Morgunblaðið - 07.10.1997, Síða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 1997
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
F orsætisráðherra um óformlegar viðræður við varaforseta Tævans
Harkaleg viðbrögð Kín-
vena nokkuð óvænt
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra segir að
óformleg heimsókn varaforseta Tævans, Li
Chen, hingað til lands, hafi verið samþykkt fyr-
ir 2-3 mánuðum af utanríkisráðuneytinu. For-
sætisráðherra segir að sér komi harkaleg við-
brögð Kínverja við heimsókninni nokkuð á óvart
en sendiherra Kínveija afhenti mótmæli við
henni í utanríkisráðuneytinu í gær.
„Þetta er heimsókn, sem var samþykkt fyrir
2-3 mánuðum af utanríkisráðuneytinu. Mörgum
vikum þar á eftir var ég beðinn að hitta hann
óformlega vegna samskipta sem við eigum á
viðskipta- og ferðamálasviði,“ sagði forsætisráð-
herra í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi.
„Ég samþykkti það og geri ráð fyrir að við
mununi eiga samræður um slíka hluti. Eins og
hann hefur sjálfur tekið fram eftir að hann kom
til landsins er hann hér í óformlegri heimsókn
og gerir ekki kröfur til annars en að það sé
rætt við hann sem mann í óformlegri heimsókn."
Ferðamannastraumur hingað
„Þannig að við munum ræða um möguleika
á fjárfestingum milli landanna almennt og mögu-
leika á því að efla ferðamannastraum milli land-
Morgunblaðið/Jim Smart
Li Chen, varaforseti Tævans, og eigin-
kona hans snæddu kvöldverð í grillinu á
Hótel Sögu í gærkvöldi.
anna; kannski ekki síst hingað því Tævanar
hafa sýnt verulegan áhuga í þeim efnum. En
þessu er á engan hátt stefnt gegn yfirvöldum í
Kína vegna þess að okkar stefna er klár hvað
það varðar. Það er engin breyting í okkar pólit-
ísku afstöðu til Kína og viðurkenningu okkar á
Kína. Ég átti á sínum tíma viðræður við Li Peng
[forsætisráðherra Kína] um það að við vildum
eiga mjög náin viðskiptaleg samskipti við Tævan
og hann hafði fullan skilning á því. Við erum
ekki að rjúfa með neinum hætti þau góðu sam-
skipti sem við viljum eiga við Kína,“ sagði Dav-
íð Oddsson forsætisráðherra.
Heimsókn ferðamanns
Forsætisráðherra játti því að sér kæmu nokkuð
á óvart harkaleg viðbrögð kínverskra stjómvalda
við heimsókn varaforsetans en sendiherra Kína
fór í utanríkisráðuneytið í gær til að mótmæla
heimsókninni. „Þessi maður fær ekki neinar þær
móttökur sem svo háttsettur maður í ríki sem
við myndum eiga stjómmálasamskipti við myndi
fá og munar þar mjög miklu. Við munum tala
saman og borða saman utan borgarinnar og það
undirstrikar að hans heimsókn sé sem ferða-
manns,“ sagði Davíð Oddsson, sem mun hitta
varaforsetann á morgun, væntanlega á Þingvöll-
um.
Sandur í
matinn
HARPA Lind var að leika sér
á gæsluvellinum við Dunhaga.
Sandkassinn er hennar uppá-
haldsstaður en sandur er ekki
upphaldsmatur hennar.
Greinar nm
prófkjör
Prófkjör á vegum Sjálf-
stæðisflokksins vegna borg-
arstjórnarkosninga næsta
vor fer fram síðari hluta okt-
óbermánaðar. Gera má ráð
fyrir, að Morgunblaðinu ber-
ist töluvert af greinum til
birtingar frá frambjóðendum
í prófkjörinu og stuðnings-
mönnum þeirra.
Tekið skal fram, að grein-
ar, sem fjalla um prófkjörið
mega ekki vera lengri en
2500 tölvuslög. Æskilegt er
að þær berist á disklingum
eða í tölvupósti.
