Morgunblaðið - 18.10.1997, Page 32
VIKU
m
MORGUNBLAÐIÐ
32 LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1997
'ANPRES
// f / 1
Wj I rVyjli 'l Jj Æf ' L ’m 1 m
/ n) wj \ smÍIIí /IV f / g H V il
eins og kunn dæmi frá Rómönsku
Ameríku og víðar sýna.
Algengt er að þar sem mikir
peningar safnast saman myndast
gríðarlegir hagsmunir. Þeir sem
eru fylgjandi banninu vilja berja
þetta niður með hörku og lög-
regluaðgerðum ellegar forvörnum
eða hræðsluáróðri. Þeir telja allt
annað uppgjöf. Því miður hafa
hræðsluherferðirnar gert meiri
skaða en gagn þar sem þeir fjöl-
mörgu sem hafa prófað ólögleg
efni vita að þar er farið með
ósannindi. Annaðhvort er það vís-
vitandi, eða gert af þekkingar-
leysi, en sjálpskipaðir „sérfræð-
ingar“ fjalla oft um þessi efni af
lítilli þekkingu. Dæmi um óraun-
sæi bannsinna er herferð á Is-
landi undir kjörorðinu Island eit-
urlyfjalaust árið tvöþúsundogeitt-
hvað. Þeir sem eru fylgjandi lög-
leiðingu, segjast vilja horfast í
augu við veruleikann.
Um tíma var neysla kannabis
leyfð á Spáni og mátti neyta þess
á opinberum stöðum og bera á sér
takmarkað magn til einkaneyslu.
Var svo komið að á sumum börum
voru skilti þar sem þurfti að taka
fram að neysla hassvindlinga væri
bönnuð. Fyrir þrýsting frá öðrum
Evrópuríkjum, sérstaklega þeim
Samkvæmt nýlegum dómi í Katalóníu er
leyfilegt að rækta kannabis til eigin nota.
Yfírvöld í Andalúsíu afhenda nú langt
leiddum heróínfíklum efnið endurgjalds-
laust. Þorri Jóhannsson veltir fyrir sér
þessari stefnubreytingu og segir frá
umræðum um hana.
Ú UMRÆÐA að tími sé til
kominn að lögleiða ólögleg
vímuefni hefur verið lengi í
gangi á Vesturlöndum þótt ekki
hafi hún náð til þeirra allra. Slakað
hefur verið á ríkisklónni víða t.d. í
Þýskalandi. Aðferðimar og árang-
urinn hingað til við að stemma
stigu við vandanum hafa ekki gefið
tilefni til bjartsýni. Bannið er ekki
lengur jafnsjálfsagt og talið var.
Þótt ekki séu nærri allir neytend-
ur ííklar og sjúklingar er þetta
frekar heilbrigðisvandamál en lög-
reglumál. Sumir telja þetta ekki
félagslegt vandamál heldur einka-
mál.
Hættulegt bann
Fylgjendur þess að slakað sé á
klónni telja að fíkniefnabannið sé
hættulegt fyrir réttarríkið og lýð-
ræðislega stjórnarhætti. Það er
tvíþætt, ráðist er að einstaklings-
frelsi og yfirvöld brjóta lög og
mannréttindi með því að ráðast
inn í einkalíf manna. Einnig er
þekkt í sögunni að það sé notað
þegar þjarmað er að óþægum
þegnum, en hér áður fyrr fór oft
saman neysla hugvíkkandi efna og
andþjóðfélagsleg afstaða. A máli
félagsfræðinnar, félagsleg frávik
og menningarkimar. Völd yfir-
valda og yfirgangur eykst svo að
hætta er á hljóðlátu lögregluríki.
Aðgerðir lögreglu valda oft
meiri skaða en neysla efnanna og
mótar andþjóðfélagslega afstöðu
einstaklinga sem sjá ekki réttlætið
í þessu. Eðli afbrotsins býður upp
á þetta. Annarsvegar er það fjár-
magn sem eiturlyfjabarónar safna
að sér sem hægt er að nota til að
kaupa sér völd og stjórnmálamenn
skandinavísku, voru lögin hert
aftur og nú er hassið ekki jafná-
berandi og áður en kókaínið því
útbreiddara. Spænska fíkniefna-
löggjöfin fellur undir glæpi gegn
heilsu almennings.
