Morgunblaðið - 18.10.1997, Side 10
10 LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Læknar
vara við
hnefa-
leikum
STJÓRN Læknafélags ís-
lands hefur sent frá sér yfir-
lýsingu þar sem varað er við
hnefaleikum. Segir þar að
markmið íþróttarinnar sé að
valda líkamstjóni hjá and-
stæðingi.
Yfirlýsingin fer hér á eftir:
„Læknafélag íslands varar
við þeirri umræðu sem nú _er
hafín um hnefaleika á ís-
landi. Hnefaleikar eru hættu-
leg íþrótt. Ólíkt öðrum íþrótt-
um er markmið íþróttarinnar
að valda líkamstjóni hjá and-
stæðingi. Hnefaleikar valda
aukinni tíðni af varanlegum
heilaskaða og geta dregið
þátttakendur til dauða. Af
þessum sökum leggur stjóm
Læknafélags íslands áherslu
á það að lögum um bann við
keppni eða sýningu á hnefa-
leikum verði ekki breytt.“
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks telja rangt staðið að útboði við Iðnó
Gagnrýna skýringar
borgarstjóra og arkitekts
VILHJALMUR Þ. Vilhjálmsson
og Inga Jóna Þórðardóttir borgar-
fulltrúar gagnrýna harðlega skýr-
ingar Ingibjargar Sólrúnar Gísla-
dóttur borgarstjóra og Páls V.
Bjarnasonar arkitekts á því að
samið hafi verið við Gamlhús ehf.
um vinnu við Iðnó án útboðs þrátt
fyrir að arkitektinn sé í stjórn
fyrirtækisins Minjaverndar, sem
er stærsti eignaraðili verktaka-
fyrirtækisins Gamlhús.
Inga Jóna Þórðardóttir sagði
við Morgunblaðið að sér þættu
þessi vinnubrögð ámælisverð.
Hún segir að eftir því sem henni
sé best kunnugt sé það ekki í
samræmi við siðareglur arkitekta
að þeir tengist verktakafyrirtækj-
um og bendi verkkaupum á við-
skipti við þau en fyrir liggi að
Páll hafi átt frumkvæði að því
að borgin samdi við Gamlhús.
„Það eru ýmsir verktakar á mark-
aðnum sem geta annast svona
framkvæmdir. Ég gagnrýni að
gerður sé verktakasamningur við
aðila sem arkitekt hússins tengist
fyrir 30 milljónir króna og nú er
kominn fram tillaga um að samið
verði um 70 m.kr. til viðbótar,"
segir Inga Jóna.
Inga Jóna tók málið upp á borg-
arstjórnarfundi á fimmtudag. Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson segist
munu ræða málið frekar á fundi
borgarráðs á þriðjudag. Vilhjálm-
ur segir alrangt sem haft var eft-
ir borgarstjóra í blaðinu á fimmtu-
dag að ástæða þess að samið var
við Gamlhús án útboðs hafi verið
misskilningur milli bygginga-
deildar borgarverkfræðings og
stjórnar Innkaupastofnunar
Reykjavíkur.
Samþykki borgarráðs
hefði þurft
„Það var enginn misskilningur
varðandi ráðningu aðalverktaka,"
segir Vilhjálmur. „Ef embættis-
menn óska eftir að samið verði
beint við tiltekinn aðila án út-
boðs, ég tala ekki um þegar um
svo stórar upphæðir er að ræða,
þarf sérstakt samþykki stjórnar
Innkaupastofnunar og einnig
samþykki borgarráðs þegar um
stærri upphæðir er að ræða. í
þessu máli hefði þurft samþykki
borgarráðs til að semja við tiltek-
inn aðila án útboðs.“
Þá sagði Vilhjálmur að um-
mæli Páls V. Bjarnasonar í blað-
inu á fimmtudag staðfestu það
sem hann hefði haldið fram að
arkitektinn væri nátengdur því
fyrirtæki sem annaðist þessar
framkvæmdir sem Páll er arkitekt
að fyrir borgina. „Hann situr í
stjórn Minjaverndar sem á 45%
hlut í Gamlhús. Það er í hæsta
máta óeðlilegt að arkitekt, sem
er eins konar trúnaðarmaður
borgaryfirvalda hvað þessar
framkvæmdir varðar og hefur
töluvert um það að segja á hvern
veg framkvæmdum er hagað, sé
í stjórn fyrirtækis sem á verk-
takafyrirtækið sem gegnir verk-
töku í húsinu.“
Arkitektinn víki úr
öðru hvoru hlutverkinu
Aðspurður hvaða lyktum hann
vildi stefna að í málinu sagði
Vilhjálmur að sér þætti eðlilegt
að arkitektinn viki úr öðru hvoru
hlutverkinu, „það er ekki eðlilegt
að hann sitji báðum megin við
borðið.“
Þá sagðist Vilhjálmur telja
eðlilegt að efna til lokaðs útboðs
um þær 70 m.kr. framkvæmdir
sem óunnar eru í húsinu og taldi
að Gamlhús ætti möguleika á
þátttöku í því útboði ef staða
arkitektsins gagnvart fyrirtæk-
inu og borginni kæmist á hreint
áður.
