Morgunblaðið - 18.10.1997, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1997 47
AÐSENDAR GREINAR/PRÓFKJÖR
Reykjavíkurborg
efli atvinnulífið
ÞAÐ ER vart lengur
deilt um það í stjórn-
málum að bætt lífskjör
almennings byggjast á
velgengni fyrirtækj-
anna og þar með hæfni
þeirra til að greiða góð
laun. Velgengni fyrir-
tækjanna ræðst af
samkeppnishæfni
þeirra sem aftur bygg-
ist á hæfileikum stjóm-
enda, dugnaði starfs-
fólks og starfsum-
hverfi.
í umræðum um
starfsskilyrði atvinnu-
lífsins beina menn yfir-
leitt sjónum sínum að ríkisvaldinu
enda fer það með vald til skattlagn-
ingar og lagasetningar almennt. Það
gleymist hins vegar oft að sveitar-
stjórnir geta á ýmsan hátt haft áhrif
á starfsumhverfið. Þannig leggja
sveitarfélög ýmiss konar skatta og
gjöld á fyrirtæki, setja ýmiss konar
reglur, viðhafa eftirlit og veita stoð-
þjónustu. í þessu efni er mikilvægt
að sveitarstjórnir hafi hagsmuni at-
vinnulífsins í huga þegar reglur em
settar.
Minni álögur
Á atvinnulífið eru lagðir bæði
fasteignaskattar og sérstakur skatt-
ur á verslunar- og skrifstofuhús-
næði. Hinn síðarnefnda er að vísu
verið að þrepa niður á næstu ámm,
en engu að síður er hann til staðar.
Við ákvörðun þessara gjalda hefur
hvert sveitarfélag svigrúm til að
ákveða gjaldstig og sum sveitarfélög
innheimta t.a.m. engan skatt á skrif-
stofu- og verslunarhúsnæði.
Sveitarfélög hafa ýmiss konar
eftirlit með starfsemi atvinnufyrir-
tækja, s.s. byggingareftirlit, eld-
varnareftirlit og heilbrigðiseftirlit.
Fyrir eftirlitið em í
ýmsum tilvikum inn-
heimt eftirlitsgjöld.
Þessi gjöld eiga aldrei
að vera hærri en sem
svarar kostnaði af um-
fangi eðlilegs og nauð-
synlegs eftirlits.
Til að atvinnulífið
geti starfað á sem hag-
kvæmastan hátt verða
stjómvöld, hvort heldur
á sviði ríkis eða sveitar-
stjórna, að gæta þess
að kæfa það ekki í
flóknum eftirlitsreglum.
Reglur eiga að vera sem
fæstar og einfaldastar.
Aukin verðmætasköpun
Ýmis fleiri atriði mætti tína til
þar sem sveitarstjórnir geta lagað
sig að atvinnulífinu og sýnt því skiln-
ing. Af nógu er að taka en það sem
Borgarstjórn mótar
starfsumhverfí atvinnu-
fyrirtækja, segir
Kjartan Magnússon,
og miklu skiptir að
sveitarstj órnarmenn
hafí jákvæð viðhorf til
atvinnulífsins.
mestu skiptir er að sveitarstjórnar-
menn hafi skilning og jákvætt við-
horf til þess að auka svigrúm at-
vinnulífsins til að auka verðmæta-
sköpun í þjóðfélaginu.
Höfundur er varaborgarfulltrúi.
Kjartan
Magnússon
BOURJOIS
-- P A R I S -
Kynn
Gréta Boda,
Ií o i*í) ti n a r m eistari
kynnir haust-
og vetrarlilina
I í dag kl. 12-16.
Nýir tímar - ný hugsun
ÞEGAR komið var
að máli við mig varð-
andi prófkjör og ég
hvött til að taka þátt
í prófkjöri Sjálfstæð-
isflokksins, hugsaði ég
strax, þetta verður
skemmtilegt og mikil
áskomn. Eg get komið
góðu til leiðar fyrir
íbúa Reykjavíkur, ekki
er vanþörf á.
Það má líkja mann-
fólkinu í Reykjavík við
plöntur af eðlisein-
kennum þess. Sumir
fæðast brotin strá, aðr-
ir eru eins og strá sem
svigna í vindi, síðan
eru það sumarblóm, til að þau dafni
vel þurfa þau sól og hæfilega vökv-
un. Síðasta tegundin er kaktusar,
ég tel mig tilheyra þeirri tegund.
