Morgunblaðið - 18.10.1997, Blaðsíða 54
54 LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
SIGRIÐUR
S UMARLIÐADÓTTIR
íslensk hross á leið
til Nýja-Sjálands
FRIEDHELM Sommer, lengst til hægri, heldur í stóðhestinn sem
fer til Nýja-Sjálands. Með honum á myndinni eru Bruno Podlech
og Hinrik Gylfason en þeir hafa aðstoðað hann við kaup á ís-
lenskum hrossum.
+ Sigríður Sumarliðadóttir
fæddist í Tungugröf í
Strandasýslu 8. maí 1916. Hún
lést í Keflavík 17. september
síðastliðinn og fór útför hennar
fram frá Fossvogskirkju 26.
september.
Okkur langar að minnast Siggu
ráðskonu, eins og við kölluðum hana
alltaf, með nokkrum orðum. Hún var
fædd og uppalin í Tungugröf í
Strandasýslu. Við kynntumst Siggu
þegar við vorum unglingsstelpur á
Súgandafirði á 8. áratugnum. Hún
var þá komin undir sextugt. Við
vorum til skiptis ásamt öðrum stúlk-
um í vinnu hjá henni við að matreiða
og gefa verkamönnum og sjómönn-
um að borða. Við kunnum ekki neitt
til slíkra verka áður en við hófum
störf hjá henni og þannig vildi hún
hafa það, sagði oft að hún vildi held-
ur hafa ungar stúlkur í vinnu sem
ekki kynnu neitt, þá gæti hún kennt
þeim að vinna. Reyndar húsmæður
vildi hún helst ekki, þá varð ágrein-
ingur í eldhúsinu um það hvernig
átti að vinna verkin. Svona var
Sigga, aldrei nein hálfvelgja. Vinru-
dagur hennar var óhemjulangur, hún
átti eiim fridag í viku en alla hina
dagana vann hún til 22.30 og stund-
um lengur. Hún kvartaði samt ekki
og virtist aldrei vera þreytt. Vinnan
gaf henni mikið og var hennar líf,
mötuneytið var í raun heimili henn-
ar. Sigga hafði sem ung stúlka geng-
ið í Kvennaskólann á Blönduósi og
mestallan sinn starfsaldur vann hún
við matreiðslu. Kostgangarahópur-
inn var fjölbreyttur, margt ungt fólk
sem var að fara að heiman í fyrsta
skipti og kunni misvel fótum sínum
forráð. Einnig voru margir eldri í
hópnum sem höfðu farið víða og
gengið misvel í lífinu. Sigga var allt-
af tilbúin að spjalla og reyna að leið-
beina þessu fólki. Hún fylgdist með
ástarævintýrum og tók þátt í ástar-
sorgunum og hafi hún brosað að
okkur í laumi tókst henni að halda
því vandlega leyndu.
Ekki fer hjá því að í stórum hópi
fólks eru alltaf einhveijir sem standa
höllum fæti og verða að skotspæni
þeirra sem telja sig yfir þá hafna.
Nútíminn kallar þetta einelti. Væri
eitthvað slíkt á ferðinni, var Siggu
að mæta, hún lét það ekki líðast að
minni máttar væru hafðir að at-
hlægi og sá sem vogaði sér slíkt var
samtundis tekinn ómjúklega á beinið
og var ekki öfundsverður. Sigga var
mikil fjölskyldumanneskja þrátt fyr-
ir að líf hennar fengi ekki að þróast
á þann veg, hún átti einn son, Þórð,
sem var augasteinninn hennar ásamt
bömum hans. Þórður hafði ekki alist
upp hjá henni nema að hluta, fædd-
ur fyrir hjónaband og á fimmta ára-
tugnum var sú leið oft valin að börn
ólust upp árinars staðar en hjá
mæðrum sínum væru aðstæður
þannig. Þetta hafði sett mark sitt á
Siggu. Þessa reynslu sína nýtti hún
þannig að hún studdi ungu stúlkurn-
ar mjög vel sem voru að eignast
börn. Þannig voru þær margar sem
hún í raun gekk í móðurstað.
Eftir að Sigga fór frá Súganda-
firði fluttist hún til Keflavíkur og
bjó þar til æviloka. Að leiðarlokum
viljum við þakka Siggu fyrir alla
hennar umhyggju og senda aðstand-
endum samúðarkveðju.
María Játvarðardóttir og
María Kristjánsdóttir.
IIIXIAH
ÞÝSKUR eigandi íslenskra hesta,
Friedhelm Sommer, hyggst í byijun
nóvember flytja sex íslenska hesta
til Nýja-Sjálands á búgarð sem
hann á þar. Friedhelm sem er gift-
ur nýsjálenskri konu, Elizabeth,
hefur átt búgarð þar um árabil þar
sem unnið er að endurbótum og
munu hestarnir verða fluttir þang-
að að þeim loknum.
