Morgunblaðið - 07.10.1997, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 07.10.1997, Qupperneq 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR IDAG VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Útihátíð allar helgar í miðbænum KONA hafði samband við Velvakanda og vildi hún taka undir það sem heiðar- legur borgari segir í Vel- vakanda sl. laugardag. Hún segir að skrílslætin og áreitið sé orðið svo mik- ið að fólk sem býr í mið- bænum sé orðið miður sín. Hana langar til að benda á það að með því að hafa opna alls kyns veitingasölu alla nóttina sé verið að veita þessu fólki sem hang- ir í miðbænum vissa þjón- ustu. Hún veltir því fyrir sér hvort ekki sé ástæða til að því sé hætt því þetta myndi nokkurs konar úti- hátíðarstemmningu. Hún segir að eina helgin sem fólk verði ekki fyrir ónæði í miðbænum sé versiunar- mannahelgin en þá flytjist þessi útihátíðarstemmning út á land. Hún segist mjög ánægð með umfjöllun Morgunblaðsins um þetta mál og fmnst blaðið hafa tekið vel á þessu máli t.d. í leiðurum. Miðbæjarborgari. Þvottaefnið Dato KONA hafði samband við Velvakanda og sagðist hún hafa notað fyrir nokkrum árum þvottaefni sem heitir Dato. Þetta þvottaefni var sérstaklega gott fyrir gardínur, stórisa og nælonefni. Hún segist ekki hafa séð þetta þvottaefni á markaðnum lengi og var að velta því fyrir sér hvort það fengist hvergi lengur og ef ekki hvort væri til sambærilegt þvottaefni. Tapað/fundið Hjól týndist hjá Arseli FJÓLUBLÁTT gírahjól, með stórum svörtum bögglabera, með gulum límmiðum, týndist hjá fé- lagsmiðstöðinni Árseli sl. miðvikudag. Þeir sem hafa orðið varir við hjólið hringi í síma 567-3412. Fundar- laun. Grátt Jazz- fjallahjól týnt GRÁTT, Jazz-fjallahjól með tösku á stýrinu, týndist frá Blönduhlíð aðfaranótt sl. sunnudags. Þeir sem hafa orðið varir við hjólið hafi samband í síma 551-2252. Dýrahald Köttur týndur í Garðabæ BRÖNDÓTTUR fress með gula bringu og gula ól, hvarf frá Reynilundi í Garðabæ miðvikudaginn 1. okt. Fólk í nágrenninu, vinsamiega athugið bíl- skúra og geymslur. Þeir sem hafa orðið varir við kisu hafi samband í síma 565-8218. Fress í óskilum SVARTUR fress er í óskilum í Garðabæ. Þeir sem kannast við kisa hafi sam- band í síma 565—6339 eða hafa samband við Kattholt. SKAK Umsjón Margcir Pé.tursson STAÐAN kom upp á skák- mótinu Kettler Cup, í Ceska Trebova í Tékklandi. Hin síungi Viktor Kortsnoj (2.610) hafði hvítt og átti leik gegn gamalreyndum heimamanni, Jan Smejkal (2.525). 23. Bxa6!! (Þetta er mun sterkara en 23. Hal - Be6 24. Bb5!? - axb5 25. Hxa7 - bxc5 og svartur bjargar sér) 23. - bxc5 24. b5 - Hcxa6 (Fórnar skiptamun, annars tapar svartur c peð- inu.) 25. bxa6 - c4 26. Hal - Bb3 (Eða 26. - Hxa6 27. Hf2 og vinnur) 27. Ha5 - Kf8 28. Hfal - Ke7 29. Hd5 - Ke6 30. g4 - c3 31. Hd3 - Bc4 32. Hxc3 - Hxa6 33. Hxa6+ - Bxa6 34. Hc6+ og Smejkal gafst upp. Þessi skák birtist með rangri stöðumynd á sunnudaginn var. í síðustu átta tölublöð- um Morgunblaðsins, sem komu út frá 27. september til 5. októ- ber, rugluðust stöðu- mynd og texti þrívegis í vinnsluferli blaðsins, sem mun vera bæði flókinn og hátækni-væddur núorðið. Á meðan Morgunblaðið var staðsett niðri í Aðalstræti liðu oft nokkur ár á milli þess að skákhomið lenti í nokkmm slíkum hremming- um. Nú síðast var um nýja tegund af mistökum að ræða. Oftast klúðrast þetta þannig að laugardags- og sunnudagsstöðumyndirnar víxlast, en