Morgunblaðið - 18.10.1997, Blaðsíða 40
.40 LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSEIMDAR GREINAR
Grunnskólinn í
brennidepli
MALEFNI grunn-
skólans hafa verið mik-
ið til umfjöllunar að
undanförnu. Til þess
Ug0a ýmsar ástæður
m.a. yfirtaka sveitarfé-
laga á öllum rekstrar-
kostnaði grunnskóla 1.
ágúst 1996 og yfir-
>standandi kjarasamn-
ingaviðræður kennara-
félaganna og samn-
inganefndar launa-
nefndar sveitarfélaga.
Yfirfærslan
Yfirtaka sveitarfé-
laganna á öllum rekstr-
arkostnaði grunnskól-
anna er einn viðamesti verkefna-
flutningur frá ríki til sveitarfélaga
fyrr og síðar. Markviss vinna var
lögð í undirbúning yfirfærslunnar
og góð samvinna þar um milli ríkis,
sveitarfélaga og fulltrúa kennarafé-
laganna. Það var almennt mat sveit-
arstjórnarmanna og reyndar einnig
-'margra kennara og skólamanna að
sveitarfélögin hefðu náð ásættanleg-
um samningi við ríkið um flutning
tekjustofna til að mæta öllum rekstr-
arkostnaði grunnskólanna. Jöfnun-
arsjóður sveitarfélaga gegnir lykil-
hlutverki í ijármunatilfærslunni og
aukið hlutverk hans og nýjar reglur
voru forsenda þess að sveitarfélög-
unum var gert kleift að taka við
hinu nýja verkefni.
Við gerð samningsins var tekið
tillit til tiltölulega nýgerðra kjara-
. samninga við kennara og kostnað-
arhækkana sem þeir höfðu í för með
sér á samningstíman-
um. Einnig var kostn-
aðarreiknuð hver ein-
asta grein nýrra grunn-
skólalaga, svo sem
vegna ijölgunar
kennslustunda á næstu
árum, einsetningar og
aukinnar sérkennslu.
Jafnframt var sérstak-
lega metinn aukinn
stofnkostnaður vegna
ákvæða um einsetningu
skólanna en samkvæmt
samningnum leggur
ríkið og Jöfnunarsjóður
sveitarfélaga tiltekna
Ijármuni til þess verk-
efnis á þessu ári og
næstu fjórum árum, eða tæplega 2,2
milljarða króna. I heildina tekið tókst
yfirfærslan vel og hnökrar í skóla-
starfí hafa ekki verið meiri eftir að
sveitarfélögin tóku við rekstrinum
en áður var.
Aukið fjármagn til
grunnskólans
Sveitarfélögin hafa lagt mikinn
metnað í að standa vel að málefnum
grunnskólans bæði fyrir og eftir yfír-
færsluna. í fjölmörgum sveitarfélög-
um hefur grunnskólinn verið for-
gangsverkefni bæði varðandi rekst-
ur, breytingar á innra starfí og
stofnframkvæmdir. Við yfírfærsluna
varð jafnframt, fyrir frumkvæði
sveitarfélaganna, mikil aukning á
þjónustu við skólana með fjölgun
skólaskrifstofa og auknum mannafla
til að sinna þeirri þjónustu sem
fræðsluskrifstofurnar veittu áður.
Aldrei fyrr, segir
Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson, hefur
jafnmiklum fjármunum
verið varið til reksturs
grunnskólans.
Staðreyndin er sú, að aldrei fyrr
hefur jafnmiklum fjármunum verið
varið til reksturs grunnskólans. Það
á bæði við heildarfjármagn og fjár-
magn á hvem einstakan nemanda,
sbr. meðfylgjandi súlurit. Aldrei fyrr
hefur jafnmiklum fjármunum verið
varið til stofnframkvæmda í þeim
tilgangi að ná því markmiði að ein-
setja alla grunnskóla á næstu fjórum
árum og aldrei fyrr hefur jafnmiklum
fjármunum verið varið til að endur-
mennta kennara og á þessu ári. Það
er því afar ósanngjarnt og ijarri öllum
veruleika þegar reynt er að gera lítið
úr metnaði og vilja sveitarstjórnar-
manna til að vinna vel að málefnum
grunnskólans og sá málflutningur er
tengdur yfírfærslunni og yfírstand-
andi kjarasamningaviðræðum.
Kjarasamningaviðræðurnar
Sveitarfélögin hafa aldrei gert
heildarkjarasamning við kennara.
Síðast gerðu kennarar heildarkjara-
samning við ríkið í mars 1995 eftir
langt verkfall. Kjör kennara í dag
taka mið af þeim kjarasamningi.
Við yfirfærsluna gerðu kennarar
GLÆSIUPPBOÐ
Á HÓTEL SÖGU SUNNUDACSKVÖLD KL.20.30
Sennilega hafa aldrei verið boðin jafn mörg og dýr
verk gömlu meistaranna á einu uppboði.
