Morgunblaðið - 10.07.1997, Síða 59

Morgunblaðið - 10.07.1997, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 1997 59 Sýnd kl. 4.45, 6.50, 9 og 11.10. bms. HEDDIGITAL DYRLINGURINN sýnd ki. 5. b.í. 12. | Sýnd kl. 6.55, 9 og 11 .0. B.i. 12. KRINGLUNNI 4 - 6, SIMI 588 0800 KRINGLUNNI 4 - 6, SIMI 588 0800 KRINGLUNNI 4 - 6, SIMI 588 0800 KRINGLUNNI 4 - 6, SÍMl 588 0800 f faj^aflu^§^ éwfS% m ★ ★ 'Á' Romy og Michele eru á leiðinni á 10 ára endurfundi hjá útskriftarárgangi sínum... Seinheppnar, Ijóshærðar og frekar þunnar tekst þeim að klúðra öllu sem hægt er að klúðra. Hin óborganlega Lisa Kudrow úr Friends og Mira Sorvino (Mighty Aprhodite) fara á kostum! Sprenghlægileg mynd frá framleiðanda Jerry Maguire. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.BEDiGrTAL KUDROW ÝKTIR ENDURFUNDIR Einn óvæntasti grínsmellur ársins! SAUBIOÍW SAMBiOfM SAMBMM MMBNiiM SAMMm KRINGIUPI# KRINGLUBfc# KRINGLUBÍ# KRINGLUBÍ# KRINGLUBl# KRINGLUBÍ# Gullborg - S: 5871777 Bíldshöfða 18 Laugavegi - Kringlunni Alvarlegt rokk TONLIST GEISLAPISKUR Föl Föl, fyrsta breiðskífa hljómsveitar- innar Soma. Soma skipa Guðmundur Annas Ámason söngvari, Snorri Gunnarsson gitarleikari, Halldór Sölvi Hrafnsson gítarleikari, Þorlák- ur Lúðvíksson h(jómboðsleikari, Kristinn Jón Amarson bassaleikari og Jónas Vilhelmsson trommuleik- ari. Soma og Folald gefa út, Skífan dreifir. 48.53 mín. HLJÓMSVEITIN Soma er nokk- uð sér á báti í íslenskum tónlistar- heimi um þessar mundir. Sveitin leikur útsett rokk í þyngri kantin- um, alvarlegt rokk og innihaldsríkt og ekki margar slíka sveitir á ferð- inni ef nokkrar um þessar mundir. Breiðskífan Föl, fyrsta skífa Soma, er því kærkomið innlegg í íslenska tónlistarflóru, ekki síst fyrir það hvað platan er vel heppnuð. Tónlistin á Föl er þunglamaleg sem kemur ekki alltaf að sök, og raddbeiting Guðmundar Annas er síst til þess fallin að létta andrúms- loftið. Þannig er ekki gott að trúa honum þegar hann syngur í öðru lagi plötunnar Ég hef ekki vanist því að vera niðurdreginn, því það er hann einmitt í laginu og reynd- ar í gegnum nánast alla plötuna. Fyrir vikið verður vonbiðillinn í Granda Vogum 2 aumkvunarverð- ur í þrá sinni, sem gerir lagið skemmtilegra; gæðir sögurpersón- una lífi. Það lag gengur einna best upp, húmorískur textinn, afbragðs- söngur Guðmundar Annas og góð gítarkeyrslan. Næsta lag er líka gott, og Guðmundur Annas mætti láta hvína oftar í sér, hann ræður vel við það að renna sér upp í radd- sviði og það hefði gert plötuna fjöl- breyttari. Hljóðfæraleikur er vel af hendi leystur, sérstaklega eru gítar- leikarar öryggið uppmálað, en hljómborðsleikinn hefði mátt nýta betur og með betri hljóðum, til að mynda stingur í stúf hjáróma hljómborðskafli um miðbik lagsins Fjallahjól 21 gíra Shimano grip shift í stað kr 25.600 Tilboð kr 17.900 30% verðlækkun Niðurdreginn. Bassaleikur er góð- ur, nefni til að mynda Granda Voga 2 og Stelpu. Besta lag plöt- unnar er Lifa þig og hefði orðið enn betra með betri texta og inni- haldsríkari. Annað afbragðs lag er Von, sem geldur einnig fyrir þunnan texta, en fyrirtaksgítarút- setningar og afbragðs söngur lyfta því. Textar eru reyndar sumir bráðgóðir, nefni til að mynda Granda Voga 2, Húsreglur, aðrir tilgerðarlegir eins og Bram Stoker og Ástkær, en einnig er viðlagið við upphafslag plötunnar og titillag ekki gott. Umslag plötunnar er fráhrindandi þó frágangur sé yfir- leitt góður. Þessi frumraun Soma sýnir að töluvert er í sveitina spunnið hvort sem litið er til lagasmíða eða hljóð- færaleiks. Helsti galli plötunnar er hve þeir félagar eiga til að taka sjálfa sig alvarlega og drungalegt yfírbragð plötunnar gerir að verk- um að lögunum hættir til að renna saman. Þau hefðu að skaðlausu mátt vera færri og þeir Soma- félagar hefðu efiaust gott af því að sleppa fram af sér beislinu og einnig að fá fleiri eyru að verkinu þegar næsta skífa verður tekin upp. Árni Matthíasson Ljósraynd/Björg Sveinsdóttir GUÐMUNDUR Annas Árnason, afbragðssöngvari rokksveitarinnar Soma.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.