Morgunblaðið - 27.08.1997, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 1997 13
AKUREYRI
Salan á jörðinni Möðrufelli í Eyjafjarðarsveit
Hreppsnefnd
neytti forkaupsréttar
MEIRIHLUTI hreppsnefndar
Eyj afj arð ars veitar samþykkti á
fundi sínum í vikunni að neyta
forkaupsréttar og ganga inn í
kauptilboð á jörðinni Möðrufelli.
Fyrir lá undirritaður kaupsamn-
ingur milli eigenda jarðarinnar og
Matthíasar Eiðssonar og Hermínu
Valgarðsdóttur á Brún við Akur-
eyri og var kaupverðið 40 milljón-
ir króna.
Matthías stundar hesta-
mennsku og ætlaði að selja
greiðslumarkið, samtals um 125
þúsund lítra af jörðinni. Pétur Þór
Jónasson, sveitarstjóri Eyjafjarð-
arsveitar, segir að samkvæmt
jarðalögum hafi sveitarfélagið
heimild til að ganga inn í kaupin
og það sé vilji þeirra hreppsnefnd-
armanna sem samþykktu að
ganga inn í kauptilboðið að áfram
verði stunduð mjólkurframleiðsla
á Möðrufelli. Pétur Þór segir að
jörðin verði seld aftur en ekki sé
frágengið hver kaupi hana.
Mjólkurframleiðsla kjölfestan
Pétur Þór segir að mjólkurfram-
leiðsla sé meginkjölfestan í at-
vinnulífi sveitarinnar og því vilji
innan hreppsnefndar að viðhalda
þeirri starfsemi. Hins vegar hafi
orðið meiri samdráttur í mjólkur-
framleiðslu í Eyjafjarðarsveit und-
anfarin ár en annars staðar í Eyja-
firði. Á Möðrufelli eru góðar bygg-
ingar og um 40 hektarar af rækt-
uðu túni. Pétur Þór segir að beiti-
Iand sé lítið og menn hafi því líka
haft áhyggjur af því að þar yrði
sett upp stórt hrossabú.
Greiðslumarkið selt innan
sveitar
Fjórir hreppsnefndarmenn sam-
þykktu að ganga inn í kaupin en
þrír voru á móti. Áki Áskelsson,
fulltrúi U-listans lét m.a. bóka á
fundinum að hann hafnaði því að
Eyjafjarðarsveit neytti forkaups-
réttar. Áki taldi engin rök fyrir
því þar sem fyrir lægi kaupsamn-
ingur um greiðslumark jarðarinn-
ar milli væntanlegs kaupanda og
bónda í sveitinni. Greiðslumarkið
yrði því áfram innan sveitarinnar.
Heilsubót í Kiarnalundi
HEILSUBÓTARDAGAR verða
haldnir í Kjarnalundi dagana 31.
ágúst til 7. september næstkom-
andi en fyrir þeim standa hjónin
Sigrún Olsen og Þórir Barðdal.
Boðið er upp á vikudvöl þar
sem fólk nýtur hvíldar og að-
hlynningar, auk fræðsluerinda
um heilsu og andleg málefni, yoga
Chi kong, nudd og þá er boðið
upp á grænmetisfæði. Tónleikar
verða á meðan á dvölinni stend-
ur, en tónlistarmenn vikunnar eru
Edda Erlendsdóttir og Ólöf Kol-
brún Harðardóttir.
Dvölin er hugsuð fyrir fólk sem
þarf á andlegri og líkamlegri
hvíld og endurhæfingu að halda.
Schubert-
tónleikar
SCHUBERT-tónleikar verða í
Dalvíkurkirkju næstkomandi
sunnudag, 31. ágúst og hefjast
þeir kl. 16.
Flytjendur eru þau Rannveig
Fríða Bragadóttir, mezzo-sópr-
an og Gerrit Schuil, píanó. For-
sala aðgöngumiða fer fram í
afgreiðslu Sparisjóðsins á Dal-
vík, á Árskógsströnd og í Hrís-
ey.
