Morgunblaðið - 07.10.1997, Page 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Tillaga um að Seltjarnarnesbær semji beint við kennara
Sveitarfélagið stendur að
baki samninganefndinni
LIFANDl
VISINDI
FORSÍÐA kynningarbæklings um tímaritið Lifandi vísindi.
Nýtt tímarit
Vísindi á léttu máli
EGGERT Eggertsson, bæjarfulltrúi
á Seltjamarnesi, hefur lagt fram
tillögu í bæjarstjórn að Seltjarnar-
nesbær afturkalli umboð launa-
nefndar sveitarfélaganna og semji
beint við kennara í skólum á Sel-
tjarnarnesi. Eiríkur Jónsson, for-
maður Kennarasambands Islands,
segir að slíkir samningar yrðu að
fara í gegnum Kennarasamband
íslands. Sigurgeir Sigurðsson bæj-
arstjóri segir að sveitarfélagið
standi einhuga að baki launanefnd-
inni meðan hún vinni að gerð samn-
inga.
Eggert segir að tillöguna hafi
hann lagt fram eftir að hann heyrði
Eirík Jónsson, formann Kennara-
sambands íslands, lýsa því yfir að
hann vildi gjarnan að kennarar í
einstökum skólum semdu beint.
Þriggja mánaða
uppsagnarfrestur
„Mér þótti þetta sæta tíðindum
því þegar hreyfing komst á þessi
mál fyrir einu og hálfu ári voru
kennarar áfjáðir í að Kennarasam-
bandið semdi beint við Samband
íslenskra sveitarfélaga. Að mínu
mati er það eðlilegast að við semjum
við okkar starfsfólk eins og hvert
annað fyrirtæki. Með slíkum samn-
ingum kæmi fram sá vilji sveitarfé-
lagsins að gera góðan skóla betri.
Sá hnökri er þó á tillögunni að í
beiðni okkar til launanefndarinnar
um að semja fyrir okkar hönd við
kennara er ákvæði um þriggja
mánaða uppsagnarfrest. Við getum
formlega sagt þessu samkomulagi
upp en þrír mánuðir er langur tími.
í rauninni kom því ekki til greina
að segja upp umboði okkartil launa-
nefndar sveitarfélaga. Við féllumst
því öll á það í bæjarstjórninni að
hvetja launanefndina til að ganga
frá samningum,“ sagði Eggert.
Eggert segir að ein ástæðan fyr-
ir því að hann vilji að sveitarfélagið
semji beint við sína kennara sé sú
að kennurum hafi verið boðið upp
á ýmsar launauppbætur, sérstak-
lega úti á landsbyggðinni.
„Það gerir það að verkum að
samningar eru mjög staðbundnir. Á
litlum stöðum úti á landi er haldið
í skólastjóra, yfirkennara eða góðan
kennara með því að bjóða honum
staðaruppbót, bílastyrki, símapen-
inga o.s.frv. Þetta er stór hluti af
kjarasamningum. En þegar sveitar-
félögin ætla að semja eru þessar
greiðslur komnar inn í samning-
ana,“ sagði Eggert.
Eiríkur Jónsson, formaður
Kennarasambands íslands, segir að
ef það yrði niðurstaðan að sveitarfé-
lagið tæki samningsumboðið aftur
til sín myndi Kennarasambandið
semja við sveitarfélagið í nafni
stéttarfélagsins fyrir hönd kennara.
„Ég held að menn hugsi sig um
tvisvar áður en þeir framselja samn-
ingsumboðið í framtíðinni miðað við
þessa re rnslu. Við erum tilbúnir að
mæta þ\ í framtíðinni að semja við
einstök sveitarfélög en það verður
gert í nafni sveitarfélagsins. Það
yrðu því engir einstaklingssamning-
ar úti í skólunum heldur samningar
stéttarfélags."
Eiríkur sagðist ekki gera athuga-
semdir við yfirborganir í skólum
úti á landsbyggðinni.
Fordæmi fyrir aðra
starfsmenn bæjarins
Sigurgeir Sigurðsson, bæjarstjóri
á Seltjarnarnesi, segir að með því
að sveitarfélagið semdi beint við
kennara væri verið að skapa for-
dæmi fyrir aðra starfsmenn bæjar-
ins.
