Morgunblaðið - 07.10.1997, Blaðsíða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 1997
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Reuter
Tvær milljónir hlýða á páfa
HÁTT í tvær miHjónir manna hlýddu á útimessu um helgina. Var messan haldin við minnismerki
Jóhannesar Páls II páfa í Rio de Janeiro i Brasilíu um þá sem létu lífið í heimsstyrjöldinni síðari.
Flokksþing breska Ihaldsflokksins
Minna. fylgi leiðtog-
ans en nokkru sinni
Reynt að bjarga
ítölsku stjórninni
Kommún-
istar hvika
hvergi
Rómaborg. Reuter.
ROMANO Prodi, forsætisráðherra
Ítalíu, hóf í gær viðræður við Fausto
Bertinotti, leiðtoga marxistaflokks-
ins Kommúnískrar endurreisnar, til
að freista þess að afstýra því að
stjórnin félli vegna deilu um fjárlög
næsta árs.
Orðrómur var á kreiki um að
Bertinotti léði máls á málamiðlun í
deilunni en hann áréttaði andstöðu
Kommúnískrar endurreisnar við
fjárlagafrumvarp stjórnarinnar eftir
að hafa rætt við flokksbræður sína
fyrir fundinn með Prodi.
Stjórnin hefur þurft að reiða sig
á stuðning Kommúnískrar endur-
reisnar á þinginu og haldi flokkurinn
andstöðu sinríi til streitu er útséð
um að fjárlagafrumvarpið verði sam-
þykkt. Talið er að frumvarpið geti
ráðið úrslitum um hvort Ítalía fái
aðild að Efnahags- og myntbanda-
lagi Evrópu, EMU, árið 1999.
Vantraust samþykkt?
Gert er ráð fyrir að Prodi flytji
ræðu um fjárlagadeiluna á þinginu
í dag. Náist ekki samkomulag við
Kommúníska endurreisn gæti for-
sætisráðherrann þurft að tilkynna
að stjórnin hefði ekki iengur meiri-
hluta á þinginu. Það gæti síðan orð-
ið til þess að lögð yrði fram tillaga
um vantraust á stjórnina.
Bertinotti kvaðst hvergi ætla að
hvika frá kröfum sínum um að
vinnuvikan yrði stytt úr 40 stundum
í 35, gerðar yrðu ráðstafanir til að
draga úr atvinnuleysi í suðurhluta
landsins og að ellilífeyrir yrði ekki
skertur. Flokkur hans vill að stytting
vinnuvikunnar verði lögleidd fyrir
aldamót en Tiziano Treu vinnumála-
ráðherra hafnaði þeirri kröfu og lýsti
henni sem „sovéskri hagfræði".
Kommúnísk endurreisn er andvíg
áformum stjórnarinnar um að
skerða framlögin til velferðar- og
Iífeyriskerfisins um fímm billjónir
líra, andvirði 200 milljarða króna.
Mario Morti, sem fer með málefni
innri markaðar Evrópusambandsins
innan framkvæmdastjórnar ESB,
sagði að ítalir hefðu skuldbundið
sig til að draga úr velferðargreiðsl-
unum og yrðu að standa við þær
skuldbindingar.
London. Daily Telegraph.
WILLIAM Hague, leiðtogi íhalds-
flokksins, setur þing flokksins í
Blackpool í dag í skugga frétta af
nýrri skoðanakönnun Gallup-stofn-
unarinnar, sem sýna að hann nýtur
minni vinsælda en nökkur annar
flokksleiðtogi í upphafi starfs og
flokkurinn hefur minna fylgi en
nokkru sinni það sem af er öldinni.
Samkvæmt könnun Gallups hefur
íhaldsflokkurinn ekki bætt stöðu
sína frá því í þingkosningunum í
maí þar sem hann fékk slæma út-
reið. Ef eitthvað er hefur bilið milli
flokkanna aukist frá í maí. Nýtur
Verkamannaflokkurinn nú fylgis
60% kjósenda en íhaldsflokkurinn
aðeins 22%.
Jafngildir þetta því að Verka-
mannaflokkurinn undir forystu Tony
Blairs forsætisráðherra hafi aukið
fylgið um 16 prósentustig frá kjör-
degi en íhaldsflokkurinn tapað 9
stigum á sama tíma.
Aðeins 27% stuðningsmanna
íhaldsflokksins, eða sem svarar 6%
allra kjósenda, telja að Hague myndi
standa sig best í starfí forsætisráð-
herra af leiðtogum stóru flokkanna
þriggja. Einungis 20% allra kjósenda
telja hann standa sig vel í starfi leið-
toga íhaldsflokksins en 51% kvaðst
telja að Kenneth Clarke, fyrrverandi
fjármálaráðherra, sem beið ósigur
fyrir Hague í leiðtogakjörinu, hefði
verið betur til starfsins fallinn.
