Morgunblaðið - 18.10.1997, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1997 27
Valdatafl
Israelskra
trúflokka
Trúmál koma gjaman við sögu í ísraelskum
stjómmálum. Sigrún Bima Bimisdóttir
rekur hér hvemig deilur milli ólíkra
trúarhreyfínga gyðinga hafa valdið umróti
í ísrael undanfama daga.
EFTIR að langvarandi til-
raunir til að sætta ólíkar
trúfylkingar gyðinga
sigldu í strand í byijun
vikunnar, lofaði Benjamin Netan-
yahu, forsætisráðherra Israels, að
ganga að kröfum hreyfingar
strangtrúaðra gyðinga og flýta af-
greiðslu lagafrumvarps um einka-
rétt hreyfingarinnar á ákveðnum
trúarathöfnum í ísrael.
Lagafrumvarpið, sem m.a. trygg-
ir hreyfingu strangtrúaðra einka-
rétt á framkvæmd trúskipta þeirra
sem ganga til gyðingatrúar, hefur
lengi verið til umfjöllunar en jafnan
valdið mikilli ólgu og reiði í samfé-
lögum gyðinga utan ísrael. Á með-
an flestallir ísraelskir gyðingar til-
heyra einhverjum armi hinnar hefð-
bundnu hreyfingar strangtrúaðra
eru hreyfingar íhaldssamra og um-
bótasinnaðra strangtrúaðra gyð-
inga fjölmennar á Vesturlöndum.
Þetta eru fylkingar gyðinga sem
hafa lagað trúariðkun sína mismik-
ið að nýjum gildum, svo sem um
jafnrétti kynjanna og finnst að sér
vegið með óbilgirni ísraelsku hreyf-
ingarinnar sem neitar alfarið að
viðurkenna tilverurétt þeirra.
Óskráð lög um árabil
Þótt umrædd lög hafi enn ekki
verið samþykkt hafa það árum sam-
an verið óskráð lög í ísrael að ein-
ungis hreyfing strangtrúaðra hafi
umboð til að framkvæma trúskipta-
athafnir þeirra sem taka gyðinga-
trú. Á sama tíma hafa giftingar
(sem einungis strangtrúnaðarhreyf-
ingin getur framkvæmt samkvæmt
ísraelskum lögum) og trúskiptaat-
hafnir erlendu hreyfinganna verið
viðurkenndar í ísrael og fylgismenn
þessara hreyfinga því gjarnan farið
til annarra landa til þessara at-
hafna.
Krafa strangtrúaðra gyðinga í
ísrael um að þessi óskráðu lög verði
lögfest á þingi á rætur sínar að
rekja til endurtekinna tilrauna til
að fá erlendu hreyfingarnar viður-
kenndar í Israel. Þannig létu nokkr-
ir ísraelskir foreldrar á það reyna
er þeir létu böm sín, sem þeir höfðu
ættleitt erlendis, taka gyðingatrú
undir handleiðslu umbótasinnaðra
rabbína á samyrkjubúi í ísrael og
kröfðust þess síðan að börnin yrðu
viðurkennd sem gyðingar. Um svip-
að leyti samþykkti bæjarstjórn
borgarinnar Netanya skipan full-
trúa hreyfingar umbótasinnaðra
gyðinga í trúmálaráð borgarinnar.
Þar með voru önnur óskráð lög um
einkarétt strangtrúuðu hreyfingar-
innar brotin. Er skipan fulltrúans
var mótmælt höfðaði stjómmála-
flokkurinn Meretz mál fyrir hæsta-
rétti til þess að fá hann samþykkt-
an.
