Morgunblaðið - 07.10.1997, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 1997
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Sameining þriggja sveitarfélaga í utanverðum Eyjafirði
Kynningarblað o g fundur
í Víkurröst vegna kosninga
NEFND um sameiningu Árskógs-
hrepps, Dalvíkurbæjar og Svarfað-
ardalshrepps efnir til sameiginlegs
kynningarfundar í Víkurröst á Dal-
vík þriðjudagskvöldið 14. október
næstkomandi og hefst hann kl.
20.30. Fjallað verður um ýmsar
hliðar málsins og leitast við að svara
fyrirspurnum kjósenda. Stuðlað
verður að því að ólík sjónarmið
komi fram með því að bjóða yfirlýst-
um andstæðingum sameiningar að
ávarpa samkomuna.
Nefndin hefur drejft kynningar-
blaði í hvert hús á Árskógsströnd,
Dalvík og Svarfaðardal vegna at-
kvæðagreiðslu um sameiningu
sveitarfélaganna þriggja sem verð-
ur laugardaginn 18. október næst-
komandi.
í blaðinu er að finna stefnuyfir-
lýsingu sameininganiefndar, rætt
er við nokkra kjósendur um viðhorf
þeirra til sameiningar og þá koma
þar fram nýjar upplýsingar um fjár-
mál sveitarfélaganna og áætlun um
sparnað í yfirstjórn verði af samein-
ingu. Fram kemur í blaðinu að þeg-
ar á heildina er litið er gert ráð
fyrir að árlega sparist um 14 millj-
ónir króna, eða sem svarar nær 7
þúsund krónum á íbúa. Þá fjármuni
megi nota ti! að minnka skuldir
sveitarfélagsins og lækka þannig
fjármagnskostnað.
Um 2.100 íbúar
Sameining sveitarfélaganna
þriggja dregur ekki úr möguleikum
á frekari sameiningu við Eyjafjörð
síðar, en fram kemur í kynningar-
ritinu að þvert á móti hnígi rök til
þess að sameiningin einfaldi og
greiði fyrir stærri skrefum vilji íbú-
arnir á annað borð ganga lengra.
LÖGREGLA á Akureyri hafði af-
skipti af ungum pilti sem var að
reiða annan á hjóli, en hvorugur
hafði hjálm á höfði. í samtali við
lögreglu kom í ljós að pilturinn
hafði tekið hjólið ófijálsri hendi
og var hann einnig undir áhrifum
áfengis. Piltinum, sem aðeins var
14 ára gamall, var ekið til síns
heima og foreldrum skýrt frá
málavöxtum.
Tveir reyndu að komast inn ,á
Staðarheitin Árskógsströnd, Dal-
vík og Svarfaðardalur verða áfram
til þó sveitarfélögin sameinist, en
sameiginlegt sveitarfélag fær hins
vegar nýtt heiti og verður óskað
eftir tillögum frá íbúunum um leið
og fyrsta sveitarstjórnin eftir sam-
einingu verður kjörin vorið 1998.
Verði sameining samþykkt í öll-
um sveitarfélögum verðar alls
2.088 íbúar í hinu nýja sveitarfé-
lagi, en 1. desember síðastliðinn
voru 1.506 íbúar á Dalvík, 254 í
Svarfaðardalshreppi og 328 í Ár-
skógshreppi.
skemmtistaði á Akureyri um helg-
ina með fölsuð skilríki, en glöggir
dyraverðir þekktu skírteinin frá
þeim réttu og létu lögreglu vita.
Telur lögregla rétt að vara ungl-
inga við að stunda slíka iðju.
Ung stúlka var staðin að því
að taka peysu í verslun einni, fara
með hana út án þess að greiða
andvirði hennar. Alltaf er eitthvað
um búðarhnupl en verslunarfólk
er vel á verði.
Bíllinn
hafnaði
í næsta
garði
TVEIR voru fluttir á slysadeild
eftir harðan árekstur á mótum
Þingvallastrætis og Mýrarveg-
ar síðdegis á sunnudag. Tveir
bílar rákust þar saman og hafn-
aði annar inni í nærliggjandi
garði. Ökumaður annars bílsins
og farþegi úr hinum fóru á
slysadeild vegna meiðsla á fæti
og fingri. Miklar skemmdir
urðu á bifreiðunum, sem báðar
voru fluttar af vettvangi með
kranabíl.
