Morgunblaðið - 07.10.1997, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 07.10.1997, Qupperneq 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Landlæknir á málþingi um forgangsröðun í heilbrigðiskerfinu Morgunblaðið/RAX Fjör í frímínútum SUMIR krakkar svara án þess að hugsa sig um „Frímínúturnar!" þegar þeir eru spurðir hvað þeim þyki skemmtilegast í skólanum. Hvort svo er um þessa kátu krakka, sem ljósmyndari hitti í Hamraskóla í Reykjavík, skal ósagt látið en víst er þó að hjá þeim er mikið fjör í frímínútum. Dregið úr byggingu legudeilda en þjónusta dagdeilda aukin ÞRÓUN og framfarir í læknisfræði hafa í för með sér breytingar á forgangsröðun í heilbrigðisþjón- ustunni, meðal annars að lögð verð- ur minni áhersla á byggingu sjúkrahúsa þar sem aðgerðir muni í auknum mæli fara fram utan þeirra. Framfarir sem orðið hafa í meðferð ýmissa sjúkdóma auðveldi aðgerðir á eldra fólki og þar af leiðandi sé ekki hægt að leysa for- gangsröðun í eitt skipti fyrir öll. Þetta kom m.a. fram í máli Ól- afs Ólafssonar landlæknis á mál- þingi um forgangsröðun í heilbrigð- iskerfinu. Þar var einnig kynnt könnun á viðhorfum fólks til for- gangsröðunar sem Félagsvísinda- stofnun Háskólans vann fyrir Sam- tök heilbrigðisstétta sem stóðu að ráðstefnunni. Landlæknir rifjaði það upp að fyrir nokkrum áratugum hefði áhersla verið lögð á uppbyggingu sjúkrahúsa, síðar heilsugæslunnar, frá sjöunda áratugnum hefði aukist mjög heilsuvernd gegn langvinnum sjúkdómum og nú væri mikil Tónleikar í Háskólabíói fimmtudaginn 9. október kl. 20:00 Hljómsveitarstjóri: Einleikari: Ronald Zollman Pálína Árnadóttir Franz Schubert: Ófullger&a sinfónían Henri Vieuxtemps: Fi&lukonsert nr. 5 Pablo de Sarasate: Carmen fantasía Georges Bizet: Sinfónía í C dúr Slarfsáríð Sinfóníuhljómsveit íslands Háskólabíói við Hagatorg Sími: 562 2255 Fax: 562 4475 Veffang: www.sinfonia.is Miðasala á skrifstofu hljómsveitarinnar og ví& innganginn áhersla lögð á byggingu öldrunar- stofnana í dreifbýli. Fram að þessu hefðu markmið forgangsröðunar verið þau að láta læknisfræðileg sjónarmið ráða við meðferð sjúk- dóma og að skapa jafnt aðgengi að heilbrigðisþjónustu. Hann sagði að forgangsraða mætti á ýmsan hátt, t.d. veita þeim forgang sem greiða hæsta skatta, fara „biblíu- leiðina", þ.e. að menn uppskeri eins og þeir sá, láta þá sem haga sér óskynsamlega, t.d. reykja, borða of mikið, keyra óvarlega og taka ýmsa áhættu koma síðast í for- gangsröðinni eða láta þá hafa for- gang sem eigi flest gæðaár fram- undan, að ungir njóti meiri for- gangs en ellimóðir, eldri og lang- tírnaveikir mæti afgangi. Olafur Ólafsson sagði að megin- inntak forgangsröðunar yrði þó óbreytt að mestu. Viðhaldið verði jöfnu aðgengi allra til heilbrigðis- þjónustunnar, læknisfræðileg sjón- armið ráði mestu um meðferð sjúkl- inga, að samábyrgð verði með þeim sem veikastir eru, áhersla verði lögð á heilsuvernd, sérstaklega tób- aksvarnir og byggð upp dagdeilda- og utanspítalaþjónusta og dregið úr byggingu legudeilda. Andstaða við forgangsröðun á biðlista Meðal niðurstaðna í viðhorfs- könnun til forgangsröðunar er að fleiri eru hlynntir rekstri einka- sjúkrahúsa en andvígir eða 52,1% á móti 38,7% og flestir, eða 67,4%, eru hlynntir því að gerðar séu kransæðaaðgerðir á fólki áttatíu ára og eldra. Þá er meirihluti svar- enda andvígur því að fólk sem þjá- ist af offitu og reykingafólk sé sett áftar en aðrir á biðlista eftir hjarta- aðgerð, eða 80% á móti 14%. I könnuninni var einnig spurt hvort fólk hefði þurft að fresta för sinni eða hætta við að fara til lækn- is síðustu 12 mánuði vegna fjár- skorts og höfðu 85% svarenda ekki þurft þess. Hlutfallið var mun hærra meðal kvenna, eða 18,4% á móti 10% hjá körlum og hærra hjá fólki á aldrinum 18-29 ára, 20,5% en hjá þeim sem eru á aldrinum 30-75 ára, eða 11,6%. Evrópsk vika gegn krabbameini Aðeins 60% mæta í brjósta- krabbameinsleit ________k____ju.________ Valgerður Sigurðardóttir NÚ STENDUR yfir evrópsk átaks- vika gegn krabbameini. Eins og annars staðar í Evrópu er vikan á íslandi helguð leit að legháls- og brjósta- krabbameini hjá konum. - Hver er árangurinn af leit _ leghálskrabba- meins á íslandi? „Leitað hefur verið skipulega að legháls- krabbameini í rúmlega þijátíu ár og mesta lækk- un dánartíðni á legháls- krabbameini eða 77% er hér á landi“, segir Val- gerður Sigurðardóttir krabbameinslæknir. „Ar- angurinn má að stórum hluta rekja til skipulegrar leitar. Leghálskrabba- mein var annar algengasti illkynja sjúkdómur kvenna en er nú kominn í 9. sæti.