Morgunblaðið - 07.10.1997, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 1997 19
ÚR VERIIMU
Jökull hf. langt kominn með uppstokkun
Kvótinn nærri
fjórfaldaður
JÖKULL hf. á Raufarhöfn hefur
keypt Aron ÞH af Guðmundi A.
Hólmgeirssyni, útgerðarmanni á
Húsavík. Aron er 74 brúttótonna
trébátur, byggður í Þýskalandi
árið 1959. Jökull kaupir bátinn
með innfjarðarrækjukvóta, sem
honum fylgir, en Aron hefur yfir
að ráða þriðjungi aflahlutdeildar í
inníjarðarrækju í Skjálfanda, en
útgefinn rækjukvóti í Skjálfanda
fyrir yfirstandandi fiskveiðiár
nemur samtals eitt þúsund tonn-
um. Með kaupunum er innfjarðar-
rækjukvóti Jökuls orðinn um eitt
þúsund tonn því fyrir á Jökull
helming veiðiréttinda í Öxarfirði,
þar sem í ár hefur verið gefinn
út kvóti upp á 1.400 tonn. Endan-
legur kvóti verður ekki ákveðinn
fyrr en að niðurstöður úr haust-
rannsóknum Hafrannsóknastofn-
unar liggja fyrir.
Nýr eigandi tekur við bátnum
um miðjan október. Kaupverð
verður ekki gefið upp að ósk selj-
andá. Eftir sem áður verður Aron
við veiðar á innfjarðarrækju í
Skjálfanda yfir vetrarmánuðina,
en þess á milli er stefnt að því að
gera bátinn út á snurvoð.
Sjö skip keypt og
þrjú skip seld
Að sögn Jóhanns Ólafssonar,
framkvæmdastjóra Jökuls, var far-
ið að huga að endurskipulagningu
fyrirtækisins fyrir um þremur
árum eða á haustmánuðum 1994,
en Jóhann tók við framkvæmda-
stjórn fyrirtækisins þann 1. sept-
ember það ár. „Fyrir þremur árum
átti fyrirtækið Rauðanúp, gamlan
ísfisktogara, og 1.680 þorskígildis-
tonna kvóta. A þriggja ára tíma-
bili hefur fyrirtækið keypt til sín
sjö skip og selt þrjú frá sér kvóta-
laus og hefur nú yfir að ráða tæp-
lega sex þúsund þorskígildistonna
kvóta.
„Við höfum unnið að þvi að
auka við okkur kvóta og gert það
með því að kaupa skip með kvóta
og selt svo frá okkur kvótalaus
skip. Sömuleiðis höfum við verið
að reyna að koma okkur upp skip-
um, sem við getum hugsað okkur
að reka til framtíðar,“ segir Jó-
hann. Hvað núverandi skipastól
snertir, gerir Jökull nú út rækju-
frystiskipið Rauðanúp, sem áður
hét Júlíus Havsteen og keyptur var
frá Húsavík í sumar. Arnarnúpur,
sem áður hét Drangur og keyptur
var frá Grundarfirði í fyrra, er fjöl-
veiðiskip, sem stundað getur bæði
almennar togveiðar og nótaveiðar.
Auk Arons á Jökull tvo aðra rækju-
báta, sem stunda innijarðarrækju-
veiðar í Öxarfirði, Atlanúp, sem
er 52 brúttótonn að stærð, og
Öxarnúp, sem er 17 brúttótonn að
stærð. Að sögn Jóhanns er verið
að vinna að sölu á Brimi, sem
keyptur var fyrr í sumar. Að öllum
líkindum verður hann seldur til
Noregs.
Ný vinnslulína
fyrir uppsjávarfiska
„Það má segja að við séum
komnir í þá stöðu núna sem við
höfum verið að leita eftir. Við
erum orðnir nokkuð ánægðir með
þessa uppsetningu. Ég veit ekki
hvort við erum hættir, en erum
allavega ekki á neinni hraðferð
ennþá. Við þurfum auðvitað að
fara að vinna úr þessari uppstill-
ingu, sem okkur fannst henta
okkur," segir Jóhann. Þá hefur
Jökull að sama skapi verið í fjár-
festingum í landi sem stefnt er
að því að Ijúka fyrir áramót. „Hún
felst í því að vinna frosið hráefni,
sem keypt hefur verið af rússnesk-
um togurum. Svo erum við að
setja upp nýja vinnslulínu fyrir
frystingu á loðnu og síld sem verð-
ur klár í nóvember.“
Jökull seldi fyrir nokkrum mán-
uðum síðan Fiskiðjusamlagi Húsa-
víkur rækjuverksmiðjuna Geflu á
Kópaskeri og koma rækjubátar
Jökuls til með að landa afla sínum
hjá FH.
Jón Baldvinsson
til Chile
GRANDI hf. hefur selt ísfisktog-
arann Jón Baldvinsson til Chile
og var gengið frá sölunni um
miðjan síðasta mánuð. Er kaup-
andinn fyrirtækið E1 Golfo í
Talcahuano. Sigurbjörn Svav-
arsson, útgerðarstjóri hjá
Granda, sagði, að Jón Baldvins-
son hefði verið á veiðum fram
undir júlílok en vinnslustopp var
hjá Granda í ágúst. Var þá
áhöfninni á Jóni og Ottó N. Þor-
lákssyni sagt upp og varð til ný
áhöfn úr þeim báðum.
Jón Baldvinsson var seldur
fyrir 125 milljónir kr. en skipið
verður á botnfiskveiðum, á lýs-
ingi, en það verður afhent nýj-
um eigendum 24. þessa mánað-
ar. Munu þeir senda hingað
menn en ekki er alveg ljóst
hvort einhverjir Islendingar
muni taka þátt í suðursigling-
unni.
Ég weit ekkerí
hnaé ég ætla að
tierða
t»e«ar éa nar
aiJ
uitgur war ég
alitaf að síjsia í
GáftlHaaLlf-VKj
láritarusii eg
uerftfærum
íslensku lífeyrissjóðirnir eru alþjóðleg fyrirmynd
Fólki á eftirlaunaaldri fjölgar í framtíðinni. Færri munu vinna störfin. Af þessum sökum hefur Alþjóðabankinn
hvatt iðnríki heims til að byggja fjárhagslegt öryggi lífeyrisþega næstu aldar á þremur meginstoðum:
• í fyrsta lagi almannatryggingum, sem þarf að fjármagna með sköttum.
• í öðru lagi lífeyrissjóðum með sjóðsöfnun, skylduaðild og samtryggingu.
• í þriðja lagi einstaklingsbundnum sparnaði. LÍFEYRISSJÓÐIRNIR
Það sem sérfræðingar Alþjóðabankans telja mikilvægast er skylduaðild, lifðu vel og lengi
sjóðsöfnun og samtrygging. Einmitt þau atriði einkenna almennu lífeyrissjóðina.
Innistæður einstaklinga í bönkum og séreignarsjóðum koma aldrei í stað
lífeyrissjóðanna.