„Ég á ekki von á því að nokkur
maður hlaupi út í þetta að óhugs-
uðu máli. Við erum búnir að semja
við 65% af starfsmönnum bæjarins
og raunar enn fleiri eftir að samið
var við leikskólakennara. Þeir
samningar skapa ákveðið fordæmi
sem við getum ekki farið að ijúfa
enda er engin ástæða til þess á
þessu stigi," sagði Sigurgeir.
Hann segir að kjarasamningar
við kennara úti á landi beri það
glögglega með sér að þeir eru hver
með sínu sniði á hveijum stað.
Ýmis fríðindi séu veitt sem ekki
hafi verið í boði á höfuðborgarsvæð-
inu.
„í raun má segja að það séu
margir samningar í gildi. Ef sveitar-
félagið ætlaði í kapphlaup um kenn-
ara og yfirbjóða landsbyggðina yrði
það á kostnað hennar. Ég vil ekki
hvetja til þess. Auðvitað eiga kenn-
arar að fá sómasamleg laun, ég hef
engan heyrt segja annað,“ segir
Sigurgeir.
FYRSTA tölublað nýs tíma-
rits, Lifandi vísindi, kemur út
í nóvember næstkomandi.
Tímaritið er gefið út í sam-
vinnu við útgefendur tímarits-
ins Illustreret Videnskap, sem
kemur út á öllum Norðurlönd-
um og mun erlend umfjöllun
tímaritsins koma frá þeim.
Einnig verða í því innlendar
greinar, unnar í samráði við
Háskóla íslands og Rannsókn-
arráð íslands.
Ulustreret Videnskap er
vinsælasta mánaðarrit
Norðurlanda og meira en hálf
milljón eintaka selst í hveijum
mánuði. Lifandi vísindi verða
gefin út í tíu þúsund eintökum.
Tímaritin fjalla um allar vís-
indagreinar, allt frá mann-
fræði til læknisfræði, sagn-
fræði o g sljörnufræði. I inn-
gangi ritstjóra, Guðbjarts
Finnbjörnssonar, segir að
engin flókin tækniorð og hug-
tök eigi að koma fyrir í ritinu.
„Við Guðbjartur erum báðir
áhugamenn um vísindi og
höfðum tekið eftir þessu tíma-
riti sem gefið er út á Norður-
löndum,“ segir Hilmar Sig-
urðsson. „Einhvern tíma kom
upp sú hugmynd hjá okkur á
kaffihúsi að gefa þetta út á
Islandi. Við fórum í viðræður
við útgefendurna fyrir um einu
og hálfu ári og í júní skrifuðum
við undir samninga.“
„Það er smuga á markaðn-
um því ekkert annað tímarit
fjallar um þetta efni. Önnur
tímarit eru meira eða minna
að fjalla um það sama. Útgáfa
á Illustreret Videnskap hófst
árið 1981 og það varð strax
langvinsælasta mánaðartíma-
rit Norðurlanda. Það voru
Danir sem höfðu frumkvæði
að útgáfunni, en þeir urðu að
markaðssetja það á öllum
Norðurlöndum samtímis, til
þess að það gæti staðið undir
sér. Efnisvinnslan er mjög
dýr, og íslendingar gætu aldr-
ei framkvæmt það einir sér
að gefa út svona tímarit," seg-
ir Hilmar.
Einkarekstur í Reykholtsskóla
Þrjár hugmyndir í skoðun
VIÐRÆÐUR eru milli hins opinbera
og nokkurra aðila sem vilja standa
að rekstri í Reykholtsskóla. Skóla-
hald hefur verið aflagt í Reykholti
og síðastliðið vor var lýst eftir hug-
myndum um rekstur á staðnum.
Skiluðu milli 20-30 aðilar inn tillög-
um. Ein hugmyndin sem nú er fjall-
að um er uppbygging afþreyingarað-
stöðu í Reykholti með þátttöku inn-
lendra og erlendra fjárfesta.
Þeir aðilar sem nú er rætt við
hafa lagt fram hugmyndir sem nú
eru útfærðar af meiri nákvæmni.