Sjálfstæðismenn
Veljum Ingu Jónu
og vinnum borgina
Inga Jóna Þórðardóttir í 1. sæti
Skrifstofa stuðningsmanna Skólavörðustíg 6. Símar 562 5715/562 5725
Netfang: ingajona@islandia.is ■ Heimasíða: www.islandia.is/~ingajona
Morgunblaðið/Halldór
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkisráðherra og Marie-Lucie Mor-
in, sendiherra Kanada, undirrita loftferðasamninginn.
Skoðanakönnun
Gallup
Tæplega
85% sam-
mála Davíð
TÆPLEGA 85% aðspurðra í
skoðanakönnun Gallup, voru
sammála þeirri ákvörðun Davíðs
Oddssonar forsætisráðherra, að
taka á móti varaforseta Tævan
þegar hann kom til landsins í
óopinbera heimsókn. 6% voru
andvígir og rúmlega 9% höfðu
enga skoðun.
21% töldu að heimsóknin
muni hafa varanleg áhrif á við-
skiptasamband íslands og Kína
en 79% telja að svo muni ekki
vera.
Könnunin fór fram dagana
9.-10. október. Valdir voru
1.200 einstaklingar á aldrinum
16-75 ára af landinu öllu í til-
viljunarúrtaki úr þjóðskrá og
svöruðu 71,4%.
Könnunin sýndi að heldur
lægra hlutfall þeirra sem eru
16—24 ára en annarra aldurs-
hópa eru sammála því að þetta
hafí verið rétt ákvörðun hjá
Davíð. Sami aldurshópur telur
í meira mæli að heimsóknin
muni hafa varanleg áhrif á við-
skiptasamband Kína og íslands.
Svipað hlutfall kjósenda allra
flokka er sammála ákvörðun
Davíðs, þó eru hlutfallslega
flestir framsóknarmenn sam-
mála ákvörðuninni.
Fá þriðja flugið
til Halifax
ÍSLENDINGAR og Kanadamenn
undirrituðu í gær nýjan loftferða-
samning milli ríkjanna og kveður
hann á um það að Flugleiðum
verður nú heimilt að fljúga til
Halifax þrisvar í viku í stað tvisv-
ar áður og heldur flugfélagið jafn-
framt heimild til að fljúga til
Montreal tvisvar í viku.
Halldór Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra og Marie-Lucie Morin,
nýr sendiherra Kanada á íslandi
með aðsetur í Ósló, undirrituðu
samninginn í utanríkisráðuneyt-
inu í gær og kemur hann í stað
samnings ríkjanna frá 26. septem-
ber 1995.
„Á grundvelli samningsins er
kanadískum flugfélögum heimilt
leiguflug milli íslands og Kanada
og áfram til þriðja Iands um
Kanada," segir í fréttatilkynningu
frá utanríkisráðuneytinu.
-----♦ ♦ ♦-----
Krefst milljónar
vegna meiðyrða
RITSTJÓRUM DV hefur verið stefnt
fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur vegna
ummæla í blaðinu í september í fyrra.
Frétt blaðsins snerist um að mað-
ur, sem nú hefur stefnt ritstjórunum,
hefði haft fé út úr sambýliskonu sinni
og var sonur konunnar borinn fyrir
fréttinni. Maðurinn fer fram á að
ákveðin ummæli í fréttinni verði
dæmd dauð og ómerk, auk þess sem
hann krefst refsingar og einnar millj-
ónar króna í miskabætur fyrir hin
meintu meiðyrði.
Málið verður flutt fyrir héraðsdómi
á mánudag.