Haustþing- Bandalags
kennara á Norður-
landi eystra
Kennar-
inní
brenni-
depli
HAUSTÞING Bandalags kennara á
Norðurlandi eystra og Skólaþjónustu
Eyþings verður haldið dagana 29.
og 30. ágúst næstkomandi í Mennta-
skólanum á Akureyri, Hólum.
Efni haustþingsins beinist að
kennaranum sjálfum og er yfirskrift
þess Kennarinn í brennidepli og
verða flutt erindi um þetta efni frá
mismunandi sjónarhornum. Guðríður
Adda Ragnarsdóttir, atferlisfræðing-
ur, flytur erindi sem nefnist Að
byggja upp kennarann í grunnskóla
nútímans, Guðlaugur Þór Þórðarson,
framkvæmdastjóri flytur erindi um
kennarastarfið og ímynd þess í þjóð-
félaginu, Elísabet Berta Bjarnadóttir
félagsráðgjafi fjallar um sjálfsmynd
kennarans í starfi og einkalífi, Sigur-
jón Mýrdal, lektor um kennarann
sem fagmann í breyttu umhverfi og
Ingólfur Jóhannesson, lektor, um
kennarastarfið og kenningar um fag-
stéttir. Haustþingið er jafnan vel
sótt af skólafólki á Norðurlandi
eystra og er eitt stærsta þing sem
haldið er á svæðinu, en gert er ráð
fyrir að það sæki nú um 300 til 350
manns. Þingið er opið öllu áhuga-
fólki um skólamál.
135 ára afmæli Akureyrarbæjar
Listaverk afhjúpað
HUNDRAÐ þrjátíu og fimm ára
afmæli Akureyrarbæjar verður
næstkomandi föstudag, 29. ág-
úst.
Af því tilefni verður dagskrá í
Grófargili og hefst hún kl. 16
þegar Jakob Björnsson bæjar-
stjóri afhjúpar listaverk eftir
Tryggva Ólafsson og verður lista-
maðurinn viðstaddur athöfnina.
Um er að ræða veggskreytingu
sem fundinn hefur verið staður
neðan við kirkjutröppurnar, á svo-
nefndu Fróðahúsi.
Tryggvi opnar á sama tíma
sýningu á verkum sínum í Deigl-
unni sem opin verður fram til 5.
september næstkomandi. Lista-
maðurinn hefur gefið Akur-
eyrarbæ 10 grafíkverk af þessu
tilefni og verður þeim komið fyrir
á stofnunum bæjarins.
Listasumri lýkur
Listasumri, sem staðið hefur
yfir á Akureyri í sumar, lýkur á
föstudag og verður ýmislegt um
að vera í tengslum við það. Ketil-
húsið verður opið frá kl. 16 til 18
en þar verða m.a. teikningar af
húsinu og hvernig það mun líta
út eftir endurbætur sem nú standa
yfir. Ef veður leyfir verður útbúið
torg milli Ketilhúss og Listasafns
og boðið upp á tónlist utandyra.
Þá má geta þess að Jóhann
Árelíuz og Þráinn Karlsson lesa
upp úr nýrri ljóðabók Jóhanns á
Kaffi Kverinu í Bókvali og hefja
þeir lesturinn kl. 17.30.
Morgunblaðið/Kristján
SINDRI Thorlacius frá Öxnafelli í Eyjafjarðarsveit er að hefja
skólagöngu en hann byijar í fyrsta bekk í Hrafnagilsskóla nú
í haust. Hann brá sér í bæinn í gærdag og valdi sér skólatösku
og pennaveski.
Grunnskólanemendur
verða um 2.400
STARFSEMI grunnskólanna á
Akureyri hefst næstkomandi
mánudag, 1. september, og
verður fjöldi grunnskólanema
svipaður og verið hefur síð-
ustu ár eða rétt um 2.400.
