Morgunblaðið - 18.10.1997, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ
KÓPAVOGSHÖFIM
LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1997 15
Öflugir
grannar
STÆRÐARMUNUR er mikill
á höfnum á höfuðborgarsvæð-
inu. Samanlögð lengd hafnar-
bakka í Reykjavík er rúmir fjór-
ir kílómetrar, í Hafnarfirði
rúmlega einn kílómetri.
Bakkinn á Kársnesi verður
aðeins 135 metrar þegar fullri
lengd er náð og því ljóst að
hann er út af fyrir sig engin
raunveruleg ógn við grannana.
En það munar um allt og hart
er barist um tekjurnar enda um
rúmlega 740 milljónir króna að
ræða fyrir Reykjavíkurhöfn í
fyrra. Tekjurnar í Hafnarfirði
voru um 145 milljónir. Auk
þess fylgja ýmis önnur umsvif
hafnarrekstri sem erfítt er að
meta nákvæmlega en ýta undir
verslun og viðskipti á svæðinu.
Hafnarsvæði Reykjavíkinga
er nú um 160 hektarar alls en
Hafnfirðinga um 30 hektarar.
Þegar úthlutað er lóðum á
hafnarsvæði Reykjavíkur er
keppikeflið að fá þangað starf-
semi er telst hafnsækin. Er þá
átt við flutninga og vörudreif-
ingu af ýmsu tagi.
Aukin samkeppni
milli hafnanna
EIMSKIP og Samskip
skipta á milli sín nær
öllum áætlunarsigling-
um mili íslands og ann-
arra landa, Eimskip er
með bróðurpartinn.
Mörg stórfyrirtæki hér
nota þó leiguskip og
mikil samkeppni er í
svonefndum stórflutn-
ingum á borð við sigl-
ingar fyrir stóriðju. En
mun ný aðstaða á Kárs-
nesinu geta aukið sam-
keppni í siglingum og
annarri þjónustu við
innflytjendur hérlendis?
„Eg myndi halda það
og tel að það gæti orðið
sæmileg nýting á þessari aðstöðu
fyrir félagsmenn okkar,“ sagði Stef-
án Guðjónsson, framkvæmdastjóri
Félags íslenskra stórkaupmanna.
„Þetta liggur mjög vel við, er mið-
svæðis fyrir alla verslun og vöru-
dreifingu. Að því tilskildu að aðstaða
á bakkanum sé þægileg myndi ég
halda að þarna væri alveg kjörin
aðstaða fyrir starfsemi eins og við
stundum."
Stefán sagði mestu skipta að sam-
keppni gæti skapast milli hafnanna
á höfuðborgarsvæðinu. Þær myndu
keppast um að bjóða sem besta þjón-
ustu og aðstöðu fyrir fyrirtækin.
Margir félagsmanna
væru nú með aðstöðu
og skrifstofur í Sunda-
höfn. Þijár heildsölum-
iðstöðvar, Sundaborg,
Heild 2 og Heild 3,
hefðu verið reistar á
Sundaborgasvæðinu
að undiriagi og frum-
kvæði félagsins. Svip-
uð starfsemi gæti hasl-
að sér völl á Kársnes-
inu ef vel tækist til.
Hins vegar væri ljóst
að sumt af tækjabún-
aðinum sem þyrfti til
að geta boðið losunar-
þjónustu, eins og stórir
gámakranar, væru
mjög dýr. En til væru sérhæfð af-
greiðslufyrirtæki sem gætu fengið
áhuga á að reka þjónustu af því tagi
í Kópavogi ef nægileg viðskipti byð-
ust. Úti í heimi væri það algengasta
fyrirkomulagið, miklu minna um að
skipafélögin væru með þetta á sinni
könnu eins og Eimskip og Samskip
gera. Þetta gæti aukið samkeppni í
skipaflutningum.
Morgunblaðið sagði í ársbyijun
frá skýrslu sem lögmaður í Reykja-
vík gerði um meinta markaðsráðandi
stöðu Eimskips í flutningum á ís-
landi. Var niðurstaða hans sú að
féiagið keppti leynt og ljóst að slíkri
stöðu og hefði þegar náð henni að
verulegu leyti.
