Morgunblaðið - 18.10.1997, Qupperneq 44
44 LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSEIMDAR GREIIMAR/PRÓFKJÖR
*
Framtíðarhöfn á Alfsnes-
Kjalarnessvæðinu
HÆTTA á við að
gera höfn við Eiðsvík-
ina og reisa iðnaðar-
hverfi úti á Geldinga-
nesi. Þessa starfsemi
á að setja niður á Álfs-
nesi eða á Kjalarnesi.
í Eiðsvík og á Geld-
inganesi á að vera
íbúðabyggð og útivist-
arsvæði. Stöðva þarf
* allar frekari hug-
myndir um að í miðri
borginni rísi mengandi
stóriðja eða spilliefna-
iðnaður. Þessi starf-
semi á ekki heima inni
í miðjum íbúðahverf-
um.
Reykjavík og Kjalarnes munu
sameinast í eitt sveitarfélag eftir
borgarstjórnarkosningarnar í vor.
Það er einhver mesta breyting sem
orðið hefur á högum Reykjavíkur
á undanfömum áratugum. Land-
fræðilega margfaldast Reykjavík
að stærð og það er því ekki hægt
annað en krefjast þess að allt borg-
~ arskipulagið verði tekið til gagn-
gerrar endurskoðunar.
í vor var birt nýtt aðalskipulag
fyrir Reykjavíkurborg og á að gilda
næstu 15 árin eða til ársins 2013.
Þar er breytt áður gildandi skipu-
lagi þar sem gert var ráð fyrir að
á Geldinganesi skyldi vera íbúða-
byggð. í þeirri tillögu sem nú ligg-
ur fyrir er gert ráð
fyrir að þar geti hvort
heldur risið íbúða-
byggð eða iðnaðar-
hverfí. Samkvæmt
eldra skipulaginu var
gert ráð fyrir að í Eiðs-
víkinni yrði gerð höfn
og svæðið umhverfis
hana hefur samkvæmt
þessum nýju tillögum
verið stækkað. Það
hlýtur að vera eðlilegt
að sitt sýnist hveijum
um slíka breytingu.
Gamla skipulagið
gerði ráð fyrir sáralitlu
athafnasvæði um-
hverfis höfnina í Eiðs-
vík, þannig að þar fékkst einungis
lausn á brýnustu þörf borgarinnar
fyrir stækkun hafnarinnar. Það er
því ekki óeðlilegt að mikill þrýst-
ingur sé á borgina að stækka þetta
athafnasvæði verulega því fjöldi
fyrirtækja mun flytjast úr borginni
á næstu árum ef þeim bjóðast ekki
góðar byggingarlóðir innan borg-
armarkanna. Undan þessum þrýst-
ingi er verið að láta núna þegar
ákveðið er að breyta Geldinganesi
í athafnasvæði, enda lóðir rétt við
höfnina kjöraðstæður fyrir fjölda
fyrirtækja sem stunda útflutning
eða innflutning og ná aukinni hag-
kvæmni með að stytta allar flutn-
ingsleiðir.
Það er meiri framsýni í
því, segir Friðrik Han-
sen Guðmundsson, að
gera framtíðarhöfn við
Kollafjörð/Kjalarnes
eða Álfsnes/Þerney.
Það er meiri framsýni í því að
gera framtíðarhöfn og hafnar-
svæði við Kollafjörð/Kjalarnes eða
við Álfsnes/Þerney. Slík höfn mun
geta þjónað höfuðborgarsvæðinu
og landinu öllu. Með lagningu
Sundabrautar mun verða álíka
langt frá Sundahöfn niður á
Reykjavíkurhöfn og frá Sundahöfn
til nýrrar hafnar við Kollaijörðinn.
Hætta á við þann „millileik" að
gera höfn við Eiðsvík og gera
Geldinganes að athafnasvæði þar
sem væntanlega er hagkvæmara
að leggja þá fjárfestingu alla í
nýja framtíðarhöfn, þar sem jafn-
framt yrði tryggt nægjanlegt at-
hafnasvæði næstu áratugi. Geld-
inganesið yrði þá tekið undir
íbúðabyggð eins og upphaflega
stóð til.
Höfundur er verkfræðingur og
þátttakandi í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Friðrik Hansen
Guðmundsson
í snyrtivörudeild Hagkaups
kringlunni föstudag og laugardag
12-18 og sunnudag 13-17. Fagmenn
fró Japan og íslandi vcröa til aöstoöar og bregða birtu ó þann
heillandi leyndardóm, sem land sólarupprósarinnar býr yfir.
