Morgunblaðið - 07.10.1997, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 1997 17
VIÐSKIPTI
Cadbúry
fær á sig
málshöfðun
London. Reuter.
SVISSNESKIR súkkulaði-
framleiðendur hafa höfðað mál
gegn brezka framleiðandanum
Cadbury Schweppes Plc, sem
er gefíð að sök að láta sem
súkkulaði framleitt í Bretlandi
sé svissneskt súkkulaði.
Framleiðendumir Lindt &
Spmengli og Kraft Jacobs Suc-
hard auk samtaka svissneska
súkkulaðiiðnaðarins, Chocosu-
isse, fara fram á að bannað
verði að selja „Swiss Chalet"
súkkulaði og allar fyrirliggj-
andi birgðir verði eyðilagðar.
Því er haldið fram að al-
menningur geti freistazt til að
halda að súkkulaðið sé sviss-
neskt, þar sem á umbúðunum
sé mynd af hinu fræga Matter-
hom.
Póstur og sími
Stefnt að sjónvarpsútsend-
ingum í þessum mánuði
PÓSTUR og sími hf. stefnir að því
að hefja sjónvarpsútsendingar á
breiðbandinu í þessum mánuði.
Verður myndlyklum dreift án end-
urgjalds til áskrifenda og er gert
ráð fyrir því að áskriftargjald verði
innan við 2.000 krónur. í boði
verða í fyrstu allt að 20 erlendar
gervihnattarásir auk þess sem von-
ir standa til að innlendu dagskrár-
efni verði einnig sjónvarpað á
breiðbandinu.
Undirbúningur á lokastigi
Að sögn Friðriks Friðrikssonar,
forstöðumanns breiðbandsþjón-
ustu P&S , er nú unnið að lokaund-
irbúningi útsendinga og hefur ver-
ið sótt um leyfi til sjónvarpsútsend-
Birgir ísleifur Gunnarsson seðlabankastjóri
á ársfundi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
Sijómvöld
standi vörð
um sparnað
STJÓRNVÖLD verða að standa vörð
um sparnað í stefnu sinni í ríkisfjár-
málum til að viðhalda fjárfestingu
og hagvexti. Samhliða þessu verður
peningastefna þjóða að tryggja stöð-
ugt verðlag til að tryggja stöðugleika
í efnahagslífinu og viðvarandi hag-
vöxt. Þetta kom fram í ræðu sem
Birgir ísleifur Gunnarsson seðla-
bankastjóri flutti fyrir hönd Norður-
landanna og Eystrasaltsríkjanna á
sameiginlegum aðalfundi Alþjóða-
bankans og Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins sem
lauk í Hong-Kong sl.
fimmtudag.
Birgir gerði að um-
talsefni þá jákvæðu
þróun sem átt hefði sér
stað í heimsbúskapnum
að undanförnu. Hann
lagði áherslu á mikil-
vægi þess að viðhalda
góðum hagvexti um
leið og verðbólgu væri
haldið í skefjum.
„Við þurfum viðeig-
andi samspil aðgerða í
peningamálum og ríkis-
fjármálum til að tryggja
stöðugleika í efnahags-
lífinu og hagvöxt til
langs tíma. Um leið og markmið
peningamálastefnunnar er að tryggja
stöðugleika í verðlagsmálum verður
stefna í ríkisfjármálum að hafa að
leiðarljósi nauðsyn þess að standa
vörð um spamað, sem er forsenda
fyrir fjárfestingu og hagvexti.
Við þurfum efnahagsskipulag sem
leysir úr læðingi verðmæti sem
bundin eru á klafa hafta með íþyngj-
andi lagaramma og hindrunum á
Birgir ísleifur
Gunnarsson
M Ú R A R A R
GÓLF
SLÍPIVÉLAR
- þar sem mest á reynir ,
SKEIFUNNI3E-F
SlMI 581 2333 ■ FAX 568 0215
inga til útvarpsréttarnefndar. „Við
erum að setja upp og prófa búnað
þessa dagana og við viljum sjá
hvort þetta virki ekki allt sem
skyldi áður en við ákveðum endan-
lega hvenær við hefjum útsending-
ar,“ segir Friðrik.
Hann segir að unnið sé að samn-
ingsgerð við innlenda aðila um út-
sendingar á einni eða fleiri rás.
„Það var ein af hugmyndunum með
breiðbandinu að gera fleiri aðilum
kleift að koma sjónvarpsefni á fram-
færi. Það er m.a. einn aðili sem er
að skoða alvarlega að koma á fót
nýrri sjónvarpsstöð með innlendu
og erlendu efni á breiðbandinu."