Clarke virðist ekki hafa gefið upp
drauminn um að leiða flokkinn inn
í næstu öld því fyrir helgi gagnrýndi
hann hvert flokkurinn stefndi undir
forystu Hagues. 'Varaði hann við
„einfeldningslegri" andstöðu við
sameiginlegan gjaldmiðil í Evrópu
og flokkurinn mætti ekki verða að
samkundu hægriróttæklinga eða
gamaldags þjóðernissinna.
Áhrifamenn innan íhaldsflokksins
með Parkinson lávarð flokksform-
ann í broddi fylkingar hófu á sunnu-
dag áróðursherferð í þeim tilgangi
að styrkja stöðu Hagues áður en
flokksþingið hefst. Hélt hann því
fram að Hague væri „afar skýr,
hæfur og skynsamur ungur maður“
sem ekki hefði fengið tíma til þess
að sanna sig. Telja leiðandi menn
innan íhaldsflokksins að Hague
muni styrkja stöðu sína er kastljós
fjölmiðla beinist að flokksþinginu
þessa viku.
Heseltine að hætta?
Michael Heseltine, aðstoðarfor-
sætisráðherra Johns Majors í síðustu
ríkisstjórn, mun draga sig í hlé á
kjörtímabilinu, samkvæmt heimild-
um úr röðum frammámanna í Ihalds-
flokknum. Segja þeir hann hafa tek-
ið nærri sér ósigurinn í þingkosning-
unum í vor en hann lék stórt hlut-
verk í kosningabaráttunni. Aukin-
heldur er hann heilsuveill og sagt
er að hann bíði eftir heppilegu tæki-
færi til að segja af sér og knýja fram
aukakosningar.
Endurtaka þarf forsetakosningar í Serbíu og líklega einnig Svartfjallalandi
Andstæðingur
Milosevic náði
ekki kjöri
Bel^rad. Reuter.
KJÓRSTJÓRNIN í Serbíu sagði í
gær að forsetaefni róttækra þjóðern-
issinna, Vojislav Seselj, hefði fengið
meira fylgi en frambjóðandi sósíal-
ista í annarri umferð forsetakosning-
anna á sunnudag. Kjörsóknin hefði
hins vegar verið of lítil til að kosning-
arnar teldust gildar. Líklegt var að
einnig þyrfti að efna til nýrra for-
setakosninga í Svartfjallalandi, sem
er í sambandsríkinu Júgóslavíu
ásamt Serbíu, þar sem útlit var fyr-
ir að enginn frambjóðendanna fengi
meirihluta atkvæða.
Samkvæmt kosningalögunum í
Serbíu þarf meirihluti þeirra sem eru
á kjörskrá að neyta atkvæðisréttar-
ins til að kosningamar teljist gildar.
Flokkur Seseljs, Róttæki flokkurinn,
lýsti því yfir I gærmorgun að kjör-
sóknin hefði verið yfír 50% og sak-
aði sósíalista um að hagræða úrslit-
unum en frambjóðandinn viður-
kenndi síðar í útvarpsviðtali að hann
hefði ekki náð kjöri að þessu sinni
en kvaðst viss um að fara með sigur
af hólmi í næstu umferð.
„Hvergi í heiminum þarf kjörsókn-
in að vera 50% I annarri umferð kosn-
inga,“ sagði Seselj. „En við erum
sátt við úrslitin og teljum að okkur
gangi enn betur í næstu kosningum."
Kjörstjórnin sagði að Seselj hefði
fengið 49,98% atkvæðanna en Zoran
Lilic, forsetaefni sósíalista, 46,99%
þegar búið var að telja í 85% kjör-
staðanna. Búist er við að lokaúrslit
kosninganna verði gerð opinber á
fimmtudagskvöld.
Talsmaður Sósíalistaflokksins við-
urkenndi nauma forystu Seseljs í
kosningunum og sagði að kjörsóknin
hefði verið 48,68%.
Er andvígur
Dayton-samkomulaginu
Fylgistap sósíalista í forsetakosn-
ingunum á sunnudag og í þingkosn-
ingunum fyrir tveimur vikum, þar
sem þeir töpuðu meirihluta sínum,
þykir benda til þess að vinsældir
flokksins séu háðar Slobodan Milo-
sevic, sem gat ekki gefíð kost á sér
aftur í embættið þar sem stjórn-
arskráin heimilar ekki að sami mað-
urinn gegni því lengur en í tvö kjör-
tímabil.
Milosevic varð forseti Júgóslavíu
í sumar og völd forseta Serbíu voru
þá skert. Heimildarmenn í Belgrad
sögðu að þrátt fyrir valdaskerðing-
una yrði mjög erfltt fyrir Milosevic
að sætta sig við að Seselj tæki við
forsetaembættinu í Serbíu.
Seselj hefur verið lýst sem hægri-
öfgamanni og hann hefur verið í
nánum tengslum við þjóðernis-
sinnana Vladímír Zhírínovskí í Rúss-
landi og Jean-Marie Le Pen í Frakk-
landi. Seselj er algjörlega andvígur
Dayton-samkomulaginu um frið í
Bosníu og leggst gegn því að Serbar
framselji meinta stríðsglæpamenn.