í þetta sinn birt- ist laugardagsstöðumyndin báða dagana. Ekki vantar þó að bæði stöðumyndir og texti séu þrælmerkt saman. Þetta getur varla gerst nema tæknin sé komin á svo hátt stig að hún hafi útrýmt mannlegu atgervi. HVÍTUR leikur og vinnur. Hlutavelta ÞESSAR duglegu stúlkur seldu skraut úr plastperlum og máluðu myndir til styrktar Rauða krossi Islands og söfnuðu þær alls kr. 2.616. Þeir heita Nína Birna Þórsdóttir, Margrét Hrönn Þóroddsteinsdóttir og á myndina vantar Karitas Ósk Harðardóttur. ÞESSIR duglegu strákar héldu tombólu til styrktar Rauða krossi Islands og söfnuðu 3.262 kr. Þeir heita Jón Þröstur Hauksson og Hafsteinn Úlfar Erlingsson. Víkveiji skrifar... #3% Dagbók í|'?Öl) Háskóla íslands DAGBÓK Háskóla íslands 6. til 12. október. Allt áhugafólk er velkomið á fyrirlestra í boði Háskóla íslands. Dagbókin er uppfærð reglulega á heimasíðu Háskólans: http://www.hi.is Þriðjudagurinn 7. október: Claus Haagen Jensen, gestafyrir- lesari og prófessor frá háskólanum í Álaborg, heldur fyrirlestra á veg- um lagadeildar í stofu 101, Lög- bergi, kl. 16:15. Fyrirlesturinn sem fer fram á dönsku nefnist: „Hoved- træk af udvikling i dansk forvaltn- ingsret siden 1970.“ Fimmtudagurinn 9. október: Prófessor Einar Niemi frá há- skólanum í Tromsö heldur fyrirlest- ur á þingi sagnfræðinema á Norður- löndum, „Nordsaga 97. Nordisk id- entitet i 1000 ár. Fra Lindesfarne til Lillehammer", sem haldið er við Háskóla íslands 9.-14. október nk. Fyrirlesturinn fer fram í hátíðasal Háskólans kl. 14:00 og nefnist: „Id- entity, Ethnicity and Regionalism in Northern Scandinavia. A Hi- storical Perspective.“ Á þingi sagn- fræðinema flytur einnig prófessor Brian Patriek MacGuire frá háskól- anum í Hróarskeldu erindi sem hann nefnir: „Danish and Nordic identites - medieval and post-mod- ern reflections." Þorbergur Högnason læknanemi og MS nemi heldur fyrirlestur í málstofu læknadeildar í sal Krabba- meinsfélags íslands, Skógarhlíð 8, ki. 16:00. Fyrirlestur sinn nefnir hann: „EGF viðtakinn: boðberi lífs eða dauða?“ Helene Liette Lauzon heldur fyr- irlestur í málstofu í matvælafræði kl. 16:15 í stofu 158 í VR-II sem nefnist „Geymsluþol og mikilvægi einstakra örverutegunda í skemmd- arferli skrápflúru." Prófessor Brian Patrick McGuire frá háskólanum í Hróarskeldu held- ur opinberan fyrirlestur í boði heim- spekideildar í stofu 101 í Odda v/Sturlugötu ki. 17:15. Fyririestur- inn nefnist: „The difficult saint and his opponent: Bernard, Abelard; and twelfth-century friendship." I fyrirlestri sínum mun próf. McGuire fjalla um fræga rimmu heilags Bernharðs frá Clairvaux, eins helsta andlega leiðtoga vestrænnar kristni á 12. öld, og Abelards, umdeildasta heimspekings og guðfræðings sömu aldar, í ljósi samtímahugmynda um vináttu. Föstudagurinn 10. október: Arnar Pálsson MS nemi flytur fyrirlestur í málstofu Líffræðistofn- unar kl. 12:20 í stofu G-6 á Grens- ásvegi 12 um „Markvissar stökk- breytingar á ligasa geni Thermus scotoductus." Guðmundur G. Haraldsson, dós- ent við raunvísindadeild, flytur fyr- irlestur kl. 12:00 í málstofu efna- fræðiskorar í stofu 158 í húsi VR- II við Hjarðarhaga. Fyrirlesturinn nefnist: „Líf-lífrænar efnasmíðar á einsleitum þríglýseríðum með EPA og DHA fyrir tilstilli lípasa." Laugardagurinn 11. október: Prófessor Harald Gustavson frá háskólanum í Lundi heldur fyrir- lestur á þingi sagnfræðinema á Norðurlöndum „Nordsaga 97. Nor- disk identitet i 1000 ár.