Morgunblaðið - 18.10.1997, Síða 52
52 LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1997
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
ELÍN
ÁRNADÓTTIR
+ Elín Ámadóttir
fæddist 22. júlí
1961 í Vík í Mýrdal.
Hún lést á Sjúkra-
húsi Suðurlands 11.
október síðastlið-
inn.
Hún var dóttir
hjónanna Ástu Her-
mannsdóttur, f. 6.3.
1930, d. 26.8. 1993,
og Árna Siguijóns-
sonar, f. 21.3. 1926,
búsett í Vík í Mýrd-
al. Hún var næst-
yngst sex systkina
en þau em: Þor-
steinn, f. 4.7. 1951, hans kona
er Arndís Gestsdóttir frá Sel-
fossi og eiga þau þijú börn.
Sigríður Dóróthea, f. 11.7.
1952, maður hennar er Gunnar
Bragi Jónsson frá Prestbakka
á Síðu og eiga þau þijú böm.
Siguijón, f. 9.7.1957, hans kona
er Margrét Jónsdóttir frá Reyni
í Mýrdal og eiga þau þijá syni.
Hermann, f. 4.10. 1958, hans
kona er Sigríður Magnúsdóttir
frá Selfossi og eiga þau þijá
Enn sannast hið fornkveðna að
„skjótt skipast veður í lofti“ því
aðeins eru fáeinir mánuðir síðan
Elín var með okkur full af bjartsýni
og heilsuhraust. En enginn ræður
sínum næturstað og eru það orð
að sönnu. Seinni hluta vetrar sl. fór
Elín að kenna sér meins og gekk
undir tvær mjög erfiðar aðgerðir,
en þrátt fyrir færni vísindanna varð
sá raunveruleiki sem nú er orðinn
ekki umflúinn. Okkur finnst oft
syni. Oddur, f. 6.5.
1965, kona hans er
Ingibjörg Ólafs-
dóttir frá Hvolsvelli
og eiga þau tvo
syni. Einnig ólst
upp með þeim
systkinum um tíma
Hrafnhildur Oddný
Sturludóttir, f. 13.5.
1949.
Eftirlifandi eig-
inmaður Elínar er
Brynjar Jón Stef-
ánsson, f. 9.7. 1960.
Þau giftu sig 6.6.
1981 og hafa ætt-
leitt tvö börn fædd á Indlandi
en þau em Sigrún Arna, f.
12.11. 1987, og Böðvar Dór, f.
24.12. 1995.
Foreldrar Brynjars Jóns era
Sigrún Jónsdóttir frá Norður-
hjáleigu, f. 27.2.1935, og Stefán
Ármann Þórðarson, f. 30.9.
1929, í Vik í Mýrdal. Þau em
búsett á Selfossi.
Útför Elínar fer fram frá
Víkurkirkju I dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
óréttlátt þegar svona ungt fólk með
bjartar framtíðarvonir er burtkallað
úr þessum heimi og horfa upp á
hetjulega baráttu gegn þessum ill-
kynja sjúkdómi sem engu eirir. Al-
veg var aðdáunarvert í allt sumar
hvað Elín var dugleg og harðákveð-
in í því að yfirstíga sitt mótlæti,
og svo glöð ög hress var hún oft
að sjá að það blekkti marga aðra
en hennar nánustu.
Elín var aðeins 36 ára og ávallt
+
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
SIGURJÓN ÓLAFSSON
fyrrverandi vitavörður
á Reykjanesvita,
verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju
mánudaginn 20. október kl. 13.30.
Börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem
sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og
útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður,
tengdamóður og ömmu,
KRISTÍNAR KARLSDÓTTUR,
Brimhólabraut 6,
Vestmannaeyjum,
Guð blessi ykkur öll.
Arnmundur Þorbjörnsson,
Ásta Arnmundsdóttir, Sigurður Jónsson,
Gyða Margrét Arnmundsdóttir, Viðar Már Aðalsteinsson
og barnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir hlýhug og auðsýnda
samúð við fráfall og útför eiginmanns míns,
föður okkar, sonar og bróður,
ÁRNA AÐALSTEINSSONAR,
Björk,
Reyðarflrði.
