Morgunblaðið - 18.10.1997, Page 64
64 LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Undraland Kubricks
►JENNIFER Jason Leigh líkir
samstarfí við Stanley Kubrick
við ferð inn í furðuveröld Lísu í
Undralandi. Leikkonan fer með
hlutverk í nýjustu kvikmynd Ku-
bricks „Eyes Wide Shut“ sem er
enn í vinnslu en tökur hófust
fyrir tæpu ári í London.
Jason Leigh sagði í viðtali við
USA Today að Kubrick væri
snillingur. „Það var ótrúleg lífs-
reynsla fyrir mig að vinna með
honum. Maður stígur yfír í ann-
an heim þar sem tíminn skiptir
ekki máli.“
Leikkonan
vildi ekkert
gefa upp um
söguþráð „Eyes
Wide Shut“ eða
samstarfið við
aðalleikara
myndarinnar,
Tom Cruise og
Nicole Kidman.
Það eina sem hún gaf upp var að
hún hefði haft mjög takmarkað-
an tíma til þess að lesa handrit-
ið. „Ég þurfti að skila eintakinu
samdægurs.“
Aggi Slæ og Tamlasveitin auk hinnar firábæru
söngkonu Sigrúnar Evu standa fyrir
mögnuðum dansleik frá kl. 23.30 til kl. 3.
FÓLK í FRÉTTUM
Samviskulaust dagskrárefni
ÞÁ ER farið að lifna yfir dagskrá
ríkissjónvarpsins, eins og gjarnan
verður þegar dag fer að stytta.
Komnir eru á vettvang tveir þætt-
ir, sem landsmenn skemmta sér
við eftir sumarlöng leiðindi og
hrollvekjur. Annar þessara þátta
er Stöðvarvík þein-a Spaugstofu-
manna. Nafnið er í sjálfu sér ekk-
ert fyndið og Bogi róni virðist
hoi-finn af vettvangi og aðrar
ónefndar fyllibyttur, en í staðinn
er kominn einhver sem talar kin-
versku, þegar svo ber undir. í
þessum fyrsta þætti var töluð kín-
verska til heiðurs heimsækjanda
frá Taiwan. Kínverjar eru enn
móðgaðir og gætu sem hægast
orðið móðgaðir seinna meir út af
öðrum ríkjum í Austurlöndum
fjær. Það er auðvelt að
tileinka sér ríki með
þessu hætti; lýsa því
bara yfir að það sé
móðgun við milljarð manns og tvö
hundruð þúsund betur að bjóða í
kaffi.
Það er ástæða til að fagna end-
urnýjuðum kynnum við Spaugstof-
una. Ekki vildu þeir hafa gott og
gilt austfirskt safnheiti yfir víkur,
en á Suðurfjörðum nefnast þær
Fratvíkur og þykir enginn ósómi
að. Þá vakti nokkra furðu að þeir
spaugarar skyldu ekki hafa gleymt
Steingrími Hermannssyni. Sýnir
það raunai’ hvað vettvangur þeiiTa
er þröngrn- hjá lítilli þjóð, svo
grípa varð m.a. til heilagrar kvöld-
máltíðar, sem eins og kunnugt er
var ekki efnt til á partílandinu ís-
landi, heldur við Miðjarðarhafs-
botn, svo víða leita þeir spaugarar
fanga. Seðlabankinn er aftur á
móti mikil höll yfir léttvægar
syndir.
Þá tókst ríkissjónvarpinu að
leggja fram nýjan þátt í síðustu
viku, sem heppnaðist prýðilega.
Ber eflaust að þakka það stjórn-
andanum, Hildi Helgu Sigurðar-
dóttur, blaðamanni, en liðsstjórar
hennar verða Ragnhildur Sverris-
dóttir, blaðamaður og Bjöm
Brynjúlfur Bjömsson, kvikmynda-
maður. Hildur hefur löngum alið
aldur sinn í London, en þar eru
spurningaleikir vinsælt sjónvai-ps-
efni. Svo vill til að íslenskur maður
Magnús Magnússon, eða Mest-
megnis Magnús, eins
og spaugarar hafa
kallað hann, er ein-
hver frægasti spyrill
Bretlands og hefur gefið út bók
um spurnir sínar. Hildur Helga og
liðsstjórar hennar fóra vel af stað
á fimmtudag í fyiri viku og vona
menn að ekki verði af neinu slegið
í framtíðinni.
