Morgunblaðið - 10.07.1997, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 10.07.1997, Blaðsíða 62
62 FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ Thx DIGITAL | LAUGAVEGl 94 MENN í SVÖRTU Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11 . B.i. 12 ára. DARKLA M Y.R l< 1! A VI i.\l< ííriS WSm Islensk heimasíða: WWW.xnet.is/stjornubio Falleinkunn Morgunblaðið/Júlíus Akureyrarsveitin Gimp. TONLIST Gcisladiskur CRIPPLED PLAYTHING Crippled Plaything, fyrsti geisladiskur hljómsveitar- innar Gimp. Gimp skipa, samkvæmt umslagi, „Stjáni Ö“ gítarleikari, „Baddi Z“ trommuleikari, Atli bassa- leikari, og „Jenni“ gitarleik- ari. Ekki kemur fram hver semur lög og texta, en lík- legt að það sé sveitin sjálf. Gimp gefur út. 49,34 min. HLJÓMSVEITINA Gimp þekkja líkast til fáir, enda sveitin ekki gömul í hettunni. Þrátt fyrir ung- an aldur náði Gimp þeim áfanga að komast á plast, því fyrsta breiðskífa henn- ar, Crippled Plaything, kom út fyrir skemmstu. Ekki er Crippled Playt- hing alvond, þó verulegir gallar séu á henni; því ekki verður því neitað að „Jenni“ er prýðis söngvari með skemmtilega baríton- rödd. Honum hættir þó til að beita röddinni óskyn- samlega, til að mynda í laginu Blows og reyndar er raddbeiting svo keimlík í gegnum alla plötuna að áður en langt um líður er hlustandi orðinn dauðleið- ur á fyrirsjáanlegum rok- unum. Söngsprettir í loka- lagi plötunnar, Sad Song, koma of seint, en reyndar er það besta lagið að frá- töldum fáránlegum loka- mínútum. Lög sveitarinnar eru sum þokkaleg, en útsetn- ingar oft gersamlega mis- heppnaðar. Sem dæmi má nefna Ain’t Got You, sem byijar líkt og Ferðalag Botnleðju, en dettur í þunnt glamur þegar hlust- andinn býst við hama- gangi. Reyndar eru víða kunnuglegir frasar og vel hefði farið á því ef þeir Gimp-menn hefðu legið eitthvað yfir Iagasmíðun- um, útsett lögin af meiri skynsemi og hreinsað úr þeim ómeðvitaðar tilvísan- ir. Þá hefði gefist tóm til að betja í brestina varð- andi hljóðfæraleikinn sem er fráleitt nógu góður, til að mynda geldur gítar í áðurnefndu Ain’t Got You og slakur trommuleikur í Blows svo dæmi séu tekin. Miklu ræður eflaust að hljómur á plötunni er slak- ur, sérstaklega er trommuhljómur slæmur og leðjubassi gerir lítið gagn. Textar eru almennt til- gerðarlegir og uppskrúf- aðir og víða bráðvitlausir, bæði hvað varðar málfar og orðaval. Verður aldrei brýnt nóg fýrir mönnum að halda sig við tungumál sem þeir kunna, eða. í það minnsta fá einhvern al- mennilegan enskumann til að lesa þá yfir („i’m swimming passed the stars“, „their all swimm- ing in my mind“, „am i gimp or am i dissy lika all the rest“). Umslag plötunnar er misheppnað, ljótt og illa unnið. Þessi frumraun hljóm- sveitarinnar Gimp fær fyrstu einkunn fyrir fram- tak og djörfung, en klára falleinkunn á öðrum svið- um. Sveitin hefur flýtt sér um of við að taka upp breiðskífu og hefði betur tekið sér meiri tíma áður en lengra var haldið. Crippled Plaything er plata sem var eflaust hollt að taka upp, en síðan hefðu liðsmenn átt að henda segulböndunum. Árni Matthíasson EÍCEOR flOCCt)' SNORRABRAUT 37, SÍMI SS2 5211 OG 851 1384 SNORRABRAUT 37, SÍMI 552 5211 OG 651 1384 SDDDIGrTAL Síðustu sýningar!! ^íðusti^s^ningar^ FRUMSYND FOSTUDAGINN 11. JULI www.murderat1600.com □□Dolby DIGIT/VL ,Nú geta íslendingar glaðst því að það er komið nýtt flugfélag í bæinn. í stað þess að fljúga m með Flugleiðum og láta rukka sig fyrir yfirvigt þá getum við öll skellt okkur i frábæra ferð ^ með Con Air" DV. „Einhver hressilegasta flugferð sem farin hefur verið" Mbl STING óð leðjuna eins og aðrir gestir hátíðarinnar. Rigning á Glastonbury ►UNNENDUR popptónlistar létu veðrið ekki aftra sér og flykktust á Glastonbury- tónlistarhátíðina. Það rigndi látlaust alia helgina þannig að mótsvæðið varð fljót- lega að forarsvaði. Veðrið breytti því ekki að hátíðin er ein sú besta á árinu og skemmtu flytjendur og áhorfendur sér ágætlega þrátt fyrir veðrið. SHERYL Crow var á meðal gesta. ZOE Ball var á Glastonbury. FORNMENNINQARHÁTÍÐ - FJOLSKYLDUSKEMMTUN - FRÓÐLEIKUR - FÓLK OQ SAQA Víkingahátíð í Hafnarfírði kl. 12.00 kl. 13.00 kl. 20.00 HAFNARFJÖRÐUR, hópreið og ganga víkinga gegnum miðbæínn. VÍÐISTAÐATÚN, víkingamarkaður, hestasýningar, handverksfólk, bardagamenn, eldsmiðjá, leíkþættir, víkingaveitingar, glímumenn o.fl. NORRÆNA HÚSIÐ, fyrirlestrar sérfræðínga um víkingatímann. LANÐflÁM IWER.'MATKXNJk'L VHCWÖG FES'mfY'AiL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.