Friðrik segir að gjaldtaka fyrir
aðgang sjónvarpsstöðva að breið-
bandinu verði breytileg og velti
m.a. á áskriftargjöldum.
Kjósa að semja milliliðalaust
við rétthafa efnis
Eins og fram hefur komið hefur
a.m.k einn aðili, íslenska sjón-
varpsfélagið, sóst eftir aðgangi að
breiðbandinu til endurvarps er-
lendra sjónvarpsstöðva. Friðrik
segir hins vegar að við gerð samn-
inga við dreifingaraðila sé það
haft að leiðarljósi að semja beint
við rétthafa efnis, hvort sem þar
sé um að ræða innlendan eða er-
lendan aðila. Því sé ólíklegt að
samið verði við innlenda aðila sem
eingöngu hafi í huga að endur-
varpa erlendu efni.
viðskipti og fjármagnshreyfingar.
Við þurfum víðtækar endurbætur á
vinnumarkaðinum, sem ásamt átaki
í menntun og starfsþjálfun getur
blásið nýju lífi í efnahagslífið og
dregið úr atvinnuleysi," sagði Birgir
í ræðu sinni.
Stofnfé Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins aukið um 45%
Birgir lagði áherslu á hversu mikil-
vægt eftirlitshlutverk Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins væri.
Sagði hann þann óróa
sem ríkt hefði á
mörkuðum í Suðaustur-
Asíu að undanfömu
draga fram mikilvægi
traustrar og trúverðugr-
ar efnahags- og um-
bótastefnu og skjótra
viðbragða þegar óstöð-
ugleiki gerði vart við
sig..
A ársfundinum var
samþykkt að hækka
stofnfé Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins um 45% til
að mæta vaxandi fjár-
þörf vegna fyrirgreiðslu
við aðildarríki, einkum
þróunarlönd og ríki sem
eru að hverfa frá miðstýringu í átt
að fijálsum markaðsbúskap.
Birgir ísleifur fagnaði þessum
breytingum í ræðu sinni. „Við verð-
um ávallt að tryggja að Alþjóða-
gjaldeyrissjóðurinn hafi nægilegan
styrk til að annast þau verkefni sem
honum eru lögð á herðar. Þess vegna
fagna ég nýlegri samþykkt fram-
kvæmdastjórnar um aukningu á
stofnfé sjóðsins.
Gjaldeyrisforðinn
rýmaði um 4 millj-
arða í september
GJALDEYRISFORÐI Seðla-
bankans rýrnaði um fjóra millj-
arða króna í september og nam
30,8 milljörðum króna í lok mán-
aðarins. Erlendar skammtíma-
skuldir bankans eru óverulegar
og breyttust lítið í mánuðinum
að því er segir í frétt frá Seðla-
bankanum.
Á gjaldeyrismarkaði nam
nettó gjaldeyrissala Seðlabank-
ans 1,5 milljörðum króna í sept-
ember. Eftir um 0,4% lækkun í
september hafði gengi íslensku
krónunnar, mælt með vísitölu
gengisskráningar, hækkað um
1,4% frá áramótum til loka sept-
ember.
Heildareign Seðlabankans í
markaðsskráðum verðbréfum
jókst í september um tæpa 0,3
milljarða króna og er þá miðað
við markaðsverð. Eign bankans
í spariskírteinum ríkissjóðs
lækkaði um rúma 0,8 milljarða
króna en ríkisbréfaeignin jókst
um tæpan 0,1 milljarð króna.
Ríkisvíxlaeignin jókst um einn
milljarð króna og nam í mánað-
arlok tæpum 1,9 milljörðum.
Kröfur Seðlabankans á innláns-
stofnanir jukust um 2,5 milljarða
króna í september en nettókröf-
ur bankans á ríkissjóð og ríkis-
stofnanir lækkuðu um 0,1 millj-
arð króna og námu 3,1 milljarði
í mánaðarlok. Grunnfé bankans
lækkaði um 2,7 milljarða króna
og nam 19,1 milljarði í lok sept-
ember.
Fríkortssamstarf
íslandsbanka
Mikill
ávinning-
urfyrir
bankann
ÍSLANDSBANKI hyggst halda Frí-
kortssamstarfinu áfram enda skilar
það bankanum miklum ávinningi að
mati forráðamanna hans. Komið hef-
ur fram að BYKO og. 10-11 hafa
hætt viðskiptum við íslandsbanka
vegna þátttöku hans í Fríkortssam-
starfmu og verður bankinn af tals-
verðum viðskiptum af þessum sökum.
