Morgunblaðið - 07.10.1997, Side 22

Morgunblaðið - 07.10.1997, Side 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ __________ERLENT_______ Skaðar ímynd Israels á alþjóðavettvangi BENJAMIN Netanyahu, forsætis- ráðherra ísraels, hefur að undan- fömu sætt harðri gagnrýni vegna árásar þriggja manna á Khaled Mashaal, einn af forystumönnum Hamas-samtakanna í Jórdaníu í lok síðasta mánaðar. Árásin er talin hafa verið framkvæmd af útsendur- um ísraelsku leyniþjónustunnar Mossad og hefur ekki einungis reitt Kanadamenn og Jórdani til reiði heldur einnig skaðað ímynd ísraela á alþjóðavettvangi. Forsaga málsins er sú að 25. september réðust þrír menn að Mashaal fyrir utan skrifstofu hans í Amman. Mennimir náðu að sprauta eitri í eyra Mashaals áður en tveir þeirra vom yfirbugaðir af lífvörðum hans. Þriðji maðurinn er sagður hafa komist undan. Eftir að mennimir tveir höfðu verið hand- teknir kom í ljós að þeir höfðu kana- dísk vegabréf. Haft var samband við kanadíska sendiráðið sem bauð þeim strax aðstoð sína. Mennimir höfnuðu hins vegar aðstoð Kanada- manna og þá vaknaði gmnur um að ekki væri allt með felldu. Móteitur til Jórdaníu Fljótlega kom í ljós að mennimir vom ísraelsmenn og tveimur dög- um eftir árásina sendi ísraelsstjóm mótefni gegn eitrinu til Jórdaníu þar sem það var gefið Mashaal og er sagt að Hussein Jórdaníukon- ungur hafi krafist þess áður en hann tæki upp viðræður um örlög útsendaranna. Eftir að þetta hafði verið gert fóm Yitzhak Mordechai, vamar- málaráðherra, Ariel Sharon, innan- ríkisráðherra, og háttsettir embætt- ismenn úr vamarmálaráðuneytinu til Jórdaníu þar sem þeir freistuðu þess að fá mennina látna lausa. í kjölfarið gaf Netanyahu fyrirmæli um að Sheik Ahmed Yassin, leið- togi og stofnandi Hamas-samtak- anna, skyldi látinn laus úr fangelsi í ísrael og sendur til Jórdaníu. Yass- in var sendur til Jórdaníu í síðustu viku og kom til Gaza-svæðisins í gær. Þá er talið að fleiri Hamas- leiðtogar verði látnir lausir úr ísra- elskum fangelsum á næstunni þrátt fyrir að mennimir tveir séu enn í haldi í Jórdaníu. Gengið fram hjá Arafat Þótt stuðningsmenn Hamas- samtakanna fagni að vonum lausn Yassins og annarra meðlima sam- takanna er ánægja Palestínumanna langt frá því að vera fölskvalaus. í fyrsta lagi hefur ísraelsstjóm al- gerlega gengið fram hjá Yassar Arafat, leiðtoga Sjálfsljómarsvæða Palestínumanna, við meðferð þessa máls og þar með hundsað stöðu hans og völd. í öðm lagi benda Palestínumenn á að skyndileg lausn Yassins og annarra meðlima Hamas-samtak- anna, sem veitt er á sama tíma og ísraelsstjóm gerir sífelldar kröfur um að forsvarsmenn palestínsku sjálfstjómarsvæðanna handtaki meðlimi þessara samtaka, sýni ekki aðeins að ólíkar leikreglur gildi um ísraelsk og palestínsk stjómvöld heldur einnig það að mönnunum sé haldið til hrókeringa en ekki í öryggisskyni eins og hingað til hef- ur verið haldið fram. Misheppnað tilræði ísra- elsku leyniþjónustunnar á hendur háttsettum Hamas-liðum í Jórdaníu hefur vakið gagnrýni á hendur Benjamin Net- anyahu. Sigrún Birna Birnisdóttir er í Jerú- salem og fylgist með gangi mála. Atvikið hefur einnig skaðað sam- skipti ísraela og Jórdana auk þess sem það hefur sett Hussein Jórdan- íukonung, einn helsta stuðnings- mann ísraels í Mið-Austurlöndum, í erfiða aðstöðu. Hussein, sem hefur lagt mikið undir í friðarsamningum við ísrael, á undir högg að sækja gegn öfgasinnuðum múslimum sem m.a. halda því fram að hann láti ísrael vaða yfír sig og þjóð sína. Árásin nú kemur á versta tíma fyr- ir hann þar sem kosningar eiga að fara fram í Jórdaníu á næstunni. Kunni ekki að lifa við frið ísraelsstjóm hefur enn ekki gengist opinberlega við árásinni en Kanadastjóm, sem áður hafði for- dæmt notkun falsaðra kanadískra vegabréfa, kallaði í síðustu viku sendiherra sinn í ísrael heim vegna þessa máls. Þó æðstu valdamenn í Israel hafí staðið í ströngum samn- ingaviðræðum um örlög útsendar- anna frá því að árásin á Mashaal var gerð tóku þeir sér frest fram yfir nýárshátíðir gyðinga til að bregðast opinberlega við óánægju Kanadamanna. Þannig