Fyrir sjö árum reyndi danskt
skipafélag, T-Line, að nokkru leyti
fyrir tilstuðlan Félags íslenskra stór-
kaupmanna, að heija hér siglingar
í samkeppni við íslensku félögin en
hætti við. Talsmenn félagsins sögðu
útilokað að bijótast inn á markað-
inn, Eimskip héldi öllu í járngreipum.
Sumir heimildarmenn blaðamanns
úr röðum innflytjenda sögðu þó litla
alvöru hafa verið á bak við tilraun-
ina. „Þetta var tómt gaspur" sagði
einn þeirra. Tekið skal fram að hann
á lítil viðskipti við Eimskip, notar
leiguskip og sagði hann að sá tími
væri löngu liðinn að Eimskip kæm-
ist upp með að hrekja burt keppi-
nauta.
„Það hefur verið reynt mikið síðan
að benda erlendum skipafélögum á
þann kost að koma hér við,“ segir
Stefán. „Þá á ég við skipafélög sem
stunda siglingar á norðanverðu Atl-
antshafi milli Evrópu og Norður-
Ameríku. Það gæti orðið auðveldara
fyrir erlend félög að bjóða þjónustu
hér ef góð aðstaða skapaðist í Kópa-
vogi. Þannig gætu þau veitt íslensku
félögunum nauðsynlegt aðhald.
Ég held að þetta sé mjög spenn-
andi mál í Kópavogi og full ástæða
til að kanna það vel.“
Stefán
Guðjónsson
Hugmynd ýtt úr vör
HUGMYNDIR um hafnargerð
við Skerjafjörð eiga sér langa
sögu en fengu aukinn byr þegar
þéttbýli tók að myndast í Kópa-
vogi á fimmta áratugnum. Þung
hafalda af Faxaflóa brotnar á
skerjaklasa á milli Álftaness og
Seltjarnarness og innan hans er
því gott skipalægi. Djúpur áll
tryggir að stór skip geta siglt inn
fjörðinn.
Einar Benediktsson skáid taldi
að á þessum slóðum ætti að vera
framtíðarhöfn Reykvíkinga. Á
árum fyrri heimsstyrjaldar var
stofnað togarafélag er hugðist
efna til hafnarbóta á Kársnesi
með útgerð og fiskvinnslu að
markmiði. I forsvari voru m.a.
Eggert Claessen, Ágúst Flygenr-
ing og Eldeyjar-Hjalti Jónsson.
Lögð var vagnfær slóð rétt fyrir
neðan núverandi Kársnesbraut
en félagið lenti í fjárhagserfið-
ieikum og varð lítið úr frekari
framkvæmdum.
Hafnarframkvæmdir hófust
upp úr 1950. Bæjarstjórn sam-
þykkti siðan árið 1956 tillögu
Finnboga Rúts Valdimarssonar
um að fela bæjarráði að stuðla
að fiskiskipaútgerð og veitt var
heimild fyrir ábyrgðum á kaup-
um á skipi ef það gæti liðkað
fyrir málinu. Lítið varð úr fram-
kvæmdum.
Þingmenn Reyknesinga voru
hvattir til þess árið 1960 að beita
sér fyrir auknu ríkisframlagi til
hafnargerðar en sá róður mun
löngum hafa verið þungur. Sjáv-
arútvegurinn annars staðar á
Reykjanesi hefur gleypt allt fé
sem fengist hefur til hafnarmála
í kjördæminu og hin sveitarfélög-
in talið að það kæmi niður á þeim
ef Kópavogur fengi eitthvað.
Hafnarframkvmdir lágu að
mestu niðri 1960-1980 en árin
1984-85 létu atvinnumálanefnd
og hafnarnefnd kanna málið
vandlega og gera áætlun um úr-
bætur. Bæjarráð samþykkti til-
lögur um hagkvæmnisathugun á
rekstri allstórrar hafnar á Kárs-
nesi. Lokið var gerð smábáta-
hafnar með flotbryggjum 1992
og geta þar legið nær hundrað
trillur. Næsta skrefið var svo
viðlegukantur fyrir hafskip.
Vilja sjá
hvað er í boði
RÁÐAMENN Kópavogs
gera sér vonir um að fá
; ný fyrirtæki inn á at-
hafnasvæðið á Kársnesi.