Fyrsti dúmurinn
leyfir einkanut
Nýlega féll dómur í Tarragona
um að ræktun marihuana sé leyfí-
leg til einkanota. Þetta er fyrsti
dómurinn á þessa vegu og sam-
kvæmt honum geta 97 Katalónar
ræktað eigið gras. Þannig getur
félagið Ramón Santos um rann-
sóknir á kannabis leyft hverjum
félaga að rækta tvær plöntur á
sameiginlegum akri félagsins, en
þeir neyta þess ekki sameigin-
lega. Óviðkomandi er bannaður
aðgangur að þessari einkaeign.
Mörg svona félög eru á Spáni og
er markmið þeirra að gera neyt-
endum kleift að rækta eigið gras
til að þurfa ekki að kaupa á göt-
unni. Þetta er spor í áttina til að
losna við svartamarkaðinn segja
félagsmenn. En margar stórar
plantekrur eru á vegum glæpa-
samtaka sem sjá einnig um dreif-
ingu.
Varaforseti Madridfélagsins
um kannabisrannsóknir segir fé-
lagsmenn vilja rannsaka efnið en
sé það ókleift vegna bannsins. Við
viljum gera neysluna ódýrari fyrir
einstaklinga. Sumir segja að gras
sé verra en tóbak aðrir segja að
það opni fyrir súrefnisflæði til
lungnanna. Bannið er aðeins sölu-
mönnunum til góða. Einn neyt-
andinn segir kannabis gefa lífinu
lit og slaka á strekktum taugum.
Bannið sé skerðing a persónu-
frelsi og efnið verði dýrara.
Hann segir að þó samfélagið sé
löngu farið að líta á kannabis sem
saklaust efni setji yfirvöld það
undir sama hatt og sterkari efnin.
Það sé fáránlegt að ofsækja fólk
fyrir neyslu. Við lögleiðingu yrði
réttur neytandans virtur sem
myndi leiða til meiri gæða og fara
betur með lungun. Hann endar á
því að segjast hafa rétt til að setja
það sem hann vill í líkama sinn þvi
innan húðarinnar ráði hann.
Læhnir mælir með
lagleiðingu
Geðlæknirinn Enrique G. Duro
segir lögleiðingu tryggja gæði efn-
isins. Bannið komi alls ekki í veg
fyrir neyslu: „Það er sölumönnum
tíl góða en hættulegt fyrir neyt-
endur þar sem ekkert eftirlit er
með vörunni. Það er hægt að nota
það í lækningaskyni við gláku og
bronkítis. Bannlögin byggjast ekki
á marktækum vísindarannsoknum.
Bannið er byggt á siðferðisafstöðu
en ekki raunverulegri þekkingu.
Þær alvarlegu rannsóknir sem
gerðar hafa verið hafa verið þagg-
aðar niður þar sem þær mæla ekki
með banni. Ef fólk væri upplýst
um neysluna er samfélagið búið
undir lögleiðingu. Lýðræðisþjóðfé-
lag verður að taka áhættu og upp-
lýsa fólk um hættuna. Dauði vegna
bílslysa er miklu algengari en
vegna dóps og engum dettur í hug
að banna bíla.“
Þess má geta að fyrir nokkrum
dögum var eiginmaður konu með
M.S. í Jórvíkurskíri á Bretlandi
kærður fyrir ræktun hassplantna
en það var það efni er virkaði best
sem verkjalyf á konuna. Læknir
hjónanna styður þau og vill að
Hver er skaðsemi neftóbaks?
MAGNÚS JÓHANNSSON LÆKNIR SVARAR SPURNINGUM LESENDA
Spurning: Mig langar að vita
um skaðsemi neftóbaks á heilsu
manna. Getur neftóbak valdið
krabbameini, og ef svo er, þá
hvar?
Svar: Skaðsemi reyklauss tóbaks
(neftóbaks og munntóbaks) bygg-
ist annars vegar á eituráhrifum
nikótíns í líkamanum og hins veg-
ar á áhrifum annarra eitraðra
efna í tóbakinu. í reyklausu tó-
baki eru efni sem vitað er að geta
valdið krabbameini og notkun
þessa tóbaks virðist geta valdið
krabbameini í nefi, munni, hálsi,
vélinda, maga og e.t.v. víðar.
Hætta á krabbameini virðist þó
ekki eins mikil og hjá þeim sem
reykja. Fyrir utan hættuna á
krabbameini hefur reyklaust tó-
bak ýmis konar skaðleg áhrif þar
sem það er sett; neftóbak fer
mjög illa með slímhúðir í nefi og
munntóbak fer sömuleiðis illa
með slímhúðir í munni og getur
þar að auki valdið tannskemmd-
um og tannlosi. í einum skammti
af reyklausu tóbaki er mörgum
sinnum meira magn af nikótíni en
í einni sterkri sígarettu. Nikótín
er eitt kröftugasta fíkniefni sem
þekkt er og er sennilega enn
meira vanabindandi en efni á
borð við heróín og kókaín.
