Morgunblaðið - 27.08.1997, Page 52
BB
minni eyðsia - hreinni útblástur
meiri sparnaður
poröunlilíiíiiíi
MORGUNBLAÐW, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.1S, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Samherji með
25 þúsund tonna
aflaheimildir
VSÍ hvetur ríkisstjórnina til aðhalds í fjármálum
Afgangur Qárlaga á
þríðja milljarð
SAMHERJI hf. á Akureyri hefur yf-
ir að ráða langmestum aflaheimild-
um allra útgerðarfélaga á næsta
fiskveiðiári, sem hefst 1. september.
Aflaheimildh' Samherja nema rúm-
lega 25.000 þorskígildistonnum, eða
5,7% heildarkvótans.
Þormóður rammi Sæberg kemur
næst með i'úmlega 16.300 tonn og
Utgerðarfélag Akureyringa er í
þriðja sæti með tæplega 15.300 tonn.
Kvótahæsta fiskiskipið er Sunna SI
með 4.815 þorskígildi. Næstu skip
eru Kaldbakui' EA með 4.759 og
■Þorsteinn EA með 4.612 tonn.
Fiskistofa hefur gefið út aflaheim-
ildh' allra fiskiskipa á komandi fisk-
veiðiári. Að þessu sinni eru gefin út
920 aflamarksveiðileyfi. Af þeim 920
aflamarksskipum, sem veiðileyfi
fengu, var úthlutað aflamai'ki til 804
skipa. Aflamarksskip, sem fá leyfi en
eru án aflahlutdeildar og fá því ekki
úthlutað neinu aflamarki, eru 116.
Gefið er út 851 krókaveiðileyfi, þ.e.
409 veiðileyfi á þorskaflahámarki,
165 veiðileyfi á sóknardögum með
handfærum og línu og 277 veiðileyfi
á sóknardögum með handfærum ein-
göngu. Þorskaflaheimildir krókabáta
á fiskveiðiárinu 1997/1998 miðast við
30.302 lestir af óslægðum fiski.
■ Kvótinn/B5
VINNUVEITE NDASAMBAND ís-
lands hefur hvatt ríkisstjórnina til
aukins aðhalds í ríkisfjármálum til
að sporna við þenslu í atvinnulífinu.
Telja vinnuveitendur að ríkisútgjöld
þurfi að dragast saman um 1% sem
hlutfall af landsframleiðslu.
Um leið leggur VSÍ til að dregið
verði úr vægi vaxta í efnahagsstjórn
og segir í greinargerð sem VSI
sendi forsætisráðherra í gær að hátt
vaxtastig hér á landi hafi leitt til
talsverðrar hækkunar á raungengi
krónunnar og horfur séu á frekari
gengishækkunum. Þetta muni skaða
samkeppnisstöðu íslenskra fyrir-
tækja.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
segir stefnt að því við gerð fjárlaga
að ríkissjóður verði rekinn með
verulegum afgangi á næsta ári eða
talsvert á þriðja milljarð króna. „Við
vonumst til að þingflokkar stjórnar-
flokkanna samþykki þá stefnumörk-
un, sem hefur þá þýðingu að við get-
um greitt niður skuldir og lækkað
vaxtabyrði ríkissjóðs þegar fram líða
stundir. Það leiðh' væntanlega til
aukins stöðugleika í landinu,“ segir
forsætisráðheira.
í greinargerð VSÍ er bent á að af-
koma í atvinnurekstri fari versnandi
samfara meiri hækkun á framleiðslu-
kostnaði en í öðrum aðildarríkjum
OECD. Davíð segir það rétt að fyrir-
tækin sýni ekki jafn mikinn hagnað
núna og á seinasta ári enda séu þau
að taka á sig mikinn kostnað sem
þau sjálf sömdu um í nýgerðum
kjarasamningum. Laun hækki hér
helmingi meira en annars staðar í
samræmi við það sem samið var um í
kjarasamningum.
■ Blikur á Iofti/12
Kona
a vegg
PÉTUR Baldvinsson myndlistar-
maður er að leggja lokahönd á
þessa konumynd sem prýða mun
vegg félagsheimilis Afturelding-
ar við Brúarland í Mosfellsbæ.
