Morgunblaðið - 18.10.1997, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1997
LAIUDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Bókin
TBetri linuo
fæst i öllum
verslunum HAGKAUfS
„Þessi bók hefur aö geyma
réttu upplýsingarnar ef þú vilt
koma þér í form og halda því.
Mestu máli skiptir aö bókin er
skrifuö á léttan og skemmti-
legan hátt meö venjulegt fólk
í huga. “
Unnur Ólafsdóttir,
áhugamanneskja
____________________________________________________II
Morgunblaðið/Silli
FRÁ brúargerðinni yfir Máná.
Einbreiðum brúm fækkar
Húsavík - Vegagerð ríkisins er nú
að brjóta niður tvær einbreiðar
brýr á Ieiðinni Húsavík - Ás-
byrgi. Þetta eru brýrnar yfir
Máná við Mánárbakka á Tjörnesi
og Fjallaá í Kelduhverfi. Á þess-
um stöðum verður sett ræsi fyrir
árnar og vegurinn gerður jafn-
breiður og þjóðvegurinn sem að
þeim liggur.
Tvö óhöpp hafa orðið við brúna
á Máná en ekki alvarleg. Ekki er
kunnugt um óhöpp við Fjallaána.
Að þessu verki ioknu verður að-
eins ein einbreið brú á leiðinni frá
Húsavík að Jökulsá á Fjöllum en
það er brúin yfir Kvíslarána á
miðju Tjörnesi.
HUGSAÐ TIL FRAMTÍÐAR
Lækjarsmári 4 - Nýtt hús !!
Kynnum í dag Lækjasmára 4 í Kópavogi. Um er að ræða glæsilegt og einstaklega vandað 10 hæða ál-
klætt lyftuhús með tveimur lyftum. í húsinu eru 2ja, 3ja og 4ra herbergja íbúðir. Innangengt í bíla-
geymslu. Vandaður frágangur. Vel skipulagðar og rúmgóðar íbúðir með sér þvotthúsi.12,5 svalir í suður
eða vestur. Val um innréttingar og flísar. Staðsett í hjarta Stór-Reykjavíkursvæðisins þar sem stutt er í
alla þjónustu og greið leið í allar áttir. íbúðirnar hafa verið geysilega eftirsóttar af fólki á besta aldri sem
er að minnka við sig og vill eignast rúmgóðar íbúðir í lyftuhúsi þar sem viðhaldskostnaður er í lágmarki.
Lækjarsmári 2 seldist allur á byggingarstigi og þegar er fjöldi íbúða seldar í Lækjarsmára 4, sem er til af-
hendingar í september 1998.
Á milli kl. 13 og 16 verðum við í íbúð 0201 á annari hæð í LÆKJASMÁRA 2 og kynnum nýja húsið.
Komdu við og fáðu bækling og spjallaðu við sölumenn sem verða á staðnum.
Frekari uppl. á skrifstofu Húsakaupa eða á heimasíðu hússins http:\www.isholf.is/HUSVIRKI/ eða
hringdu í síma 568 28 00 og fáðu sendan litprentaðan bækling.
HUSAKAUP
Húsvirki hf.
Byggingaverktaki í 15 ár
Dæmdur í níu mánaða fangelsi
Slóð afbrota lá
víða um land
ísafirði - Þrítugur karlmaður var
á mánudag dæmdur í níu mánaða
óskilorðsbundið fangelsi í Héraðs-
dómi Vestfjarða fyrir fjölda þjófn-
aðar-, skjalafals- og fíkniefna-
brota, sem framin voru á ísafirði,
í Reykjavík og á Akureyri á undan-
förnum mánuðum.
Slóð afbrotanna hófst á ísafírði
í desember 1996 er maðurinn fór
í heimildarleysi inn í geymsluskúr
Pósts og síma hf. á ísafirði og stal
þar nokkrum skráningarnúmers-
plötum fyrir bifreiðar og festi síðan
eina þeirra á óviðkomandi bifreið
sem hann ók síðan þannig númer-
aðri til Reykjavíkur, þrátt fyrir að
lögregla hefði áður bannað notkun
bifreiðarinnar. I sama mánuði
braust ákærði inn í lagnaherbergi
Pósts og síma hf. í Reykjavík og
stal þar einu setti af línubilunarleit-
artækjum í eigu fyrirtækisins.
Fíkniefni fundust við húsleit
í upphafí þess árs leitaði ákærði
sér lækninga á heilsugæslustöð í
Hafnarfirði og stal þaðan lyfseðl-
um, læknisvottorðaeyðublöðum og
stimpli viðkomandi heilsugæslu-
stöðvar. Ákærði var síðan handtek-
inn á ísafirði í apríl á þessu ári
eftir að lögregla gerði húsleit á
heimili hans og lagði hald á 131,6
gr. af kanabisefnum, 11,7 gr. af
amfetamíni, 4,9 gr. af maríjúana
og 100 kanabisplöntur en ákærði
játaði að hafa átt fíkniefnin og
sagði þau hafa verið ætluð til eig-
in nota.