Nikótín hefur margvísleg áhrif á
líkamann sem öll verður að telja
skaðleg. Það örvar hjartað og
veldur æðasamdrætti en í sam-
einingu leiðir þetta til hækkaðs
blóðþrýstings og getur þar verið
um verulega hækkun að ræða.
Hækkaður blóðþrýstingur eykur
álag á hjarta og æðar og getur
leitt til hjarta- og æðasjúkdóma,
m.a. kransæðasjúkdóms. Ef
reynt er að bera saman skaðsemi
reyklauss tóbaks og reykinga þá
bendir flest til þess að hætta á
krabbameini sé minni við notkun
reyklausa tóbaksins en hætta á
eiturverkunum nikótíns, einkum
hjarta- og æðasjúkdómum, sé
jafn mikil eða meiri.
Spurning: Ég hef miklar maga-
sýrur og hef reynt allt sem hægt
Magasýrur
er að fá við þeim. Eitt meðal hef-
ur reynst best, það er Losec, en
ég fæ aðeins mánaðarskammt í
einu. Af hverju koma sterkar
magasýrur og af hverju er ekki
hægt að fá meðal við þeim
stöðugt? Þarf ég að breyta um
mataræði? Hvaða matur er
basískur?
Svar: Það sem einkum veldur
miklum magasýrum er sýking í
maga eða skeifugörn, viss sjald-
gæf æxli í meltingarfærum en þar
að auki ýmislegt í lífsstíl okkar.
Ymislegt sem við gerum eða
neytum ertir magaslimhúðina og
eykur sýrumyndun á beinan eða
óbeinan hátt. Má þar nefna reyk-
ingar, mat og drykk sem inni-
heldur koffein, áfengi og líkam-
lega streitu. Reykingar hafa
veruleg áhrif, þær auka sýru-
myndun í maganum og tefja fyrir
að sár grói. Kaffi, te, kóladrykkir
og annað sem inniheldur koffein
örvar sýruínyndun í maga og
sama gildir um mikið ki-yddaðan
mat. Afengi hefur ertandi áhrif á
magaslímhúðina og getur aukið
sýrumyndun þó að ekki hafi fund-
ist öruggt samband milli áfengis-
drykkju og meltingarsára (sár í
maga eða skeifugörn). Andleg
streita er ekki lengur talin auka
hættu á magabólgum og melting-
arsárum en getur valdið ýmsum
óþægindum frá meltingarfærum.
Líkamleg streita eins og á sér
stað við slys, bruna og stórar
skurðaðgerðir er hins vegar
þekkt að því að valda melting-
arsárum. Sum lyf, sérstaklega
bólgueyðandi gigtarlyf (aspirín,
íbóprófen, naproxen og mörg
fleiri), erta magaslímhúðina og
gera hana viðkvæmari fyrir
magasýrunum en annars. Síðan
má ekki gleyma því að langvar-
andi magabólgur og meltingarsár
stafa oft af sýkingu af völdum
bakteríu sem nefnist Helicobact-
er. Þessa bakteríu er hægt að
uppræta með sérstakri sýkla-
lyfjameðferð þar sem gefin eru
saman tvö eða jafnvel þrjú lyf.
Lyfið Losec (og nokkm’ fleiri
skyld lyf) dregur úr sýrumyndun
í maga á meðan það er tekið en
algengt er að þegar töku lyfsins
er hætt fari allt í fyrra horf.
Notkun þessa lyfs er takmörkuð
eins og bréfritari lýsir og þarf því
að fara mánaðarlega í lyfjabúð.
Þetta er ákvörðun Heilbrigðis-
ráðuneytisins sem byggir á því að
um sé að ræða dýrt lyf sem að
sumra dómi sé ofnotað.
Sum fæða er basiskari en önn-
ur en í þessu samhengi skiptir
það litlu sem engu máli. Allur
matur þynnir magasýrumar og
eyðir þeim en rétt er að forðast
mikið kryddaðan og brasaðan
mat. Einnig ætti að forðast reyk-
ingar, áfengi og kaffi, te, kóla-
drykki og annað sem inniheldur
koffein. Bólgueyðandi gigtarlyf
gera ástandið einnig verra.
• Lesendur Morgunblaðsins geta spurt
lækninn um það sem þeim liggur á hjar-
ta. Tekið er á móti spurningum á virkum
dögum milli klukkan 10 og 17 í síma
5691100 og bréfum eða símbréfum
merkt: Vikulok, Fax: 5691222.