉTT
Rangt höfundarnafn
því að auka og styrkja tengsl
námsbrautarinnar við hjúkrunar-
fræðinga og aðra þá sem bera hag
hennar fyrir bijósti. Tekjum skal
varið til eflingar kennslu og rann-
sókna við námsbrautina.
Með því að styðja námsbraut í
hjúkrunarfræði er stuðlað að
bættri hjúkrun og umönnun sjúkl-
inga og annarra skjólstæðinga
heilbrigðisþjónustunnar.
Hollvinafélag námsbrautar í
hjúkrunarfræði er opið öllum þeim
sem styðja markmið þess og er
fólki gefinn kostur á að gerast
stofnfélagar með því að skrá sig
fyrir 1. nóvember 1997 hjá skrif-
stofu Hollvinasamtaka Háskóla
íslands, Stúdentaheimilinu v.
Hringbraut, 101 Reykjavík," segir
í fréttatilkynningu. í stjórn voru
kjörnar Jóna Siggeirsdóttir, Kristín
Björnsdóttir og Vilborg Ingólfs-
dóttir sem er formaður félagsins.
„ÖRYRKJABANDALAG íslands
gerir alvarlegar athugasemdir við
þær nýju reglur um greiðsluþátt-
töku sjúklinga í sjúkraþjálfun, sem
tryggingaráð hefur samþykkt.
Fram skal þó tekið að Öryrkja-
bandalagið fagnar því að iðju- og
talþjálfun koma þarna inn, sem er
mjög jákvætt. Á vinnslustigi voru
þessar nýju reglur kynntar banda-
laginu ásamt fleirum þeim, sem
hagsmuna eiga að gæta, en að litlu
leyti einu komið til móts við þær
athugasemdir sem bandalagið
gerði ítrekað," segir í fréttatil-
kynningu frá Öryrkjabandaginu.
Ennfremur segir: „Meginatriðin
eins og þau snúa að örorkulífeyris-
þegum og fötluðum börnum eru
þessi: Mikill fjöldi örorkulífeyris-
Þröstur
sigraði
ALÞJÓÐLEGT skákmót fór
fram í Kaupmannahöfn dag-
ana 22. júní til 3. júlí. Þröstur
Þórhallsson var eini íslenski
keppandinn og sigraði hann
mótið með Vh vinning af 10
mögulegum.
Daninn Erling Mortensen
var jafn Þresti með l'/i vinn-
ing en Þröstur var úrskurðað-
ur sigurvegari þar sem hann
vann Erling í innbyrðisviður-
eign í fyrstu umferð. í 3.-5.
sæti komu svo stórmeistar-
arnir Jonny Hector og Henrik
Denielsen með 6‘/2 vinning.
Alls voru fimm stór-
meistarar og tíu alþjóðlegir
meistarar meðal þeirra 30
sem tóku þátt í mótinu.
Þröstur er nú að taka þátt
í öðru alþjóðlegu skákmóti,
Copenhagen Open, sem hófst
5. júlí og lýkur 16. júlí.
þega hefur alls ekki þurft að greiða
fyrir sjúkraþjálfun, en verður nú
að greiða 25% fyrir fyrstu fimmtán
skiptin eða nær 7000 kr. sem eru
tilfinnanleg viðbótarútgjöld hjá
alltof mörgum. Mörg fötluð börn
eru undir sömu rök seld nú en
þurftu ekkert að greiða áður.
Örorkustyrkþegar sem eru í
endurhæfingu hafa margir hverjir
heldur ekki þurft að greiða fyrir
sjúkraþjálfun, en þeir verða nú að
greiða 50% fyrir fyrstu 24 skiptin
og síðan 25% og kemur þetta því
verulega hart niður á þeim. Á
móti má segja, svo allrar sanngirni
sé gætt, að örorkulífeyrisþegar
sem áður þurftu að greiða sín 40%,
verði fyrir minni útgjöldum, en
skv. upplýsingum Tryggingastofn-
ALMIÐLUN ehf. hefur gefið út
sjö víkingapóstkort. Öll kortin
eru með myndum frá síðustu
Víkingahátíð í Hafnarfirði. Kort-
in verða til sölu á helstu viðkomu-
stöðum ferðamanna auk þess
sem þau verða til sölu á Víkinga-
unar ríkisins mun þar vera um lít-
inn hóp að ræða.
Sú úrbót, sem boðuð er fyrir
hina verst settu, að kostnaður
þeirra við sjúkraþjálfun verði felld-
ur inn í almennan sjúkrakostnað
til endurgreiðslu, er fallega hugs-
uð, en reynslan af endurgreiðslum
til fólks eftir þessari reglugerð er
slík að þaðan mun lítilla leiðrétt-
inga að vænta.
Öryrkjabandalag íslands lýsir
sig því andvígt þeirri heildarbreyt-
ingu til hins lakara fyrir lífeyris-
þega sem ganga mun í gildi 1.
sept. nk.
Þegar til lengri tíma er litið leið-
ir þessi breyting einungis til auka-
kostnaðar fyrir samfélagið vegna
versnandi heilsu fólks.“
hátíðinni. Eins og á síðustu Vík-
ingahátíð gefur Almiðlun ehf. út
The Viking Post daglega á með-
an á Víkingahátíðinni stendur.
Blaðinu er dreift frítt á hátíðar-
svæðið, á hótel, stærri gistiheim-
ili og á upplýsingamiðstöðvar.
Víkingakort gefin út
Frá Hvítárholti
RANGT var farið með heimilisfang
Sigurðar Sigurmundssonar í grein
hans „Nokkur orð um Helgispjall"
I í Bréfi til blaðsins 8. júlí. Hið rétta
l er að Sigurður er frá Hvítárholti.
Beðist er velvirðingar á þessum
' mistökum.
Upphlutur, ekki peysuföt
í FRÉTT í Morgunblaðinu í gær
um opnun Gallerí Grúsks á Grund-
arfirði stóð í myndatexta að kon-
urnar tvær á myndinni væru klædd-
ar peysufötum. Þetta er ekki rétt,
því þær voru klæddar upphlut og
• er beðist afsökunar á mistökunum.
Myndabrengl
í SJÁVARÚTVEGSBLAÐI Morg-
unblaðsins Úr verinu, birtist í gær
röng mynd af Gunnlaugi Sighvats-
syni, sem nýverið hefur tekið við
framkvæmdastjórastarfi Hólma-
drangs hf. á Hólmavík. Um leið og
beðist er velvirðingar á mistökunum
er birt rétt mynd af Gunnlaugi.
Nokia GSM 3110 - sá nýjasti og auðveldasti
...samt býr hantt yfir ðllum eiginleikum fullhonmustu
GSM síma. Aðeins 187 g með 95 klst. rafhlöðu en 146 g
með allt að 70 klst. rafhlöðu. Fáanlegur með tengingu
fyrirfax og internet. Allar aðgerðir með einum og sama
takkanum, hvort sem þú svarar, lítur í símaskrána
(250 númera minni), sendir skilaboð eða annað.
Hátækni
Ármúla 26 • sími 588 5000
Hafðu samband!
Hátækni hefur haft umboó fyrir Nokia farsíma frá því árið 1985