Morgunblaðið - 27.08.1997, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 27.08.1997, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 1997 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Menningarborgir Evrópu árið 2000 Bók um borgirnar níu KAY A. Berg heitir norskur ljósmyndari sem vinnur að bók um menningarlíf í borg- unum níu sem verða menningarborgir Evrópu árið 2000. Meginefni bókarinnar eru ljósmyndir Berg af um tuttugu körlum og konum frá hverri þessara níu borga sem tengjast menn- ingarstarfsemi í þeim á einhvern hátt. í bókinni verða einnig skrifaðir kaflar um menningarsögu og menningarástand í hverri borganna en þeir kaflar verða prentaðir á tungu viðkom- andi þjóðar, auk ensku, frönsku og þýsku. Kay segist munu reyna að draga fram sérkenni hverrar borg- ar í myndum sínum af fólkinu. „Eg hef þegar farið til þriggja borga, Avignon í Frakklandi, Bologna á Ítalíu og Santiago de Compostela á Spáni. Reykjavík er svo ijórða borgin sem ég heimsæki og það er afar skemmtilegt hvað fólk hér er ólíkt fólkinu í Suður-Evr- ópu. í Bologna þóttist enginn hafa tíma til að hitta okkur og þeg- ar við loksins fengum að koma í heimsókn fengum við ekki nema fimm eða tíu mínútur. Enginn mátti vera að því að tala eða velta fyrir sér hlutunum. Hérna eru allir hins vegar svo gestrisnir og gefa sér góðan tíma, þótt þeir séu uppteknir við annað. Viðmótið allt er vina- legra. Borgin er köld en fólkið sem byggir hana hjartahlýtt.“ Kay segist vona að bókin veki athygli á borgunum níu á menn- ingarárinu. „Sumar þessar borgir gætu átt erfitt uppdráttar og gætu hæglega horfið í skuggann af höfuðborgum lands síns, svo sem eins og Bologna, Avignon og Santiago de Compostela. Senni- lega verða hátíðarhöld í flestum höfuborgum Evrópu árið 2000 í tilefni af aldamótunum og því gæti verið erfitt að ná athygli. Bókin sem verður til sölu í öllum níu borgunum ætti að auðvelda kynningu á þeim þótt hún muni ekki segja beinlínis hvað verði á seyði þar í tilefni af menningarár- inu. Einnig er þessi bók tilraun til þess að tengja þessar borgir á einhvern hátt.“ Þeir sem Kay mun mynda hér á landi eru Vigdís Grímsdóttir, Hugrún Jónsdóttir, Guðmunda Andrésdóttir, Sigurður A. Magn- ússon, Hjálmar H. Ragnarsson, Friðrik Þór Friðriksson, Björk Guðmundsdóttir, Jón Nordal, Matthías Johannessen, Gylfi Þ. Gíslason, Björn Th. Björnsson, Vigdís Finnbogadóttir, Einar Örn Benediktsson, Sigrún Hjálmtýs- dóttir, Bryndís Halla Gylfadóttir, Bubbi Morthens, Guðni Franzson, Sveinn Einarsson, Þórunn Sigurð- ardóttir, Þorgeir Ólafsson og Páll Stefánsson. Á sama tíma og bókin kemur út vorið 1999 mun Kay halda sýn- ingu á myndum sínum í öllum borgunum. Eins og í bókinni verða á sýningunni um 150 portrett. Morgunblaðið/Amaldur Kay A. Berg Sagan um Jude og Sue KVIKMYNDIR Iláskólabíó JUDE ★ ★ Vi Leikstjóri: Michael Winterbottom. Handrit: Hossein Amini eftir sögu Thomas Hardys, Jude the Obscure. Kvikmyndatökustjóri: Eduardo Serra. Tónlist: Adrian Johnston. Aðalhlutverk: Christopher Eccleston, Kate Winslet, Liam Cunningham, RachelGriffíths. Polygram. 