Morgunblaðið - 27.08.1997, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 27.08.1997, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 1997 31 KRAFLAR frá Midsitju er kominn í röð fremstu stóðhesta Iands- ins og hlýtur yngstur allra hesta fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi. Verður án efa vel fylgst með afkvæmum hans og framgangi hans á listum kynbótamatsins á næstu árum. Knapi á myndinni er Sigurbjöm Bárðarson. Líflegar afkvæma- sýningar ishús í Hafnarfirði. Húsið var stað- greitt með reiðufé. Hann ekur um á dýrum Mercedes Benz og að jafn- aði eru að minnsta kosti ijórir glæsibílar í flota hans. Allir, sem til þekkja, vita að þetta er aðeins brot af heildarmyndinni. Þegar Franklín kom nýverið fyrir héraðs- dóm Reykjaness, í kjölfar þess að lögreglan í Kópavogi handtók hann með fíkniefni, spurði fulltrúi ákæruvaldsins hvernig Franklín sæi sér og sínum farborða. Svarið? Jú, Franklín Steiner kvaðst vera ákaflega heppinn í spilakössunum. Hvers vegna aðhafðist lögreglan ekkert í öll þessi ár? Hvers vegna var eiturlyfjasala leyft að lifa í vellystingum praktuglega fyrir blóðpeninga? Ætlar hinn nýi yfirmaður efna- hagsbrotadeildar kannski að rann- saka málið? Það sem Arnar fjallar ekki um Það, sem er athyglisverðast við greinargerð Arnars Jenssonar, þegar öllu er á botninn hvolft, er það sem hann fjallar ekki um, þær staðhæfingar sem svarar ekki. ★ Hann víkur ekki orði að Furu- grundarmálinu og svarar því ekki af hveiju alvarlegt fíkniefnamál var ekki rannsakað. ★ Hann svarar í engu þeirri yfir- lýsingu fyrrum dómsmálaráðherra að Arnar hafi beitt miklum þrýst- ingi til að fá Franklín lausan úr fangelsi. ★ Hann fjallar ekki um þá stað- reynd, að Franklín var gert kleift að lifa hátt án nokkurra afskipta yfirvalda. ★ Hann reynir ekki að svara yfir- lýsingum þingmanna, meðal ann- ars um að fíkniefnadeildin hafi farið offari og brotið landslög. ★ Hann útskýrir ekki af hverju fjölda ábendinga um fíkniefnavið- skipti Franklíns var ekki sinnt. ★ Og hann minnist ekki á þá ákvörðun Björns Halldórssonar (sem að sögn Arnars er „afar hæfur maður“) að skrifa upp á byssuleyfi Franklíns Steiners. Hvað stendur eftir? Hvað stendur þá eftir? Að vondir „blaðamenn“, sem haldnir eru „of- stækisfullri þráhyggju", hafí með „hreinræktuðum óhróðri“ beitt „hættulegum ofsóknum og kúgun“ í garð Amars Jenssonar - svo tekin séu af handahófí nokkur ummæli lögregluforingjans um ritstjóra Mannlífs og þá kollega sem síðustu mánuði hafa gert þessu máli skil. Jafnframt lætur Arnar að því liggja, að málssókn sé yfirvofandi á hendur þeim fréttamönnum sem um málið hafa fjallað. Þá það. Ég kvíði því ekki. Það er hins vegar kvíðvænlegt ef ekkert verður aðhafst, af hálfu hins opinbera, til að stokka upp spilin í baráttunni við eiturlyfjasal- ana. Arnar bendir réttilega á að þau mál séu í molum og að fíkniefna- deildinni sé gert næsta erfitt fyrir. Hvorki eru til reglur um samskipti við uppljóstrara né hinar svoköll- uðu „óhefðbundnu aðferðir", þrátt fyrir að lögreglan hafi ítrekað ósk- að eftir því. Sjálfur segir Amar um þetta: „Starfsumhverfi það sem [lögreglujmönnum hefur hins veg- ar verið boðið upp á hefur verið vonlaust og í rauninni hlaut að koma að því að „steytt yrði á skeri“ þar sem stjórnendur lögreglumála hafa aldrei fengist til að setja þess- um viðurkenndu vinnubrögðum [um samskipti við uppljóstrara] formlegan ramma en hafa haldið sig til hlés þegar á hefur reynt.