Morgunblaðið - 07.10.1997, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 07.10.1997, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 1997 27 Verk eftir John Speight frum- flutt í New York Þrælgóð þrenna LEIKLIST Lcikfclag Kópavogs MEÐ KVEÐJU FRÁ YALTA Þrír einþáttungar eftir Anton Tsjekhov: Bónorðið, Um skaðsemi tóbaksins, Björainn. Leikstjóm, leik- mynd og búningar: Hópurinn. Lýs- ing: Skúli Rúnar Hilmarsson. Flytj- endur: Om Alexandersson, Ragn- hildur Þórhallsdóttir, Frosti Frið- riksson, Skúli Rúnar Hilmarsson, Jóhanna Pálsdóttir, Bjami Guðmarsson. ÞESSIR einþáttungar eftir Tsjekhov heita Með kveðju frá Yalta, en samt leggur hann núna undir sig svið bæði í Reykjavík og Kópavogi, þessi maður, með þrennum: Þrem- ur systrum í Þjóðleikhúsinu og þremur einþáttungum í Kópavogi, ekki einleikin tala þrír enda ekki einleikið hvernig þessi Rússi legg- ur mannlífið bert. Á sviðinu litla í Félagsheimili Kópavogs striplast hver sálarflækjufellan á fætur annarri svo glittir í breyskleikann þeirra og okkar sem á horfum en sem betur fer þannig að alltaf er gaman og stundum mjög gaman. Það er því tilvalið fyrir þá sem sjá Þrjár systur að skreppa í Kópa- voginn og sjá þrennuna þar. Hún er eins og frískandi eftirréttur, fleira bragð en eitt. Sviðsmyndin er eins í öllum þáttunum: Knöpp, stílhrein. Rautt plussið, samóvarinn, silfraða vindlingaaskjan sköpuðu það and- rúmloft sem þurfti, og svo var smellið að sjá bækurnar sem löpp undir skenknum, því heimsmyndin þarna er á fallanda fæti ... Og það var snoturt bragð og til marks um þá alúð sem einkennir upp- setninguna að dreifa laufblöðum í öllum haustsins litum á stóla áhorfenda. Leikararnir gera hlutverkum sínum ágæt skil, enda hafa þeir flestir starfað með Leikfélagi Kópavogs alllengi og fengið dýr- mæta sviðsreynslu. Ekki síst þótti mér gaman að sjá Skúla Rúnar Hilmarsson fljdja eintal sitt um skaðsemi tóbaksins án þess að falla í þá gryfju að ofleika. Skúli kaus heldur að draga persónu Mannsins konunnar sinnar hik- andi, daufum dráttum og birti því eðli hennar áhorfendum vel. Framsögn var skýr og áheyrileg í þessari þægilegu nálægð sem umhverfið skapar sýningunni. Þau sem standa að Með kveðju frá Yalta gera allt vel nema eitt. Þeim hefur láðst, eins og oft vill verða hjá áhugahópum, að láta vita nógu vel af sér. Þau eiga skilið góða aðsókn. Guðbrandur Gíslason ------» ♦ ■■»---- Sýningar á vegum Skruggusteins GALLERÍ Skruggusteinn sem starfrækt er í Kópavogi fjölgar nú listamönnum sem að galleríinu standa. í tilefni af afmæli og fjölg- un listamanna munu verða haldnar sýningar á nokkrum stöðum í Kópavogi og mun þeim ljúka með uppboði sem fram fer í húsakynn- um Skruggusteins, Hamraborg 20a, Kópavogi. Sýningarstaðir eru íslandsbanki Hamraborg, Toyota Nýbýlavegi, ÁTVR Dalvegi og Byko Skemmu- vegi. Sýningarnar verða haidnar þann 7.-24. október. Uppboðið fer fram 25. október og munu verkin verða boðin upp. NÍNA Margrét Grímsdóttir mun frumflytja nýtt píanóverk eftir John Speight, Manhattan Moments, í Steinway Hall í New York í kvöld. John, sem er á listamannalaunum til þriggja ára, er nýkominn heim frá Princeton í Banda- ríkjunum þar sem hann dvaldist í eitt ár við tónsmíðar meðan eiginkona hans, Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir, lagði stund á nám við Westminster Choir College. Þar er Manhattan Moments samið. „Nína Margrét kom að máli við mig eftir tónleika sem við Sveinbjörg héldum í New York í vor og bað mig um að skrifa fyrir sig verk. Við þeirri beiðni varð ég að sjálfsögðu," segir