Morgunblaðið - 07.10.1997, Page 1
96 SÍÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
227. TBL. 85. ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Tugir þúsunda stuðningsmanna Hamas fagna Yassin við komu hans til Gaza
Jórdanir sleppa ísraeiskum
tilræðismönnum úr haldi
Kvenna-
vagnar
vegna
káfs
Amman, Jerúsalem. Reuter.
JÓRDANIR staðfestu í gær að þeir
hefðu sleppt úr haldi tveim ísra-
elskum tilræðismönnum, sem voru
teknir höndum eftir að þeir gerðu
misheppnaða tilraun til að ráða
stjómmálaleiðtoga Hamas-samtak-
anna af dögum í síðasta mánuði. í
skiptum fyrir mennina tvo hafa
Israelar látið lausan Ahmed Yassin,
stofnanda Hamas, sem hafði verið
dæmdur í lífstíðarfangelsi í Israel.
Auk þess hafa Israelar heitið því
að láta lausa tugi jórdanskra og
palestínskra fanga og standa við
gerða samninga við Jórdaníu.
Benjamin Netanyahu, forsætisráð-
hema Israels, sagðist í gær hafa
skipað neftid sem ætti að rannsaka
hið misheppnaða banatilræði ísra-
elsku leyniþjónustunnar, Mossad,
við Khaled Meshal, stjórnmálaleið-
toga Hamas, 25. september sl.
Mennimir tveir komu til Israels í
gær. Netanyahu greindi frá þessu
eftir neyðarfund ríkisstjómarinnar.
Israelar kváðust hafa sleppt úr
haldi 20 palestínskum og jórdönsk-
um fóngum, og samkvæmt samn-
ingi við Jórdani mundu þeir láta
lausa 40-50 araba til viðbótar á
næsta hálfa mánuði. A frétta-
mannafundi í gær neitaði Netanya-
hu að ræða í smáatriðum hina mis-
heppnuðu morðtilraun, en sagði að-
gerðina hafa verið réttlætanlega.
Hann svaraði ekki ítrekuðum
spurningum um það, hvort Israelar
myndu oftar ráðast í aðgerðir innan
landamæra Jórdaníu.
Ráðherrann kvaðst axla sjálfur
ábyrgð á tilræðinu. Meshal hefði
ekki verið neitt „peð“, heldur leið-
togi „hryðjuverkamanna". En í öll-
um styrjöldum kæmi það fyrir að
aðgerðir misheppnuðust. „En við
yfirgefum ekki okkar fólk. Það er
ófrávíkjanleg regla.“
Yassin var fluttur frá Amman til
Gazaborgar í gær, þar sem tugir
■ Skaðar ímynd/22
Reuter
MEÐAL þeirra er tóku á móti Yassin er hann kom til Gaza í gær voru kona hans, Halima (t.h.), Suha Arafat,
eiginkona Yassers Arafats, (2.f.h.) og Abdel Aziz al-Rantissi, leiðtogi Hamas-samtakanna á Gaza (2.f.v.).
þúsunda stuðningsmanna Hamas
fógnuðu honum á íþróttaleikvangi í
Gazaborg og hétu honum stuðningi
og trúnaði.
Meðal þeirra sem tóku á móti
Yassin var Yasser Arafat, forseti
heimastjómar Palestínumanna, en
Yassin hefur lýst andstöðu sinni við
samninga þá, er Palestínumenn
gerðu við Israela og kenndir eru
við Ósló. Leiðtogi Hamas-samtak-
anna á Gaza sagði í gær að Israelar
ættu eftir að finna fyrir auknum
styrk Hamas í kjölfar þess að Yass-
in væri laus úr haldi.
Foale kominn heim
Kanaveralhöfða. Reuter.
ATLANTIS, geimferja banda-
rísku geimvísindastofnunarinn-
ar, NASA, lenti við Kennedy
geimvísindamiðstöðina í Flórída
í gærkvöldi klukkan 21.55 að ís-
lenskum tíma. Með ferjunni var
m.a. Michael Foale, Bandaríkja-
maður er dvalið hefur í rúss-
nesku geimstöðinni Mír í fjóra
og hálfan mánuð.
Lendingu Atlantis var frestað
tvisvar á sunnudag vegna óhag-
stæðra veðurskilyrða og tvísýnt
var lengi vel í gær hvort unnt
yrði að lenda í Flórída. Kom til
greina að ferjan lenti í Kaliforn-
íu, en í gærkvöldi hafði vind
lægt nægjanlega til að hægt
væri að lenda í Flórída.
Atlantis tengdist Mír í nýlok-
inni ferð og bandarískur geim-
fari, David Wolf, varð þar eftir í
stað Foales.
Tókýó. The Daily Telegraph.
LÖGREGLAN í Tókýó hvetur
nú eindregið til þess að komið
verði upp sérstökum vögnum
fyrir konur í jámbrautarkerfi
borgarinnar til að stemma stigu
við káfí og annarri kynferðis-
legri áreitni sem er vaxandi
vandamál á meðal lestarfarþega
í Japan.
Yumiko Sakuma, 24 ára
Tókýómær, giskar á að káfað
hafí verið á henni um 300 sinn-
um í Iestum og hefur hún gripið
til þess ráðs að stinga söku-
dólgana með prjóni og skrifar
„öfuguggi" á Fót þeirra með
eldrauðum varalit.