Áður en málið hafði verið tekið
fyrir í hæstarétti brást hreyfing
strangtrúaðra við þessari aðför með
því að krefjast þess að lög um einka-
rétt þeirra yrðu lögfest og í tilraun
til málamiðlunar kallaði Netanyahu
Reuters
STRANGTRÚAÐIR gyðingar við bænahald á Oliufjallinu í tilefni af nýjári 1. október sl.
saman nefnd um málið sem skipuð
var þremur fulltrúum strangtrúaðra
gyðinga, einum fulltrúa umbóta-
sinnaðra gyðinga og einum fulltrúa
íhaldssamra gyðinga. Nefndinni,
sem kölluð er Neeman-nefndin, var
ætlað að koma með tillögur um
lausn vandans. Niðurstöður nefnd-
arinnar hafa enn ekki verið birtar
en samkvæmt fréttum tókst henni
hið ómögulega, þ.e. að komast að
samkomulagi. Samkvæmt heimild-
um mælir hún m.a. með því að er-
lendu hreyfíngarnar fái að fram-
kvæma trúarathafnir svo sem trú-
skipti og giftingar undir eftirliti
strangtrúaðra.
Strangtrúaðir brugðust illa við
Þingmenn flokka trúaðra, sem
tilheyra strangtrúuðu hreyfíngunni,
brugðust hinir verstu við er fréttum
af niðurstöðum nefndarinnar var
lekið í Qölmiðla fyrr í vikunni og
hótuðu að tefla afgreiðslu fjárlaga-
frumvarps næsta árs þar til um-
rætt lagafrumvarp hefði verið af-
greitt, sem er i raun hótun um að
fella ríkisstjórnina.
Auk þess sem þetta mál er enn
einn prófsteinninn á samskipti ísra-
elskra gyðinga og gyðinga „í út-
legð“ og ógnar þar með einingu
gyðinga sýnir það svart á hvítu
völd strangtrúuðu hreyfingarinnar
í ísrael.
Bent hefur verið á að talsmenn
hennar, sem segjast einungis hafa
hagsmuni gyðingdómsins að leiðar-
ljósi, hafí hafnað málamiðlun sem
tryggi að þeir geti haft yfirumsjón
með öllum trúarathöfnum. Mörgum
þykir því ljóst að hér sé um hreina
valdabaráttu að ræða.
Flokkar trúaðra í ísrael hafa á
undanförnum árum öðlast gífurleg
völd þar sem fylkingar hægri- og
vinstrimanna hafa haft allt að því
sama fylgi og þvi þurft að sækja
til flokka trúaðra við myndun ríkis-
stjórna. Þetta fyrirkomulag, sem
byggist á því að stjórnarflokkarnir
kaupi stuðning flokka trúaðra með
loforðum um að koma ákveðnum
málum þeirra i gegn, hefur veitt
strangtrúuðum völd sem eru í engu
samræmi við fjölda þeirra.
Enda hafa þær raddir orðið sí-
fellt háværari í ísrael að undan-
förnu að tímabært sé að gera breyt-
ingar hér á. Fólki fínnst tími til
kominn að stóru flokkarnir leiti
nýrra leiða til þess að koma málefn-
um sínum í gegn og að dregið verði
úr ægivaldi trúaðra.
Þótt Netanyahu hafi í þessari
atrennu kosið að láta undan þrýst-
ingi trúaðra í stað þess að leita
nýrra stuðningsmanna er ekki þar
með sagt að hann muni ekki neyð-
ast til þess síðar þar sem stjórn-
málaskýrendur telja ólíklegt að aðr-
ir samstarfsflokkar hans muni
ganga að kröfum trúaðra í þessu
máli. Þannig hafa tveir samstarfs-
flokkar hans, miðjuflokkurinn Þriðji
vegurinn og flokkur rússneskra inn-
flytjenda, sem alla tíð hafa átt í
stríði við hreyfíngu strangtrúaðra,
þegar lýst því yfir að þeir muni
ekki styðja frumvarpið. Hafa flokk-
arnir hvatt Verkamannaflokkinn til
að ganga til liðs við stjórnina bæði
til þess að fella umrætt frumvarp
og einnig til að taka á öðrum mikil-
vægum málefnum svo sem örlögum
hernumdu svæðanna.