I bytjun júní varð ákærði uppvís
að fjórum þjófnuðum og innbrotum
á Stór-Reykjavíkursvæðinu, hinu
stærsta í úraverslun Hermanns
Jónssonar í Reykjavík en þar braut
hann sýningarglugga í versluninni
um miðja nótt og stal þaðan sautj-
án úrum að verðmæti um 722
þúsund krónur en úrunum hugðist
ákærði reyna að koma í verð.
Rauf skilorð eftir tvo daga
Ákærði mætti fyrir dómara 4.
júlí í sumar og var þá dæmdur í
fjögurra mánaða skilorðsbundið
fangelsi fyrir eldri þjófnaðarbrot
og fíkniefnalagabrot. Tveimur
dögum síðar rauf hann skilorð
dómsins er hann fór inn á röntgen-
deild Fjórðungssjúkrahússins á
Akureyri og stal þaðan sautján
þúsund krónum í peningum og
þrjú þúsund krónum í tékkum úr
læstri hirslu.
Daginn eftir fór hann inn í bygg-
ingavörudeild KEA á Akureyri og
stal þaðan ýmsum varningi, sam-
tals að verðmæti 51.535 kr. en var
handsamaður er hann reyndi að
lauma vamingnum út úr verslun-
inni.
Ákærði gekkst greiðlega við öll-
um brotunum. Sökum skilorðsrofs-
ins var dómurinn frá í sumar tek-
inn upp og dæmdur með hinum
nýju brotum. Auk níu mánaða
fangelsis var manninum gert að
greiða allan sakarkostnað auk þess
sem fíkniefni, sem lagt hafði verið
hald á, voru gerð upptæk.
Dóminn kvað upp Jónas Jó-
hannsson, héraðsdómari.
Dunhagi 20 - góð kaup.
Til sýnis milli kl. 4 og 6 í dag .
100 fm falleg og björt íbúð á 2. hæð í nýviðgerðu, Steni-klæddu
húsi. íbúðin nýtist mjög vel, allt að 4 svefnherb., þ.a. eitt
forst.herb., rúmgóð stofa og fallegt eldhús. Eikarparket, kork-
ur og flísar. Vandaðar innréttingar. Endurnýjuð gler og gluggar.
Frábært útsýni.
Mjög góð íbúð, vel staðsett og á fínu verði, aðeins 7,9 millj.
Áhv. 4,6 millj.
íbúðin er á 2. h. t.v., gengið inn að aftanverðu.
Húsakaup Suðurlandsbraut 52 sími 5682800
5521150-5521370
LÁRUS Þ. VflLOIMflRSSDM, FRflMKVÆIVIOflSTJORI
JÓHfllVN ÞORÐARSOIV, HRL, LÖGGILTUR FflSTBGNflSAU.
Ný á fasteignamarkaðnum m.a. eigna:
Við Laugarnesveg — mikið útsýni
Góð, sólrík 4ra herb. íb. 100 fm á 3. haeð (efstu). 2 stofur, 2 svefn-
herb., rúmg. skáli (sérherb.). Góðar geymslur. Suðvestursv. Snyrtil.
sameign. Tilboð óskast.
Skammt frá Landspítalanum
Nýendurb. 3ja herb. jarðhæð, 71,8 fm, í þríbýlishúsi. Sérinng. Sér-
hiti. 25 ára lán kr. 3 millj. Vinsæll staður. Tilböð óskast.
Sérhæð — bílsk. — Sogavegur
Stór, sólrík efri hæð 6 herb. um 150 fm. Allt sér (þvottah. á hæðinni).
Sólsvalir. Innb. bílsk. Mikið útsýni. Tilboð óskast
Neðri hæð — tvíbýli — bílsk./vinnukj.
Sólrík neðri hæð neðst í Seljahv. um 90 fm. Sérinng. Sérhiti. í kj.
fylgja 2 rúmg. herb. Góður bílsk. m. vinnukj. Uppl. aðeins á skrifst.
Fjöldi fjársterkra kaupenda
óska eftir íbúðum, sérhæðum, rað- og einbýlishúsum.
Margs konar eignaskipti möguleg. Vinsaml. leitið nánari uppl.
Opið í dag, laugardag, kl. 10—14.
Opið mánudag—föstudag kl. 10-12 og kl. 14—18.
Viðskiptunum fylgir ráðgjöf og
traustar upplýsingar.
Almenna fasteignasalan sf.
var stofnuð 12. júlí 1944.
ALMENNA
FASTEIGNASALAN
LAUGAVEG118 S. 5521150 - 552 1370
L
t
I
L
í
I
f
[
I
í
(
<
í
C
c
«
«
i
c
<
«
c
«
«
«
«
-1