1996. ÞEGAR kvikmyndaútgáfur af frægum bókmenntaverkum ganga ljósum logum í kvikmyndahúsun- um eins og verið hefur nú um nokkurt skeið, sérstaklega hafa unaðslegar Jane Austen myndir verið áberandi, er margt vit- lausara hægt að gera en kvik- mynda verk Thomas Hardys. Það hefur verið gert áður, frægust er líklega mynd Roman Polanskis, Tess, sem hann gerði fyrir bráðum 20 árum. Breska myndin Jude var gerð á síðasta ári og byggir á sögunni Jude the Obscure og er bæði laglega og snyrtilega gerð og ágætlega leikin en kannski ein- um of löng eða um tveir tímar. Hún mun vera fyrsta mynd leik- stjórans, Michael Winterbottoms, og hann kemst prýðilega frá henni og nær einkum góðum leik frá Christopher Eccleston og Kate Winslet í hlutverkum hinna ólán- sömu frændsystkina Jude og Sue. Hún virkar kannski fremur eins og ágætlega heppnuð sjónvarps- útgáfa frá BBC en breiðtjalds- mynd og er ekki verri fyrir það. Saga Hardys gerist á síðari hluta nítjándu aldar og deilir harkalega á fordóma hins kristi- lega samfélags gagnvart óvígðri sambúð, stöðu þeirra sem kjósa að gifta sig ekki og hvernig sam- félagið snýst gegn þeim Jude og Sue þegar upp kemst að þau lifa í synd. Þau lenda á hrakhólum með þrjú börn, sem endar í skelfi- legri og óskiljanlegri hrollvekju. Sue lítur á það sem refsingu guðs fyrir lauslætið en Jude sem slys óháð ást þeirra, sem ekki hefur verið viðurkennd af samfélaginu með hjúskap. Þetta er átakanleg og grimm saga sögð af látleysi og skilningi. Falleg kvikmyndataka Eduardo Serra nær veí að búa henni oft nöturlegan ramma eftir því sem einangrun Jude og Sue verður meiri og Eccleston og Winslet eru giska góð í aðalhlutverkunum. Eccleston er mjög vaxandi leikari og nær góðum tökum á Jude sem víðlesnum og greindum sveita- manni er fær ekki að njóta hæfi- leika sinna og gerast fræðimaður. Winslet er einnig fín sem frænka hans er verður með tímanum ást- fangin af honum og örvinglast af sektarkennd þegar hún heldur að hún hafi breytt rangt í lífinu. Arnaldur Indriðason Ríkharður Valtingojer sýnir í Stöðlakoti RÍKHARÐUR Valtingojer hefur opnað sýningu á grafík í Stöðla- koti.. Sýninguna nefnir hann Þrenning, vegna þess að hún skiptist í þrennt hvað viðfangsefni varðar. Einn hluti er smámyndir þar sem myndefnið spannar „sjávarmál" þar sem haf og land mætast. Þær myndir eru unnar í „mezzotintu". Annar hluti er myndir sem unnar eru í „mono- type“ og þurrnál. Litríkar myndir þar sem allt að því tilviljanakennd form flæða um rýmið, og er haldið saman með „geometriskum" línum. Þriðji hlutinn er myndir þar sem viðfagnsefnið er af þjóðfélagslegum toga. Má þar greina ákveðna ádeilu á ýmsa þætti í mannlegu samfélagi hversdagsins. Þær myndir eru unn- ar í „carborundum" og þurrnál. Myndirnar eru flestar unnar á þessu ári og er þetta 18. einkasýning lista- mannsins. Sýningin er opin daglega frá kl. 14-18 og lýkur henni 7. september. Sýningnm á Evitu haldið áfram SAMNINGAR hafa tekist á milli aðstandenda sýningarinnar á söng- leiknum Evítu og íslensku óperunn- ar um sýningar áfram í tvær vikur í september. Uppselt er orðið út ágúst en fyrstu sýningar í septem- ber eru 4. 5. og 6. september. Um helgina kom gestur nr. 10.000 á söngleikinn; það var Ólöf Hannesdóttir og var hún heiðruð með 10.000 kr. úttekt á Argentínu Steikhúsi og einnig 10.000 kr. inn- eign á kjörbók Landsbankans. Ámi Þór Vigfússon, framkvæmdastjóri Evítu, og Baldur Trausti Hreinsson, sem leikur sögumanninn Che í söngleiknum, afhentu Ólöfu gjaf- imar ásamt blómvendi. Reuter Vegleg Degas-gjöf HIÐ franska Musee d’Orsay- safn sýndi fyrr í vikunni mynd sem því áskotnaðist fyrir skemmstu en hún er eftir impressjónistann Edgar Degas. Safnið fékk myndina að gjöf frá fjölskyldu sem hefur átt myndina frá upphafi en hún var máluð árið 1884 eða 