Helga Benjamínsdóttir,
Guðlaug Hólmfrlður Hilmarsdóttir,
Margrét Sigríður Árnadóttir,
Benjamín Fannar Árnason,
Anna Margrét Árnadóttir,
Ágúst Páll Árnason,
Almar Árnason,
Árný Árnadóttir,
Aron Árnason,
Margrét S. Árnadóttir, Aðalsteinn Hjálmarsson,
Hjálmar Kr Aðalsteinsson, Margrét Björnsdóttir,
Ásta Aðalsteinsdóttir, Aðalsteinn Guðmundsson,
Ólafur Aðalsteinsson, Olga Helena Kristinsdóttir.
heilsuhraust og full lífsgleði sem
meðal annars birtist í því að hún
var vinamörg og átti góða sanna
vini, enda sjálf vinur vina sinna.
Heimili þeirra Elínar og Brynjars
var til fyrirmyndar, alltaf hreint og
nýtiltekið svo að af bar þrátt fyrir
mikinn gestagang og fulla vinnu í
Búnaðarbankanum hér á Selfossi.
Ekki þarf að lýsa því hvernig þér
hlýtur að hafa liðið, Elín mín, þessa
fáu mánuði í sumar þegar séð var
að hveiju stefndi. Aðeins eitt ár frá
því að þú sóttir þennan litla yndis-
lega dreng, Böðvar Dór, yfir hálfan
hnöttinn sem hefur síðan verið
gleðigjafi heimilisins og okkar allra.
Það má kannski segja að aldur
hans bjargi því að hann skynjar
þetta ekki eins og systir hans Sig-
rún Arna, sem nú er orðin 9 ára
og hefur hugsað margt og djúpt
síðustu mánuði þótt hún léti það
ekki alltaf í ljós hvernig henni liði.
Við lofuðum þér í sumar, Elín mín,
að verða þeim innan handar í hví-
vetna og það skulum við svo sannar-
lega gera af öllum okkar mætti og
getu, því máttu treysta.
Frá því að við kynntumst Elínu
fyrst hefur ávallt verið kærleikur
með okkur, og hún var að eðlisfari
mjög skilningsrík og átti gott með
að tjá sig um það sem henni lá á
hjarta. Hún sagði alltaf meiningu
sína og engum gat dulist hvað hún
meinti því hennar skoðanir voru
þannig framsettar og sagðar á ein-
faldan hátt að engan særði eða
meiddi.
Elín var líka mjög glaðlynd og
átti auðvelt með að sjá spaugilegar
hliðar mála þegar svo bar undir, en
þó án þess að særa aðra eða á kostn-
að annarra. Hún hafði mjög gaman
af söng og hafði ágæta söngrödd,
en það sem oft vakti furðu annarra
við slík tækifæri var, að hún strand-
aði aldrei á textum ljóða, hún kunni
alla texta utanbókar.
Þau Elín og Brynjar voru afar
samrýnd og samtaka í öllu sem þau
tóku sér fyrir hendur og eftir að
ljóst var hver hennar afdrif yrðu
ræddu þau saman opinskátt um
framtíðina þar sem hún hvatti
Brynjar til að halda þeim áformum
sem þau höfðu ætlað sér saman.
Til slíkra umræðna þarf hugrekki
og mikið þrek, en svona var Elín,
æðrulaus og fórnfús við alla sem
henni þótti vænt um. Brynjar Jón
sýndi líka sína elsku til hennar með
miklum dugnaði við heimilið, þolin-
mæði, yfirvegun og styrk meðan á
þessari baráttu stóð svo aðdáunar-
vert þótti af öllum sem til þekktu.
Elínu var Víkin ákaflega hjart-
fólgin, þar fæddist hún og ólst upp
í stórum systkinahóp við ástríki
góðra foreldra. Hún dáði foreldra
sína mikið og syrgði móður sína
djúpt þegar hún féll frá langt um
aldur fram fyrir 4 árum. Bemsku-
ást hennar til foreldranna birtist
eftir það í enn meiri hlýhug og
trausti til föður hennar sem var
ríkulega endurgoldið af hans hendi
og vék hann ekki frá sjúkrabeði
dóttur sinnar síðustu þijár vikurnar
sem hún lá á Sjúkrahúsi Suður-
lands. Það var aðdáunarvert hvern-
ig hann hjúkraði dóttur sinni og
þér, Brynjar minn, mikill styrkur í
baráttunni. Það kom því okkur ekki
á óvart þótt Elín væri búin að gera
ráðstöfun þess efnis að hún mætti
hvíla sína hinstu legu hjá móður
sinni í Víkurkirkjugarði.
