Morgunblaðið - 07.10.1997, Side 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG RITSTJ@MBL.IS AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
I Laufskálarétt
ÞAÐ gekk mikið á í Laufskála-
rétt í Hjaltadal í Skagafírði um
helgina þegar hrossastóð Skag-
firðinga var þar rekið í rétt úr
sumarhaga og dregið í dilka.
Stóðréttirnar draga ekki að-
eins til sín þá bændur sem eiga
hross í réttunum og þeirra
skyldulið heldur mikinn fjölda
manna hvaðanæva af landinu.
Vond veðurspá rættist ekki
um helgina og viðraði þokkalega
á hross og menn en votviðri und-
anfarinna daga hafði þó þau
áhrif að mikið drullusvað var í
réttinni og urðu menn og dýr
samlit þegar eðjan slettist í allar
áttir.
Einnig var líflegt viðskiptalíf í
réttunum. Skiptu ófáir gæðingar
og bikkjur um eigendur norður
í Laufskálarétt á laugardag.
84% leik-
skólakennara
samþykktu
KJARASAMNINGUR leikskóla-
kennara var samþykktur í at-
kvæðagreiðslu með miklum meiri-
hluta. A kjörskrá voru 996 og
greiddu 590 atkvæði eða 59,2%. 495
sögðu já eða 83,9%, 83 sögðu nei
eða 14% og 12 seðlar voru auðir
eða ógildir.
Atkvæðagreiðsla
94,2% kennara
> samþykktu verkfall
GRUNNSKÓLAKENNARAR
samþykktu með 94,2% atkvæða að
boða til verkfalls 27. október nk.
hafi samningar ekki tekist. Eiríkur
Jónsson, formaður Kennarasam-
bands Islands, segir að þessi niður-
staða endurspegli þá reiði sem sé
meðal kennara vegna stöðunnar í
kjaramálum þeirra.
Á kjörskrá hjá Kennarasambandi
íslands voru 3.254 kennarar. 3.071
greiddi atkvæði eða 94,4%. 2.891
sagði já eða 94,2%, 114 sögðu nei
eða 3,7% og auðir og ógildir voru 66
eða 2,1%.
Á kjörskrá hjá HÍK voru 177 og
, greiddu 132 atkvæði eða 74,6%. 122
sögðu já eða 92,4%, 8 sögðu nei eða
6,1% og auðir og ógildir seðlar voru
2 eða 1,5%.
„Þessi niðurstaða er staðfesting á
því sem við höfum heyrt á fundum
með félagsmönnum. Fólk er mjög
reitt og því er misboðið. Það er í
þessari atkvæðagreiðslu að lýsa
þessum skoðunum og að það verði
eitthvað að gera til að bæta launa-
kjörin,“ sagði Eiríkur.
Aðeins hefur verið haldinn einn
. samningafundur í kennaradeilunni
síðastliðinn mánuð og var hann ár-
angurslaus. Eiríkur sagðist gera
ráð fyrir að samningsaðilar hefðu
kannski verið að bíða eftir niður-
stöðu atkvæðagreiðslu um boðun
verkfalls. Nú væri hún fengin og því
mætti gera ráð fyrir því að samn-
ingafundur yrði boðaður á næst-
unni. Hann sagði að kennarafélögin
legðu alla áherslu á að reyna að
leysa kjaradeiluna án verkfalls.
íslandi verða m.a. til umræðu. Ei-
ríkur sagði að utanför sín ætti ekki
að þurfa að tefja samningaviðræð-
ur. Samninganefnd kennara væri
vel skipuð.
Verkfallið gæti orðið hart
„Menn verða að reyna að leiða
þetta til lykta áður en til verkfalls
kemur. Það segir sig alveg sjálft að
þegar baklandið er svona samstiga
og ákveðið má búast við þvf að átök-
in verði enn harðari en ella þegar út
í þau er komið.“
Á fundi í stjórn KI í gær var m.a.
rætt um undirbúning verkfalls.
Kennarasambandið á yfir 250 millj.