“ Mikið rétt, það hlaut að koma að því að steytt yrði á skeri. En úr því að Arnar Jensson viðurkenn- ir sjálfur, að iögreglan hafi steytt á skeri í samskiptum við uppljóstr- ara úr undirheimum - af hveiju í veröldinni er hann þá að hella sér með ónotum yfir þá sem tilkynna um strandið? Höfundur er ritsljórí Mannlífs. HESTAR Gaddstaðaflatir SÍÐSUM ARSÝNING KYNBÓTAHROSSA TÍU HROSS náðu yfir átta í ein- kunn á síðsumarsýningu kynbóta- hrossa sem fram fór í síðustu viku. Þar af var einn stóðhestur, Vakar frá Skarði, sem er undan Ófeigi 882 frá Flugumýri en afkvæmi hans voru nokkuð áberandi á sýn- ingunni. Þá bar það til tíðinda að tvær hryssur hlutu heiðursverðlaun fyrir afkvæmi, þær Perla frá Kjart- ansstöðum og Leira frá Þingdal, og einn stóðhestur, Kraflar frá Miðsitju, hlýtur 1. verðlaun fyrir afkvæmi, aðeins níu vetra gamall. Að því er næst verður komist er hann yngsti hesturinn sem nær þessum áfanga. Máni frá Ketils- stöðum og Sörli frá Sauðárkróki hlutu 1. verðlaun fyrir afkvæmi og þá eftir gamla kerfinu en Krafl- ar er óyggjandi sá yngsti sem nær þessu, samkvæmt kynbótamat- skerfi Bændasamtakanna. Það sem er kannski merkilegast við þessa afkvæmasýningu er að hún var ákveðin með mjög stuttum fyrir- vara eða því sem næst samdægurs og hryssur sóttar út í stóð á Feti og járnaðar. Kraflar er kominn með stigatölu sem nægir til heið- ursverðlauna, er með 136 stig, en vantar hins vegar 35 afkvæmi í dóm. Ekki er að efa að eigandi Kraflars, Brynjar Vilmundarson, muni vinna að því hörðum höndum að koma afkvæmum hans í dóm á næstu árum og tryggja skjólstæð- ing sínum og ræktunarhesti ör- BÓKHALDSHUGBÚNADUR fyrir WINDOWS Sjáðu frábæran hugbúnað: www.treknet.is/throun W\ KERFISÞRÓUN HF. Fákafeni 11 - Sími 568 8055 ugga og snögga ferð í heiðursverð- launin. Þijár fimm vetra hryssur náðu yfír átta í einkunn, þeirra efst Sveifla frá Ásmundarstöðum með 8,09. Hæsta einkunn hennar er 9,5 fyrir stökk og 8,5 fyrir tölt, vilja og fegurð í reið. Af hryssum sex vetra og eldri stóð efst Minna frá Hvolsvelli með 8,21, yfir átta fyrir bæði sköpulag og hæfileika. Er hún með nokkuð jafnar einkunnir, 8,5 fyrir háls, samræmi, tölt, skeið, vilja geðslag og fegurð í reið. Heildarútkoma sýningarinnar þótti góð og taldi Jón Vilmundar- son, annar tveggja dómara, að hér hefði verið haldin ein besta síðsum- arsýning sem um getur. Valdimar Kristinsson Fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi Kraflar frá Miðsitju, f.: Hervar, Sk., m.: Krafla, Miðsitju, eig.: Brynjar Vilmundarson. Dómsorð: Afkvæmin eru svipmikil en ekki fínleg á höfuð. Eru með langan og mjúkan háls og fara afburðavel í reið. Bak yfirleitt mjúkt, breitt og vel vöðvafyllt en lendin grönn. Afkvæmin eru stutt- vaxin, léttbyggð, sívöl á bol, fótahá. Hafa ekki trausta fótagerð, liðir grannir og sinastæði ekki mikið. Fætur eru vel réttir og hófar frábær- ir að allri gerð. Þá segir að afkvæm- in séu fjölhæf að reiðhestskostum, töltið mjúkt og rúmt og brokk sömu- leiðis en fjórtaktað, vekurð sé óvenju opin, vilji vakandi og þjáll, lundin afbragð. Þá segir að Kraflar sé álit- legur undaneldishestur og hljóti 136 stig fyrir 15 dæmd afkvæmi. Hryssur með heiðursverðlaun 1. Perla frá Kjartansstöðum, f.: Fengur, Skr., m.: Brúnka, Teigi, eig.: Njörður Jónsson, 124 stig fyr- ir 7 dæmd afkvæmi. 