Morgunblaðið - 18.10.1997, Page 6
6 LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Ný fiskréttaverksmiðja Iceland Seafood Corp. formlega opnuð í Virginíu í gær
ÞETTA er stór dagur í lífi
okkar starfsmanna Ice-
land Seafood Corporati-
on. Við eigum nú full-
komnustu fískréttaverksmiðju í
heimi. Við uppfyllum ströngustu
skilyrði, sem gerð eru til matvæla-
vinnslu í Bandaríkjunum. Engin
önnur verksmiðja fyrir sjávaraf-
urðir í Bandaríkjunum gerir svo
miklar kröfur um hreinlæti, gæði
og aðbúnað,“ sagði Hal Carper,
forstjóri Iceland Seafood Corpor-
ation, þegar ný fiskréttaverksmiðja
fyrirtækisins var formlega opnuð
í bænum Newport News í Virginíu
í Bandaríkjunum.
Þorsteinn Pálsson, sjávarút-
vegsráðherra, lýsti verksmiðjuna
formlega tekna í notkun og klippti
á borða við aðaldyr verksmiðju-
hússins ásamt Hal Carper, fylkis-
stjóra Virginíu og borgarstjóra
Newport News. Hann flutti einnig
stutta ræðu við þetta tilefni og
lagði áherslu á mikilvægi íslensks
sjávarútvegs fyrir þjóðina og ósk-
aði íslenskum sjávarafurðum hf.
til hamingju með hina nýju verk-
smiðju.
Reist á níu mánuðum
Fylkis- og borgarstjórnir
veittu 70 milljóna kr. styrki
„Eigiim fullkomn-
ustu fiskréttaverk-
má lokið. Sem dæmi um umfang
framkvæmdanna má nefna að
flytja þurfti burt jarðveg úr grunn-
inum sem nam rúmlega ijögur
þúsund vörubílsförmum og nýjan
jarðveg til baka sem svarar til ríf-
lega fimm þúsund vörubílsfarma.
__ 160 gestir komu frá
íslandi með leiguflugi
smiðju í heimi“
Mikið var um dýrðir í bænum nýja fiskréttaverksmiðju sem
Newport News í Bandaríkjunum kostaði 1800 milljónir króna
í gær þegar íslenskar sjávaraf- að byggja. Hjörtur Gíslason
urðir tóku formlega í notkun fylgdist með athöfninni.
Við vígslu verksmiðjunnar var
mikill frjöldi gesta, m.a. meira en
160 íslendingar, sem komu með
leiguflugi til borgarinnar. Auk
gesta frá íslandi og Bandaríkjun-
um komu gestir frá Þýskalandi,
Spáni, Frakklandi, Bretlandi,
Brasilíu og Noregi. Bæði borgar-
stjóri Newport News og fylkisstjór-
inn fluttu ræður við opnunina þar
sem þeir lögðu mikla áherslu á
þýðingu verksmiðjunnar fyrir at-
vinnu- og efnahagslíf í fylkinu.
Verksmiðjan var reist á aðeins
um níu mánuðum og kostar hún
um 25 milljónir bandaríkjadala
sem svarar til 1.800 milljóna ís-
lenskra króna. Verksmiðjan er
14.400 fermetrar að stærð og lóð-
in mun stærri og miklir möguleikar
á stækkun verksmiðjunnar í fram-
tíðinni. Um 225 manns munu vinna
í verksmiðjunni og áætluð árleg
framleiðsla er hátt í 30 þúsund
tonn. Veltan á þessu ári verður
um 120 milljónir bandaríkjadala
og veltan á því næsta er áætluð
122 milljónir. Hal Carper segir að
stefnan sé sett á 200 milljóna doll-
ara veltu.
Ekki liggja fyrir upplýsingar um
markaðshlutdeild einstakra fyrir-
tækja, en Iceland Seafood er
stærsti framleiðandi unninna físk-
afurða í Bandaríkjunum. Fram-
leiðsluvörur eru mjög fjölbreyttar,
en mikið er framleitt af fískstykkj-
um í deigi og brauði. Vöruflokkar
eru fimm til sex hundruð. Fiskur
til vinnslu í verksmiðjunni er keypt-
ur frá öllum heimshornum, en um
helmingurinn er keyptur frá ís-
landi.
Forskot á
keppinautana
„Þessi nýja verksmiðja hefur
mikla þýðingu fyrir íslenskar sjáv-
arafurðir," segir Benedikt Sveins-
son, forstjóri IS og stjómarformað-
ur ISC. „Við höfum starfað á þess-
um mikilvæga markaði í Banda-
ríkjunum í langan tíma. Við viljum
festa okkur í sessi hér. Þetta hefur
mikil áhrif á markaðsmál ÍS og
efnahag fyrirtækisins. Við væntum
töluverðs hagnaðar af rekstri verk-
smiðjunnar í framtíðinni. Þetta er
fullkomnasta fiskréttaverksmiðja í
heimi og framtíðin er því björt.
Við sjáum fram á aukna sölu og
höfum fest okkur í sessi sem
stærsti framleiðandi tilbúinna físk-
rétta í Bandaríkjunum og höfum
því gott forskot á helstu keppi-
nauta okkar,“ segir Benedikt
Sveinsson.
Færir okkur heim
hærra verð fyrir fiskinn
Morgunblaðið/Hjörtur Gíslason
FJOLDI gesta var samankomin í Newport News í Virginíu í gær þegar Þorsteinn Pálsson sjávarút-
vegsráðherra opnaði formlega nýja fiskréttaverksmiðju Iceland Seafood Corporation. Hér er
ráðherrann fyrir utan verksmiðjuna ásamt Benedikt Sveinssyni, forstjóra íslenskra sjávarafurða
og stjórnarformanni Iceland Seafood Corporation.
