Morgunblaðið - 18.10.1997, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1997 61
ÍDAG
Árnað heilla
^/"lÁRA afmæli. Á
I Vfmorgun, sunnudag-
inn 19. október, verður sjö-
tugur Jón Björgvin Stef-
ánsson, Skólavegi 22,
Keflavík. Eiginkona hans
er Guðrún Matth. Sigur-
bergsdóttir. Af því tilefni
bjóða þau í eftirmiðdag-
skaffi kl. 16-19 í Safnað-
arheimili Innri-Njarðvíkur-
kirkju á afmælisdaginn.
20. október, verður fimm-
tugur Kristján Haralds-
son, orkubússtjóri á
ísafirði. Af því tilefni taka
hann og eiginkona hans
Halldóra Magnúsdóttir á
móti gestum í sal Frímúr-
ara á Isafirði, laugardaginn
18. október kl. 20.
Ljósmyndarinn - Lára Long.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 9. ágúst í Lágafells-
kirkju af sr. Vigfúsi Þór
Ámasyni Anna Rós Jens-
dóttir og Guðlaugur
Birgisson. Heimili þeirra
er að Kjarrmóum 31,
Garðabæ.
SPURTER . . .
INýr sjávarútvegsráð-
herra Noregs hefur
lýst yfir því að hann vilji
loka Smugunni og útilok-
ar íslenskan kvóta. Sam-
kvæmt stjórnarsáttmála
nýju stjórnarinnar hyggj-
ast Norðmenn kanna
möguleika á því að
stækka landhelgi sína í
250 mílur. Hvað heitir nýi
sjávarútvegsráðherrann í
Noregi?
Lítt þekktum prófess-
or hefur verið falin
stjórnarmyndun í Pól-
landi. Maðurþessi vartil-
nefndur af Kosninga-
bandalagi Samstöðu, sem
bar sigurorð af flokki
fyrrverandi kommúnista,
Lýðræðislega vinstra-
bandalaginu, í kosningun-
um 21. september. Hvað
heitir prófessorinn, sem
sennilega verður næsti
forsætisráðherra Pól-
lands?
3Rithöfundaferill hans
náði yfir hálfa öld og
bækur hans seldust í rúm-
lega 750 milljónum ein-
taka. Hann lést í vikunni
úr hjartaáfalli 81 árs að
aldri. Ein þekktasta bók
hans var „The Carpetbag-
gers“. Hvað hét maðurinn?
Helmut Kohl, kanslari
Þýskalands, lét á
flokksþingi kristilegra
demókrata í þessari viku
fyrsta sinni uppi hver
hann vill að verði arftaki
sinn. Viðkomandi maður
hefur um árabil verið einn
nánasti samstarfsmaður
Kohls. Hann sést hér á
mynd. Hvað heitir hann?
5Hvað merkir orðtakið
að vera eldri en tvæ-
vetur?
^jHver orti?
Nú veit ég, að sumarið sefur
í sál hvers einasta manns.
Eitt einasta aupablik getur
brætt ísinn frá bijósti hans.
7Spurt er um mikinn
varnarmúr í Asíu.
Hafist var handa við að
reisa hann á fjórðu öld
fyrir Krist. Múr þessi er
um 2.400 km langur, sex
til 15 m hár, um átta m
að breidd að neðan og
fimm til sex m breiður að
ofan. Hvað er múr þessi
kallaður?
Á landamærum Ítalíu
og Frakklands er
fjallabálkur, sem er um
50 km langur. í honum
eru margir tindar, sem eru
yfir 4.000 m á hæð. Sá
hæsti er 4.807 m ogtelst
hæsti tindur í Evrópu utan
Rússlands. Hvað heitir
tindurinn?
9Tveir leikmanna knatt-
spyrnuliðs KR vöktu
athygli fyrir annað en fót-
bolta í vikunni þegar þeir
gáfu hálfa milljón krónatil
líknarmála. Fengu leik-
mennirnir þessa peninga
frá íslenskum getraunum
fyrir marksækni, annar 400
þúsund kr. fyrir að skora
fimm mörk gegn Skalla-
grími og þrennu gegn val
og hinn 100 þúsund kr. fyr-
ir að skora þrennu gegn IA.
Hvað heita leikmennirnir?
1. Peter Angelsen. 2. Jerzy
Busek. 3. Harold Robbins. 4.
