Morgunblaðið - 07.10.1997, Page 52
52 PRIÐ.JUDAGUR 7. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Hafði engan
ing á dauðí
sem unglir
Samuel L. Jackson fer með hlutverk kennara
í 187 sem þarf að taka á honum stóra sínum
til að öðlast virðingu nemenda. Hann kenndi
Ingibjörgu Þórðardóttur ýmislegt þegar hún
hitti hann að máli í London fyrir nokkru.
SAMUEL L. Jackson segist ekki vera sérlega trúaður.
O fT ER STERK ádeila
^ / á bandaríska skóla-
■J- v—/ I kerfið. Hún er
byggð á reynslu handritshöfundar-
ins sem eitt sinn var kennari og tel-
• .ur að skólar eigi sér enga viðreisn-
ar von í kerfi þar sem kennarar
þurfa að vinna sér inn virðingu
nemenda í stað þess að hún sé til
staðar þegar kennsla hefst.
Titill myndarínnar hefur vakið
athygli en ástæðuna fyrir valinu á
honum segir höfundur hennar vera
þá að nafnið sé ópersónulegt og í
samræmi við reynslu flestra nem-
enda, þ.e. persónuleiki þeirra er
máður út, einstaklingurinn er
einskis virði og í kerfinu verða þeir
. rað númerum. 187 er tákn sem not-
að er íyrir morð í Kaliforníufylki
og hefur verið notað sem táknmál á
milli gengja í Los Angeles.
Leikstjórinn Kevin Reynolds er
þekktastur fyrir samstarf sitt við
Kevin Costner en úr því samstarfi
urðu stórmyndirnar Vatnaveröld
og Hrói Höttur til. Ástæðuna fyrir
því að Reynolds tók að sér þetta
verkefni segir hann vera þá að
hann hafi verið orðinn þreyttur á
stórmyndum og viljað gera per-
sónulegri mynd þar sem meiri
áhersla væri lögð á einstakar per-
sónur.
Samuel L. Jackson, aðalleikari
myndarinnar, er best þekktur sem
glæpamaðurinn Jules úr Reyfara.
SLÖKKVI-
TÆKI
Allar geröir og stærðir.
Duft, vatn, léttvatn
og kolsýra.
Allar gerðir
eldvarnatækja. Þjónustum
slökkvitæki.
HAGSTÆTT VERÐ.
LEITIÐ UPPLÝSINGA.
□ HDVASNAMIÐSTÖfllN Hf
ÓLAFUR GÍSLASON & CO. HF.
SUNDABORG 3 SÍMI 568 4800
ÞAÐ GENGUR ýmislegt á í kennslustofunni í 187.
Jackson lauk námi frá leiklistar-
skólanum Morehouse í Atlanta.
Fyrstu árin vann hann mest í leik-
húsum jafnframt því sem hann lék
aukahlutverk í nokkrum stutt-
myndum. Hann var einnig með
hlutverk í myndum á borð við Kiss
and Death, Amos and Andrew og
True Romance svo einhverjar séu
nefndar.
Samuel L. Jackson bað sérstak-
lega um þetta hlutverk og sem
meginástæðu nefnir hann að
Trevor Garfield hafi upphaflega átt
að vera hvítur. „Þá sögu höfum við
öll séð áður; hvítur kennari í skóla
fyrir svarta, það segir sig sjálft að
hann verður óvinsæll. Eg vildi ekki
að myndin væri um kynþáttafor-
dóma heldur um samskipti nem-
enda og kennara í skólastofunum,"
segir hann.
„Fyrir leikara var þetta hlutverk
líka spennandi þar sem persónan í
myndinni fer í gegnum miklar til-
finningasveiflur sem gerir hlut-
verkið mjög krefjand. Eg undirbjó
mig sérstaklega vel. Eina leiðin til
að setja mig í spor kennarans var
að ímynda mér hvernig mér myndi
líða ef ég gæti ekki leikið lengur.
Trevor er að mínu mati mjög hug-
rakkur og hann fann ástæðu til að
halda áfram þrátt fyrir erfiðar að-
stæður.“
Trevor Garfíeld tekur lögin í sín-
ar hendur í myndinni. Getur það
ekki haft ófyrirséðar afíeiðingar?
„Ég myndi ekki ganga svo langt
að segja að hann taki lögin í sínar
eigin hendur, það er ekki eins og
hann leggi sig fram um að hrella
krakkana. Hann varð fyrir slæmri
lífsreynslu og þegar maður verður
fyrir slíku er eðlilegt að leita allra
hugsanlegra leiða til að koma í veg
fyrir að það endurtaki sig. Ég held
187 er
tákn sem
notað er
fyrir morð
( Kalifom-
HLUTVERK Jacksons í 187 er þrungið tilfinningum.
persónulega að það sem miður fór
hjá Trevor í myndinni hafi verið
mistök af hans hálfu og hann geld-
ur það dýru verði.“
Unglingarnh■ í myndinni eru allir
frá Los Angeles. Gaf það þér betri
innsýn ílífnemenda?