Morgunblaðið/Ásdls
Óskað eftir
umræðum
um heil-
brigðismál
STJÓRNARANDSTAÐAN á Alþingi
hefur óskað eftir að fram fari utan-
dagskrárumræða um heilbrigðismál.
Asta Ragnheiður Jóhannesdóttir,
Þingflokki jafnaðarmanna, hóf um-
ræðuna um ástandið sem ríkir í heil-
brigðismálum á Alþingi í gær vegna
þeirra sérfræðinga sem sagt hafa
upp samningi við Tryggingastofnun
ríkisins. Benti hún á að fólk sem
greitt hefur sína sjúkratryggingu í
gegnum skatta standi nú frammi
fyrir gjörbreyttum tryggingaskilmál-
um. Þeir sem eigi pantaða tíma hjá
sérfræðingum eða fara í aðgerðir
þurfa nú að greiða allan kostnað án
þess að hafa tryggingu fyrir að fá
hlut læknisins endurgreiddan eða að
ríkið taki þátt í kostnaðinum eins og
almannatryggingar gera ráð fyrir.
„Þetta hefur valdið mjög miklum
áhyggjum, sérstaklega hjá fólki sem
er illa statt fjárhagslega og neyðist
til að fara í þessar aðgerðir gegn
fullu gjaldi,“ sagði Ásta Ragnheiður.
Utanríkisráðherra um óánægju Kínverja með heimsókn Lis Chens til íslands
Breytir á engan hátt sam-
skiptum Islands og Kína
SENDIHERRA íslands í Kína, Hjálmar W. Hann-
esson, var í gær kallaður á fund í kínverska utan-
ríkisráðuneytinu í Peking þar sem ráðamenn tjáðu
honum þá afstöðu sína að litið væri alvarlegum
augum á heimsókn Lis _ Chens, varaforseta
Tævans, til íslands. Halldór Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra sagði að sér kæmi þessi afstaða Kín-
veija á óvart.
Þá gekk kínverski sendiherrann í Reykjavík á
fund embættismanna í utanríkisráðuneytinu og
lýsti sömu skoðun kínverskra ráðamanna. „Utan-
ríkisráðuneytið kemur ekki á neinn hátt að þess-
ari einkaheiinsókn og við veitum enga fyrir-
greiðslu og engar viðræður fara fram,“ sagði utan-
ríkisráðherra í samtali við Mcrgunblaðið í gær.
„Okkur hefur verið kunnugt um að maðurinn
komi hingað í algjörum einkaerindum og teljum
að þessi ferð hans breyti á engan hátt samskipt-
um íslands og Kína og að hún feli ekki í sér
neina viðurkenningu á Tævan. Stefna íslands
hefur verið og verður áfram sú að viðurkenna
ríkisstjórnina í Peking sem löglega stjórn Kína.
Utanríkisráðuneytið hefur alltaf haft þann skiln-
ing að ekkert væri því. tií fyrirstöðu að það ættu
sér stað einstaklingssamskipti milli íbúa íslands
og Tævans, m.a. á sviðif-viðskipta, og því veitt
vegabréfsáritanir til eða frá Tævan í þessum er-
indum,“ sagði ráðherrann.
Mismunum ekki
einstaklingum eftir stöðu
„Þessi viðbrögð Kínveija koma okkur á óvart
og við höfum ítrekað það við þá að það hafi ávallt
verið skilningur okkarað hér sé um að ræða einka-
heimsókn." Halldór Ásgrímsson kvaðst vita að
Li Chen myndi hugsanlega hitta forsætisráðherra
en það væri óformlegur fundur. „Við teljum okk-
ur ekki stætt á því að meina einstaklingi að koma
til landsins vegna þeirrar stöðu sem hann hefur.
Slíkt væri brot á mannréttindum; að mismuna
einstaklingum eftir stöðu. Það væri aðeins hægt
ef hann væri talinn brotlegur við lög og hefði
eitthvað óhreint í pokahorninu en ekki vegna
þess að hann tengist stjórnmálum."