Árekstur tveggja bíla varð
einnig í Helgamagrastræti við
Bjarkarstíg um kl. 16 á sunnu-
dag. Tveir menn voru fluttir á
slysadeild en meiðsl þeirra
reyndust ekki alvarleg.
Á laugardag varð óhapp á
Eyjafjarðarbraut, skammt
norðan við bæinn Saurbæ í 1
Eyjafjarðarsveit. Tveir menn
voru þar á ferð, missti ökumað-
ur stjórn á bílnum' og hafnaði
hann utan vegar eftir veltu.
Sluppu báðir með smáskrámur.
Viðskipta-
banni á Kúbu
mótmælt
SKÓLAFÉLAGIÐ Huginn í
Menntaskólanum á Akureyri
stendur fyrir mótmælafundi
vegna viðskiptabanns Banda-
ríkjanna á Kúbu á morgun,
miðvikudaginn 8. október, en
þá verða 30 ár liðin frá því
Che Guevara féll í Bólivíu.
Fundurinn er haldin í sam-
vinnu við ýmis samtök á höf-
uðborgarsvæðinu. Farið verð-
ur í kröfugöngu frá íþrótta-
höllinni kl. 11.45 að Borgar-
bíói þar sem fundurinn hefst
kl. 12.15.
í frétt um fundinn kemur
fram að viðskiptabannið hefur
staðið í nær fjörutíu ár og
nálgast hafnbann með tveimur
viðbótarlögum sem sett hafa
verið á þessum áratug og
kennd eru við bandarísku
þingmennina Torricelli, Helms
og Burton. Einnig kemur fram
að bannið setji mikinn þrýsting
á efnahag landsins, erfiðleikar
í læknisþjónustu, lyfjaskortur
og hörgulsjúkdómar séu átak-
anleg dæmi þess.
Alþýðusamband
Norðurlands
Framlög til
starfsfræðslu
námskeiða
verði aukin
ÞING Alþýðusambands Norð-
urlands sem haldið var á 111-
ugastöðum um liðna helgi
skorar á stjórnvöld að stór-
auka fjárframlög til starfs-
fræðslunámskeiða fyrir ófag-
lært starfsfólk.
„Það fjármagn sem ætlað
er í þennan málaflokk hefur
farið sí minnkandi ár frá ári.
Traustari og fjölbreyttari und-
irstöðumenntun ásamt góðri
verk- og tækniþekkingu er
ekki hægt að sinna án veru-
legs fjármagns. Mennta- og
atvinnustefna sem treystir
undirstöðu þróunar og fram-
fara i þessu landi á að fara
saman,“ segir í ályktun frá 25.
þingi sambandsins.
Samningur Akureyrarbæjar og
Iþróttafélagsins Þórs
Tryggir áfram-
haldandi rekstr-
argrundvöll
SAMNINGUR milli Akureyrar-
bæjar og íþróttafélagsins Þórs,
um sérstakan stuðning bæjarins
við félagið vegna fjárhagserfið-
leika þess, var undirritaður fyrir
helgi. Með samningnum er félag-
inu gert kleift að gera skulda-
skilasamninga við alla viðskipta-
menn sína og lækka skuldir fé-
lagsins svo mikið að tryggður
verði áframhaldandi rekstrar-
grundvöllur þess. Heildarskuldir
félagsins voru rúmar 50 milljónir
króna.
I samningnum kemur fram að
með skuldaskilasamningum við
kröfuhafa og lánastofnanir sé
reiknað með að skuldir Þórs verði
lækkaðar um helming, ef frá eru
taldar veðkröfur í fasteign félags-
ins.
Akureyrarbær veitir félaginu
styrk að fjárhæð 20 milljónir
króna sem nýttar verði til þess
að greiða þann hluta krafna sem
greiddur verður í peningum sam-
kvæmt skuldaskilasamningnum.
í framhaldinu er gert ráð fyrir
að skuldir Þórs verði um 12 millj-
ónir króna og að þær verði
tryggðar með veði í fasteign fé-
lagsins.