Heimgreiðslur
FYRIR nokkrum
árum komu sjálfstæð-
ismenn á heimgreiðsl-
um til foreldra barna,
sem ekki voru á leik-
skólum. Greiðslur
þessar byggðu á þeirri
hugsun að þeir for-
eldrar sem fremur
kjósa að vinna heima
meðan börn þeirra eru
litil hefðu möguleika á
aðstoð frá sveitarfé-
laginu eins og þeir for-
eldrar sem vinna utan
heimilis og nýta sér
þjónustu leikskóla. Sú
þjónusta er verulega
niðurgreidd. Mikil
eftirvænting ríkti meðal foreldra
sem sáu sér hag í þessari lausn.
Heimgreiðslukerfið hafði ekki ver-
ið í gangi í langan tíma þegar
R-listinn náði meirihlutanum hér í
Reykjavík. R-listinn ákvað fljótt
að leggja af heimgreiðslukerfið en
þá nutu foreldrar um 500 barna í
Reykjavík þessara greiðslna.
I umræðum í borgarstjórn um
afnám heimgreiðslna kom glöggt
í ljós sá munur sem er á pólitísku
fylkingunum í borginni. Annars
vegar vorum sjálfstæðismenn með
þá hugsun að leiðarljósi að þetta
væri leið til að auka frelsi fólks til
að velja sjálft hvaða lausn hentaði
því. Hins vegar voru fulltrúar R-
listans sem lögðu á það ofurkapp
að engar greiðslur til einstaklinga
sem kæmu í staðinn fyrir samfé-
lagslega þjónustu ættu rétt á sér.
Þessi afstaða R-listans virðist
byggja á því að að öll félagsleg
mál eigi að leysa í gegnum stofnan-
ir. Þannig eigi dagvistarstofnanir
BILSKURSHURÐIR
að leysa mál allra
barnaíjölskyldna, öldr-
unarstofnanir sjái um
mál allra aldraðra og
áfram mætti telja. Síst
er verið með þessum
orðum að gera lítið úr
starfsemi slíkra stofn-
ana. Heldur er verið
að draga fram að sömu
lausnir henta ekki öll-
um. Einstaklingarnir
eru ólíkir og hafa mis-
munandi þarfir. Flest
börn þrífast vel á leik-
skólum en öðrum
IngaJóna börnum hentar annað
Þórðardóttir umhverfi betur. Sjálf
hef ég mjög góða
reynslu bæði af leikskólum og
þjónustu dagmæðra. Aðalatriðið
er að foreldrar hafi einhveija
möguleika á að velja.
Fyrir nokkrum árum stóð verka-
kvennafélag hér í borginni fyrir
skoðanakönnun meðal félaga sinna
um hvaða lausnir í dagvístarmálum
Aðalatriðið er, segir
Inga Jóna Þórðar-
dóttir, að foreldrar hafí
einhveija möguleika
á að velja.
IlVaU-BOMGA ehf.
MOÍ OABAKKA 9. 11!’ Rl YKJAVIK
SIMI 58/ 8/90 I AX 58/ 8/91
þær teldu æskilegastar. Niðurstað-
an kom á óvart og hafði raunar
ekki verið gert ráð fyrir þeim
möguleika í spurningunum heldur
kom svarið í gegnum liðinn „ann-
að“. Það kom nefnilega í ljós að
flestar vildu vera heima hjá ungum
börnum sínum ef þær ættu kost á
því.
Heimgreiðslukerfið var gagn-
rýnt m.a. fyrir það að greiðslurnar
væru lágar. Sú gagnrýni átti vissu-
lega rétt á sér. Verið var að þróa
nýtt kerfi og eðlilegt að menn
færu varlega af stað. En reynsla
sú sem fékkst af því þann skamma
tíma sem það fékk að vera í gangi
er til vitnis um að það er þörf fyr-
ir þennan valkost. Fyrir láglauna-
Ijölskyldur til dæmis skiptir þetta
miklu máli. Sjálfstæðisflokkurinn
mun sjá til þess þegar hann vinnur
borgina á ný að barnafjölskyldum
gefíst kostur á heimgreiðslum.
Höfundur er borgarfulltrúi.