Mig langar að segja ykkur litla
sanna sögu af kaktus. Ég leigði
bróður mínum húsnæði einu sinni
í 1 ‘A ár. Þegar við vorum að hjálpa
honum að flytja út, leit ég bak við
gluggatjöld, þá sá ég kaktus vel
skrælnaðan og frekar lífvana. Ég
æpti upp og spurði bróður minn
hvað hann væri búinn að gera við
kaktusinn, hann sagðist ekki hafa
haft hugmynd um hann. „Hvað
heldur þú að ég sé að líta bak við
gluggatjöld?" svaraði hann. Eins
og sönnum sjálfstæðismanni sæmir
og með trúna á lífið ákvað ég að
bjarga kaktusinum. Nú tveimur
árum sejnna lifir hann
góðu lífi. Þetta líkinga-
mál finnst mér eiga vel
við um Sjálfstæðis-
flokkinn, hann hugsar
um alla og leyfir öllum
að njóta sín, hvort sem
þeir eru fæddir með
silfurskeið í munni eða
ekki. Fólk sem vill betj-
ast fyrir flokkinn, fær
að berjast.
Nú vil ég venda mínu
kvæði í kross. Ég vil
reka borgina alveg eins
og fyrirtæki. Ég vil
breyta borginni og hug-
arfari fólksins. Hættum
að væla og verum held-
ur skynsöm. Það vantar peninga í
rekstur borgarinnar. Þá þarf að afla
þeirra. Þeir fiska ekki sem róa ekki.
Sj álfstæðisflokkurinn
hugsar um alla, segir
Halldóra M. Stein-
grímsdóttir, og leyfír
öllum að njóta sín.
Það þarf að kenna bömunum og
unglingum mikilvægi þess að velja
íslenskt. Það þarf að kaupa tölvur
í skólana og leggja áherslu á tölvuá-
huga unga fólksins, þannig að síðar
meir vaxi úr grasi fólk með þekk-^U
ingu á hugviti. Þannig emm við
búin að bæta við annarri gjaldeyris-
skapandi stétt manna. Borgin ætti
að gera plön til minnst 10 ára um
að fá vel efnaða ferðamenn til að
koma hingað í skemmti- og verslun-
arferðir. Það þarf að gera með mark-
aðssetningu erlendis. Reykvíkingar
fylgjast einna best með öllum tísku-
straumum, þannig myndi ég vilja
markaðssetja borgina. íslenskir
hönnuðir gera æ glæsilegri og glæsi-
legri flíkur úr íslensku ullinni, gæm,
selskinni og fiskroði. í þessari litlu
borg er alltof mikið af embættis-
mönnum sem em of frek peningaút-
gjöld. Arðunn sem af þessu hlytist
er hægt að nýta á ótal vegu, hækka
laun kennara, búa betur að öldmð-
um og gefa þeim sanna lífsgleði,
fötluðum og þeim sem minna mega
sín. Sem Grafarvogsbúi til 5 ára
veit ég af eigin reynslu hvað má
betur fara þar varðandi umferðar-
hnúta.
í ofanálag væri hægt að skapa
fallegt mannlíf í Reykjavík með því
að hlúa að hveijum einstaklingi með
andlegri næringu með því að inn-
prenta og rækta jákvætt hugarfar
til lífsins. Ef til vill er auðveldasta
leiðin til þess að benda fólki á a&r»
allt það besta í lífinu er ókeypis og
er ef til vill á næsta strái.
Höfundur er snyrtifræðingvr og
tekur þátt í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins íReykjavík.
Halldóra M.
Steingrímsdóttir
Gæði og verð
i fyrinúmi
Sími 897 5523
Sölusýning á handhnýttum austurlenskum
gæðateppum á Grand Hótel Reykjavík Sigtúni
C
Laugardaginn 18. okt. kl. 12-19
Sunnudaginn 19. okt. kl. 12-19
Mánudaginn 20. okt. kl. 14-19
Verðdæmi:
Pak. Bochara ca. 123 x 170
Afghan Balutch (bænamottur) 123 x 170
Hamadan Iran 203 x 125
Kína Svart 137 x 198
HÓTEL
REYKJAVIK
SIGTÚNI
29.800
7.900
29.800
48.900
? V-
Ásamt mörgum öðrum frábærum tilboðum - sjón er sögu ríkari!
(einnig eru til sölu ýmsir antikmunir, sem eftir voru á síðustu
sýningu okkar á stórlækkuðu verði)
(E) ^ BADGKCIDSIUR
30-50% UNÐIR MARKAÐSVERDI - ALLTAF