Morgunblaðið - 07.10.1997, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
BÚIÐ er að jafna yfir sorphaugana á Akranesi og sá grasfræi í sárið.
Akranesi - Nú hefur urðunar-
svæðinu fyrir sorp í Garðaseli
rétt utan við Akranes að mestu
verið lokað. Mikil vinna hefur
verið við að hreinsa svæðið af
brotajárni og jarðvegur hefur
verið settur yfir stærsta hluta
svæðisins og í það sáð.
Ohætt er að segja að kominn
hafi verið timi til róttækra að-
gerða í að bæta það ástand sem
var í sorpurðunarmálum á Akra-
nesi og nú sér fyrir endann á því
ófremdarástandi sem fylgdi
gömlu sorphaugunum.
Sívaxandi fjöldi bæjarbúa, sem
stundar útivist á þessu svæði,
getur nú farið um bæjarlandið
Gömlu sorp-
haugarnir
lagðir niður
án þess að hafa ósóma hauganna
sífellt fyrir augum. Nauðsynlegt
er að áfram verði urðað sorp á
afmörkuðu svæði þar til unnt
verður að taka nýtt kerfi í notk-
un. Til að byrja með verður þetta
sorp pressað í sorpmóttökustöð-
inni og ekið síðan í Sorpu en
eftir að nýtt sameiginlegt svæði
fyrir Vesturland verður opnað í
Fíflholtum á Mýrum verður öllu
sorpi á Akranesi ekið þangað.
Nýtt endurnýtingarsvæði
I nágrenni við gömlu sorp-
haugana er verið að fullgera
endurnýtingarsvæði þar sem
urða á það sem ástæðulaust er
að flytja annað. í þann flokk fell-
ur m.a. jarðvegsúrgangur,
steypuafgangar og annað sem
óhætt verður að setja á svæðið.
Lögð verður áhersla á að þarna
verði enginn úrgangur urðaður
utan þess sem þangað má fara
og mun umsjónarmaður svæðis-
ins leiðbeina fólki í þeim efnum.
Furðusmíð fyrir
Járnblendið
Stykkishólmi - Það var erfítt að átta
sig á hvaða furðutæki Skipasmíða-
stöðin í Stykkishólmi var að smíða
fyrir Jámblendiverksmiðjuna á
Grundartanga. Það er átta metrar á
kant með átta homum og fjórir metr-
ar á hæð.
Þegar betur er að gáð kemur í ljós
að verið er að smíða gufugleypi eða
reykhettu sem sett er yfir deiglustól
og tekur á móti hita eða reyk, þegar
verið er að losa kör með bræddu jám-
grýti. Þegar smíðinni var lokið var
hún boltuð í sundur og flutt í þremur
ferðum á Grundartanga. Þangað fóru
svo menn frá Skipavík og settu tæk-
ið upp. Mikið hefur verið að gera hjá
Skipasmíðastöðinni Skipavík á þessu
ári en að sögn Ólafs Sigurðssonar,
framkvæmdastjóra, er gallinn við
þennan rekstur sá að verkefnin eru
mörg og smá.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Ámason
SUÐUMENN höfðu nóg að gera við að sjóða
saman og styrkja gufugleypinn.
Veislu- og matarþjónusta
í Fossnesti
Selfossi - Fossnesti er með veislu-
og matarþjónustu. Veislumatur er
sendur um Suðurland eftir óskum
Morgunblaðið/Sig. Fannar.
SVERRIR Halldórsson matreiðslumað-
ur og Magnús Jakobsson rekstrarsljóri
við matarbílinn í Fossnesti.
viðskiptavina auk þess sem fyrir-
tækjum og stofnunum er boðin
matarþjónusta í hádeginu, að því
er fram kemur í fréttatil-
kynningu.
„Boðið er upp á nokkra
möguleika í afgreiðslu á
matnum, meðal annars að
matreiðslumaður fylgi til
þess að skera niður steik-
ina. Einnig er í boði að
borðbúnaður fylgi þegar
keyptur er matur.“
Magnús Jakobsson
rekstrarstjóri í Fossnesti
og Sverrir Halldórsson
matreiðslumaður eru að
sögn ánægðir með við-
brögðin við þjónustunni.