Wolfgang Sehauble. 5. Að vera
reyndur, vera sjóaður í
einhveiju. 6. Tómas
Guðmundsson. 7. Kínamúrinn.
8. Mont Blanc. 9. Andri
Sigþórsson ánafnaði 400
þúsund krónum til
Styrktarfélags
krabbameinssjúkra barna og
Einar Þór Daníelsson gaf 100
þúsund krónur til Barnaspítala
Hringsins.
Þykkt olíuborið leður.
Stærðir 36-46
Litir: Svartur, brúnn, blár,
rauður, gulur grænn.
Verð aðeins nú kr 5.500
áður kr. 6.990
SKÓUERSLUN
KÓPAVOGS
HAMRABORG 3 • SlMI 334 1734
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Það er ýmislegt sem veitir
þér erfiðleika í starfí en ef
þú heldur ró þinni leysast
hlutimir farsæilega.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Það er ýmislegt á starfs-
vettvangi þínum sem kallar
á sérstaka athygli þína.
Gefðu þér tíma til að leysa
málið.
Ljón
(23. júlí — 22. ágúst)
Láttu athugasemdir ann-
arra sem vind um eyru þjóta
því nú hefur þú rétt fyrir
þér og átt að láta slag
standa.
Sporödreki
(23. okt. - 21. nóvember) ^10
Eitthvað er að angra þig á
fjármálasviðinu. Farðu þér
hægt og reyndu að öðlast
heildarsýn í málunum.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember)
Það getur verið auðveldara
að ákveða hvað gera skal
heldur en að framkvæma
það. Mundu að láta athöfn
fylgja orðum.
Steingeit
(22. des. -19. janúar)
Þú getur haft góða stjórn
á fjármálunum ef þú gætir
þes að lána ekki peninga
út og suður.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðh
Eitt og annað er skrafað í
kringum þig. En á meðan
þú hefur þitt á hreinu getur
þú látið allt umtal sem vind
um eyru þjóta.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) «£*
Þú færð vitneskju sem kem-
ur sér vel fyrir þig í starf-
inu. Haltu ró þinni þó ein-
hveijir vilji egna þig til
átaka.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Okkar tilboð 18.-25. okt.
FRIDIUK IIAXSEX
(itJÐMUNDSSON
í eitt af efstu sætunum
Kosningaskrifstofa
Laugavegi 13,3. hæð
s: 551 3499 fax: 551 3479
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert gæddur ríkum
hæfileikum sem þú þarft
að nýta þér á sem farsæl-
astan hátt.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Það getur hefnt sín að tefla
á tæpasta vað í fjármálum.
Söðlaðu um og gættu hófs
í hvívetna.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Vinnan göfgar manninn, en
það er fleira sem gefur líf-
inu gildi. Sinntu hugðarefn-
um þínum líka.
Tvíburar
(21. maí- 20. júní) 4»
Gættu þess að ganga ekki
á hlut annarra, hvorki f
einkalífi, né í starfi. Vertu
á varðbergi í fjármálum.
Krabbi
(21. júnf — 22. júlí)
Það eru peningar í fleiri
hlutum en hlutabréfum.
Gættu þess þó að hafa rétt
við bæði í fjármálum og
einkalífi.
STJÖRNUSPÁ
Jónu Gróu í 3- sætið!
Allir sjálfstæðismenn eru
velkomnir á
kosningaskrifstofu
Jónu Gróu Sigurðardóttur
borgarfulltrúa á
Suðurlandsbraut 22.
Stuðningsmenn
Kosningoskrifitofan er opin kL 15-22 alla virka daga,
en kl. 14-18 um belgar. Siminn er 588 5230 (3 linur).
VOG
STEINAR WAAGE
Ath. Mikið og gott úrval af herra og strákaskóm
Tegund: 81339
Verð: 6.995
Litur: Svartir
Stærðir: 41-46
Tegund: 81638
Verð: 6.995
Litir: Brúnir
Stærðir: 40-46
5% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR • PÓSTSENDUM SAMDÆGURS
STEINAR WAAGE
---------------
SKÓVERSLUN Zf
SÍMI 551 8519 #
STEINAR WAAGE *
SKÓVERSLUN •#
SÍMI 568 9212/#
Prófkjör Sjálfstæðis-
flokksins 24. - 25. okt.
KÓPAVOGSDAGAR