Fjölmennasti grunnskólinn
er Brekkuskóli, sem sameinað-
ur var úr tveimur skólum,
Barnaskóla Akureyrar og
Gagnfræðaskóla Akureyrar
en nemendur hans verða rúm-
lega 700. Þá verða um 600
nemendur í Síðuskóla, 490 í
Glerárskóla, 340 í Lundar-
skóla, 110 í Oddeyrarskóla og
110 í Giljaskóla en þar er
kennt í 1. til 4. bekk.
Hærra hlutfall
leiðbeinenda
Ingólfur Ármannsson svið-
stjóri fræðslu- og frístunda-
sviðs Akureyrarbæjar sagði
að nokkru meira basl hefði
verið nú í ár en nokkur síð-
ustu ár að fá réttindakennara
til starfa og ljóst að hlutfall
leiðbeinenda myndi hækkað
frá því sem var á liðnu skóla-
ári. Þá sáu leiðbeinendur um
13% af kennslu í grunnskólum
bæjarins, en Ingólfur sagði að
margir þeirra hefðu ágætis
menntun og sæju t.d. mikið
um kennslu í sérgreinum eins
og mynd- og handmennt. Þeir
hefðu ekki í miklum mæli séð
um almenna bekkjarkennslu
en þar sem verra hefði verið
nú í haust að fá kennara til
starfa myndi þeim eflaust
fjölga. „Við eigum von á að
allar deildir muni fara í gang
við upphaf skólaárs, en enn
er því miður ekki búið að negla
allt að fullu niður,“ sagði Ing-
ólfur.
Sjálfsbjörg vill
sjálfvirkan opnunar-
búnað dyra
Létt
hurð,
greið leið
„LÉTT hurð, greið leið“ er heiti
á verkefni sem Sjálfsbjörg á
Ákureyri og nágrenni vinnur að,
en með því verður félagið við
áskorun Sjálfsbjargar á Húsavík
um að halda sérstakan átaksdag
um bætt aðgengi fyrir fatlaða.
Verkefni Akureyringa er að bera
fram allsheijaráskorun til íbúa,
fyrirtækja og stofnana um að
bæta aðgengi að húsakynnum
sínum með sjálfvirkum opnunar-
búnaði dyra.
Sérstöku blaði með yfirskrift-
inni „Létt hurð, greið leið“ verður
dreift á um 6.500 staði á Eyja-
fjarðarsvæðinu þar sem kynnt
verður mikilvægi góðra og léttra
hurða með sjálfvirkum opnunar-
búnaði. Ætlunin er að veita þeim
sem í kjölfar átaksins kaupa slík-
an búnað viðurkenningu á al-
þjóðadegi fatlaðra 3. desember
næstkomandi. Nokkrum fyrir-
tækjum í bænum hefur verið bent
á að aðgengi hjá þeim sé gott
nema hvað varðar útihurðir og
þau hvött til að verða við áskorun
um úrbætur.
Opið hús
í tilefni þessa verður opið hús
á Bjargi næstkomandi laugardag,
30. ágúst frá kl. 14 til 17 þar sem
almenningi gefst kostur á að
kynnast starfseminni nánar, taka
þátt í dagskrá og þiggja veiting-
ar. Þá verða veittar viðurkenning-
ar fyrir gott aðgengi fyrir fatlaða
eða stuðning sem félaginu hefur
verið veittur.
Á Bjargi er fjölbreytt starf-
semi, endurhæfing, líkamsrækt,
ljósabekkir, nuddpottar og þar fer
einnig fram starfsemi íþróttafé-
lagsins Akurs.
BLAÐBERAR
Blaðbera vantar í eftirtalin hverfi á Akureyri:
Eyrina, Þorpið og Brekkuna.
Kaupvangsstræti 1, sími 461 1600.