Ráðherrann minnti á að 1994 hefðu komið
hingað allmargir stjórnmálamenn frá Tævan í
tengslum við þing Liberal International, þeim
hefði verið veitt vegabréfsáritun og ekki þótt tíð-
indum sæta og engum dottið í hug að þar væri
um að ræða stefnubreytingu af hálfu íslands.
„Ég vona að yfirvöld í Kína taki það gilt að
hér sé ekki um að ræða neina stefnubreytingu
af okkar hálfu. Við höfum ákveðnar reglur um
það hveijir fá að koma til íslands og getum ekki
fallist á að aðrar þjóðir hafi um það að segja
hvenær og hvernig hinir ýmsu einstaklingar koma
til landsins. Það væru ekki afskipti við hæfi.“
Skriðuföll
á Aust-
fjörðum
VEGFARENDUR um Austfirði
voru í gær varaðir við gijót-
hruni úr skriðúm á vegum milli
Borgarfjarðar og Breiðdalsvík-
ur. Að sögn Guðjóns Þórarins-
sonar, rekstrarstjóra Vega-
gerðarinnar á Reyðarfirði, kom
gijót niður á veginn í Kamba-
skriðum og austan við þorpið
í Fáskrúðsfirði. í Njarðvíkur-
skriðum í Borgarfirði lokaðist
vegurinn vegna skriðufalla og
í Breiðdal féllu einnig skriður
á veginn.
Guðjón sagði að gífurlega
mikil rigning hefði verið eystra
frá því í gærmorgun. Allir læk-
ir hefðu fyllst og runnið yfir
vegi á nokkrum stöðum. Veg-
farendur voru varaðir við að
vera á ferli og Guðjón sagði
að upp úr hádegi hefði stefnt
í að loka þyrfti vegum. Eftir
að veður gekk niður um klukk-
an tvö lagaðist ástandið og var
orðið þokkalegt síðdegis.
Óku hægt
vegna veðurs
UMFERÐARÓHAPP varð við
Haffjarðará þegar tveir bílar
lentu saman án þess þó að slys
yrðu á fólki. Lögregla, sem
kom þar að, og aðrir vegfar-
endur áttu erfitt með að at-
hafna sig vegna veðurs. Lá við
að loka þyrfti veginum.
Á norðanverðu nesinu, í
Kolgrafarfirði, var verið að
smala fé og máttu smalamenn
hafa sig alla við að fjúka ekki
um koll en fé reyndi að leita
vars.
Sýndi ungum
drengjum
klámefni
RÚMLEGA þrítugur karlmað-
ur var handtekinn í austurbæ
Reykjavíkur á laugardag eftir
að hann hafði haft í frammi
ósæmilega hegðan við þijá
drengi á aldrinum 13-15 ára.
Að sögn lögreglu hafði mað-
urinn lokkað tvo drengi inn í
íbúð til sín og sýnt þeim þar
klámefni á myndbandi. Þriðji
drengurinn hafði komið þar
áður og einnig annar hinna
fyrrnefndu.
Við yfirheyrslu kannaðist
maðurinn við að hafa sýnt
þeim myndbandið og jafn-
framt að hafa veitt öðrum
þeirra áfengi. Rannsókn máls-
ins er á lokastigi, að sögn lög-
reglu.
Hafnarfjörður
Prófkjör hjá
Sjálfstæðis-
flokki
FULLTRÚARÁÐ Sjálfstæðis-
félaganna í Hafnarfirði hefur
samþykkt að fram fari prófkjör
hinn 22. nóvember næstkom-
andi vegna sveitarstjórnar-
kosninganna t vor og að það
verði opið flokksbundnum
Sjálfstæðismönnum. Hægt
verður að skrá sig í flokkinn á
kjörstað.
Áð sögn Þórarins Magnús-
sonar, formanns fulltrúaráðs-
ins, rennur framboðsfrestur til
prófkjörsins út 29. október.
Framboðslistinn verður síðan
kynntur á aðalfundi fulltrúa-
ráðsins 3. nóvember.