Morgunblaðið - 18.10.1997, Qupperneq 2
2 LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Rafmagnsveita Reykjavíkur boðar 2-3 prósenta lægra orkuverð
Eðlilegur arður þrátt fyr-
ir raforkuverðlækkunina
RAFMAGNSVEITA Reykjavíkur mun lækka
raforkuverð til notenda um 2-3% að meðaltali
frá og með áramótum. Lækkunin mun ekki
hafa áhrif á afgjald fyrirtækisins til borgarinn-
ar, að sögn Alfreðs Þorsteinssonar, formanns
Veitustofnana borgarinnar, sem telur að hægt
eigi að vera að láta fyrirtækið skila eðlilegum
arði þrátt fyrir þessa lækkun. Fyrir áramót á
einnig að fást niðurstaða varðandi það hvort
fýsilegt þyki að ráðast í sameiningu Hitaveitu
Reykjavíkur og Rafmagnsveitu Reykjavíkur.
Alfreð sagði á blaðamannafundi á Nesjavöll-
um í gær, þar sem áformin voru tilkynnt, að
þetta væri fyrsta skref og að á næstunni mundi
skapast svigrúm til frekari lækkunar, m.a. að
liðnum nokkrum árum vegna raforkuframleiðslu
á Nesjavöllum. Einnig væri þetta liður í að und-
irbúa veitufyrirtæki borgarinnar undir sam-
keppni i orkusölu.
Ákvörðun um sameiningu
RR og HR um áramót
Alfreð sagðist telja líklegt að með sameiningu
Hitaveitunnar og Rafmagnsveitunnar mætti ná
frekari spamaði eða hagræðingu sem skila mætti
til neytenda. Unnið er að könnun á þeim kosti
en niðurstaða um það á að fást fyrir áramót.
Aðalsteinn Guðjohnsen rafmagnsveitustjóri
sagði á blaðamannafundinum gær, að fyrirtæk-
ið hefði á undanfömum árum, einkum á síðasta
ári og nú í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar
næsta árs, lagt aukna áherslu á margs konar
hagræðingaraðgerðir. Meðal annars væri stefnt
að því að spara í rafmagnseftirliti og einnig
með setningu ítarlegra verklagsreglna fyrir
tæknilega vinnu. Einnig verði tekið í notkun
nýtt innheimtukerfí sem veiti bætta þjónustu
og fjölþættari upplýsingar en verði að auki ódýr-
ara í rekstri en það kerfi sem nú er notað. Þá
sé stefnt að nýjungum og samvinnu við Hitaveit-
una um spamað í mælaálestri hjá notendum. I
bígerð séu aðgerðir til að tryggja aukna skilvísi
í greiðslu orkureikninga. Þá hafi fyrirtækið selt
íbúðarhúsnæði sem það átti og því sé sjóðsstaða
þess góð. Loks geri áætlanir ráð fyrir aukinni
orkusölu á næsta ári.
Stöðvarhús raforkuvers fokhelt
í næsta mánuði
Framkvæmdir við raforkuverið á Nesjavöllum
standa nú sem hæst og er stefnt að því að nýja
stöðvarhúsið verði fokhelt um miðjan næsta
mánuð. Með framkvæmdunum er stefnt að tvö-
földun mannvirkja á Nesjavöllum. Gert er ráð
fyrir að vélar komi í hús í marsmánuði og að
framleiðsla raforku með fyrri vélasamstæðu
virkjunarinnar hefjist í október 1998.
Jóhann
vann
Hansen
SIGURGANGA Jóhanns
Hjartarsonar og Jonny Hector
frá Svíþjóð hélt áfram á Norð-
urlandamóti VISA í skák í
gærkvöldi. Jóhann vann Han-
sen í níundu umferð með svörtu
og Hector vann Ralf Ákesson.
Jóhann og Hector hafa l'h
vinning. í 3.-4. sæti eru jafnir
Schandorff og Djurhuus. Helgi
Áss Grétarsson sigraði John
Árna Nilssen frá Færeyjum
örugglega. Hannes Hlífar Stef-
ánsson gerði jafntefli við Tis-
dall og Þröstur Þórhallsson sat
enn að tafli móti Gausel seint
í gærkvöldi.
