Morgunblaðið - 18.10.1997, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1997 59
BREF TIL BLAÐSINS
Þroskaþjalfar á
skammtímavistun
Frá þroskaþjálfum, Álfalandi 6:
SKAMMTÍMAVISTUN er þjón-
ustuform fyrir fatlaða og fjölskyid-
ur þeirra sem mjög hefur rutt sér
til rúms undanfarinn áratug. Það
er í beinu framhaldi af þeirri stefnu
í málefnumf atlaðra að þeir skuli
búa heima hjá ijölskyldu sinni en
ekki vistast á stofnunum. Vegna
mikilla framfara á sviði læknavís-
indanna eru æ fleiri börn sem lifa
þrátt fyrir mikla þroskahömlun og
veikindi. Forsenda þess að foreldrar
geti sinnt börnum sínum heima er
góð skammtímavistun þar sem
byggt hefur verið gott traust milli
foreldra og starfsfólks. Hér í Álfa-
landi dvelja 6 börn í senn á aldrinum
0-12 ára. Dvalartími er oftast 7
dagar í mánuði, 3-4 dagar í senn.
Þarfir barnanna eru mjög mis-
munandi með tilliti til umönnunar
lyfjagjafa og þjálfunar og því þarf
starfsfólk að vera mjög vel vakandi
og meðvitað um þarfir barnsins
hveiju sinni. Bömin tengjast fleiri
stöðum og því eru mikil samskipti
við margra ólíka aðila.
Þessi dvöl er orðin fastur liður í
lífi margra fjölskyldna og nauðsyn
þeess að foreldrar geti hvílst og
hlúð að sambandi sínu og annarra
barna sinna sem oft þurfa að sýna
mikla þolinmæði og skilning. Ef
Davíð og
Golíat
Frá Helgu R. Ingibjargardóttur:
EINS og kunnugt er, þá lagði litli
Davíð risann Golíat að velli forðum.
Svo gerði okkar Davíð nú þegar ris-
inn mikii í austri sendi okkur skipan-
ir og hótanir á dögunum fyrir milli-
göngumann sinn hér, sem vægast
sagt fór offari við erindreksturinn í
utanríkisráðuneytinu hér.
Þeir munu teljandi á fingrum ann-
arrar handar sem ekki studdu okkar
Davíð nú í hans myndugu og rólegu
frávísun fyrirskipananna frá Peking.
Ritstjóri DV tjáði með skýrum og
skorinorðum hætti hugsanir og til-
finningar nær allra landsmanna í
leiðara blaðsins á dögunum, er hann
fjallaði um framgöngu sendimanns
„Golíats" í þessu máli hér.
Af einhveijum annarlegum
ástæðum finnur Bryndís, fv. utanrík-
isráðherrafrú, sig kallaða til að út-
húða ritstjóra DV hér í Mbl. 10. þ.m.,
fyrir skrif hans um þetta mál. Mér
virðist hún hér vera að dæma sig
vanhæfa til að standa við hlið kom-
andi diplómats okkar í Washington.
Gönuhlaup eru ekki nothæf á þeim
vettvangi. Hver er skýringin á skrif-
um hennar nú? Á sendimaðurinn úr
austri eitthvað inni hjá frúnni frá
utanríkisráðherratíð manns hennar?
Það virðist skína í gegn.
HELGA R. INGIBJARGARDÓTTIR,
Espigerði 2, Reykjavík.
Anna F.
Gunnarsdóttir
Kosningaskrifstofa stuðnint»snianna Önnu er við
Hverafold 5. Símar 587 6082 og 587 6083
www.itn.is/~annaogut/xd
verkfall þroskaþjálfa skellur á 3.
nóvember eins og allt bendir til á
þessari stundu, skerðist þessi þjón-
usta og áætlanir margra fjölskyldna
raskast. Vonandi gera samninga-
menn ríkis og Reykjavíkurborgar
sér grein fyrir því að alvarleget
ástand getur skapast hjá mörgum
sem síst skyldi ef þessi lokun á sér
stað. Jafnframt að nefndin geri sér
grein fyrir því að þroskaþjálfar eru
orðnir langþreyttir á launakjörum
sínum.
Þroskaþjálfar, Álfalandi 6,
HELGA B. MAGNÚSDÓTTIR,
JARÞRÚÐUR EINARSDÓTTIR,
MARKRÚN ÓSKARSDÓTTIR.
DENIS0N
Vökvadælur
6-340 l/mín
Þrýstingur upp^
i 290 bör
Spilverk
Spilverk Sig. Sveinbjörnss. ehf
Simi 544-5600 Fax 544-5301
Vökvamótorar
Afl sem tekur
lítiö pláss.
Tengist beint
á vindur e&a
i&na&arvélar^
Eiqum til
a lager.
Spilverk
Sími 544-5600 Fax 544-5301
Rafmótorar
Eigum til á lager alhliða
rafmótora
9,25-90 Kw.
Útfærslur:
♦IP55
♦Með fót og flans
Prófkjör Sjálfstœðisflokksins
LINDU RÓS
í BORGARSTJÓRN
LINDA RÓS
MICHAELSDÓTTIR
STARF
Kennari við Álftamýrarskóla
frá 1983
MENNTUN
Stúdent frá MR 1972
BA í ensku og bókmenntum
fráHÍ 1978
Námskeið innanlands og utan
Námsferðir til Bretlands,
Bandaríkjanna, Þýskalands og
Japan
TRÚNAÐARSTÖRF
f stjórn Heimdallar 1974-75
og 1978-79
í stjórn Vöku 1974-76
f nefnd Menntamálaráðu-
neytisins um mótun
menntastefnu
f nefnd Féiagsmálaráðu-
neytisins um vinnu barna
og unglinga.
FJÖLSKYLDA
Linda er gift Steingrími Ara
Arasyni, hagfræðingi,
aðstoðarmanni fjármálaráð-
herra og eiga þau þrjú börn,
Herdísi, Valborgu og Vilhjálm
RÖDD
SKÓLANS
Góö menntun er vopn í samkeppni okkar viö aðrar
þjóðir og lykill að áframhaldandi velmegun. í forystusveit
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík verður að vera fólk,
sem hefur tengsl við skólakerfið og þekkir bæði
vandamál þess og möguleika. Einkum er þetta brýnt
núna, þegar ábyrgð á grunnskólanum hefur verið færð
frá ríki til sveitarfélaga.
Rödd skólans verður að heyrast í borgarstjórn
Reykjavíkur.
KJÓSUM LINDU RÓS MICHAELSDÓTTUR
Stuðningsmeim