Fyrirmyndin er sótt í póstkort
og er ætlað að minna á verzlun
Nóatúns þar í bænum.
Skólar í Reykjavfk
Ræstingakon-
ur koma ekki
til starfa
FÉ LAGSKONUR í Verkakvenna-
félaginu Framsókn, sem starfa við
ræstingar í skólum Reykjavíkur-
borgar, komu saman á fundi í gær-
kvöldi. Þar var einróma samþykkt
að engin þeirra muni mæta til
starfa 1. september nema að fyrir
þann tíma verði búið að leysa deilu
sem uppi er milli Reykjavíkurborg-
ar og Framsóknar um breytingar á
fyrirkomulagi ræstinga og annarra
starfa í skólum borgarinnar.
Morgunblaðið/Arnaldur
Skipulagsathugun á starfí sex sjúkrahúsa í Reykjavík og nágrenni kynnt
Sameinuð undir einni yfir-
stjórn sem háskólaspítali
STARF sex sjúkrahúsa í Reykjavík og nágrenni
verður sameinað í eitt stórt háskólasjúkrahús og
komið á sérhæfmgu og verkaskiptingu verði farið
rað tillögum ráðgjafa sem gert hafa skipulagsat-
hugun á sjúkrahúsunum.
Sjúkrahúsin sex eru Landspítalinn, Sjúkrahús
Reykjavíkur, Sjúki’ahús Akraness, Sjúkrahús
Suðumesja, St. Jósefsspítali í Hafnarfirði og
Sjúkrahús Suðurlands. Tillögurnar gera ráð fyrir
að sjúki-ahúsin í Reykjavík einbeiti sér að slysa-
og bráðalækningum, vefrænum sérgreinum,
bráðageðlækningum, stoðdeildarþjónustu og há-
skólakennslu en að hlutverk smærri sjúkrahús-
anna verði á sviði einfaldari þjónustu og ferliþjón-
ustu, minni háttar bráðalækninga, langtíma lyf-
lækninga, endurhæfingar, fæðingarhjálpar o.fl.
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra seg-
ir að skýrslan sé mikilvægt vinnuplagg við skoðun
á framtíðarskipulagi starfsins á þessum sjúkra-
húsum og nú sé framundan að meta hvort og þá
hvaða þáttum þessara byltingarkenndu hug-
mynda sé hægt að hrinda í framkvæmd.
VSO Ráðgjöf og ráðgjafarfyrirtækið Ernst og
Young tóku saman skýrsluna og benda höfundar
á að sjúkrahúsin tvö í Reykjavik þurfi að sérhæfa
sig og hagræða rekstri sínum. Jafnframt að sam-
eina þurfi og samhæfa þjónustu smærri sjúkra-
húsanna fjögurra þeim stóru. Mælt er með að
breytingunum verði hrundið í framkvæmd á
stuttum tíma þar sem áherslur stjórnenda verði
þá skýrari, minni áhætta fylgi framkvæmdinni og
draga megi úr andstöðu á skemmri tíma.
Flestir forráðamenn sjúkrahúsanna sex, sem
Morgunblaðið hafði samband við í gær, telja til-
lögurnar um sameiningu vænlegar og fmnst full
ástæða til að skoða þær gaumgæfilega. Jóhannes
Gunnarsson lækningaforstjóri Sjúkrahúss
Reykjavíkur, gagnrýndi þó skýrsluna en að hans
mati skortir töluvert upp á faglegar forsendur
hennar.
■ Sex sjúkrahús/26-27
I leikbann
í karla- og
kvenna-
flokki
KNATTSPYRNUFÉLAG Vals
frá Reyðarfirði og Austra frá
Eskifirði, KVA, verður án eins
leikmanns síns í næsta leik liðs-
ins í 2. deild karla.
Aganefnd KSÍ kvað upp
þennan úrskurð í gær vegna
fjögurra gulra spjalda.
Þetta væri ekki í frásögur
færandi ef umræddur leikmaður
hefði ekki einnig hlotið sömu ör-
lög hvað vai'ðar næsta leik
kvennaliðs félagsins. Hann er
liðsstjóri kvennaliðs KVA og
fékk rautt spjald í leik þess hinn
13. ágúst sl.