Þar geti hafnaraðstaða í sumum til-
vikum ráðið úrslitum, þótt ekki sé
viðlegukanturinn nýi langur miðað
við hafnir grannanna. Sérstakur
gámakrani er ekki á döfinni enda
yrði umsetningin að vera mikil til
að slík fjárfesting borgaði sig. Mörg
skip eru auk þess búin gámakrönum
og hægt er að notast við hefð-
bundna, færanlega krana við losun
og lestun eins og gert er úti á lands-
byggðinni.
Rætt var við talsmenn Byko, Toy-
ota-umboðsins, Húsasmiðjunnar,
Hagkaups, Jöfurs og fleiri fyrir-
tækja og kom fram í svörum þeirra
að menn teldu samkeppni í hafnar-
aðstöðu á höfuðborgarsvæðinu að
sjálfsögðu til bóta. Ekkert þessara
fyrirtækja hefur beinlínis gert
ákveðnar áætlanir um framkvæmdir
á Kársnesinu. Sumir þeirra sem
rætt var við sögðu þó allt koma til
greina. Menn myndu bíða átekta og
sjá hvað yrði í boði, hvernig lóðir
þeim byðust og hvernig gjaldtöku
af ýmsu tagi yrði háttað.
Húsasmiðjan mun hafa fengið lof-
orð um allmikið svæði í Sundahöfn.
Ókosturinn er að það er nokkuð
langt frá sjálfum hafnarbakkanum
og fyrirtækið gæti auk þess þurft
stærra svæði.
Hagkaup hefur þegar tryggt sér
stóra lóð í Sundahöfn sem nægir
fyrirtækinu í næstu framtíð og hefur
reist þar miklar skemmur.
Enginn möguleiki útilokaður
Jón Helgi Guðmundsson, forstjóri
Byko, sagðist ekki hafa hugað sér-
staklega að Kársnesinu með framtíð-
ina í huga en enginn möguleiki yrði
útilokaður ef hann reyndist hag-
kvæmur. Plássið væri mikið á nesinu
og hafnaraðstaðan virtist vera ágæt
en huga þyrfti að því hvernig tækja-
búnaður, kranar og annað sem þyrfti
fyrir svonefnda hafnsækna starf-
semi, væri. Þá skipti miklu hvernig
öll tengsl yrðu við aðra flutninga-
starfsemi en sigiingar og yfirleitt
samgöngur við svæðið.
Fyrirtækið hefði nú aðstöðu í
Hafnarfirði fyrir þungavöru sína,
timbur, steypujárn og aðra fyrirferð-
armikla vöru en Jón Helgi sagði of
langt í að hægt yrði að stækka svæð-
ið. Hafnarfjörður hentaði því ekki
til langframa og nú væri hugað að
öðrum kostum.
Öll vara Byko er flutt hingað með
leiguskipum á vegum fyrirtækisins.
Um 1980 reyndist að sögn Jóns
Helga erfitt að fá nægilegan aðgang
að höfnum fyrir leiguskip en sá vandi
væri úr sögunni, einkum eftir flutn-
inginn til Hafnarfjarðar. Viðhorfin
hefðu breyst mjög til batnaðar í
þessum efnum og losunarbúnaður
skipti litlu, mest væri notast við
færanlega krana. Vara af þessu tagi
væri ekki flutt í gámum. Jón Helgi
sagði heppilegast að geyma timbur
á hafnarsvæðinu þar sem það væri
losað og dreifa því þaðan beint til
viðskiptavina.
„Ég hef lítið heyrt talað um að-
stöðuna á Kársnesi í við-
skiptaheiminum enda eru
ekki margir með jafn mik-
ið af þungavöru og við.
Við vöktum máls á því
fyrir allmörgum árum við
bæjaryfirvöld, áður en við fórum í
Hafnarfjörð, hvort það væru ein-
hveijar áætlanir í gangi um aðstöðu
fyrir stór skip. Ég skrifaði þeim bréf
en fékk aldrei neitt formlegt svar
og við veltum því meira fyrir okkur
framtíðaraðstöðu annars staðar.
Þegar við heyrðum af þessum hafn-
arframkvæmdum á Kársnesinu frá
formanni hafnarnefndar vorum við
þegar búnir að eiga langar viðræður
við Reykjavíkurhöfn og fá hjá þeim
alls konar vilyrði."
Hann var spurður hvort Kópa-
vogsmenn væru of seint á ferðinni
gagnvart Byko. Jón sagði það ekki
alveg ljóst enn þá. Hvað sem því liði
væri það vissulega hagstætt fyrir
innflutningsfyrirtækin að samkeppni
ykist milli hafnanna.