„Já, auðvitað eru _____________
ákveðin atriði færð í stíl-
inn en krakkarnir sem
léku í myndinni sögðu að
hún færi ótrúlega nærri
sannleikanum. Þeir hefðu
raunar sjálfir lent í verri
aðstæðum í kennslustof-
um. Það er hræðileg til-
hugsun að þegar ég var á
þeirra aldri hafði ég engan skilning
á dauðanum; ég hélt ég væri
ódauðlegur. Þessir krakkar fara
hins vegar í skólann á morgnana
og vita ekki hvort þeir eiga aftur-
kvæmt. Það leiðir til þess að þeir
ganga með vopn til þess að vernda
„Skylda mín
eingöngu að
koma hlut-
verkinu til
skila á heiðar-
Jegan hátt“
sig. Þess vegna erum við með
vopnaleit við innganginn á skólum.
Þeir sem ætla sér virkilega að
smygla vopnum inn í skólana eiga
samt sem áður auðvelt með það.“
Var skólaganga þín eitthvað í
líkingu viðþetta?
_________ „Nei, langt í frá. Skól-
inn sem ég sótti á þessum
árum var í tengslum við
samfélagið, kennaramir
yoru vinir okkar og oftast
nær fyrrverandi bekkjar-
félagar foreldra okkar.
Þekking kennaranna á
nemendum og foreldrum
er afar mikilvæg. Það er
það sem hefur farið úrskeiðis í
skólakerfinu. Krakkar hafa verið
teknir úr því umhverfí sem þeir
þekkja best og settir í skóla þar
sem þeir þekkja engan og enginn
þekkir þá. Þetta er gert í þeim til-
gangi að gera skólakerfíð réttlát-
ara en í staðinn hefur verið skapað
bil á milli kennara og foreldra, sem
halda að allt sem sagt er við þá sé
sagt í þeim tilgangi að niðurlægja
þá - og verja sig því eftir sem best
þeir geta.“
Þú ólst upp í Tennessee þar sem
trúin gegnh- stóru hlutverki og
flestar persónur sem þú hefur leik-
ið nýlega hafa verið trúarlega
þenkjandi. Ert þú trúaður?
„Ég myndi ekki segja það og það
er algjör tilviljun að persónur mín-
ar eru svona trúaðar. Ég bið til
Guðs og þakka honum fyrir það
sem ég hef en er ekki endalaust að
biðja hann um greiða. Ég geri hlut-
ina sjálfur og þakka honum fyrir ef
vel tekst til.“
Hverju þakkar þú helst frama
þinn á leiklistarbrautinni?
„Mér sjálfum, ég lít alls ekki á
mig sem fyrirmynd fyrir aðra. Ég
geri mér grein fyrir að árangur
minn gefur ungum leikurum von
um að hægt sé að ná langt, sem er
af hinu góða, en ég hef engar
skyldur gagnvart þeim eða öðrum.
Ekki frekar en að ég geti ekki leik-
ið ákveðin hlutverk vegna þess að
það sé í mótsögn við skoðanir ein-
hvers þjóðfélagshóps. Skylda mín
er eingöngu að koma hlutverki til
skila til áhorfenda á heiðarlegan
hátt svo þeir geti upplifað það sem
ég er að ganga í gegnum í stað
þess að horfa á myndina án þess að
verða fyrir áhrifum. Þegar ég fer í
kvikmyndahús vil ég vera þátttak-
andi í myndinni og finna til með
persónunum.“
Attu þér uppáhalds hlutverk?
„Já, ég hef sérstakan stað í
hjarta mínu fyrir allar þær persón-
ur sem ég hef leikið. Draumahlut-
verkið er alltaf það hlutverk sem
ég leik hverju sinni eða það hlut-
verk sem tekur við vegna þess að
ég hugsa stöðugt um það til þess að
verða hluti af þeirri persónu.“
Er ekki komið að því að taka sér
frí eftir fjórar myndir á tveimur ár-
um?
„Ég veit ekki einu sinni hvert
mitt næsta hlutverk verður. Ég er
að fara í búningamátun í lok sept-
ember fyrir nýju Stjörnustríðs-
myndina en George Lucas hefur
ekki sagt mér neitt um það hvað ég
á leika. Það er möguleiki á að ég
verði einhver furðuleg loðin vera
en mér er í raun alveg sama, mig
langar bara að taka þátt í Stjörnu-
stríðsmyndunum. I næstu viku
byrja ég síðan í upptökum á The
Negotiator á móti Kevin Spacey.“
Er einhver von um að Samuel L.
Jackson sé á leið til íslands?
„Aðeins meðan sólin skín,“ segir
hann og hlær. „Reyndar hitti ég
nokkra íslendinga fyrir nokkru
sem buðu mér að koma og sögðu að
það væri hægt að spila golf á mið-
nætti að sumri til. Ég hefði mikinn
áhuga á því að koma og gera það.
Hver veit - ef til vill verður mín
næsta mynd tekin upp á íslandi."