Morgunblaðið/Ólafur Jens Sigurðsson
TRUKKURINN tók upp bát fyrir trillukarl i Rifi.
HAPPD
H jöRjAVERJIDA
GOTT HJARTA E R GULLI BETRA
^vinnincun^
MMC Pajero
verðmæti 3.290.000
^^vinnincuK.
Golf GL 1.6
Að verðmæti 1.526.000
Glæsitmreiðar
Ævintýraferðir
Töivupakkar
SsBRí
Hægt er að greiða heimsenda miða
með greiðslukorti i síma 581 3947.
Sendum miða hvert á land sem er.
^TvinmncuR. .
3 ævintýraferðir með Úrvali-Útsýn
Hver að verðmæti 500.000
20 ferðavinningar með Úrvali-Útsýn
eða tölvupakkar frá Nýherja
Hver að verðmæti 300.000
iS.
Dregið 18. október 1997
URVALUTSÝN
n
<T3>
NÝHERJI REYI9AV,KUR
SPARISJÓÐUR
REYKJAVÍKUR
OG NAGRENNIS..
Fjörutíu tonna
trukkur undir Jökli
Hellissandi - „Ég ræð yfir
framleiðslutæki sem er tólf
tonn.“ Þessi orð lagði Halldór
Laxness Jódínusi Alfberg í
munn í Kristnihaldi undir Jökli
þegar hann kynnti sig fyrir
umboðsmanni biskups. Lík-
lega hefði nóbelskáldið orðað
þessa setningu með öðrum
hætti hefði sú ágæta bók verið
skrifuð nú, þrjátíu árum síðar.
Því undir Jökli má finna tæki
sem gerir gott betur en ráða
við tólf tonn eins og fram-
leiðslutæki Jódínusar.
Þorgeir Árnason í Rifi festi
í vor kaup á fjögurra öxla
vörubifreið með drifi á öllum
hjólum sem borið getur 41
tonn og lyft 14 tonnum við
réttar aðstæður. Bifreiðin er
þýsk, af gerðinni Man, en
kraninn er smíðaður af ítalska
fyrirtækinu Pesci. Þorgeir
keypti bifreiðina til að ráða
við verkefni sem falla stundum
til en ekkert tæki hér hefur
ráðið við og ekki verið fáan-
legt nema sækja það um lang-
an veg með ærnum tilkostn-
aði. Með bifreiðinni hefur Þor-
geir verið að taka upp heilu
bátana, skipa upp vörum,
koma húsum fyrir á grunnum,
hífa steypu og jafnvel náð upp
flutningabílum sem lent hafa
utan vegar. Mikil þörf er því
fyrir svona tæki.
Þorgeir segir það mikinn
mun frá því sem áður var að
vinna við svona fullkomið
tæki. Aðalvélin er 463 hestöfl
og má ræsa hana með fjarstýr-
ingu en kraninn er tölvustýrð-
ur og gerir það ökumanni
kleift að stjórna tækinu með
þráðlausri fjarstýringu og
standa sjálfur utan bílsins.
Þess vegna þarf engan mann-
skap til að segja til eins og
áður þurfti.
Fyrir utan áðurnefnd verk-
efni notar Þorgeir bifreiðina
við steypustöð sína og segir
það ótrúlegan mun að geta
látið vökvakrabba kranans
moka sjálfan á bifreiðina. Það
sé mikill sparnaður. „Gallinn
er hins vegar sá að bíllinn og
kraninn eru mikil fjárfesting
og nóg þarf að vera fyrir tæk-
in að gera, eigi þau að standa
undir fjármagnskostnaði. Þess
vegna þyrfti ég að hafa verk-
efni fyrir tækin víðar en í
Snæfellsbæ, bifreiðin borgar
sig varla með því einu,“ sagði
Þorgeir Arnason að lokum.