Við umgengumst Elínu mikið
sem eðlilegt var og þekktum því
mjög vel alla hennar góðu eiginleika
sem hún bjó yfír og var svo fús að
gefa öðrum af. Það er því mikill
harmur meðal okkar í fjölskyldunni
og við biðjum góðan Guð að styrkja
systkini hennar og fjölskyldur
þeirra, Árna faðir hennar og þá
ekki síst þig, elsku Brynjar Jón og
börnin, Sigrúnu Örnu og Böðvar
Dór. Guð veri með ykkur öllum.
Tengdaforeldrar,
Sigrún Jónsdóttir og
Stefán Ármann Þórðarson.
Ljóð Tómasar Guðmundssonar
„Hótel Jörð“ hefst á hendingunni
„Tilvera okkar er undarlegt ferða-
lag“, það má með sanni segja, að
okkar jarðneska tilvera sé óútreikn-
anleg. Maður spyr sig, hvar er
maður staddur á ferðalaginu? Hvers
vegna er ferðin svona stutt hjá ein-
um, en öðrum ekki? í dag kveðjum
við ástkæra mágkonu og góða vin-
konu okkar, Elínu Árnadóttur, með
miklum trega. Hún fékk einungis
að njóta stutts ferðalags, vegna
erfiðs sjúkdóms.
Traust, hreinskilni, manngæska
og djúpur skilningur á mannlegum
tilfínningum eru mannkostir sem
Ella hafði í ríkum mæli. Hún var
ástrík eiginkona og hafði yndi af
bömum enda voru það stærstu
stundir lífs hennar þegar hún eign-
aðist börnin sín. Ella var æðrulaus
þegar veikindin heijuðu sem mest
á hana. Þar var henni rétt lýst þeg-
ar hún lagði sig fram við að hug-
hreysta vini og ættingja.
Það væri hægt að telja miklu
fleira upp sem prýddi þann frábæra
persónuleika sem Ella hafði að
geyma, en hver og einn sem kynnt-
ist henni geymir minningarnar með
sjálfum sér.
Það var aðdáunarvert hversu
samhent hjón Ella og Binni voru,
enda nutu þau samvista frá ungl-
ingsárum og þroskuðust saman.
Engar ákvarðanir voru teknar án
samráðs við hvort annað enda stóðu
þau saman hvað sem á gekk.
Ef á æðri samvistarstigum eru
stunduð mannvæn samskipti þá'
leyfum við okkur að fullyrða, að
með Ellu fá þau mikinn liðsstyrk.
Elsku Birini og börn, við vottum
ykkur dýpstu samúð og munum
leitast við að gefa ykkur eins mik-
inn styrk eins og mögulegt er í
sorg okkar allra á komandi tímum.
Elsku Ella, hvíl þú í friði.
Ingunn, Þórður, Páll, Rut
og fjölskyldur þeirra.
Elsku Ella, nú þegar ég sest nið-
ur og reyni að pára niður nokkur
fátækleg kveðjuorð verður mér
hugsað, hver eru rökin fyrir því að
þú, svo allt of ung, ert hrifin í burtu
frá tveimur börnum og eiginmanni?
Hvers eigum við að gjalda sem átt-
um okkur góðan og trygglyndan
vin að hann skuli frá okkur tekinn?
Það verður fátt um svör.
Þú barðist eins og hetja allan
tímann við þann illvíga sjúkdóm
sem setur mark sitt nánast á hveija
einustu fjölskyldu. Við fjölskyldan
kynntumst Ellu, Binna og Sigrúnu
Örnu þegar þau fluttu í sama rað-
hús og við, Böðvar Dór kom svo
seinna. í þér og fjölskyldu þinni
eignuðumst við ómetanlega vini.