Af hálfu Akureyrarbæjar var
með hliðsjón af því mikla og
mikilvæga forvarnar- og uppeld-
isstarfi sem unnið er á vegum
íþróttafélagsins, talið eðlilegt og
réttlætanlegt að veita félaginu
þennan sérstaka stuðning. Var
þá litið til þess að of miklu væri
hætt með því að félagið færi í
þrot og ljóst að Akureyrarbær
hefði illa getað staðið hjá við slík-
ar aðstæður, segir í fréttatilkynn-
ingu frá samningsaðilum.
Þá er bent á að þessi niður-
staða er þó háð því skilyrði að
allir kröfuhafar og lánardrottnar
félagsins taki þátt í lækkun
skulda, með eftirgjöf þeirra að
hluta. Nú þegar hafa náðst
skuldaskilasamningar við nær
alla kröfuhafa og lánardrottna
og vonir standa til að gengið verði
frá samningum við þá alla innan
tíðar.
Matthildur Sigurjónsdóttir kjörin formaður Alþýðusambands Norðurlands
Sparnaður í rekstri sjúkrahúsa
kemur harðast við láglaunafólk
MATTHILDUR Sigurjónsdóttir var kjörin for-
maður Alþýðusambands Norðurlands á 25. þingi
sambandsins sem haldið var á Illugastöðum um
helgina. Matthildur er varaformaður Verkalýðs-
félagsins Einingar í Eyjafirði. Hún er Hríseying-
ur og var formaður Hríseyjardeildar Einingar
um árabil, en hefur síðasta eitt og hálft ár starf-
að á skrifstofu Einingar á Akureyri. Matthildur
verður formaður AN fram að næsta þingi sem
verður haustið 1999.
Aðrir í stjórn eru Páll H. Jónsson, Félagi versl-
unar- og skrifstofufólks á Akureyri sem er vara-
formaður, en meðstjórnendur eru Signý Jóhann-
esdóttir, Verkalýðsfélaginu Vöku á Siglufirði,
Þorsteinn Arnórsson, Iðju Akureyri og Torfi
Húsavíkur.
Matthildur sagði að þingið hefði verið gott
og gagnlegt og það legðist ágætlega í sig að
taka við formennsku sambandsins. Eitt af helstu
málum þingsins var framtíð sjúkrahúsa á lands-
byggðinni en m.a. kom fram á þinginu að áætl-
Morgunblaðið/Kristján
að er að spara um 80 milljónir króna í rekstri
þeirra á næsta ári og að á næstu árum verður
héraðssjúkrahúsum gert að hagræða um 160
milljónum króna í rekstri sínum eða draga úr
þjónustu. „Þessi niðurskurður er afskaplega
bagalegur, ef heldur fram sem horfir verður
sérfræðiþjónusta eingöngu veitt í Reykjavfk.
Þessi samdráttur og hagræðing gerir ekki annað
en senda reikninginn beint inn á heimilin og
kemur þá harðast niður á þeim sem lægstar
hafa tekjurnar," sagði Matthildur. Bent er á í
ályktun að því fylgi mikill kostnaður fyrir lands-
byggðarfólk að sækja heilbrigðisþjónustu fjarri
heimabyggð, ekki síst láglaunafólk.
Gegn skólagjöldum
í ályktun þingsins kemur fram að verkalýðs-
hreyfíngin muni beijast af einurð gegn öllum
skólagjöldum og aukagreiðslum námsmanna sem
stöðugt skjóti upp kollinum. Rætt var um á þing-
inu að dapurlegt væri að þess væru dæmi að
ungt fólk hefði þurft að hætta skólagöngu vegna
mikils kostnaðar. Þetta ætti við um þau heimili
þar sem framhaldsskólar væru ekki í næsta
nágrenni, en kostnaður við að senda unglinga í
framhaldsskóla gæti numið um 200 til 250 þús-
und krónum yfir veturinn.
Morgunblaðið/Þórhallur Jónsson
LÖGREGLA á Akureyri var að venju á ferðinni að næturlagi
um helgina og skoðaði þá m.a. skilríki hjá ungum vegfarendum.
Hjálmlaus og undir
áhrifum á stolnu hjóli