“ Valgerður segir að með því að koma reglulega í skoðun sé hægt að finna forstigsbreytingar. „Við finnum árlega um hundrað for- stigsbreytingar hjá konum og þó þær séu komnar á hæsta stig er næstum 100% öruggt að hægt sé að komast fyrir frekari ein- kenni. Greinist konur með krabbamein í leghálsi á byijunar- stigi eru batahorfur lika mjög góðar.“ Valgerður segir að meðalaldur þeirra sem greinast með krabba- mein í leghálsi sé 50 ár. „Því er mikilvægt að fá konur strax um tvítugt í skoðun. Þá er hægt að finna forstigsbreytingar snemma. Um 80% kvenna mæta reglulega í leghálsskoðun." - Hvað með leit að brjósta- krabbameini? „Bijóstakrababmein er öðruvísi en leghálskrabbamein þar sem ekki er hægt að finna forstig sjúk- dómsins. Með röntgenmyndatöku má á hinn bóginn finna æxli snemma og það er besta aðferðin sem í dag er þekkt.“ - En geta röntgenmyndatökur ekki verið krabbameinsvaldandi? „Geislamagnið við hveija bijóstamyndatöku er mjög lítið og tækjabúnaður er alltaf að batna sem þýðir að geislunin verður æ minni. Jafnvel þó konur fari annað hvert ár í bijósta- myndatöku á það ekki að skaða þær. Þessi aðferð hefur verið rannsökuð gaumgæfi- lega. Geislunin við bijóstamyndatöku er til dæmis svipuð og við lungnamynda- töku“, segir Valgerð- ur. Hún bendir á að til að geislamagnið sé sem minnst sé nauðsynlegt að setja bijóstið í klemmu. „Klemman þrýstir bijóstinu saman svo það verður þynnra og myndskerpan betri sem þýðir að auðveldara er að túlka niðurstöður." Því minna sem æxlið er því betri eru lífslíkurnar. Ef æxlið er lítið er oft hægt að gera fleyg- skurð þannig að geiri er tekinn úr bijósti þar sem æxlið er. Síðan þarf að geisla bijóstið á eftir til að meðhöndla btjóstvefinn en konurnar halda bijóstinu. - Hvaða árangur hefur brjóstakrabbameinsleit borið? „Við höfum leitað að bijósta- krabbameini frá árinu 1987. Alls greinast 115-120 íslenskar konur á ári með sjúkdóminn eða 10 ►Valgerður Sigurðardóttir nam krabbameinslækningar í Stokkhólmi og lauk doktors- prófi árið 1996 frá Radium- hemmet sem er stærsta krabbameinssjúkrahúsið í Sví- þjóð. Hún starfar nú sem krabbameinslæknir á leitarstöð Krabbameinsfélags Islands. konur á mánuði. Við greinum rúmlega 40 konur á aldrinum 40-69 ára árlega með hjálp leitar- innar. Bijóstakrabbamein er al- gengasti illkynja sjúkdómur kvenna og önnur algengasta dán- arorsökin. Yfir 40 konur deyja á ári úr bijóstakrabbameini hér á landi.“ Valgerður segist vilja benda á að þó bijóstakrabbamein sé önnur algengasta dánarorsökin séu 1.200 konur lifandi í dag með þennan sjúkdóm hér á landi. Átta konur af hveijum tíu sem grein- ast lifa lengur en fimm ár. - Geta konur gert eitthvað fyrirbyggjandi gegn myndun æxl- is í bijósti? „Enn er ekki hægt að koma í veg fyrir bijóstakrabbamein. Það er flókin orsakakeðja sem liggur að baki og að líkindum er hún tengd hormónastarfsemi, barn- eignum, lífsstíl og mataræði. Það er því engin ein orsök. Leit hjá Krabbameinsfélaginu er aldrei gulltrygging og einu ráðin sem við þekkjum er að benda konum á að þekkja bijóstin sín, mæta reglulega í myndatöku eftir fer- tugt, stunda hreyf- ingu og gæta að mat- aræðinu.“ - Margar konur segjast verða tauga- veiklaðar þegar þær þreifa bijóstin því þau séu breytileg frá degi til dags? „Æfingin skapar meistarann. Ef konur þekkja bijóstin sín og hafa fyrir reglu að þreifa þau viku til tíu dögum eftir fyrsta dag blæðinga finna þær frekar ef eitt- hvað fer úrskeiðis." Valgerður segir ástæðu til að benda konum á að yfirleitt séu hnútarnir góðkynja. Engu að síð- ur borgar sig alltaf að láta líta á bijóstið ef kona finnur fyrir breyt- ingum. „Því miður mæta einungis um 60% kvenna reglulega í bijóstakrabbameinsleit sem þær ættu í raun að líta á sem heilsu- vernd. Það skiptir miklu að mæta reglulega í myndatöku, þ.e.a.s. á tveggja ára fresti. Myndataka með iengra millibili gerir ekki sama gagn.“ Krabba- meinsleit er sjálfsögð heilsuvernd

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.