Einnig leggja þeir fram rekstrar- og
efnahagsáætlun til 3-5 ára. Ríkið,
sem eigandi eignanna, vill að starf-
semin í Reykholti hæfi sögu staðar-
ins og helgi. Markmiðið er að þarna
þrífist rekstur á forsendum einka-
rekstrar. Ríkið mun því ekki koma
beint að þeim rekstri sem þar verð-
ur. Stefnt er að því að einhver starf-
semi geti hafist þarna í upphafi
næsta árs. Málið er enn á trúnaðar-
stigi og fengust ekki upplýsingar
um hvers kyns rekstur verið væri
að skoða.
Þijár meginhugmyndir
í Reykholti eru tvö stór hús, ann-
ars vegar gamla skólahúsið með
hefðbundinni kennsluaðstöðu, og
hins vegar heimavist með gistiað-
stöðu fyrir 120 manns og veitingaað-
stöðu. Hótel Edda hefur leigt skói-
ann á hveiju sumri mörg undanfarin
ár.
Þijár meginhugmyndir eru nú til
umfjöllunar. Þrír aðilar hyggja á
námskeiðahald tengt ferðamennsku,
Háskóli íslands hefur áhuga á því
að flytja einhveija af vaxtarbroddun-
um í starfsemi sinni að Reykholti.
Mjög fljótlega er von á því að niður-
staða fáist í þessa athugun hjá Há-
skólanum. Loks eru skoðaðir kostir
þess að byggja upp afþreyingarað-
stöðu i Reykholti með þátttöku inn-
lendra og erlendra fjárfesta sem
sæju sér hag í því að nýta sér sögu
staðarins og aðstöðuna. Erlendir
sérfræðingar hafa lagt mat á þennan
kost fyrir hið opinbera og von er á
frumdrögum að skýrslu frá þeim í
þessari viku. í skýrslunni eru m.a.
arðsemisútreikningar.
Fyrir mikilvægasta fólk í heimi!
í nýrri og stærri barnavörudeild okkar er ótrúlegt úrval
húsgagna og leikfanga fyrir börnin.
Barna IKEA
Utanríkisráðherra um atvinnumál
á Suðurnesjum og varnarliðið
Tveimur óskyldum
hlutum blandað saman
VIÐ umræður á Alþingi að lok-
inni stefnuræðu forsætisráðherra
setti Kristín Halldórsdóttir, þing-
kona Kvennalista, fram þá hug-
mynd að nú þegar fyrirsjáanleg
væri þörf fyrir aukinn starfs-
mannafjölda hjá Flugleiðum
mætti varnarliðið að skaðlausu
hverfa úr landi og að íslendingar
sem þar hefðu starfað gætu flutt
sig til Flugleiða.
Þátttaka okkar í vestrænu
varnarsamstarfi
„Þarna er verið að blandá sam-
an tveimur óskyldum málum,“
sagði Halldór Ásgrímsson utan-
ríkisráðherra aðspurður um um-
mæli Kristínar Halldórsdóttur.
„Annars vegar er um að ræða
veru varnarliðsins og þátttöku
okkar í vestrænu varnarsamstarfi
og hins vegar atvinnumálum.
Vera varnarliðsins kemur ekki
atvinnumálum við og þar eru allt
aðrar ástæður að baki þannig að
þátttaka okkar í varnarsamstarfi
vestrænna þjóða og atvinnu-
ástandið á Suðurnesjum eru tveir
ólíkir hlutir og ekkert samhengi
þar á milli.“
LA sýnir söngleikinn
Söngvaseið
Margir vilja
taka þátt
ÞAÐ var handagangur í öskjunni í
Samkomuhúsinu á Akureyri um
helgina þegar fram fóru áheyrnar-
próf vegna uppfærslu Leikfélags
Akureyrar á Söngvaseið, en þessi
vinsæli söngleikur verður frumsýnd-
ur í byijun mars á næsta ári.
Á milli 70 og 80 börn mættu og
spreyttu sig á fjölum Samkomuhúss-
ins, en verið er að leita að 6 söng-
elskum börnum í hlutverk barna
George Von Trappe.
Nú er afráðið að það verður Hin-
rik Ólafsson sem fer með hlutverk
hans og áður hefur verið gengið frá
því að Jóna Fanney Svavarsdóttir
leiki elstu dótturina, Lísu. Þóra Ein-
arsdóttir leikur barnfóstruna, Maríu.
)
>
I
>
i
i
I
I
I