Tilganginn með þessu segir
Friedhelm vera þann að kynna ís-
lenska hestinn í þessum heimshluta
en hann kveðst þess fullviss að
hann eigi fullt erindi þangað.
Reyndar segir hann það sína bjarg-
föstu trú að íslenski hesturinn eigi
eftir að ná heimsútbreiðslu, þetta
sé aðeins spurning um vilja til að
markaðssetja og að sjálfsögðu
tíma. En áhuga sinn á íslenska
hestinum segir Friedhelm að megi
rekja til bakvandamáls sem hann
hefur átt við að stríða. Hann hafi
stundað hestamennsku á stórum
hestum en ekki getað það lengur
og því hafi hann leitað nýrra kosta.
Hann fór í fyrsta skipti á bak ís-
lenskum hestum á íslandi en segir
að sér hafi ekki litist meir en svo
á gripina og í raun ekki trúað því
að þeir gætu borið hann. En eftir
einn dag á baki var hann ekki í
vafa um að þetta væri rétti hestur-
inn og keypti hann fyrsta hestinn
af Bruno Podlech á Wiesenhof en
Friedhelm býr í Burbach sem er
næsta þorp við búgarðinn.
í dag eiga Friedhelm og Eliza-
beth um 30 íslensk hross og er um
helmingur þeirra á íslandi. Sex af
þessum hrossum ætla þau með til
Nýja- Sjálands en ýmis ljón eru í
veginum sem eftir er að ryðja úr
vegi. Þar er helst að nefna að aðeins
má flytja hross til Nýja-Sjálands
frá öðrum löndum innan breska
samveldisins sem þýðir að þessi
hross sem hann hyggst fara með
verða að fara til London og vera
þar minnst 20 daga í geymslu til
að uppfylla þessi skilyrði. Þá er
flutningskostnaður mikill og er
verið að reyna að finna ódýrasta
kostinn í þeim efnum. Gerði hann
ráð fyrir að verða að borga 10 til
12 þúsund mörk eða um fjögur til
fimm hundruð þúsund krónur fyrir
flutning á hveiju hrossi. En þrátt
fyrir þetta væri búið að panta far
og færu hrossin 4. nóvember.
Hugmyndin væri að selja öll
hrossin þegar út kæmi en ekki að
hefja ræktun hrossa þama. Þetta
væru allt góð reiðhross og þar á
meðal einn stóðhestur sem hann
keypti af Bruno Podlech. Hann
hefði valið hross með fallegum lit
og taldi hann líklegt að hrossin
mundi vekja verðskuldaða athygli
og gæti það orðið kveikjan að út-
breiðslu íslenska hestins á Nýja-
Sjálandi.
Ekki fyrstu íslensku
hrossin
Aðspurður sagði hann þetta ekki
fyrstu íslensku hrossin sem stigju
á land í Nýja-Sjálandi því hann
vissi um konu sem ætti gamla
hryssu af íslensku kyni. „Hún er
ekki notuð til reiðar en nú fá Nýsjá-
lendingar fljótlega tækifæri til að
fara á bak íslenskum hestum,"
sagði Friedhelm Sommer að lokum.
Valdimar Kristinsson
AOAUGLVSINGAR
ATVIIMIMU-
A U G LÝ SINGAR
Hálfsdags skrifstofu-
starf á ísafirði
Starfsmaður vanur tölvubókhaldi óskast til
starfa á ísafirði. Vinnutími frá kl. 13—17.
Upplýsingar í síma 456 3155.
TILK VIMIMIIMG AR
Viðtalstímar um fjárlaga-
frumvarp 1998
Fjárlaganefnd Alþingis veitir nú eins og undan-
farin ár viðtöku erindum frá stofnunum, félög-
um, samtökum og einstaklingum er varða fjár-
lög næsta árs.
Þeim sem vilja, er gefinn kostur á því að fylgja
erindum sínum eftir á nefndarfundi. Panta ber
tíma eigi síðar en 31. október í síma 563 0700.
Viðtöl við fulltrúa stofnana fara fram 3.-5.
nóvember, en önnur viðtöl verða eftir nánari
ákvörðun nefndar.
Fjárlaganefnd Alþingis.
TILBOÐ/ÚTBOÐ
\ Húsgögn — Tilboð
* Sendiráð Bandaríkjanna óskar eftir tilboðum
* í notaðan hús- og skrifstofubúnað í eigu sendi-
ráðsins. Hlutirnir verða til sýnis á Smiðshöfða
1 (inní portið), laugardaginn 18. októbermilli
* kl. 10.00 og 14.00. Aðeinsertekiðviðtilboðum
, á staðnum á þeim tíma. Tilboðin verða opnuð
* mánudaginn 20. október.
TIL SOLU
I
SMAAUGLYSINGAR
Lagersala
— mikið fyrir lítið
VJERO JVIODA' dömufatnaður
barnafatnaður
JACKajohes herrafatnaður
Nýtt kortatímábil
Opnunartími lau. 10—16, sun. 12—18.
Laugavegi 97,
inngangur bakatil.
Handverksmarkaður
á Eiðistorgi, Seltjarnarnesi
verður haldinn í dag frá kl. 10—18. Milli 40—50
listamenn sýna og selja vörur sínar.
Kvenfélagið Seltjörn sér um kaffiveitingar.
HEIMDALLUR
FELAGSSTARF
Ungt fólk í prófkjöri
Til að vinna borgina aftur í hendur sjálfstæðismanna
er brýnt mál að ungt fólk veljist í örugg sæti á lista
Sjálfstæðisflokksins í prófkjörinu sem fram fer 24.
F • U • ~S og 25. október.
í kvöld, laugardagskvöldið 18. okt. mun Heimdallur, félag ungra
sjálfstæðismanna I Reykjavík, halda fund með ungum frambjóðendum
(35 ára og yngri). Fundurinn verður haldinn í Valhöll, á Háaleitisbraut
1, og hefst hann kl. 20.00.
• Anna Fr. Gunnarsdóttir,
útlitshönnuður.
• Ágústa Johnson,
líkamsræktarþjálfari.
• Baltasar Kormákur,
leikari.
• Eyþór Arnalds,
hljómlistarmaður.
• Guðlaugur Þór Þórðarson,
útvarpsstjóri.
• Halldóra M. Staingránsdóttir,
snyrtifræðingur.
• Kjartan Magnússon,
blaðamaður.
• Svanhildur Hólm Valsdóttir,
háskólanemi.
Allir velkomnir.
Stjórn Heimdallar.
ÝMISLEGT
Handverkssýning
í göngugötu í Mjódd
ídag frákl. 10.00-16.00.
FÉLAGSLÍF
FERÐAFÉLAG
# ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SÍMI 568-2533
Sunnudagsferðir 19. okt.
Kl. 10.30 Vatnshlíðarhorn —
Kálfadalur — Grænavatn.
Ný og skemmtileg gönguferð
austan Kleifarvatns.
Kl. 13.00 Selvogur — Strand-
arkirkja. Létt ganga um strönd-
ina og margt að sjá. Tilvalin fjöl-
skylduferð. Verð 1.400 kr., frítt f.
börn 15 ára og yngri.
Brottför frá BSÍ, austanmeg-
in, og Mörkinni 6.
Minnum áskrifendur og aðra
á afmælisbókina, Konrad
Maurer íslandsferð 1858.
Allir ættu að eignast þessa
stórmerku bók sem einnig er
bráðskemmtileg aflestrar.
Ferðafélag íslands.
Dagsferð
Sunnudaginn 19. okt. Selvogur
— Þorlákshöfn. Komið við í
Strandakirkju. Brottför frá BSÍ
kl.10.30. Verð kr. 1.500/1.800.
Ekki missa af áramótaferð-
inni! Miðasala stendur yfir á
skrifstofu Útivistar.
Heimasíða: centrum.is/utivist
Miðillinn og heilarinn
Brynjar Þormóðsson er kominn aft-
ur með heilun, ráðgjöf og fyrri líf.
Upplýsingar í síma 551 0682 frá
kl. 12.00—14.00 og á kvöldi
Frá Sálar-
rannsóknar-
félagi
íslands
Bjarni Kristjáns-
son miðill verður
með opinn um-
breytingafund i
Garðastræti 8
sunnudaginn 19.
október kl. 20.00.
Húsið opnað kl. 19.30. Miðasala
á skrifstofunni og við innganginn.
Allir velkomnir meðan húsrúm
leyfir.
Upplýsingar í símum 551 8130
og 561 8130 og á skrifstofunni,
Garðastræti 8.
Aðalstöðvar
KFUM og KFUK,
Holtavegi 28.
Almenn samkoma og barna-
stundir kl. 17.00.
„Að fyrirgefa af hjarta..." Ræðu-
maður: Þórarinn Björnsson.
Einsöngur: Bylgja Dís Gunnars-
dóttir. Léttur málsverður til sölu
eftir samkomuna.
Allir hjartanlega velkomnir.
Októbervaka kl. 20.00.
Þorvaldur Halldórsson leiðir lof-
gjörð. Hugleiðing: Hrönn Sigurð-
ardóttir. Fyrirbæn.
Vertu innilega velkominn.
Dalvegi 24, Kópavogi
Almenn samkoma í dag kl. 14.00
Allir hjartanlega velkomnir.
- kjarni málsins!