Sigurveig Jónsdóttir, upplýsinga-
fulltrúi íslandsbanka, segir að bank-
inn sjái eftir þessum góðu viðskipta-
vinum en vonandi sjái þeir sér hag
í því að koma aftur í viðskipti við
bankann síðar. Hún segir að bankinn
muni halda áfram þátttöku í Fríkorts-
samstarfinu enda hafi það skilað
honum miklum ávinningi frá því það
hófst á síðastliðnu vori. „Almennt
hafa viðskiptavinir okkar tekiðFrí-
kortinu vel og yfir fimm þúsund nýir
viðskiptavinir hafa bæst í hópinn síð-
ustu sex mánuðina. Þar teljum við
að FMkortið hafí haft mikil áhrif.
Raunar hefur mikill vöxtur í öllum
viðskiptum einkennt starfsemi bank-
ans á þessu ári og mörg fyrirtæki,
þar á meðal stór fyrirtæki, hafa kom-
ið með viðskipti sín til íslandsbanka.
Það er mikil samkeppni á íjármála-
markaði og því algengara nú en áður
að fýrirtæki skipti um banka eða
deili viðskiptum sínum milli banka.
Við munum leggja okkur fram um
að fá viðskipti þessara aðila til baka.“
Sigurveigu er ekki kunnugt um
að fleiri fyrirtæki hyggist hætta við-
skiptum við bankann vegna sam-
starfsins. „Við lögðum ríka áherslu
á það í upphafi að skýra út fyrir við-
skiptavinum að ekki væri verið að
mismuna fyrirtækjum með þátttöku
bankans. Við gefum Fríkortspunkta
vegna notkunar á debet- og kredit-
kortum og er þá sama hjá hvaða
fyrirtæki er verslað. Almennt hafa
fyrirtæki tekið skýringum okkar vel,“
segir Sigurveig.
7 góðir frá EPSON
Stylus Color 800 Stylus Color 600 Stylus Color 400 Stylus Color 300
Frábaer litprentari fyrir
skrifstofuna - afkastamikill,
allt að 8 bls. á mfn. I sv/hv.
og 7 bls. Illt. Alltað 1440
punkta upplausn. Tenging
við Windows 95, Windows
3.x og Macintosh.
PostScript möguleiki.
Stylus Color 1520
Verðlaunaprentari fyrir
heimilið og skrifstofuna.
Prentar allt að 6 bls. á mln. I
sv/hv. og 4 I lit. Allt að 1440
punkta upplausn. Tenging
við Windows 95 og
Windows 3.x.
Vandaður heimlisprentari.
Prentar allt að 4 bls. á mln. i
sv/hv. og 31 lit. Allt að
720x720 punkta upplausn.
Tenging við Windows 95 og
Windows 3.x.
Hentugur prentari fyrir
heimiliö og skólafólk.
Prentar allt að 3 bls. á mln. I
sv/hv. og 1,2 (lit. Alltað
720x360 punkta upplausn.
Tenging við Windows 95 og
Windows 3.x.
Stylus Photo
Stylus Color 3000
Wmm
Afkastamikill litaprentari fyrir teiknistofuna,
skrifstofuna eða graflska hönnuðinn. Tekur
papplrsstærð A3+. Upplausn allt að 1440
punktar. Tenging við Windows 95, Windows
3.x og Maclntosh. PostScript fáanlegt sem
aukabúnaður.
Prentarinn fyrir atvinnu- og
áhugaljósmyndarann. Tenging við
Windows og Macintosh umhverfi.
Frábær Ijósmyndagæðl. 6 lita
prentun.
Litaprentari fyrir verkfræðistofur, teiknistofur
og llstafólk. Tekur papplrsstærö A2.
Sðtu- og drelfingaraðili tyrir EPSON á Isiandi:
TOLVUDEILD
PÓR HF
Ármúla 11 - Bíml BBB-1BQO
SÖLUAÐILAR: Reykjavlk: Apple-iJmboðiö, Boðeind, Digital á Islandi, Heimilistœki, Hugver, Nýmark, Tölvubær, Tölvulistinn, Tölvusetrið. Borgames: Tölvubóndinn.
Isafjörður: Bókaverslun Jónasar Tómassonar. Sauðárkrókur Stuðull Tölvuþjónusta. Akureyri: Akurstjaman, EST. Egilsstaöln Brokkur