Morgunblaðið - 18.10.1997, Síða 46
46 LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR/PROFKJOR
R-listinn pínir
fólk og fyrirtæki
ÞAÐ ER einkum
tvennt sem hinn ósam-
stæði hópur vinstri
manna sem myndar R-
listann hefur náð sam-
stöðu um í borgarstjóm
Reykjavíkur á þessu
kjörtímabiii. Annað er
hækkun skatta og
gjalda á borgarbúa, hitt
er að reyna að tryggja
áframhaldandi völd
sjálfs sín og þar með
vinstri flokkanna fjög-
urra, sem mynda R-lista
klíkuna. Mikil orka hef-
ur farið í það hjá for-
ystumönnum vinstri
flokkanna að breiða yfir
ágreining í ýmsum málum. Hámarki
náði sjónarspilið þegar borgarstjórinn
þurfti að liggja undir feldi vikum sam-
an til þess að sætta sjónarmið þeirra
um hvemig standa skyldi að vali
frambjóðenda á R-listann fyrir næstu
kosningar. Eins og vænta mátti varð
niðurstaðan sú að flokkamir ijórir
treystu völd sín, komu sér upp „kvóta-
kerfi“, en stuðningsmönnum R-listans
sem telja sig vera utan stjómmála-
flokka var kastað fyrir borð. Er aug-
ljóst að þeir munu ekki eiga einn ein-
asta fulltrúa í „öruggu sæti“ við kom-
andi kosningar.
Glórulaus gjaldtaka
Þegar fjallað er um skattlagningu
og gjaldtöku R-listans í Reykjavík
er af mörgu að taka. Dæmi um afar
óréttlátan skatt vinstri flokkanna er
svonefnt holræsagjald, sem er nýtt
gjald sem lagt er á þá borgarbúa sem
búa í eigin íbúð. Þetta kemur illa við
alla, ekki síst lágtekjufólk og bama-
fjölskyldur, að ekki sé talað um aldr-
aða, sem búa enn i rúmgóðu hús-
næði, en hafa litlar tekjur. Virðist
vinstri flokkunum vera sérstaklega
annt um að leggja stein í götu þeirra
og torvelda þeim að lifa mannsæm-
andi lífi. Fleiri dæmi um skatta- og
gjaldahækkanir má nefna, af nógu
er að taka: Heitt og kalt vatn hefur
hækkað, rafmagn, gatnagerðargjöld,
dagvistargjöld, strætisvagnafar-
gjöld, bílastæðagjöld, aðgangur að
sundstöðum og þjónusta við aldraða.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur lýst
sig andvígan þessum
hækkunum og heitið að
færa gjaldtöku og
skatta til fyrra horfs
eftir næstu kosningar.
Skattpíning
borgarfyrirtækja
Borgaryfirvöld krefja
fyrirtæki borgarinnar
um skatt til borgarsjóðs,
svonefnt afgjald. Hefur
það sætt gagnrýni, enda
upphæðin hækkað jafnt
og þétt undanfarin ár
og náð áður óþekktu
Jóna Gróa hámarki undir forystu
Sigurðardóttir R-listans. Einkum hefur
sú háa upphæð sem
Rafmagnsveitu Reykjavíkur er gert
að greiða verið gagnrýnd, en fjárhæð-
in er í engu samræmi við rekstraraf-
komu fyrirtækisins. Hefur borgar-
stjóri, af alkunnri skynsemi, ráðlagt
fýrirtækinu að taka lán til að standa
undir greiðslunum!
Á þessu kjörtímabili hefur Raf-
Borgarbúar eiga að
njóta góðs gengis borg-
arfyrirtækja, segir Jóna
Gróa Sigurðardóttir, í
stað þess að skattleggja
þau í borgarsjóð.
magnsveitunni verið gert að greiða
480 til 600 milljónir króna í skatt
til borgarinnar, sem er miklu hærri
upphæð en rekstarhagnaður fyrir-
tækisins nemur, en hann hefur verið
á milli 280 og 360 milljónir á tímabil-
inu.
í stað þess að þrautpína borgarfyr-
irtækin og neyða þau til að ganga á
eigið fé sitt, væri nær að borgaryf-
irvöld leyfðu viðskiptavinum fyrir-
tækjanna að njóta góðs gengis
þeirra. Þess vegna ætti að lækka
gjaldskrána og láta eigendur fyrir-
tækjanna, borgarbúa, njóta ávaxt-
anna með beinum hætti.