V erkamannaflokkur
tvístígandi
Stærsti stjómmálaflokkur trú-
aðra, Shas, hefur hins vegar þegar
hafið sinn gamalkunna leik og gefið
í skyn að hann muni styðja Verka-
mannaflokkinn við stjómarmyndun
í framtíðinni styðji hann frumvarpið.
Verkamannaflokkurinn hefur ekki
enn látið neitt upp um afstöðu sína
til þessa máls sem bendir til að for-
svarsmenn hans líti ekki á málið
með tilliti til þeirrar hugmyndafræði
sem þvi fylgir heldur þeirra áhrifa
sem það getur haft í valdatafli ísrael-
skra stjómmála. loforð Netanyahus
um að flytja frumvarpið á þingi er
því hvorki trygging fyrir því að það
verði afgreitt né að þetta mál sé þar
með úr sögunni.
VÍð þunFuM MANN MEð REyNslu í boRCjARSTjÓRN
Prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík er 24.-25. október
Snorri Hialtason
Kosningaskrifstofa verður opnuð
í Templarahöllinni laugardaginn
18. október kl. 14:00
Þér er boðið að vera við opnun kosningaskrifstofu
minnar í Templarahöllinni, Eiriksgötu 5
laugardaginn 18. októberkl. 14:00. Spjallað
verður um borgarmálin og boðið upp á kaffi.
Maður með reynslu
..úr íþróttastarfi
••úr atvinnulífinu
••úr stjórnmálum
..af félagsmálum
..af verkalýðsmálum
.reynslu úr
íþróttastarfi
Snorri Hjaltason hefiir lengi
verið formaður Fjölnis, eins
stærsta íþróttafélags landsins.
Hann hefur einnig setið í fjölda
nefnda á vegum ÍSÍ, UMFÍ og
ÍBR. Snorri Hjaltason er
verðugur fiilltrúi íþróttafólks i
borgarstjóm Reykjvíkur.
.reynslu úr
atvinnulífinu
Snorri Hjaltason rekur ásamt
eiginkonu sinni Brynhildi
Sigursteinsdóttur Trésmiðju SH í
Reykjavík. Þau hafa saman byggt
upp öflugt lyrirtæki sem veitir hátt í
100 manns atvinnu. Snorri Hjaltason
er verðugur fialltrúi sjónarmiða
öflugs atvinnulífs í borgarstjóm.
..reynslu úr
stjórnmálum
Snorri Hjaltason hefur lengi verið
virkur í starfi Sjálfstæðis- flokksins í
borginni. Hann var formaður
Hverfafélags sjálfstæðismanna í
Grafarvogi. Snorri var í kjömefnd
fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í
Reykjavík í síðasta prófkjöri og
hefúr setið í stjóm Varðar.
UJ
x5
Snorri Hjaltason hefur lengi
sinnt fjölbreyttum félagsstörf-
um og öðlast þar mikla reynslu.
Hann sat í sóknamefnd Grafar-
vogsóknar og var varaform-
aður byggingamefnar Grafar-
vogskirkju. Snorri var formaður
bygginganefhdar félagsheimilis
Sjálfstæðisfélags Grafarvogs.
Sceti
Snorri Hjaltason óskar
eftir þínum stuðningi
í 5. sœti í prófkjöri
sjálfstœðismanna
í Reykjavík 1997
STUÐNINGSFOLK
.reynslu af
verkalýðsmálum
Snorri Hjaltason sat um
tíma í stjóm Félags
starfsfólks í veitinga-
húsum og var varaform-
aður félagsins.
Kosningaskrifstofa i Templarahöliinni, Eiriksgötu 5, símar 561 4848 og 5614850, fax 5614854 - Opin virka daga kl. 17-21 og um helgar kl. 14-19