Þú áttir svo auðvelt með að laða
að þér fólk, enda sérlega mikill
mannvinur. Þú varst ein af fáum
manneskjum sem var algjörlega
fordómalaus, þú dæmdir engan
heldur sást þú alltaf eitthvað gott
við alla. Það er mikils virði að eiga
vin sem alltaf er hægt að leita til
með hvers konar vandamál eða
gleði. Þú varst okkur svo miklu
meira heldur en góður nágranni,
því allir meðlimir Qölskyldu minnar
eignuðust í þér góða vinkonu. Þú
varst vel greind og hafsjór af upp-
lýsingum. Alltaf var jafn gaman
að koma til þín og ræða við þig um
hesta. Þú vissir mikið um allar ætt-
ir og varst mjög áhugasöm um allt
sem við kom hestamennsku. Þú
studdir einnig vel við bakið á Binna
og Sigrúnu í þeirra hestamennsku.
Þú varst skynsöm og það skipti þig
t.d. miklu máli að börnin þín tvö,
sem eru ættleidd frá Indlandi, vissu
allt um uppruna sinn. Þú fylgdist
vel með öllu efni um Indland, t.d.
í sjónvarpi, og sýndir svo Sigrúnu,
þú vildir að Sigrún vissi allt um
uppruna sinn og eins Böðvar þegar
þar að kæmi. Þú hafðir mjög sterka
móðurtilfmningu. Þú virtist hafa
mjög góð tök á uppeldinu, þú talaði
mikið við börnin þín, þú gafst þér
mikinn tíma með þeim og faðmaðir
þau oft að þér. Þú varst mikil fjöl-
skyldumanneskja og ræktaðir vel
samband þitt við íjölskyldu þína.
Móður þína misstir þú fyrir örfáum
árum og minntist þú oft á hana.
Nú færð þú að hitta hana aftur og
ég trúi því að hún hafi tekið á
móti þér þegar þú komst. Þú varst
ákveðin í fasi sem einkenndist af
greind, jákvæðni og glettni. Betri
félaga var vart hægt að hugsa sér.
Elsku Binni, Sigrún og Böðvar, á
stundu sem þessari verða öll orð
marklaus, „sár harmur" kemst ekki
nærri því að lýsa tilfinningum okk-
ar vina hennar Ellu, að ekki sé tal-
að um fjölskyldu hennar sem fékk
að njóta hennar alltof stutt. Maður
getur ekkert annað en þakkað fyrir
samveruna og geymt minningu
hennar í hjarta okkar um ókomna
tíð. Binni, Sigrún og Böðvar, við
sendum ykkur okkar dýpstu samúð-
arkveðjur. Það er huggun að eiga
ljúfar minningar um góða mann-
eskju sem ætíð hugsaði um velferð
ástvina sinna og vildi öllum vel.
Svava, Bragi og synir.
„Tilvera okkar er undarlegt
ferðalag." Það sem er erfítt að
sætta sig við á okkar ferðalagi lífs-
ins, er að okkar áætlunum er breytt
af æðri máttarvöldum, og eftir
stöndum við og reynum að ná áttum
+
Okkar ástkæra,
IRMGARD MARTHA SONNENTAG,
lést föstudaginn 10. október síðastliðinn.
Útför hennar fór fram frá Kristskirkju, Landakoti,
fimmtudaginn 16. október.
Sigurður Steindórsson,
Katrín Sigurðardóttir, Þorsteinn Jóhannsson,
Páll Sigurðsson, Kristín Daníelsdóttir,
Kristín Þorsteinsdóttir,
Páll Þorsteinsson.
+
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur
samúð og vináttu við andlát og útför ástkærrar
móður okkar, tengdamóður og ömmu,
GUÐBJARGAR RUNÓLFSDÓTTUR,
Efri-Ey I,
Meðallandi. -
Þórir Bjarnason
Guðgeir Bjarnason, Sigrún Sæmundsdóttir,
Arndís Eva Bjarnadóttir, Gunnar Þorsteinsson,
Runólfur Bjarnason, Anna Arnardóttir,
Gunnhildur Bjarnadóttir, Sigurjón Einarsson,
og barnabörn.