2. Leira frá Þingdal, f.: Fylkir, Flögu, m.: Stjarna, Þingdal, eig.: Einar Ö. Magnússon, 120 stig fyrir 5 dæmd afkvæmi. Stóðhestar 5 vetra 1. Vakar frá Skarði, f.: Ófeigur 882, Flugumýri, m.: Vaka, Strönd, eig. og kn.: Marjolyn Tiepen, sköpu- lag: 7,90, hæfileikar: 8,16, aðalein- kunn: 8,03 2. Geysir frá Keldudal, f.: Ófeigur 882, Flugumýri, m.: Dáð, Keldudal, eig. og kn.: Sigurður Sigurðarson, 7,88, 8,04, 7,96 3. Hrafn frá Búlandi, f.: Sörli, Bú- iandi, m.: Rispa, Búlandi, eig.: Þormar Andrésson, kn.: Þórður Þorgeirsson, 7,65, 8,20j 7,93 4. Fiðringur frá Stóru-Asgeirsá, f.: Orri, Þúfu, m.: Syrtla, Sigríðarst., Elías Guðmundsson, kn.: Þórður Þorgeirsson, 7,75, 8,00, 7,88 Stóðhestur 4 vetra 1. Höfrungur frá Búlandi, f.: Völ- undur, Búlandi, m.: Hrefna, Bú- landi, eig.: Þormar Andrésson, kn.: Þórður Þorgeirsson, 7,78, 7,86, 7,82 Hryssur 6 vetra og eldri 1. Minna frá Hvolsvelli, f.: Trostan, Kjartansst., m.: Von, Hofstöðum, eig.: Ríkharður Róbertsson, kn.: Hall- grímur Birkisson, 8,03, 8,40, 8,21 2. Perla frá Lindarholti, f.: Kolfinn- ur, Kjarnholtum, m.: Merrý, N-Brunná, eig.: Svanhvít Gíslad. og Albert Jónsson, kn.: Albert Jóns- son, 7,80, 8,40, 8,10 3. Dögun frá Kjarnholtum, f.: Kol- grímur, Kjarnholtum, m.: Blíðu, Gerðum, Kjarnholtum, eig. og kn.: Einar Ó. Magnússon, 7,83, 8,30, 8,06 4. Fiðla frá FLugumýrarhvammi, f.: Hrannar, s.st., m.: Stygg, Ríp, eig.: Ásta B. Ólafsdóttir, kn.: Þórð- ur Þorgeirsson , 7,88, 8,16, 8,02 5. Spöng frá Hrafnkelsstöðum I, f.: Gáski, Hofsstöðum, m.: Gígja, Hrafnkelsst., eig.: Jóhanna B. Ing- ólfsd., kn.: Þórður Þorgeirsson, 8,10, 7,91, 8,01 Hryssur 5 vetra 1. Sveifla frá Ásmundarstöðum f.: Geysir, Gerðum, m.: Hylling, S-Hofi, eig.: Margrét Magnúsdóttir, kn.: Friðþjófur Ö. Vignisson, 7,98, 8,20, 8,09 2. Gylling frá Hafnarfirði, f.: Orri, Þúfu, m.: Gloría, Hafnarf., eig. og kn.: Gunnar Arnarsson, 7,95, 8,16, 8,05 3. Höll frá Árbakka, f.: Bylur, Kolkuósi, m.: Hrönn, Kolkuósi, eig.: Anna Hansen, kn.: Sigurður Sig- urðarson, 8,15, 7,84, 8,00 Hryssur 4 vetra 1. Glíma frá Auðsholtshjáleigu, f.: Hektor, Akureyri, m.: Gola, Rvík, kn.: Gunnar Arnarsson, 8,08, 7,71, 7,89 2. Bylgja frá Skarði, f.: Ófeigur 882, m.: Djörfung, Hvítárholti, eig.: Kristinn Guðnason, kn.: Maijolyn Tiepen, 8,00, 7,61, 7,81 3. Röst frá Ingjaldshvoli, f.: Gnýr, Hrepphólum, m.: Hildur, Garðabæ, Höskuldur Hildibrandsson, kn.: Þorvaldur Á. Þorvaldsson, 7,53, 7,64, 7,58 JARÐVEGS c ÞJOPPUR SKEIFUNNI 3E-F ■ SÍMI 581 2333 • FAX 568 0215 Toppunnn í eldunartækjum Blomberq Blomberg Excellent fyrir þá sem vilja aðeins það besta! OFNAR: 15 gerðir í hvítu, svöntu, stáli eða spegilálferð, fjölkerfa eða Al-kerfa með Pynolyse eða Katalyse hreinsikerfum. HELLUBORÐ gerðir, með háhitahellum eða hinum byltingarkenndu, nýju Spansuðuhellum, sem nota segulonku til eldunar. Nv frábær hönnun á otrúlega góQu verði. Hefun réttu lausnina fyrir þig! ///■ Einar Farestveit & Co. hf. Borgartúni 28 - Slmi 562 2901 og 562 2900

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.