Morgunblaðið - 07.10.1997, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Páll Magnússon, fréttastjóri Stöðvar 2
Enginn trúnaður brotinn
PÁLL Magnússon, fréttastjóri
Stöðvar 2, vísar því á bug að frétta-
stofa hans hafi brotið samkomulag
um að skýra ekki frá efni fjárlaga-
frumvarpsins fyrr en það var lagt
fram á Alþingi.
Hafnaði kynningarfundi
og trúnaði
„Mér finnst það vægast sagt
ósmekklegt og óráðherralegt að
gefa til kynna að eitthvert sam-
komulag um trúnað hafi verið brot-
ið þegar ekkert slíkt samkomulag
var gert,“ sagði Páll í samtali við
Morgunblaðið og vitnar hann þar
til þess sem haft var eftir fjármála-
ráðherra í blaðinu í laugardag og
Stöð 2 hafi verið kunnugt um það
í mörg ár að frumvarpið væri trún-
aðarmál þar til það hefur verið
lagt fram.
„Strax á þriðjudag sagði ég við
Magnús Pétursson ráðuneytis-
stjóra að við mundum ekki þiggja
boð um að sækja kynningarfund
ráðuneytisins og fá þá afhent
frumvarpið gegn þagnarskyldu.
Ég sagði honum að við teldum
okkur þegar hafa þær upplýsingar
í höndum sem dygðu til að segja
fréttir af frumvarpinu og sú var
reyndin," segir Páll og ítrekar að
þar sem ekkert samkomulag um
þagnarskyldu hafi verið gert hafi
ekkert samkomulag verið brotið.
Páli sagði það einnig firru hjá
fjármálaráðherra að halda því fram
að fjölmiðlar hefðu undirgengist
einhvern allsheijar trúnað varð-
andi þessa fjárlagagerð. „Þvert á
móti hafa allir fjölmiðlar reynt að
komast yfir sem allra mestar upp-
lýsingar um það sem þarna er í
bígerð og að þessu sinni tókst okk-
ur það einfaldlega betur en öðr-
um.“
Hvorki játa né neita
að hafa átt eintak
Fram hefur komið að fjármála-
ráðuneytið lætur nú rannsaka
hvernig eintak af frumvarpinu
hafi komist til Stöðvar 2. „Við
höfum aldrei gefið það út að við
höfum eintak af frumvarpinu und-
ir höndum. Við hfefðum hins vegar
það miklar upplýsingar um inni-
haldið að við fórum af stað,“ sagði
Páll og vildi ekki staðfesta né
neita að fréttastofan hefði haft
eintak af frumvarpinu undir hönd-
um.
„Mér finnst það djarft teflt hjá
ráðherranum að vera að þjófkenna
menn í þessu sambandi. Frumvarp-
ið sjálft fer um hendur nokkuð
margra aðila áður en það fer í
prentun þannig að mér finnst fjár-
málaráðherra vera að fullyrða
miklu meira en hann getur staðið
undir.“
Happaþrennu-
bíll afhentur
ÖRN Ómar Smith, 17 ára nem-
andi í Menntaskólanum í Kópa-
vogi, hlaut fyrri aðalvinninginn
í leik Happaþrennunnar, Há-
skólabíós og Morgunblaðsins,
„Hentu aldrei happaþrennu",
sem dreginn var út í síðustu
viku. Á föstudaginn afhentu
þau Halldóra Bjarnadóttir,
deildarstjóri Happaþrennunn-
ar, og Jón Óskar Halldórsson,
fjármála- og markaðsstjóri
Happdrættis Háskóla Islands,
honum Toyota Corolla bifreið.
Dregið er vikulega um utan-
landsferð, hljómtæki og tölvu
auk smærri vinninga og nöfn
vinningshafa birtast í Morgun-
blaðinu á föstudögum. Leikn-
um lýkur í október og verður
þá dregin út önnur bifreið.