“ Fyrirlest- urinn fer fram í sal 101 í Odda kl. 12:30 og nefnist: „Politisk inter- aktion och politisk kultur i Norden pá 1700-talet.“ Dr. art. Björg Evj- en heldur fyrirlestur á sama þingi sem hún nefnir: „The Case of Longyerabyen, Spitsbergen, in the 20th Century." í tilefni þess að 150 ár eru frá því að kennsla hófst í Prestaskólan- um gengst guðfræðideild Háskóla íslands fyrir málþingi í fyrirlestrar- sal Þjóðarbókhlöðu kl. 14:00. Mái- þingið ber yfirskriftina: „Guðfræðin og kirkjan." Þar munu eftirtaldir fyrirlesarar tala: Dr. Hjalti Huga- son prófessor: „Prestaskólinn og samhengið í íslenskri prestsmennt- un.“ Séra Sigurður Sigurðarson vígslubiskup: „Væntingar kirkjunn- ar til guðfræðinnar." Dr. Sigurður Árni Þórðarson: „Guðfræðin og inn- ræti prestsins.“ Dr. Arnfríður Guð- mundsdóttir: „Af hveiju leggjum við stund á guðfræði?" Námskeið á vegum Endur- menntunarstofnunar HÍ vikuna 13.-18. október: 13.-14. okt. kl. 8:30-12:30. Hönnun lágspennudreifikerfa - Raf- magnstöflur. Kennarar: Þorkell Jónsson, tæknifræðingur hjá Samey hf., Þorvaldur Finnbogason, deildar- stjóri þjónustudeildar RARIK, Jón Halldórsson, verkfræðingur hjá Vst. Rafhönnun hf., og Haukur Geir Guðnason, tæknifræðingur hjá Vst. Rafteikningu hf. 13., 14. og 20. okt. kl. 8:00-13: 00. Gæðakerfi - ISO 9000. Kennar- ar: Pétur K. Maack prófessor og Kjartan J. Kárason framkvæmda- stjóri hjá Vottun hf. 13. og 14. okt. kl. 8:30-12:30. Starfsfólk, þjónusta, viðskiptavinir og árangur. Kennarar: Þórður Sverrisson rekstrarhagfræðingur og Jón Gunnar Aðils rekstrarhag- fræðingur, MBA, báðir ráðgjafar hjá Forskoti ehf. 13. okt. kl. 9-16 og 14. okt. kl. 9-13. Ný viðhorf í loftræstimálum. Kennari: Guðni A. Jóhannesson, prófessor KTH. 13. og 14. nóv. kl. 8:30-12:30. Lög og reglugerðir um mengunar- mál. Kennarar: Ingimar Sigurðsson umhverfisráðuneyti, Björn Frið- finnsson ráðuneytisstjóri, Ólafur Pétursson og Davíð Egilsson frá Hollustuvernd ríkisins. 13., 16. og 20. okt. kl. 9-12. Endurtekið: 14. okt. kl. 13-17 og 23. og 24. okt. kl. 9-12. Vefsmíðar 1 - Hönnun og notendaviðmót. Kennari: Gunnar Grímsson vef- meistari hjá this.is og IO - Inter- Organ gunnarthis.is - http://this.is - http://this.is/io 15. okt. kl. 8:30-12:30. Samnet símans. Inngangur að samneti sím- ans, ISDN. Kennari: Einar H. Reyn- is rafeindavirkjameistari hjá Pósti og síma hf. Mið. 15. okt.-19. nóv. kl. 20-22 (6x). Réttarsaga íslands. Kennari: Sigurður H. Líndal prófessor. 15. okt. kl. 8:15-12:15. Gæða- stjórnun í ráðstefnu- og funda- haldi. Undirbúningur - framkvæmd - árangursmat. Kennari: Arney Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Gæðastjórnunarfélags íslands. 15. okt. kl. 9-16. Mat á fjár- hags- og bókhaldshugbúnaði. Kennari: Dennis Keeling, alþjóðleg- ur ráðgjafí og stjórnandi Business & Accounting Software Developers Association (BASDA), samtaka helstu framleiðenda. Mið. 15. okt.