John. Fengu John og Sveinbjörg lofsam- lega dóma fyrir umrædda tónleika, sem fram fóru í Norsku sjómanna- kirkjunni á Manhattan, í fréttabréfi the American Scandinavian Society í New York. Ber gagnrýnandinn, Rolf Stang, sérstakt lof á flokk sex laga, The Lady in White, sem John samdi við ljóð Emily Dickinson og frumfluttur var við þetta tækifæri. Notar hann orðið „frábær“ til að lýsa flokknum. „Lögin eru unaðsleg á að hlusta og falla fullkomlega að hinum hnitmiðaða stíl Dickinson. Tónlistin lyftir ljóðunum meira að segja upp í nýjar hæðir, svo aðgengi- leg og hlý sem hún er.“ í byrjun desember verður annað verk sem John samdi í Bandaríkjun- um, sálumessan Sams Mess, frum- flutt í Englandi á minningartónleik- um um ungan mann, son kunningja- fólks Johns og Sveinbjargar, sem iést í bílslysi í Israel á liðnu ári. Er verkið skrifað fyrir kór, sópran og einleiksóbó og mun Sveinbjörg syngja einsöngshlutverkið. Sálumessuna samdi John í Kali- forníu en þar dvöldust hjónin um þriggja mánaða skeið í sumar. „Það getur verið gott að vera í Kalifor- níu í þijár vikur en þrír mánuðir eru alltof langur tími í þessu „veður- leysi“. Þess vegna er ég dauðfeginn að vera kominn heim aftur.“ Eigi að síður er John hæstánægð- ur með dvölina ytra, sérstaklega í Princeton, en þar um slóðir mun klassísk tónmenning standa í mikl- um blóma. „Þetta var góð tilbreyt- ing og gaman að kynna sér hvað er á seyði í klassíkinni þarna á austurströnd Bandaríkjanna en þaðan fáum við ekki oft fréttir af því tagi.“ MENNTAFÉLAG BYGGINGARIÐNAÐARINS ----------mmammsammmaB.----- Idnmeistarar Verk- og tæknifræðingar MENNTAFÉLAG BYGGINGARIÐNAÐARINS BÝÐUR í OKTÓBER OG NÓVEMBER 5 NÁMSKEIÐ Á REKSTRARSVIÐI KOSTNAÐARREIKNINGUR Námskeiðið er sniðið að þörfum meistara og fyrirtækja í iðnaði fyrir kostnaðareftirlit. Það byggir á texta og töludæmum sem líkja eftir daglegum viðfangsefnum. Námskeiðið fer fram að hluta í tölvustofu og hafa allir þátttakendur aðgang að tölvu. Disklingur til notkunar fyrir töflureikni (Excel) fylgir námsgögnum. ÚTBOÐ, TILBOÐ OG VERKSAMNINGAR Námskeiðið er ætlað þeim sem kynnast vilja aðferðum við gerð og frágang útboða, tilboða og verksamninga og hvaða grundvallarreglum þeir þurfa að fylgja í því efni. Það byggist á texta og töludæmum sem líkja eftir daglegum viðfangsefnum. Námskeiðið fer fram að hluta í tölvustofu og hafa allir þátttekendur aðgang að tölvu. Disklingur til notkunar fyrir ritvinnslu (Word) og töflureikni (Excel) fylgir námsgögnum. VERKEFNISSTJÓRNUN Námskeiðið er ætlað þeim sem kynnast vilja aðferðum við verkefnisstjórn og hvaða grundvallarreglum þeir þurfa að fylgja í því efni. Það byggist á texta og töludæmum sem líkja eftir daglegum viðfangsefnum. Farið er í gerð verkáætlana í tölvu — MS Project. Námskeiðið fer fram að hluta í tölvustofu og hafa allir þátttakendur aðgang að tölvu. VERKSTJÓRNUN Á BYGGINGARSTAÐ Námskeiðið er ætlað þeim sem kynnast vilja aðferðum við verkstjórn á byggingarstað og hvaða grundvallarreglum þeir þurfa að fylgja í því efni. Það byggist á texta og dæmum sem líkja eftir daglegum viðfangsefnum. GÆÐASTJÓRNUN Þátttakendur kynnast tilgangi, hugmyndafræði og vinnubrögðum gæðastjórnunar og hvernig gæðastjórnun er beitt til að stuðla að alhliða umbótum í fyrirtækjum og bæta stöðu þeirra út á við. Hvert námskeið er 20 stundir og kostar kr. 16.000. Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Menntafélags byggingariðnaðarins á Hallveigarstíg 1. Sími 552 1040, fax 552 1043. John Speight

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.