1885. Verkið er 75 X 73 cm, pastel- mynd af sex ungum ballerínum og kallast „Dansarar". Segja sérfræðingar safnsins að myndin hafi mikið listasögulegt gildi þar sem hún sé hin fyrsta í röð verka af dönsurum sem Degas gerði á siðasta áratug liðinnar aldar. Hefur hún aðeins einu sinni verið sýnd opinberlega áður, árið 1924. Talsmenn safnsins vilja ekki gefa upp hvert matsverð verksins er en myndir Degasar af dönsurum hafa verið seldar á allt að 5,6 milljónir dala á uppboðum en það svarar til tæplega 400 milljóna króna íslenskra. Leikari verður lögfræðingur KVIKMYNPIR Laugarásbíó í TÓMU TJÓNI „TRIAL AND ERROR" ★ ★ Leikstjóri: Jonathan Lynn. Framleið- andi: Gary Ross. Aðalhlutverk: Jeff Daniels, Michael Richards, Rip Thom, Charlize Theron, Jessica Ste- en og Alexandra Wentworth. New Line Cinema. 1887. BANDARÍSKA gamanmyndin í tómu tjóni (hvað þessi titill merkir eiginlega er hreinasta ráðgáta) er enn ein af þessum formúlumyndum um tvo ólíka einstaklinga sem þurfa að kljást við margvísleg og misfynd- in vandamál áður en þeir komast að því að þeir eru ekkert svo mjög ólík- ir eftir allt. Þetta er einhver mest notaða klisja HoIIywood-myndanna og hefur verið það í mörg undanfar- in ár en aðeins örfáir hafa getað hnoðað eitthvað almennilegt úr henni. Breski leikstjórinn Jonathan Lynn (Já, ráðherra) gerir það ekki í tómu tjóni, sem er miðlungsgóð af- þreying, kannski einkanlega fyrir aðáendur sjónvarpsleikarans Michael Richards, sem á auðvelt með að stela senunni frá hinum eilíft þjáða Jeff Daniels. Myndin segir af tveimur félögum er lenda í þeirri óþægilegu aðstöðu í smábæjarkríli í stijálbýlinu að skipta um hlutverk. Richards er leik- ari sem verður lögfræðingur en Dani- els er lögfræðingur, sem segist vera leikari. Richards mætir í réttarsal sem veijandi Rip Thom, lygalaups og stórsvindlara, en hefur ekki hundsvit á neinu sem viðkemur lög- um. Daniels, skipaður veijandi mannsins, reynir hvað hann getur til að láta vin sinn haga sér og tala eins og lögfræðingur. Tvær gullfal- legar stúlkur búa í smábænum og flækjast í líf félaganna. Richards er með skemmtilegra hlutverkið, hann er trúðurinn í dúett- inum, og getur verið fyndinn í vand- ræðum sínum frammi fyrir dómara og kviðdómi. Það fyndnasta í mynd- inni eru atriðin með honum að þykj- ast vera geysilega mikill lögfræðing- ur. Daniels fær vanþakkláta hlut- verkið sem áhyggjufulli alvöru lög- fræðingurinn og á sínar kómísku stundir. Lynn stjórnar myndinni eins og farsa en sekkur stundum í óþarf- lega mikla væmni og alvöru þegar kemur að ástamálum félaganna. í tómu tjóni er ósköp léttvæg gaman- mynd og kannski eiga gamanmyndir að vera það. Reynt er að forðast að hún verði nokkurn tíma leiðinleg og það tekst furðulega vel. Arnaldur Indriðason Opin kóræfing OPIN kóræfíng verður haldin í Strandbergi, safnaðarheimili Hafn- arfjarðarkirkju, í dag, miðvikudag, kl. 17. Þessi opna æfing er loka- punktur námskeiðs fyrir kórstjórn- endur sem staðið hefur yfir undan- farna fjóra daga. Aðalleiðbeinand- inn á námskeiðinu er ungverski kórstjórnandinn og kennslufræð- ingurinn Gabriella Thész. Gabriella mun á þessari opinu æfingu vinna með barnakór sem saman stendur af meðlimum fjög- urra kóra af höfuðborgarsvæðinu. Þá mun hún ásamt öðrum kór- stjórnendum æfa 45 manna kór þátttakenda námskeiðsins og verða flutt ýmis kórlög og kórverk sem æfð hafa verið undanfarna daga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.