Fréttir Stöðvar 2 af
fj ár lagafrum varpi
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi fréttatilkynning frá
fjármálaráðuneytinu:
„Dagana 29. september til 1.
október sl. birtust í fréttum á Stöð
2 upplýsingar úr frumvarpi til fjár-
laga ársins 1998. Á þeim tíma
hafði frumvarpið hvorki verið lagt
fyrir Alþingi né ríkisstjórn eða
dreift til fjölmiðla og hafði efni
þess ekki verið kynnt opinberlega
með nokkrum hætti. Með frétta-
flutningi og myndbirtingu sýndi
sjónvarpsstöðin að hún hafði í fór-
um sínum eintak af fyrra hluta
frumvarpsins.
Fjármálaráðherra óskaði, vegna
þessa, eftir því að ráðuneytisstjóri
ijármálaráðuneytisins rannsakaði
hvort upplýsingarnar kynnu að
verða raktar til starfsmanna ráðu-
neytisins.
Ráðuneytisstjóri, ásamt lög-
fræðingi í ráðuneytinu, hefur nú
rætt við hvern og einn þeirra
starfsmanna ráðuneytisins sem
starfs síns vegna höfðu aðgang að
þeim eintökum fjárlagafrumvarps-
ins sem borist höfðu ráðuneytinu
þegar fréttirnar birtust. Alls voru
14 starfsmenn ráðuneytisins yfir-
heyrðir og athygli þeirra vakin á
því að í uppljóstrun um trúnaðar-
upplýsingar fælist brot í opinberu
starfi.
Það er sameiginlegt mat ráðu-
neytisstjóra og lögfræðings ráðu-
neytisins að ekkert það hafi kom-
ið fram í viðræðum við starfs-
mennina sem bendir til aðildar
þeirra að því að umræddar upplýs-
ingar bárust sjónvarpsstöðinni.
Jafnframt liggur skýrt fyrir að
þau eintök frumvarpsins sem
ráðuneytinu höfðu borist frá
prentsmiðju þegar fréttir Stöðvar
2 birtust, voru eingöngu í höndum
ráðherra, ráðuneytisstjóra,
tveggja skrifstofustjóra og þess
aðila sem átti í samskiptum við
prentsmiðju. Ekkert bendir því til
aðildar starfsmanna ráðuneytisins
að því að upplýsingar úr fjárlaga-
frumvarpinu bárust til fjölmiðla
áður en efni frumvarpsins var
gert opinbert. Birting Stöðvar 2 á
trúnaðarupplýsingum úr íjárlaga-
frumvarpinu hefur kallað óþæg-
indi yfir starfsmenn ráðuneytisins
vegna grunsemda um trúnaðar-
brot þeirra gagnvart vinnuveit-
enda sínum. Með tilliti til þess sem
að ofan er rakið er ljóst að eintak
af fjárlagafrumvarpinu var ekki
afhent af starfsmönnum ráðu-
neytisins.
Áralöng hefð er fyrir því að ijöl-
miðlum er kynnt og þeim afhent
eintak af frumvarpinu fyrir fram-
lagningu þess á Alþingi. Þetta
hefur verið gert til þess að auð-
velda fjölmiðlum umíjöllun um
frumvarpið. Þriðjudaginn 30. sept-
ember afþakkaði Stöð 2 slíkt boð
enda hafði stöðin þá þegar birt
umræddar upplýsingar.
Full ástæða er til þess að átelja
Stöð 2 fyrir birtinguna, þar sem
stöðinni er ljóst að um var að ræða
trúnaðarupplýsingar.