Höfundur er borgarfulltrúi.
Borgarmálin - ekki bara
steinsteypa o g viðhald
heldur heilsa o g hamingja
HEILSA okkar er
það dýrmætasta sem
við eigum og mikilvægt
er að byggja upp heil-
brigt líf strax í æsku.
Líkamlegu heilbrigði
kann að vera ógnað, ef
við vanrækjum að
smíða þann ramma í
umhverfinu sem styður
góðar venjur og góða
lifnaðarhætti.
Það er staðreynd að
aukin kyrrseta er að
verða að heilbrigðis-
vandamáli í þjóðfélagi
okkar. Þá er ekki að-
eins átt við fullorðna,
heldur einnig börn og
unglinga. Þáttur tölva og sjónvarps
stækkar hratt og óumflýjanlega í
lífi okkar og því miður eru ennþá
of fáir sem gefa sér tíma á annasöm-
um degi til að stunda hreyfingu af
einhveiju tagi. Þó að viljinn sé vissu-
lega fyrir hendi hjá mörgum og góð
áform uppi um breytingu á lífsstíl
er staðreyndin sú að u.þ.b. 70% ís-
lendinga gefa sér ekki tíma til að
hreyfa sig.
Borgaryfirvöld geta vissulega
stuðlað að úrbótum í þessum efnum
á marga vegu. Nú eru grunnskól-
amir reknir af sveitarfélögunum og
opnast þá nýir möguleikar og ný
tækifæri sem ekki mega glatast.
Forvarnarstarf er mjög mikilvægt
til að byggja upp heilbrigði fólks í
borginni. Með því að efla fræðslu í
skólum og leikskólum, ölum við upp
einstaklinga sem eru meðvitaðir um
Ágústa Johnson
mikilvægi þjálfunar og
skynsamlegs fæðuvals.
Þannig geta bömin
lært frá upphafi að
hreyfing er sjálfsagður
hlutur í lífinu og jafn
mikilvægt að hreyfa
sig daglega eins og að
bursta tennurnar og
sofa.
Fyrir nokkmm áram
kom upp umræða um
að setja upp vatnshana
í öllum skólum borgar-
innar. Ekkert hefur
spurst til þeirra enn.
Gosdrykkjaneysla
bama og unglinga er
tvímælalaust orðin mik-
ið áhyggjuefni. Mikil sykumeysla og
auknar tannskemmdir bama, sam-
hliða minni neyslu á öðram hollari
drykkjum s.s. mjólk og vatni era
nægar ástæður til að sporna við
þessari þróun með markvissum
vinnubrögðum í skólakerfinu.
Það leikur enginn vafi á því að
með því að koma slíkum drykkjar-
brannum upp í skólunum væri stig-
ið stórt skref í átt til þess að bæta
heilsu bama og unglinga. Öll erum
við vanaföst og ef við kennum börn-
unum strax á unga aldri að fá sér
sopa af vatni við þorsta í stað sykr-
aðra drykkja sköpum við hollar venj-
ur og þarf ekki að tíunda frekar
gildi þessa fyrir heilsuna.
Skattar R-listans
Borgin verður að byggja upp
markvissa áætlun til að bæta heilsu
R-listinn hefur unnið
gegn fjölskyldunni,
segir Ágústa Johnson,
og sjálfstæðismenn
munu sporna við
því hið snarasta er þeir
endurheimta borgina.
borgarbúa, skapa heilsusamlegt
umhverfi og hlúa að fjölskyldunni.
Skattahækkun R-listans hefur kom-
ið verulega við pyngjuna hjá Reyk-
víkingum og til að mæta þeirri
hækkun verður fólk að vinna meira
og þar með er minna um frítíma sem
bitnar á samverastundum fjölskyld-
unnar. R-listinn hefur unnið gegn
fjölskyldunni og því viljum við sjálf-
stæðismenn sporna við hið snarasta
er við endurheimtum borgina.
Ég bið um brautargengi reyk-
vískra sjálfstæðismanna til að taka
þátt í þessu starfi.
Við munum efla heilbrigt líf í
borginni, bæta umhverfið, andrúms-
loftið og stuðla að því að fjölskyldur
og einstaklingar geti notið frístunda
sinna til annars en að vinna fyrir
sköttum R-listans.
Höfundur er þátttakandi í
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins.