Innflutningur Byko nemur yfir 30
þúsund tonnum á ári og má gera
ráð fyrir að vörugjöld eins og kraf-
ist er hjá Reykjavíkurhöfn af slíkum
flutningum nemi um 10 milljónum
króna. Kópavogshöfn fær ekki opin-
beran fjárstuðning við hafnarfram-
kvæmdimar og er því ekki háð opin-
berri gjaldskrá um vörugjöld í höfn-
um. Virðist því ekkert því til fyrir-
stöðu að þar á bæ verði m.a. reynt
að lokka til sín viðskiptavini með
kostakjörum á þessu sviði.
„Hefur hvarflað að okkur“
„Auðvitað hefur sú spurning kom-
ið upp hjá okkur að nýta aðstöðuna
þarna undir bílana,“ sagði Emil
Grímsson, fjármálastjóri hjá Toyota-
umboðinu sem er í Kópavogi. „Hug-
myndin hefur hvarflað að okkur,
hvort þetta væri raunhæfur kostur.
Við höfum hins vegar ekki rætt þetta
af mikilli alvöru ennþá enda ekki
verið tímabært.
Eimskip sér um þetta núna og við
höfum ekki undan miklu að kvarta
hjá þeim en erum auðvitað opnir fyr-
ir öllu sem getur bætt stöðuna." Eim-
skip annast alla flutninga á Toyota-
bílum hingað til lands en sérstakt
miðlunarfyrirtæki á vegum Toyota í
Evrópu sér um samninga af því tagi
við skipafélög. Emil sagði þó aðspurð-
■ ur að fulltrúar flutningamiðlunarinn-
ar í Evrópu myndu hlýða gaumgæfi-
lega á talsmenn umboðsins ef þeir
teldu henta sér betur að hafa aðstöðu
í Kópavogi en í Sundahöfn.
Ef aðstaðan yrði þannig að önnur
skipafélög gætu losað bíla í nýju
höfninni væri heldur ekki hægt að
útiloka meiri samkeppni á sviði bíla-
flutninganna.
Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri Verslunarrráðs, sagði
samkeppni ríkja í flutningum hér.
Hins vegar væri eðlilegt að við-
skiptavinir vildu eiga fleiri kosti en
að skipta við Eimskipafélagið og
vildu fá þjónustuna á lægra verði.
„Það er eðlilegt sjónarmið og ekkert
nema gott um það að segja, þetta
er eðli markaðarins."
Hann sagði menn hins vegar gera
sér grein fyrir því að því betur sem
íslensku skipafélögunum gengi í al-
þjóðlegri samkeppni á höfunum því
betri kjör gætu þau boðið viðskipta-
vinum hér. Ekki mætti einblína á
kostnað, farmgjöld og þess háttar,
í þessu sambandi. Gæði þjónustu á
öðrum sviðum flutninganna, s.s.
tímaáætlana, upplýsinga og skipu-
lags, skiptu síst minna máli. Sjálfír
skipaflutningarnir væru að verða æ
minni hluti af öllu flutningadæminu.
Menn yrðu hins vegar að huga
vel að væntanlegri notkun hafnar-
innar á Kársnesi, arðsemi fram-
kvæmdanna og bera saman við aðra
kosti á höfuðborgarsvæðinu. Að
sjálfsögðu gætu fleiri aðilar en
skipafélögin þurft á aðstöðunni að
halda, þeir sem þyrftu á góðu
geymsluplássi að halda.
Yrðu þeir margir myndu
skipafélögin vafalaust
laga sig að þeim þörfum.
„Það eru svo margar
hliðar á þessu að menn
geta ekki tekið ótvíræða afstöðu
með eða móti svona framkvæmd.
Öll samkeppni er að sjálfsögðu af
hinu góða en ég sé ekki að höfn af
þessu tagi væri stefnt gegn einum
eða neinum.
Ef þarna yrði komið upp góðri
aðstöðu held ég að allir myndu reyna
að nýta sér hana með einhveijum
hætti. Það yrðu fleiri valkostir til
staðar, hvort sem við tölum um þá
sem fyrir eru á markaðnum eða
nýja. Þessi markaður er galopinn."
Byko þegar
með vilyrði
frá Reykjavík