Iceland Seafood hefur um árabil
rekið fiskréttaverksmiðju í Camp
Hill í Pennsylvaníu, en henni verð-
ur lokað í lok mánaðarins. Verk-
smiðjan hefur verið auglýst til sölu
og að sögn Hal Carper er mikil
eftirspum eftir henni. Sú verk-
smiðja er orðin gömul og þarfnað-
ist mikillar endurnýjunar. Þá var
ákveðið að reisa frekar nýja verk-
smiðju og komu um þrjátíu staðir
til greina, en Newport News varð
fyrir valinu. Bæði fylkisstjórnin og
borgarstjómin veittu fyrirtækinu
styrki, alls að upphæð um 70 millj-
ónir ísl. króna vegna byggingarinn-
ar, en Hal Carper segir að auk
þess séu vinnulaun og launatengd
gjöld mun lægri hér en í Pennsyl-
vaníu. Auk þess þurfí nú færra
fólk til að framleiða meira magn
og því séu afkomumöguleikamir
mjög góðir.
Framkvæmdir við verksmiðjuna
hófust 15. janúar á þessu ári og í
dag er framkvæmdum að heita
Jóhann A. Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Hraðfrystistöðvar
Þórshafnar og stjórnarmaður ISC,
segir hina nýju verksmiðju hafa
mikla þýðingu fyrir íslenska fisk-
framleiðendur. Mikil vöruþróun
fyrir bandaríska markaðinn sé
stunduð þar og mikið selt af flökum
og flakabitum sem framleitt sé á
íslandi. „Mikill styrkur í fram-
leiðslu og sölu unninna rétta eykur
um leið sölu flakanna. Aukin vöm-
þróun leiðir af sér aukið verðmæti
afurðanna og færir okkur heim
hærra verð fyrir fiskinn," segir
Jóhann.
FylÍtu tölvuna af tungumálaþekkingu
Framsókn-
arflokkur
flytur starf-
semi sína
Töivuorðabækumar eru orðabækur á tölvutæku formi.
Hægt er að fletta upp orðum, sjá skýringar, rétta stafsetningu
og leiðrétta villur í texta. Ómissandi í námi og starfi.
STEFNT er að því að Framsókn-
arflokkurinn flytji starfsemi sina
í Hverfisgötu 33, húsið á horni
Klapparstígs og Hverfisgötu,
sem kennt er við Skrifstofuvélar.
Þetta staðfesti Egill Heiðar
Gislason, framkvæmdastjóri
Framsóknarflokksins, í samtali
við Morgunblaðið.
Hverfisgata 33 er í eigu Olíufé-
lagsins hf. Húsið hefur að mestu
staðið autt um skeið en fyrir for-
setakosningarnar í fyrrasumar
var þar til húsa kosningaskrif-
stofa stuðningsmanna Ólafs
Ragnars Grímssonar.
Egill Heiðar Gíslason sagði að
Framsóknarflokkurinn hefði
verið að skoða húsnæðismál sín
og miklar líkur væru á að starf-
semi flokksins flyttist á Hverfis-
götuna um eða upp úr áramótum.
Ekki eru hins vegar líkur á að
Framsóknarflokkurinn sjálfur
kaupi húsnæðið. „En félög tengd
flokknum eru að kanna kaup á
þessu húsi. Það liggur ekkert
fyrir ennþá um hvernig það verð-
ur,“ segir Egill Heiðar.
Landsbankinn eignast
Hafnarstræti 20
Framsóknarflokkurinn, sem
hefur þijá starfsmenn, er nú til
húsa í Hafnarstræti 20 í Reykja-
vík. Það húsnæði var í eigu
Skúlagarðs, hlutafélags í eigu
Framsóknarflokksins, kjör-
dæmasambanda flokksins og um
500 einstaklinga. Rekstrarfélag
Landsbankans hefur nú eignast
Hafnarstræti 20 og leigir flokk-
urinn húsnæðið af rekstrarfélag-
mu.
Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins er það Skúla-
garður sem er að skoða kaup á
Hverfisgötu 33, sem er tæplega
1.000 fermetra hús, undir starf-
semi flokksins.
íslendingar
mega kjósa til
sveitarstjórna
í Danmörku
l
I
r
i
í
I
I
L
i
L
§
i
©
DÖNSKU kosningalögunum hefur
verið breytt á þann veg að allir Is-
lendingar og Norðmenn búsettir í
Danmörku hafa kosningarétt í kom-
andi bæjar- og sveitarstjórnarkosn-
ingum þar í landi, svo framarlega
sem þeir hafa skráð lögheimili þar
í landi viku fyrir kjördag, sem er
18. nóvember.
Fram að þessu hafa aðeins þeir
Islendingar sem búið hafa í landinu
í þijú ár samfleytt haft kosninga-
rétt í bæjar- og sveitarstjómarkosn-
ingum en samkvæmt Maastricht-
sáttmálanum eiga borgarar Evr-
ópusambandslandanna sem búa í
öðru landi innan sambandsins rétt
á því að kjósa til bæjar- og sveitar-
stjóma þar.
í danska sendiráðinu fengustþær
upplýsingar að um það hefði verið
tekin ákvörðun í danska þinginu
nýverið að íslendingar og Norð-
menn skyldu njóta sömu réttinda
og þegnar Evrópusambandsland-
anna hvað kosningarétt til sveitar-
stjórna varðaði. Um fjögur þúsund
íslendingar búa nú í Danmörku.