Hann er einnig á móti því að Serbar
friðmælist við Króata eða verði við
kröfu albanska meirihlutans I
Kosovo-héraði um sjálfstjórn.
„Sigur Róttæka flokksins myndi
merkja að ekki kæmi til greina að
Serbar krypu á kné fyrir vestrænu
valdi,“ sagði Seselj eftir kosningarn-
ar á sunnudag. „Serbar eru ekki
handbendi neinna ríkja.“
Fréttaskýrendur segja að Milo-
sevic geti ekki haldið velli eftir að
sósíalistar misstu þingmeirihluta
sinn í september nema með því að
ijúfa pólitíska og efnahagslega ein-
angrun Júgóslavíu. Hann verði því
að fallast á tilslakanir í því skyni
að fá Vesturlönd til að aflétta refsi-
aðgerðum. Stjórnarerindrekar segja
að Seselj myndi hindra slíka viðleitni
af hálfu júgóslavneska forsetans ef
hann næði kjöri.
Kosið að nýju
í Svartfjallalandi
Milosevic hafði óttast að einn af
andstæðingum hans, umbótasinninn
Milo Djukanovic, myndi ná kjöri í
fyrstu umferð forsetakosninganna í
Svartfjallalandi á sunnudag. Kjör-
stjórnin sagði þó í gær að Momir
Bulatovic, núverandi forseti, sem
naut stuðnings Milosevic, hefði feng-
ið ívið meira fylgi en Djukanovic en
útlit var fyrir að hann fengi ekki
meirihluta atkvæðanna, sem þýðir
að kjósa þarf að nýju á milli þeirra
tveggja. Munurinn á fylgi þeirra var
aðeins 2.272 atkvæði, samkvæmt
nýjustu tölum. Stuðningsmenn
Djukanovic höfnuðu þessum tölum
og sögðu hann hafa borið sigurorð
af Bulatovic.
Nyrup
hótar að
rjúfa þing
POUL Nyrup Rasmussen for-
sætisráðherra Danmerkur er
reiðubúinn að ijúfa þing og
boða til kosninga samþykki
þingið ekki efnahagsráðstaf-
anir stjórnarinnar sem hún
hyggst leggja fyrir þingið í
næstu viku.
Verndari
Hitlers deyr
OTTO Ernst Remer, hershöfð-
ingi í heijum þýskra nasista,
lést á laugardag í Malaga á
Spáni. Hann var á 86. aldurs-
ári. Remer var yfirmaður líf-
varðar Adolfs Hitlers kanslara
er gerð var misheppnuð tilraun
til að ráða hann af dögum árið
1944. Einnig er Remer sagður
hafa komið í veg fyrir tilraunir
til að steypa Hitler.
Þrír hand-
teknir fyrir
njósnir
BANDARÍSKA alríkislögregl-
an, FBI, hefur handtekið tvo
karla og eina konu sem grunuð
eru um njósnir fyrir Austur-
Þjóðveija á áttunda og níunda
áratugnum. Eitt hinna hand-
teknu var háttsettur lögfræð-
ingur hjá varnarmálaráðuneyt-
inu bandaríska. Voru þremenn-
ingarnir handteknir eftir að
tveir þeirra afhentu lögreglu-
mönnum í dulargerfi leyniskjöl,
en hinir síðarnefndu kváðust
rússneskir og suður-afrískir
leyniþjónustumenn.
E1A1 býður
verslunar-
ferðir
ÍSRAELSKA flugfélagið E1 A1
hyggst örva ferðalög og fylla
sæti hálftómra flugvéla sinna
á þessum árstíma með því að
bjóða verslunarferðir til London
á fimmtudögum fyrir 330 pund,
eða 38.000 krónur. Lent er að
morgni dags, farþegum ekið á
kostnað E1 A1 inn að Oxford-
stræti og þeir sóttir síðdegis
fyrir heimför að kvöldi sama
dags.
Minna
atvinnuleysi
í Þýskalandi
ATVINNULEYSI minnkaði í
Þýskalandi í september en þá
voru 4,308 milljónir manna án
vinnu í stað 4,372 í ágústmán-
uði. Hefur þá ekki verið tekið
tillit til árstíðabundinna þátta
en slíkar tölur sýndu 4,456
milljóna atvinnuleysi í Þýska-
landi í ágúst í stað 4,372.
Fækkaði atvinnuleysingjum í
vesturhluta landsins úr 2,991
milljón í 2,933 og í austurhlut-
anum úr 1,381 milljón í 1,375.
Lík Kashmír-
gísls fundið?
LÖGREGLUSTJÓRI Jammu og
Kashmírs í Indlandi sagði í
gær, að lík sem graflð hefði
verið upp I síðasta mánuði kynni
að vera af öðrum tveggja Breta,
sem aðskilnaðarsinnar rændu I
júlí 1995 og héldu í gíslingu.