Þrátt fyrir góða spretti á báðum
sjónvarpsstöðvunum, heldur dag-
skráin áfram að vera nokkuð
happa- og glappakennd. Þeir sem
ráða eiga sýnilega í nokkram erf-
iðleikum í innkaupum. Kannski
þurfa þeir enn að sæta því, hafi
þeir ágirnd á tveimur eða þremur
myndum, að fá þær ekki nema
kaupa tíu mynda pakka, og þá
verða þeir að taka við myndum
sem þeir hafa engan áhuga á,
myndum sem sölumönnum gengur
illa að selja. Sem dæmi um kvöld-
dagskrá stöðvanna tveggja eitt ný-
liðið kvöld er hér getið þriggja fyr-
irferðarmikilla sýninga: Laun-
morðingjar, Glæpahringur og Mis-
tækir mannræningjar.
Dagblöð þurfa ekki að burðast
við að birta fyrrgreind dæmi í
heilaþvotti og innrætingu. Þeim er
haldið úti af allt öðrum ástæðum,
þótt myndbirtingar í þeim hafi
aukist í takt við sjónvarpsnotkun.
Blöðin birta aftur á móti vaxandi
árangur af innrætingu sjónvarps í
auknum fréttaflutningi af meiðsl-
um, morðum og manndrápum.
Engin skýring hefur fengist á því
af hverju nú, þegar við erum upp-
lýstari og betur klædd og betur
fædd en áður, skuli dynja á okkur
sú manndráps- og hryðjuverka-
alda, sem gengur yfir hinn vest-
ræna heim. Okkur verður fyrst
f'yrir að benda á sjónvarpið. Þar er
hinn grái og grimmilegi leikur
háður kvöld hvert í skemmtunar-
skyni. Einnig þar sem aðsóknin er
húsbóndinn - kvikmyndahúsun-
um. Einhver tímann komst í tísku
að drepa menn í sjónvarpsleikjum.
Þessi manndráp urðu að lokum
svo alvanaleg, að ekkert mál var
að vinna verkið í alvörunni, né að
það snerti svo mjög við samvisku
almennings.
Indriði G. Þorsteinsson
SJÓNVARPÁ
LAUGARDEGI
Hæsta einkunn: ©
DIE WOCHE
„Það gustar af þessari mynd.“
MANNLÍF
„...viðkvæmnisleg...“ Hæsta einkunn.
TV SPEILFILM
„...myndin er bæði metnaðarfull og
vel gerð...stórkostleg leikkona..."
MORGUNBLAÐIÐ
„Leggur upp með dásamlegum
þunga...“
STERN
„Mesti leikur Arnars Jónssonar á
hvíta tjaldinu...“
DAGSLJÓS
„...frábært hlutverk fyrir Barböru
Auer... fullheppnuð leikstjórafrumraun
hjá Einari Heimissyni.“
FRAU IM SPIEGEL
Tölvuást
►MEG Ryan og Tom Hanks ætla
að leika saman á ný í endurgerð á
rómantisku gamanmyndinni „The
Shop Around the Corner“ frá ár-
inu 1939. Ryan og Hanks vöktu
hrifningu bíógesta í rómantísku
gamanmyndinni
„Sleepless in
Seattle" og er
vonað að sú
hrifning tryggi
góða aðsókn.
Það voru
James Stewart
og Margaret
Sullivan sem fóru
með aðalhlut-
verkinu í „The Shop Around the
Corner". Myndin fjallar um vinnu-
félaga í bókabúð og þeim kemur
mjög illa saman. Karlmaðurinn
gerist síöan pennavinur konunnar
undir dulnefni og hún fellur fyrir
þessum nýja yndislega vini.
„The Shop Around the Corner"
átti að gerast í Búdapest en í nýju
útgáfunni með Ryan og Hanks
verður sögusviðið Manhattan og í
stað hefðbundinna bréfaskrifta
skiptast vinnufélagarnir á skila-
boðum með tölvupósti. Titillinn
verður að öllum líkindum „You
Have Mail“.
Nora Ephron, sem leikstýrði
„Sleepless in Seattle", skrifaði
handritið að „You Have Mail“ með
systur sinni Deliu og ætlar einnig
að leikstýra. Nýja myndin kemur
væntanlega í kvikmyndahús seint
á næsta ári.
VEGAMÓTASTÍGUB 4 (BAK VIÐ LAUGAVEGSAPÓTEK) SÍMI 511 3040 • OPIÐ VIRKA DAGA TIL KL. 01 OG TIL KL. 03 UM HELGAR