náði Kanadastjóm ekki sambandi við David Levi, utanrík- isráðherra, fyrr en að hátíðunum loknum á sunnudag. í ísraelskum íjölmiðlum hefur sú skoðun komið fram að eftir áratuga ófrið kunni valdamenn í ísrael hreinlega ekki að lifa við frið og viti því ekki hvern- ig koma eigi fram við vinveittar þjóðir. ísraelska leyniþjónustan hefur áður notað kanadísk vegabréf í aðgerðum sínum þrátt fyrir endur- tekin mótmæli Kanadastjómar. í viðtali við Yitzak Shamir, fyrrver- andi forsætisráðherra ísraels og yfirmanns Mossad, sem birtist í Jerusalem Post á mánudag, segir hann viðbrögð Kanadamanna dæmigerð fyrir Vesturlönd, sem veiti stolnum vegabréfum meiri at- hygli en sprengjum á götum Jerú- salemborgar. I viðtalinu sagðist Shamir þó eindregið mæla með því að leyniþjónustan noti skjól fá- mennra og áhrifalítilla þjóða þannig að þegar vandamál á borð við þetta komi upp verði þau hvorki áberandi né dýrkeypt fyrir ísrael. Mikil ábyrgð þjá Netanyahu Auk þess sem þetta mál hefur reitt Palestínumenn, Jórdani og Kandamenn til reiði hafa þær radd- ir heyrst í ísrael að atvikið hafi smánað bæði leyniþjónustuna og ísraelska ríkið á alþjóðavettvangi. Enda sagðist Mashaal, eftir að hann var útskrifaður af sjúkrahúsi, vera enn ákafari í baráttu sinni gegn ísrael en áður þar sem atburðurinn sýni að ísraelska leyniþjónustan sé langt frá því jafn óskeikul og ósi- grandi og hún hafi áður virst. Þá hafa menn haldið því fram að Benjamin Netanyahu hafi með því að samþykkja þessa vanhugs- uðu áætlun sýnt fram á að hann sé ófær um að taka afdrifaríkar ákvarðanir fyrir hönd ríkisins. Það virðist liggja Ijóst fyrir að mikil ábyrgð liggi hjá honum þótt fréttum dagblaðsins Sunday Times, þess efnis að hann hafi þröngvað Danny Yatom yfirmanni leyniþjónustunnar til þessara aðgerða, hafi algerlega verið vísað á bug. Eftir að nýárshátíðunum lauk hófst ríkisstjórn hans handa við að bregðast við vandanum heima fyr- ir. Á sunnudag kallaði Netanyahu Ehud Barak, leiðtoga Verkamanna- flokksins og helsta fyrirliða stjóm- arandstöðunnar, á sinn fund þar sem hann útskýrði fyrir honum aðdraganda málsins. Hann frestaði hins vegar fyrirhuguðum fundum utanríkis- og vamarmálanefnda um málið, að því að talið er til þess að forðast ágang íjölmiðla. Ýmsir þingflokkar á ísraelska þinginu hafa þó krafist opinnar umræðu um málið og er ætlað að hún fari fram í byijun næstu viku. * * * „Mér er illa við mismumin, fólk á bara að fá það sem það á skilið. Þeir sem standa við sitt eiga ekkert að þurfa að spá íþað meira. Ég fór í Vörðuna vegna þess að fjölskylda mín og áhugamál ganga fi/rir. Ég vil ekki þurfa að hafa áhyggjur af gluggaumslögum. Það er fólk í bankanum mínum sem sér um að borga reikningana mína. “ VARÐA Landsbankinn treystir fólki eins og Elínu og veitir því sveigjanlega fjármálaþjónustu í Vörðunni. Hún treystir bankanum sínum og kýs það öryggi og þau þægindi sem í því felast að hafa öll sín fjármál á einum stað. Greiðsluþjónusta Vörðunnar sér um að greiða reikningana fyrir hana og dreifa greiðslubyrðinni yfir árið. I Vörðunni er margt í boði, meðal annars: • Yfirdráttarheimild, allt að 300.000 kr. án ábyrgðarmanns. • Vörðulán, allt að 700.000 kr. án ábyrgðarmanns. • Gulldebetkortið, aðildarkort Vörðunnar sem veitir aðgang að ýmsum fríðindum. • Gullkreditkort, Visa og Vildarkort Flugleiða. • Ferðaklúbbur fjölskyldunnar. • Bílalán, hagstæð lán til bílakaupa. • Stighækkandi vextir á Einkareikningi. • Punktasöfnun, í hvert skipti sem þú notar gullkortin færð þú 2 punkta, hvar sem þú verslar. • • Með því að beina viðskiptum sínum á einn stað á fjölskylda auðvelt með að safna yfir 15.000 punktum á ári í bankanum. Vörðufélagar geta einnig safnað punktum með viðskiptum hjá Landsbréfum, með því að kaupa F+ fjölskyldutryggingu VÍS, með ferðum hjá Flugleiðum og nú þegar hjá yfir 160 verslunar- og þjónustufyrirtækjum. Síðan má breyta punktum í peninga eða nota þá sem greiðslu upp í ferðalag. • • „Hafðu samband við bankann þinn og kynntu þér víðtæka þjónustu Vörðunnar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.