Morgunblaðið - 18.10.1997, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Stærð Vetrardekk ónegld negld
155 R13- 4.300- 5.290-
165 R 13 4.810- 5.800-
175/70 R 13 4.800- 5.790-
185/70 R 14 5.850- 6.840-
185/65 R 15 6.200- 7.190-
LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1997 9
-------------------1
Uppgefin verðdæmi miðast við staðgreiðslu og geta breyst án fyrirvara.
MATAB9R I
Umfelgun og jafvægisstílling |
kostar 2.970- ^
HJÓLBARDAVERKSTÆÐID |
_ KALDASEL EHF. I
Skipholti 11-13, Brautarholtsmegin, Rvík, sími 561-0-200
OPIÐ VIRKA DAGA 8-19, LAUGARD. 9-16 OG SUNNUD.13-16
Námskeið verða
haldin vegna
tíðra búðarrána
FORVARNADEILD lögreglunnar í
Reykjavík í samstarfi við Kaup-
mannasamtökin og Verslunar-
mannafélag Reykjavíkur mun í
næstu viku halda námskeið í við-
brögðum við búðarránum fyrir eig-
endur og starfsfólk verslana í
Kringlunni. Að sögn Sigurðar Jóns-
sonar, framkvæmdastjóra Kaup-
mannasamtakanna, er gert ráð fyrir
að slík námskeið verði síðar einnig
haldin fyrir verslunarfólk í miðborg-
inni og rætt er um halda þau í versl-
unum á landsbyggðinni.
„Söluturnarnir eru að vísu mesta
áhættusvæðið en vandinn er sá að
þeir skipta oft um eigendur og
starfsfólk og mikið af þessu fólki
stendur utan við öll samtök. Það er
því erfitt fyrir okkur að ná til þess.
Við ætlum samt að reyna að finna
leiðir til að halda sérstaka fundi með
þeim,“ segir Sigurður.
Samkvæmt upplýsingum frá Karli
Steinari Valssyni, aðstoðaryfirlög-
regluþjóni í forvarnadeild lögreglunn-
ar í Reykjavík, hafa helmingi fleiri
búðarrán verið framin það sem af
er þessu ári heldur en á sama tíma
í fyrra. Átta búðarrán hafa verið
framin frá áramótum. Ránum af öðru
tagi hefur einnig fjölgað um helming
frá því í fyrra. Karl segir að sama
þróun sé að verða á Norðurlöndum.
Guðmundut' B. Ólafsson, lögfræð-
ingur Verslunarmannafélags
Reykjavíkur, segir að forystumenn
félagsins hafi þungar áhyggjur af
aukningu búðarrána. „Með nám-
skeiðunum viljum við fyrst og fremst
kenna fólki að bregðast við án þess
að stefna eigin lífi í hættu, en einn-
ig að kenna þeim að vera vakandi
fyrir því sem hjálpað gæti til við að
upplýsa ránin. Við höfum líka rætt
Morgunblaðið/RAX
það að veita félagsmönnum okkar
sem lenda í þessu áfallahjálp."
Verslunarmannafélag Reykjavík-
ur hefur að sögn Guðmundar verið
með kynningar í grunnskólum um
réttindi þeirra sem vinna í söluturn-
um, enda séu það í mörgum tilvikum
unglingar. „Þar komum við meðal
annars inn á það hvernig þau eigi
að bregðast við svona aðstæðum."
Guðmundur telur að ein skýringin
á fjölgun rána gæti verið lengdur
afgreiðslutími verslana. „Þessi
breyting gerir það að verkum að það
eru orðnir enn færri í búðunum held-
ur en voru og það býður hættunni
heim. Mér finnst að kaupmenn ættu
að hugsa betur um öryggismál
starfsmanna í þessu samhengi."
Fjölgun rána vegna
debetkorta?
Guðmundur telur að önnur ástæða
fyrir tíðum ránum geti verið fjölgun
debetkorta. „Menn eiga ekki eins
auðvelt með að falsa ávísanir eins
og áður var. Þeir ná sér þá í pen-
inga á annan hátt.“
„Þessir söluskálar eru orðnir nán-
ast einu staðirnir þar sem einhvetjir
peningar eru eftir,“ segir Sigurður
hjá Kaupmannasamtökunum. „Aðrir
eru að mestu komnir í kortavið-
skipti. Við höfum bent félagsmönn-
um okkar á að takmarka sem mest
þær upphæðir sem eru aðgengilegar
í verslunum. Það fást til dæmis á
tiltölulega vægu verði peningaskáp-
ar sem eru svipaðir og póstkassar
sem starfsfólkið kemst ekki í. Þá er
ekkert í kössunum nema skiptimynt.
Þó að svona staðir séu með öryggis-
kerfi og jafnvel þó að starfsmenn
séu fleiri en einn virðist það ekki
koma í veg fyrir svona rán.“
Ný sending frá KS
Frakkar, dragtir, buxur, peysur.
jT(U
Skólavörðustíg 4, sími 551 3069
ÁFS Á ÍSL4NDI
Alþjóöleg fræösla og samskipti
-4C dra-
1957 '997
I ICVÖLD l8. OKTÓBER 1997 Á HÓTEL BoRG
-HÚSIÐ OPNAR KL. 19.00 EN BORÐHALD HEFST KL. 20.00
-Þríréttaður kvöldverður og dansleikur
-Veislustjóri Davíu Þór Jónsson
-Miðaverð 3000 KR.
Fæðingar-
orlofi fagnað
SJÁLFSTÆÐAR konur fagna
ákvörðun ríkisstjórnar Davíðs
Oddssonar að gefa karlmönnum
sem starfa hjá ríkinu kost á
tveggja vikna fæðingarorlof. Þær
afhentu forsætisráðherra mynd
af fótaförum barns og sögðu að
þetta væru fyrstu skrefin á mun
lengri leið. Við afhendinguna
voru auk ráðherra Svanhildur
Hóim Valsdóttir, Heiðrún Hauks-
dóttir, Halldóra Vífilsdóttir og
Guðlaugur Þór Þórðarson.
Anna F.
Gunnarsdóttir
Kosningaskrifstofa stuðningsmanna Önnu er við
Hvcrafold 5. Símar 587 6082 og 587 6083
wviTv.itn.is/~annaogut/xd
Borðstofu-Eldhúsgögn
Ný sending. Mikið úrval
Borðstofuhúsgögn úr eik, beyki, mahony, kirsuberjaviði
o.fl. Ótrúleg verð
Mikið úrval af eldhúshúsgögnum
Borð (70x80 stærð 2x20) + 4 stólar frá 24.500.-
Opið í dag 1000-1600
□□□□□□
VJSA
HUSGAGNAVERSLUN
Reykjavikurvegi 66, Hafnarfirði, sími 565 4100
Ólafur F. Magnússon
Starfandi heimilislæknir í Reykjavík í 12 ár.
Reynsla sem varaborgarfulltrúi í 7 ár.
læknir
♦ sætið
Helstu baráttumál:
✓ UMFERÐARÖRYGGI
✓ UMHVERFISVERND
✓ VELFERÐ ALDRAÐRA
✓ FJÖLSKYLDAN
í ÖNDVEGI
Öflugur málsvari
betra mannlífs
Kosningaskrifstofa Ólafs F. Magnússonar er við Lækjartorg.
Opið alla daga kl. 14-22. Símar 561 3160 og 561 3173.
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins 24. og 25. október 1997