í tilefni af því sem hér hefur
verið sagt, mun ráðuneytið endur-
skoða meðferð gagna í vörslu þess
svo og samskiptareglur ráðuneyt-
isins og starfsmanna þess við fjöl-
miðla.“
Fjárlagalekinn
Ekki úr prentsmiðjunni
FRAMKVÆMDASTJÓRI Stein-
dórsprents/Gutenberg, sem prent-
aði fjárlagafrumvarpið, segir for-
ráðamenn fyrirtækisins sannfærða
um að upplýsingar fréttastofu
Stöðvar 2 um efni frumvarpsins
hafi ekki verið frá starfsmönnum
prentsmiðjunnar komnar.
I fréttatilkynningu, sem Stein-
dór Hálfdánarson, framkvæmda-
stjóri Steindórsprents/Gutenberg,
sendi frá sér í gær, kemur fram
að þessari sannfæringu lýsi for-
svarsmenn fyrirtækisins eftir
rannsókn sem þeir létu gera í til-
efni af umfjöllun um að fréttstofa
Stöðvar 2 hafi komist yfir eintak
af fjárlagafrumvarpi ársins 1998
án þess að hafa fengið það afhent
af fjármálaráðuneyti.
í fréttatilkynningunni segir
ennfremur að forráðamenn
Steindórsprents hafi engu að síður
ákveðið af þessu tilefni að taka
öryggismál fyrirtækisins til end-
urskoðunar í þeim tilgangi að
auka öryggi fyrirtækisins og við-
skiptavina þess.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Vélhjól
kastaðist á
umferðar-
vita
FÓLKSBIFREIÐ og númers-
laust vélhjól skullu saman á
gatnamótum Höfðabakka og
Stórhöfða í Reykjavík á laug-
ardagskvöldið.
Við áreksturinn kastaðist
hjólið á umferðarvita, með
þeim afleiðingum að ökumað-
ur þess fótbrotnaði. Hann var
fluttur á slysadeild.
Toyota tandcruiser GX d/t árg. '97
ek. 10 þús. km., rauður, sjálfsk., 33"
dekk, brettak. o.fl.
Verð 3.600.000.
Dodge Caravan 2,4 I árg. '97, ek. 14
þús. km., vínrauður, 7 manna, sjálfsk.,
airbag, cc. Verð 2.590.000.
Nissan Primera SLX 2,0 I árg. '97,
ek. 12 þús. km., sjálfsk., dökkgrænn,
álfelgur, rafm. í rúðum, saml.
Verð1.790.000.
Musso Sang Yong 602 EL dísel, árg.
'97, ek. 10 þús. km., dökkgrænn/grár,
sjálfsk., 33" dekk, álfelgur, læstur/a,
skíöabogar o.fl. Verð 3.500.000.
Land Rover Discovery dísel árg. '93,
ek. 73 þús. km„ dökkgrænn, 5 g., 31"
dekk, álfelgur, sóllúga.
Verð 2.200.000.
MMC Galant ES 2,4 I árg. '95, ek.
78 þús. km„ vínrauður, sjálfsk.,
álfelgur, sóllúga, ABS, cc, airbag.
Verð1.790.000.
Subaru Impresa 4WD St. árg. '94, ek.
60 þús. km„ dökkgrænn, 5 g.
Verð 1.020.000.
Toyota Corolla XLi Special Series árg.
'96, ek. 18 þús. km„ 3ja d„ 5 g„ álfelgur,
spoller, rafm. í rúðum.
Verð 1.180.000.
Heimasíða: http://www.treknet.is/nyjabh/. VANTAR ALLAR GERÐIR BILA A STAÐINN
Kláradu daemid
með ■ . ini
Með SP-bílalán inní myndinni kaupir
þú bíl sem hæfir greiðslugetu þinni
Sími 588-7200
Sfí
FJÁRMÖGNUN HF
Félag Löggiltra Bifheiðasal
nr
Oj
».»■ j .........
Funahöfða 1 • Sími: 567-2277 • Rífandi sala • Fríar auglýsingar • Frítt innigjald
Söiumenn:
Ingimar Sigurðsson, lögg. bifr.sali
Axel Bergmann