Kærur og kvartanir vegna
káfs hafa aldrei verið eins
margar og nú þótt vandinn sé
síður en svo nýr af nálinni. Yfír-
fullir lestarvagnar á annatúna
eru kjörinn vettvangur fyrir
„fjölþreifna" karlmenn, sem
bera því við að mannþröngin
eða hreyfíng lestarinnar sé
ástæða þess að þeim hafí orðið á
að snerta konurnar á óviður-
kvæmilegan hátt.
Mikilli herferð hefur verið
hrundið af stað til að hvetja
konur til að láta í sér heyra,
ráðgjafarstöðvum hefur verið
komið fyrir á brautarpöllum,
viðvaranir til karla gjalla í há-
talarakerfí járnbrautarstöðva
og farþegar eru áminntir um að
káf sé glæpur. Japönsk Iög-
reglukona segir landa sína hins
vegar hafa lítinn skilning á því
og telur fyrirbærið sérjapanskt.
Óvíst er þó að lausnin felist í
kvennavögnum. Fyrir tíu árum
var tilraun gerð með slíka vagna
en henni var snarlega hætt þeg-
ar í ljós kom að álagið jókst gíf-
urlega á þær konur sem ferðuð-
ust í „venjulegum“ vögnum.
Reuter
Deilan um gasvinnslusamning Total í íran
Eindregin andstaða
ESB við Bandaríkin
París. Reuter.
Rússneskt
faðmlag
BORIS Jeltsín Rússlandsforseti
faðmaði Tony Blair, forsætisráð-
herra Bretlands, á rússneska vísu í
gær, þegar Blair kom í eins dags
opinbera heimsókn til Moskvu.
Jeltsín hvatti til enn nánara sam-
starfs landamia.
Leiðtogamir tveir ræddust við í
eina klukkustund í Kreml. Á honum
undirrituðu Blair og Viktor
Tsjemomyrdín, rússneski forsætis-
ráðherrann, túnamótasamning um
samstarf ríkjamia í baráttunni gegn
skipulagðri glæpastarfsemi. Blair
gladdi Jeltsín auk þess með því að
leggja fram uppkast að nýju merki
fyrir leiðtogafundi helztu iðnríkja
heims, þar sem Rússland bætist í hóp
Bretlands, Bandaríkjanna, Þýzka-
lands, Frakklands, Japans, Italíu og
Kanada, svo úr verður „G8“-hópur-
inn í stað „G7“. Blair tjáði Jeltsrn
einnig að haiui væri bjartsýnn á að
Rússland hlyti á næsta ári aðild að
Heimsviðskiptastofnuninni, WTO.
Jeltsín lýsti Tony Blair sem at-
orkusömum og ákveðnum stjóm-
málamanni og Blair svaraði með
því að mæra staðfestu Jeltsíns sem
með vægi persónuleika sins hefði
tekizt að hrinda róttækum breyt-
ingum í framkvæmd í Rússlandi.
Brezki forsætisráðherrann hafði
öryggisfyrirvara hinna rússnesku
gestgjafa að engu þegar hann tók
sér far með troðinni neðanjarðarlest
frá verzlunanniðstöð við Rauða
torgið. Hann fór milli tveggja stöðva
með lestinni og sagði furðu lostinni
konu sem kunni ensku að sér fyndist
Moskva „heillandi... fögur borg“.
RÁÐAMENN Evrópusambandsins
stóðu í gær fastir fyrir í andstöðu við
bandarísk stjórnvöld vegna umdeilds
samnings fransks fyrirtækis um
gasvinnslu í íran en hétu því að láta
deiluna ekki stefna góðum tengslum
V-Evrópu og Bandaríkjanna í hættu.
Utanríkisráðherrar ESB-ríkj-
anna, sem funduðu í Lúxemborg í
gær, lýstu stuðningi við málstað
Frakklands sem telur refsiákvæði
laga, sem Bandaiákin settu einhliða í
fyrra, ekki geta náð til franska
Total-olíufyrirtækisins fyrir að hafa
gert samning um að verja um tveim-
ur milljörðum Bandaríkjadala í
gasvinnslu undan strönd Irans.
Samkvæmt lögunum er Banda-
ríkjaforseta skylt að refsa fyrirtækj-
um utan Bandaríkjanna, sem fjár-
festa fyrir meira en 20 milljónir dala
í orkuiðnaði írans eða Líbýu.
Á blaðamannafundi í Pai'ís sagði
William Cohen, varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna, að bandaríska
stjórnin hefði ekki að svo komnu
máli komizt að niðurstöðu um til
hvaða ráða hún hygðist grípa vegna
Total-samningsins. „En ef hún
ákveður að lögin hafi verið brotin
mun hún framfylgja þeim,“ sagði
ráðherrann sem í gær átti fund með
frönskum starfsbróður sínum, Alain
Richard.
Cohen og Richard sögðust mjög
ósammála um réttmæti og afleiðing-
ar gassamningsins en lýstu því jafn-
framt yfir að hin harða deila myndi
ekki varpa skugga á annars gott
samstarf ríkjanna tveggja.