T.d. tvö glœsiverk eftir Jón Stefánsson, 15 myndir eftir Kjarval, t.d. stór Dyrfjalla-
' mynd og mjög fágætar vatnslitamyndir, gerðar í RÓM 1920.
Nokkrar myndir eftir Jón Engilberts, m.a. “Kröfuganga”, þekkt mynd frá 1933.
Gömul blómamynd eftir Kristínu Jónsdóttm; Heklumynd eftir Júlíönu Sveinsdóttur,
Parísar módelmynd frá 1930 eftir Gunnlaug Blöndal, einnig myndir af sjómanni
og síldarstúlku. Vatnslitamynd frá því um 1910 eftir Ásgrím Jónsson afHöfða og
Laugarnesi. Nokkur verk eftir Þorvald Skúlason, t.d. stór uppstilling frá 1943 og
vatnslitamyndir frá París 1940.
Þá má nefna verk eftir Jóhann Briem, Erró, Kristján Davíðsson, Karólínu
Lárusdóttur, Svavar Guðnason, Jón Þorleifsson, Tolla og Pétur Gaut.
SÝNING UPPBOÐSVERKA í GALLERÍ BORG,
SÍÐUMÚLA 34, í DAG OG Á MORGUN,
SUNNUDAG, KL. 12.00 TIL 18.00.
ANTIKBÚÐIN OPIN Á SAMA TÍMA.
OPNUNARTILBOÐ 10-60% AFSLÁTTUR.
Síðumúla 34 Sími 5811000
Rekstrarkostnaður ríkis og sveitarfélaga vegna grunnskóla
samtals í þús. kr. (á verðlagi ársins 1997)
(áætl.)
Rekstrarkostnaður ríkis og sveitarfélaga vegna grunnskóla
á hvern nemanda (á verðlagi ársins 1997)
250.000
225.000
200.000
175.000
150.000
125.000
100.000
75.000
50.000
25.000
0
1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997
(áætl.)
kröfu um að halda öllum réttindum
sínum og skyldum óbreyttum og
varð það niðurstaðan. Ennfremur
var það eindregin ósk samtaka kenn-
ara að öll sveitarfélögin í landinu
kæmu fram sem einn samningsaðili
í kjarasamningaviðræðum við kenn-
ara. Sveitarfélögin samþykktu öll
þessa málsmeðferð. I mars si. var
gengið frá bráðabirgðasamningi
kennarafélaganna og samninga-
nefndar launanefndar sveitarfélag-
anna, þar sem sameiginlegt mark-
mið samningsaðila var að taka kjara-
samninginn til heildarendurskoðun-
ar. Ýmsir sveitarstjórnarmenn og
skólamenn hafa haldið því fram að
kjarasamningur ríkisins við kennara
torveldaði eðlilega framþróun í
skólastarfi og í honum væru ýmis
atriði sem ástæða væri til að breyta
í þeim tilgangi að ná meiri árangri
í skólastarfínu. Sameiginleg mark-
mið í bráðabirgðasamkomulagi
kennara og sveitarfélaga tóku m.a.
mið af þessari skoðun.
Sveitarstjórnarmenn gera sér
fulla grein fyrir að kennarastarfíð
er ábyrgðarmikið og að kjör kennara
þurfi að vera í samræmi við ábyrgð
þeirra og skyldur. Það er jafnframt
Ijóst að sveitarstjórnarmenn eru
reiðubúnir til að ganga eins langt
og þeim framast er unnt til að bæta
kjör kennara og þeir eru almennt
reiðubúnir til að gera betur við þá
en ýmsa aðra starfshópa, sem við
hefur verið samið að undanförnu.
Frumskilyrði þess að skynsamleg-
ur kjarasamningur verði gerður við
kennara er að samningsaðilar ræðist
við með opnum huga og skipulegum
og yfirveguðum hætti. Þjóðfélagið
gerir kröfu til þess að slík vinnu-
brögð séu viðhöfð í kjarasamninga-
viðræðunum, sem nú eru hafnar að
nýju og að með þeim hætti verði
grunnskólanemendum gefið gott
fordæmi um mannleg samskipti.
Höfundur er formaður Sambands
íslenskra sveitarfélaga.
THIH
ISLENSKA OI'l líAX
__inii
rocIí - salza - pop - carmen Ne^ra
íslenska óperan leitar að söngvurum fyrir Carmen Negra
sem er rock - salza - pop útfærsla af óperunni Carmen eftir
G. Bizet. Leikstjóri: Stewart Trotter.
Tónlistarstjórar: Callum Mcleod og Gunnar Þórðarson.
Prufusöngur í íslensku óperunni
fimmtudag 30. okt. og föstudag 31. okt.
Upplýsingar á skrifstofu íslensku óperunnar, sími 552 7033
Sjónvarp um gervihnött
Tilboð: ^
Mac afruglari kr. 26,500
Einstaklmgsbúnaður
frá kr. 47,400
Fjölrása búnaður f/fjölbýlishús,
- hagstæð verð -
L - sértUboð -