10. umferð verður tefld á
morgun. Þá teflir Jóhann
Hjartarson við Heiga Áss,
Hector við Tisdall og Hannes
Hlífar við Norðmanninn Djur-
huus.
Einvígi/55
Stærsti
sjóbirting-
ur á stöng
í áratugi
ÞÓRARINN Kristinsson veiddi
þann stærsta sjóbirting sem
veiðst hefur á stöng um nokkuð
langt árabil 5. október síðastlið-
inn. Birtingurinn, sem var 21
punds hængur, veiddist á Breið-
unni í Tungulæk.
Sjóbirtingar af þessari stærð
eru fágætir. Jafnstór fiskur
veiddist í net út af Dyrhólaósi í
vor og rúmlega 20 punda fiskur
veiddist í ádrátt í klakveiðum í
Tungufljóti í fyrrahaust. En það
eru nærri tveir áratugir síðan
jafnstór sjóbirtingur veiddist á
stöng og það var í Hlíðarfit í
Tungufljóti.
„Þetta var heldur betur
glíma. Þetta var í óveðrinu er
djúpa lægðin fór_yfir í byijun
þessa mánaðar. Ég hugsa að ég
hefði ekki sett í hann nema af
því að veðrið var svo vont,“ seg-
ir Þórarinn.
ÞÓRARINN með risann, 21
punds sjóbirtingshæng.
Fiskurinn beygði ásinn
„Ég var með millistærð af
silfruðum Tóbí og var svo hepp-
inn að vera með nýja 30 punda
línu. Fiskurinn var svo sterkur,
að þegar viðureignin hafði stað-
ið í rúmar 15 mínútur beygði
hann ásinn á kasthjólinu þannig
að allt sat fast. Þá var aðeins
um eitt að ræða, ég hélt jöfnu
átaki og bakkaði, en um leið og
hann fór að beijast um á
grynnra vatni, rifnaði spónninn
úr honum. Ég stökk þá til, var
kominn í vatn upp að mitti er
ég náði til hans og bara jós hon-
um upp á bakkann. Það mátti
ekki tæpara standa,“ sagði Þór-
arinn.
Þórarinn sagði að faðir hans,
Kristinn, þekktur sem Kiddi í
Björgun, hefði fengið 21 punds
birting í klakveiðiádrætti í
Tungulæk fyrir nokkrum árum
og „fyrir óralöngu fékk hann
annan sem var 24 pund. En
svona fiskar eru mjög sjaldséð-
ir“, sagði Þórarinn.
*
Islenskir hestar
til Nýja-Sjálands
SEX ÍSLENSK hross verða send til
Nýja-Sjálands í byijun nóvember
nk. Eigandi hrossanna er þýskur
hestamaður Friedhelm Sommer og
á hann búgarð á Nýja-Sjálandi og
mun ætlun hans að selja þessi hross
þegar þangað kemur.
Aðspurður sagði hann þetta ekki
fyrstu íslensku hrossin sem þangað
kæmu því fyrir væri eitt gamalt hross
af íslensku kyni sem væri reyndar
ekki notað til reiðar og hefði líklega
aldrei verið notað sem slíkt.
Friedhelm kvaðst þess fullviss að
hrossin myndu vekja athygli þama
og þetta væri hans framlag til að
auka útbreiðslu íslenska hestsins. í
hópnum er einn stóðhestur en
Friedhelm kvaðst ekki hyggja á
ræktun íslenskra hrossa á Nýja-Sjá-
landi.
Allar líkur eru á að hrossin þurfi
að dvelja tuttugu daga í London því
óheimilt er að flytja inn hross til
Nýja-Sjálands nema frá löndum inn-
an breska samveldisins.
íslensk hross/53
Norski utanríkisráðherrann dregur úr ummælum Angelsens
Ágreiningsefnin leyst
í viöræðum þjóðanna
UTANRIKISRAÐUNEYTIÐ fór
fram á það við norska utanríkis-
og sjávarútvegsráðuneytið í gær-
morgun að þau gæfu skýringar á
ummælum Peters Angelsen sjávar-
útvegsráðherra. Hann lýsti því yfir
á fimmtudag að hann vildi loka
Smugunni og íslendingar fengju
ekki kvóta þar. Knut Vollebæk,
utanríkisráðherra Noregs, hringdi
síðdegis í gær í Halldór Ásgrímsson
utanríkisráðherra og sagði að um-
mæli Angelsens hefðu verið slitin
úr samhengi og staðfesti að ágrein-
ingsmál þjóðanna yrði að leysa með
fundum.