í verkfallssjóði. Eiríkur Jónsson fór
utan i dag til að sitja fund með nor-
rænum starfsbræðrum sínum þar
sem kjaramál grunnskólakennara á
Morgu nblaðið/RAX
Urslitafundur í lífeyrisnefndinni 15. október
Alls óvíst hvort málið verður
afgreitt með samkomulagi
Vilhjálmur sagði að töiuverðar
breytingar yrðu gerðar á frumvaro-
ÁKVEÐIÐ hefur verið að halda
lokafund í nefnd fjármálaráðherra
sem fjallað hefur um breytingar á
frumvarpi um skyldutryggingu líf-
eyrisréttinda og starfsemi lífeyris-
sjóða 15. október. Ekkert liggur þó
enn fyrir um hvort samkomulag
næst á milli fullti-úa ríkisstjórnarinn-
ar og aðila vinnumarkaðarins í
nefndinni. Að sögn Vilhjálms Egils-
sonar, formanns nefndarinnar, verð-
ur málið afgreitt úr nefndinni á
næsta fundi þ.e. á miðvikudag í
næstu viku, hvort sem samstaða
næst innan nefndarinnar eða ekki.
Verða þá drög að frumvarpi send
fjármálaráðherra. í framhaldi af því
er það svo ákvörðun ríkisstjómar-
innar hvort frumvarpið verður lagt
fram á nýjan leik á Alþingi.
inu. Fulltrúar Aþýðusambands Is-
lands og samtaka vinnuveitenda hafa
staðið saman í nefndinni en hörð
gagnrýni þeirra á frumvarpið sl. vor
varð til þess að afgreiðslu þess á A-
þingi var frestað til hausts. Töldu
bæði ASÍ og VSÍ að frumvarpið
hefði að óbreyttu gjörbreytt starfs-
grundvelli lífeyrissjóðanna.
Heimilt að verja hluta iðgjalds í
séreignardeild?
Fulltrúar aðila vinnumarkaðarins
hafa nú til skoðunar þær tillögur til
breytinga á frumvarpinu sem fjallað
hefur verið um í nefndinni að undan-
fórnu og er gert ráð fyrir stífum
fundahöldum í herbúðum þeirra út
þessa viku. í framhaldi af því kemur
í ljóst hvort samtökin munu lýsa yfir
andstöðu við framkomnar tillögur
eða gera úrslitatilraun til að ná sam-
stöðu með því að leggja fram breyt-
ingartillögur. ASI mun ekki vilja
hvika frá kröfu sinni um að annarri
grein frumvarpsins um aðild að líf-
eyrissjóðum verði breytt.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins fela tillögur fulltrúa fjár-
málaráðherra ekki í sér neinar
grundvailarbreytingar á meginefni
frumvarpsdraganna frá í vor. Áfram
verði lögbundið 10% lífeyristrygg-
ingaiðgjald til sjóðanna en einnig er
gert ráð fyrir að sú lágmarkstrygg-
ingavernd sem iðgjaldið veitir geti að
hluta til verið valkvæð íyrir einstak-
lingana, sem eigi þess kost að veija
hluta heildariðgjaldsins í séreignar-
deild eða -sjóð. M.a. hefur verið rætt
um 2% af 10% lágmarksiðgjaldinu.
Engin breyting á viðhorfum Al-
þýðusambandsins
„Það er að koma að ögurstundu í
þessu,“ segir Grétar Þorsteinsson,
forseti ASI, sem sæti á í nefndinni.
„Næsti fundur í nefndinni er boðað-
ur 15. október og þá held ég að hljóti
að koma í ljós hvort menn eru á
þeirri leið að lenda þessu sameigin-
lega eða hvort ágreiningur verður
áfram um málið,“ segir Grétar. „Það
liggur ekki fyrir nein breyting á við-
horfum hvað varðar ASI frá því sem
var í vor og byrjun sumars. Menn
munu vafalaust funda mjög stíft í
þessari viku,“ segir hann.
Ný sjón-
varps-
stöð með
barnaefni
BARNARÁSIN heitir ný sjón-
varpsstöð sem hefur útsend-
ingar í desember. Um er að
ræða stöð með barna- og ung-
lingaefni sem sendir út á breið-
bandi Pósts og síma.
Að sögn Sögu Jónsdóttur hjá
Barnarásinni er ætlunin að allt
efni stöðvarinnar verði ofbeld-
islaust. Alt erlent efni verður
talsett og textað en einnig
verður framleitt innlent efni.
Um rekstur stöðvarinnar sér
kvikmyndagerðin Hljóð og
mynd sem hefur séð um tal-
setningu barnaefnis á Stöð 2
og er í eigu Böðvars Guð-
mundssonar kvikmyndagerð-
armanns. Dagskrárstjóri
stöðvarinnar verður Guðrún
Þórðardóttir.