Hvernig skóla vilt þú?
í GRUNNSKÓLANUM gefst
tækifæri til að veita bömum mikil-
vægt veganesti út í lífið. Þar er
lagður grannur að íslensku samfé-
lagi framtíðarinnar og því er mikil-
vægt að huga vel að því hvað það
PDRjETtíto
HjAKÍAVERJlDAlOJ/
HJARTA E R GULLI BETRA
^vinnincuR^
MMC Pajero
Að verðmæti 3.290.000
^PtdnnincuR^
Golt GL 1.6
Að verðmæti 1.526.000
Glæsibifreiðar
Ævintýraferðir
Tölvupaktcar
Hægt er að greiða heimsenda miða
með greiðslukorti í síma 581 3947.
Sendum miða hvert á iand sem er.
Miðaverð kr. 700
, 0/ÍE6/Ö f KV'ÖLO
-/jvmnmcuR
■^TvinnineuR
3 ævintýraferðir með Úrvali-Útsýn
Hver að verðmæti 500.000
@m—j££}Mv\nninc\iK_
20 ferðavinningar með Úrvali-Útsýn
eða tölvupakkar frá Nýherja
Hver að verðmæti 300.000
SFAiUSJÓÐUR
NÝHERJI OG NAGRENNÍS
Svanhildur
Hólm Valsdóttir
er sem við viljum að
verði einkenni þess
samfélags. Sjálfstætt,
vel menntað fólk, sem
hefur til að bera kjark
til að hafa frumkvæði
að ýmsum efnum, er
auður sem ástæða er
til að hlúa að. Þegar
eitthvað fer úrskeiðis í
þjóðfélaginu beinast
augu fólks að skólan-
um, og tilhneiging er
til að varpa ábyrgðinni
yfir á hann, hvort sem
tök eru á því fyrir
kennara að takast á
við þau vandamál sem
steðja að, eða ekki. Það
er því ljóst að flestir eru sammála
um mikilvægi skólans í þjóðfélag-
inu, en eitthvað virðist vanta upp á
viljann til að gera honum kleift að
koma til móts við þær kröfur sem
til hans eru gerðar.
Hlutverk skólans er ekki einung-
is að miðla þekkingu heldur einnig
að búa nemendur undir líf og starf
í lýðræðisþjóðfélagi, og móta með
þeim heilbrigð viðhorf; til menntun-
ar og samfélagsins. Grunnskólinn
er ekki geymslustaður fyrir börn,
unglinga og fólk sem er tilbúið að
leggja á sig mikla vinnu fyrir lág
laun. Þekkingin sem þar er miðlað,
er mikilvægur liður í menntun þjóð-
arinnar, en ekki síður er heilbrigt
viðhorf til mennta og menntakerfis-
ins veganesti sem verður að veita
^ydaga viku^
-kjarni mílvins!
nemendum. Það vega-
nesti fæst ekki, þegar
verkföll vegna bágra
kjara verða fastur liður
í námsskránni, þegar
kennarar njóta ekki
þeirrar virðingar
vinnuveitanda síns sem
þeim ber; þegar skólinn
er ekki lengur fastur
punktur í tilveru barna.
Það er ljóst að breyt-
inga er þörf, og þótt
fáir hafi átt von á bylt-
ingu, bundu margir, og
þar á meðal kennarar,
vonir við yfirfærslu
grunnskólans til sveit-
arfélaga. Kannski ekki
að ástæðulausu, í það minnsta í
Reykjavík, þar sem þess hafði verið
vænst að stærsta sveitarfélag
Það er ljóst að breytinga
er þörf, segir Svanhild-
ur Hólm Valsdóttir,
þótt fáir hafí átt von á
byltingu.
landsins yrði framkvöðull breyt-
inga, til að bæta hag þeirra sem í
skólunum starfa; nemenda og kenn-
ara. Þegar þetta er skrifað gengur
hvorki né rekur í samningaviðræð-
um kennara og að mati Ingibjargar
Sólrúnar er það sök ríkisins, þar
sem það hafi gert of vel við fram-
haldsskólakennara í þeirra kjara-
samningi. Getur ekki verið að Ingi-
björg þurfi að endurskoða afstöðu
sína gagnvart grunnskólanum og
kennurum hans, og Reykvíkingar
afstöðu sína gagnvart borgarstjóra?
Höfundur er nemi og þátttakandi
í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins.