Morgunblaðið - 18.10.1997, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Kristján Ragnarsson formaður Landssambands íslenskra útvegsmanna um málefni Sjómannaskólans
Til greina kemur að
atvinnugreinin taki
að sér reksturinn
RISTJÁN Ragnarsson, for-
maður Landssambands ís-
lenskra útvegsmanna, seg-
ist telja það vel koma til greina að
rekstri Sjómannaskóla íslands, þ.e.
Stýrimannaskólans og Vélskólans,
verði breytt á þann hátt að atvinnu-
greinin sjái um rekstur hans með
samningum við ríkið um greiðslu
kostnaðarins við reksturinn, þannig
að hann yrði með svipuðum hætti
og rekstur Verzlunarskólans er í
dag. Hann telur æskilegt að skólinn
flytji í nýtt húsnæði í nágrenni
Tækniskólans eins og nefnd um
framtíðarhúsnæði háskóla telur að
eigi að gera.
Skólameistarar Stýrimannaskól-
ans og Vélskólans telja fráleitt að
flytja skólana úr núverandi húsnæði
í Sjómannaskólanum í húsnæði við
Höfðabakka, og Guðjón A. Krist-
jánsson, formaður Farmanna- og
fiskimannasambandsins, segist einn-
ig vera andvígur þeirri hugmynd.
Kristján Ragnarsson sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að hugmyndin
um að atvinnugreininn tæki að sér
rekstur Stýrimannaskólans og Vél-
skólans hefði enn sem komið væri
ekki verið rædd alvarlega, en áskor-
un um slíkt hefði komið fram á fundi
með menntamálaráðherra. Eftir því
sem hann sjálfur hugsaði meira um
það hvort ekki væri rétt að breyta
rekstrarformi skólanna á þennan
hátt teldi hann það vel koma til
greina.
„Ég tel að atvinnugreinin eigi að
standa frammi fyrir ábyrgð á því
hvaða námsefni sé kennt í þessum
skólum og hvað henti mönnum að
nema til að gegna þeim störfum sem
kennd eru í skólunum. Ég tel að
atvinnugreinin sé mun hæfari til
þess mats heldur en opinberir emb-
ættismenn eins og verið hefur. Þetta
form sem Verzlunarskólinn er rekinn
á tel ég vera miklu nútímalegra og
miklu opnara fyrir breytingum og
framförum heldur en sá ríkisrekstur
sem er á þessum skólum í dag. Ég
tel því koma til greina að atvinnu-
Veruleg andstaða er
meðal stjómenda Sjó-
mannaskóla íslands og
forystumanna sjó-
manna við flutning skól-
ans. Formaður LÍÚ er
fylgjandi því að flytja
skólann ogtelur jafn-
framt koma vel til
greina að atvinnugrein-
in taki að sér rekstur
skólans.
greinin komi inn í þetta á þennan
hátt, en ég get ekki sagt að LÍÚ
telji það. Mér finnst að við eigum
virkilega að velta því fyrir okkur að
verða við þessari áskorun," sagði
Kristján.
Hann sagði að ef af þessu yrði
teldi hann ekki óskynsamlegt að
flytja skóiana í annað og hentugra
húsnæði og byggja þá þar upp á
nútímalegan hátt. Nefndi hann í
þessu sambandi flutning Verzlunar-
skólans í nýtt húsnæði á sínum tíma,
sem vafaiaust hentaði skólanum
mun betur en það húsnæði sem skól-
inn var áður í.
„Að vera að horfa á eitthvert hús
sem hið eina rétta til að hýsa svona
skóla við breyttar aðstæður er ekki
málið. Það eru ekki nægileg rök að
Stýrimannaskólinn og Vélskólinn
verði til eilífðarnóns í þessu húsnæði
þótt á því sé innsiglingarmerki,"
sagði Kristján.
Engin skynsemisrök
fyrir flutningi
Guðjón A. Kristjánsson, sagði að
hann teldi hugmyndina um að flytja
skólana vera ranga og óæskilegt að
fara þá leið.
„Ég byggi þetta á því að hús-
næðið er þarna til staðar, en það
þarf að vísu að lagfæra það enda
hefur það ekki fengið viðhald á und-
anförnum árum. Það er ágætlega
staðsett fyrir sjómannamenntunina
og búið að byggja upp aðstöðu í
kringum það bæði með vélasölum
fyrir Vélskólann og tækjasölum fyr-
ir Stýrimannaskólann. Ég sé engin
sérstök skynsemisrök fyrir því að
’flytja þetta og ég er þess vegna
andvígur því. Vissulega má laga inn-
viði í húsinu, en það þarf jafnt að
gera það fyrir þessa skóla og aðra
skóla, og það verður ekkert kostnað-
arsamara fyrir þá heldur en uppeld-
isbraut á fræðslustiginu. Ríkið þarf
að sjá sóma sinn í að halda eignum
sínum við og láta þær ekki grotna
niður,“ sagði Guðjón.
Starfsmenn allir
á móti flutningi
Þeir Guðjón Ármann Eyjólfsson,
skólameistari Stýrimannaskólans,
og Björgvin Þór Jóhannsson, skóla-
meistari Vélskóla íslands, segja að
þeir telji fráleitt að flytja skólana
úr Sjómannaskólahúsinu, og Guðjón
Ármann segir kennara skólanna og
starfsmenn alla vera á sama máli.
„Auðvitað hafa menn tilfinningar
til þessa húss eins og ráðherrann
segir en þetta er miklu meira en
það, því það kostar sennilega 1,5-2
milljarða króna að flytja skólana í
þetta gamla iðnaðarhúsnæði sem
rætt er um,“ sagði Guðjón Ármann.
Hann sagði að Sjómannaskólinn
væri á margan hátt tákn sjómanna-
stéttarinnar auk þess að vera leiðar-
vitinn inn til Reykjavíkur. Þá hefði
verið lagt til að á lóð Sjómannaskól-
ans yrði byggð sameiginleg félags-
miðstöð fyrir Kennaraháskólann og
Sjómannaskólann og nær væri að
snúa sér að því að gera það.
Björgvin Þór sagði að hann sæi
ekki að verið væri að leysa neinn
vanda fyrir Sjómannaskólann með
því að flytja starfsemina í annað
húsnæði heldur væri verið að leysa
vanda annarra með því.
„Þessi flutningur myndi valda
miklu róti, en við höfum mikla mögu-
leika til að byggja upp og þróa þessa
kennslu hérna áfram. Það vita hins
vegar allir að húsin hafa verið í nið-
urníðslu og við höfum fengið allt of
lítið fjármagn til að halda þessu við.
En að þetta sé einhver lausn að flytja
okkur úr þessu húsnæði og setja
okkur inn í verksmiðjuhúsnæði sem
aðrir eru að flytja úr þýðir bara að
það er verið að setja okkur ansi
mikið niður. Það kemur kannski
fram í þessu eins og ýmsu öðru það
vanmat á verk- og tæknimenntun
sem virðist vera dálítið ríkjandi hér
í þjóðfélaginu," sagði Björgvin.
Staðalbúnaðurinn í Baleno langbak er ríkulegur - m.a. 2 öryggis-
loftpúðar, rafmagn í rúðum og útispeglum, samlæsingar, vökva- og
veltistýri, toppgrind, upphituð framsæti, útvarp og segulband með 4
hátölurum, vindkljúfur með hemlaljósi að aftan, bensínlok opnanlegt
innanfrá, geymsluhólf undir farangursrými og draghlíf yfir farangursrými.
AflmíkiU, rúmgóður, öruggur
og einstaklega hagkvœmur
með notagildið í fyrirrúmi
SUZUKI
AFL OG
ÖRYGGl
SUZUKI BÍLAR HF
SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sími 431 28 00. Akureyri: BSA hf., Laufásgötu 9, sfmi 462 63 00. Eqilsstaðir: Bila- og búvélasalan hf., Miðási 19, sími 471 20 11.
Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, simi 555 15 50. Keflavík: BG bilakringlan, Grófinni 8, simi 421 12 00. Selfoss: Bílasala Suðurlands, Hrismýri 5, sími 482 37 00.
Skeifunni 17, 108 Reykjavík.
Sími 568 51 00.
iBALENO WAGON 1998
4WD: 1.595.000 kr.