„Við ræddum um það sem hefði
farið milli þjóðanna á undanförnum
vikum og hvemig hefði verið skilið
við málið milli mín og Björns Tore
Godal í New York fyrir þremur vik-
um. Þar komumst við að þeirri nið-
urstöðu að það væri rétt að utanrík-
isráðuneyti landanna tilnefndu
hvert sinn fulltrúa og gerðu lokatil-
raun til þess að komast að niður-
stöðu í málinu. Björn Tore Godal
átti þá samtal við Prímakov, [utan-
ríkisráðherra Rússlands], um það
mál í New York. Ég vænti þess að
ný ríkisstjóm Noregs vinni á þess-
um grundvelli. Það hefur ekki verið
boðað til þríhliða viðræðna en hins
vegar skrifaði utanríkisráðherra
Noregs bréf til Rússa 8. október sl.
í framhaldi af þessum viðræðum
og við bíðum eftir svari. Utanríkis-
ráðherra Noregs staðfesti það að
hann myndi halda áfram að vinna
að lausn málsins á þessum grund-
velli,“ sagði Halldór.
Ekki kominn inn í málin
Ný stjóm tók við í Noregi í gær
og er Angelsen sjávarútvegsráð-
herra.
Angelsen sagði á fimmtudag að
full ástæða væri til að taka ástand
fiskistofna i Barentshafi alvarlega,
einkum óvænt hrun í þorskstofnin-
um þar: „Hin mikla ofveiði, meðal
annars af íslands hálfu, er ein af
ástæðum þéssa.“ Halldór kvaðst
ekki geta tekið undir þessi orð um
þátt Islendinga, taldi þau út í hött
þar sem veiðar íslendinga hafi ver-
ið mjög litlar.
Halldór telur ekki að ummæli
Angelsens séu upphlaup af hans
hálfu. Hann kvaðst þekkja hann frá
fyrri tíð. „Hann er sjómaður af
guðs náð og vill varðveita fiski-
stofnana. Hann lýsti sínum skoðun-
um en var reyndar ekki kominn inn
í sitt ráðuneyti þegar hann gerði
það. Ég tel að samtal mitt við utan-
ríkisráðherra Noregs staðfesti það
að menn vilji halda áfram á sömu
braut," sagði Halldór.
Morgunbiaðið/Jón Svavarsson
HUGAÐ að fólkinu í fólksbílnum eftir árekstur við sjúkrabíl.
Sjúkrabíll og fólks-
bíll í árekstri
FÓLKSBÍLL lenti í árekstri við
sjúkrabíl í útkalli á Kringlumýrar-
braut í Reykjavík um hádegisleytið
í gær. Sjúkrabíllinn var á leið í Kópa-
vog vegna minni háttar óhapps þar,
sem annar sjúkrabíll var strax send-
ur í. Tvennt var í fólksbílnum og var
í fyrstu talið að annað þeirra hefði
hlotið alvarleg háls- og bakmeiðsli
en þau reyndust minni en virtist í
fyrstu. Talsverðar skemmdir urðu á
báðum bílunum.
Hnefaleika-
sýning
Stöðvar 2 til
rannsóknar
LÖGREGLAN hefur nú til skoðun-
ar hvort gripið verði til aðgerðs
vegna sýningar á hnefaleikum £
Stöð 2 í fyrrakvöld. Hún hefui
fengið upptöku af þættinum ti
skoðunar og er málið í rannsókn.
Sturla Þórðarson hjá embætt
lögreglustjóra kvaðst ekki get£
sagt hvert framhald málsins yrð
en það væri nú í rannsókn. Tald
hann ekki ósennilegt að meint bro’
á_ lögum yrði skoðað í samráði vi(
ríkissaksóknara.
Hjá lögreglunni hefur verið ti
rannsóknar frá því fyrr í sumai
sýning og kennsla í hnefaleikun:
sem boðið hefur verið uppá
Reykjavík og bætist mál Stöðvai
2 nú við þessa rannsókn. Hnefa
leikar eru með öllu bannaðir hér
lendis samkvæmt lögum nr 92 fri
1956.
I
l
Með gítarinn/62