-12. nóv. kl. 8:15- 12:15 (5x). Tauga- og hormóna- stjórnun á líkamsstarfsemi. Kenn- ari: Dr. Jón Ólafur Skarphéðinsson prófessmaor HÍ. 15., 17. og 18. okt. kl. 8:30-12: 30. Gerð verkáætlana með aðstoð tölvu. Kennari: Eðvald Möller rekstrarverkfræðingur, lektor TÍ og stundak. HÍ. 15. okt. kl. 12:30-16:45. Náms- stefna um umhverfisstjórnun í fyrirtækjum og stofnunum. - að- ferðir ávinningur og útgjöld. I sam- starfi við Gæðastjórnunarfélag ís- lands, Iðntæknistofnun íslands og Samtök iðnaðarins. Fyrirlesarar: Halldóra Hreggviðsdóttir VSÓ ráð- gjöf, Helga J. Bjarnadóttir um- hverfisdeild Iðntæknistofnunar, Haraldur Hjaltason VSÓ ráðgjöf, Aðalsteinn Pálsson tæknisviði Rík- isspítala, Baldur Hjaltason forstjóri Lýsis hf., Þorgeir Baldursson for- stjóri Odda, Sigurður Geirsson, Frigg hf. 16 okt. kl 12:30-17:30. Stýring- ar I - Kerfislýsingar stjórnkerfa. Umsjón: Sigurgeir Þórarinsson vél- tæknifræðingur hjá VGK. Fyrirles- arar auk hans verða Jón Pálmason rafmagnsverkfræðingur hjá Raf- teikningu, Sveinn Aki Sverrisson véltæknifræðingur hjá VSB og Friðmar M. Friðmarsson rafvirkja- meistari hjá Hitatækni. 16., 23. og 30. okt. kl. 17:00-19: 30. Að skrifa vandaða íslensku. Kennari: Bjarni Ólafsson, íslensku- fræðingur og menntaskólakennari. * AFÖSTUDAG lækkaði hluta- bréfavísitalan um 2%, sem jafngildir tæplega 3 milljarða lækk- un á markaðsvirði þeirra fyrirtækja, sem skráð eru á verðbréfaþingi. Verðbréfasalar töldu, að frétt í Morgunblaðinu þann dag um hugs- anlega lækkun á verði hlutabréfa í sjávarútvegsfyrirtækjum hefði átt umtalsverðan þátt í þessari hreyf- ingu. Ef svo er mætti ætla að verð- bréfasalar fylgist lítið með því, sem gerist í kringum þá. Fyrir nokkrum dögum var haldinn aðalfundur Samtaka fiskvinnslustöðva. Á þeim fundi voru að venju birtar upplýs- ingar um slæma stöðu fiskvinnsl- unnar og tap á landvinnslu. Tals- menn sjávarútvegsins voru afar svartsýnir á horfurnar í rekstri fyr- irtækjanna á næstu mánuðum og misserum af þessum sökum. Hin umrædda frétt Morgunblaðs- ins byggðist á því, að blaðið hafði samband við nokkra verðbréfasala og leitaði álits þeirra á því, hvaða áhrif þessar upplýsingar og mál- flutningur talsmanna sjávarútvegs- ins á fundinum mundi hafa á verð hlutabréfa í sjávarútvegsfyrirtækj- um á næstu mánuðum. Ætla mætti, að það væru þær upplýsingar, sem fram komu á aðalfundi Samtaka fiskvinnslustöðva, sem haft hefðu þessi áhrif á verð hlutabréfa í síð- ustu viku. Morgunblaðið hafði ekki aðrar upplýsingar undir höndum en aðrir landsmenn, þ. á m. verðbré- fasalar, um það, sem fram kom á aðalfundinum. xxx ETTA sýnir hins vegar óneitan- lega þann vanda, sem tals- menn sjávarútvegsins eru nú í. Hér áður fyrr komu þeir reglulega með upplýsingar á aðalfundum sínum um slæma stöðu sjávarútvegsins. Þær voru yfirleitt hugsaðar sem þrýstingur á stjórnvöld til þess að grípa til aðgerða þeim í hag. Morg- unblaðið hefur á undanförnum árum bent á, að allt eru þetta með- altalstölur, sem segja ekki nema hálfa sögu. Forystumönnum fyrirtækja í sjávarútvegi er auðvitað í mun, að hlutabréf í fyrirtækjum þeirra hald- ist í sem hæstu verði. En nú standa þeir allt í einu frammi fyrir því, að hefðbundinn málflutningur frá fyrri tíð hefur á skömmum tíma þau áhrif, að hlutabréf í fyrirtækjunum falla verulega í verði. Það verður óneitanlega fróðlegt að sjá, hvort þessi veruleiki hefur áhrif á það, hvernig talsmenn sjávarútvegsins haga málflutningi sínum í framtíð- inni. xxx NÚ ER nánast hvergi hægt að koma í verzlanir eða þjón- ustufyrirtæki án þess, að viðskipta- vininum séu boðin margvísleg fríð- indi. Það eru punktar hér og þar, happdrætti, leikir og endalaus gylliboð af þessu tagi. Það er auð- vitað alveg Ijóst, að viðskiptavin- irnir sjálfir borga kostnaðinn af þessari sölustarfsemi. Hvenær skyldi þetta fyrirbæri ganga sér til húðar?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.